Dagblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 19
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978.
19
Iþróttir
Breiðholtsbúar!
Leitið ekki langt yf ir skammt
Fjölbreytt úrval jólagjafa hjá okkur,
Töskur alltísportiö
Skór
Æfingagallar Leikföng í úrvali.
Bolir + Buxur td. spil, margar gerðir,
o. fl. o. fl. bílabrautir + fylgihl.,
Candy dúkkur
Trébílar
Tuskudúkkur
o. f L o. fl. o. fl.
HOLASPORT LOUHÓLAR 2-6. SÍMI 75020.
HALLUR
SÍMONARSON
HÉR ER ÞAD — Sambyggða klukku- og út-
varpstækið með vekjaraklukku sem nær i
þig inn i draumalandið.
Vekur annað hvort með bjölluhringingu
eða útvarpi.
Útvarpið hefur 3 bylgjur, LB. MB. og FM.
Þú getur sofnað út frá útvarpinu, því það
slekkur á sér sjátft eftir 59 mínútur.
Komdu og skoðaðu Royal-verðlaunavekjarann.
Stærð: 300 x 155 x 94 mm.
Gott verð, kr. 33.795.-
ARMÚLA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVÍK
SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF 1366
Gjafavörim
miklu
úrvali
nýkomnar
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
HiNATDNE
ROYAL—VERDLA UNAVEKJARINN
íþróttir
íþróttir
ÁLAFOSS-
BÚÐIN
Vesturgötu
2
Sími 13404
latnræoi meo ryiKi og
ÍR og stigunum deilt!
— ÍR — Fylkir 19-19 í 1. deild í Laugardalshöll í gær
Fyrrum landsliðseinvaldur Englands I knatt-
spyrnunni, Don Revie, var i gær dæmdur I tlu
ára bann frá brezku knattspyrnunni af enska
knattspyrnusambandinu. Það skaut málinu
.ekki til FIFA, alþjóðaknattspyrnusambands-
ins, til að fá Revie dæmdan frá knattspyrnu
alveg cins og skeði með George Best á dögun-
um. Revie hætti sem landsliðseinvaldur enskra
i fyrra og átti þá eftir tvö ár að samningi sinum
við enska knattspyrnusambandið. Hljópst
skyndilega á brott, þegar hann fékk gylliboð
frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum upp
á 340 þásund sterlingspund — eða hátt í 220
milljónir islenzkra króna. Margur hefur fallið
fyrir minna.
■ Þá dæmdi enska knattspymusamhandið
Alan Ball, fyrrum heimsmeistara í knatt-
spyrnu, i 3000 sterlingspunda sekt — tæpar
tvær milljónir króna — en Ball, sem nú leikur
með Southampton eftir glæsilegan feril með
Blackpool, Everton og Arsenal, viðurkenndi
að hafa þegið peninga frá Revie, þegar Revie
var framkvæmdastjóri Leeds en Ball leik
maður hjá Blackpool. Revie reyndi með þvi að
freista þess að fá Ball til sin. Það tókst þó ekki.
Ball gerðist leikmaður hjá Everton og lék með
því liði hér á landi í Evrópuleik við Keflvik
mga 1970.
'Ensku blöðin tóku banni knattspyrnusam-
bandsins gagnvart Revie heldur illa i morgun.
Nokkur bjuggust við því að Revie mundi setja
máliðidöm.
Fyrirsögn i Daily Express var: „Revie bar-
inn’’ og þar sagði í grein: „Revie hlaut enga
miskunn hjá enska knattspyrnusambandinu”.
Daily Mail sagði: „Revie verður að leita til
dómstólanna þvi hann getur ekki áfrýjað
þessu máli. Bannið bindur raunverulegaendaá
möguleika hans i enskri knattspyrnu”. Frank
Clough hjá Sun var harðorður í garð enska
knattspyrnusambandsins. Skrifaði að Revie
hefði vissulega hagað sér illa „en allt og sumt
sem hann gerði var að leita sér að nýrri vinnu, |
þegar það var orðið greinilegt að yftrmenn ‘
hans voru ekki of ánægðir með hann”.
Ferill Revie með enska landsliðið var ekki
glæsilegur. Hann verður sextugur, þegar
bannið upphefst, og á þeim aldri hafa menn
litla sem enga möguleika að fá atvinnu í enskri
knattspymu. Eftir bannið í gær hélt Revie til
Dubai. Hann sagði við brottförina frá Lund-
únum: „Ég hef rætt við lögfræðinga mína um
bannið og næstu leiki okkar. Ég mun algjör-
lega fela þeim að taka ákvörðun um framhald-
ið.”
Reykjavíkurfélögin ÍR og Fylkir
gerðu jafntefli 19—19 i 1. deild íslands-
mótsins I handknattleik i Laugardalshöll
i gærkvöldi. Mikið jafnræði var með
liðunum og jafntefli sanngjörn úrslit.
Spenna i lokin en Sigurður Svavarsson
jafnaði úr vitakasti i 19—19 fyrir ÍR,
þegar rúmar fimm minútur voru Ul leiks-
loka. Næstu minútur hvorki gekk né rak
hjá liðunum —ÍR-ingar lengstum með
boltann og þegar ein minúta var til leiks-
loka var einum leikmanna Fylkis, Einari
Einarssyni, vikið af velli. Möguleikar
ÍR-inga á sigri voru því miklir — en þeir
fóru sér hægt áfram. Dæmd leiktöf á þá
— og Fy lkismenn brunuðu upp. Gunnar
Baldursson átti gott skot á mark ÍR en
Jens Einarsson, landsliðsmarkvörður,
sem hafði verið langt frá sinu bezta I
lciknum, varði með tilþrifum. Jafntefli
þvi staðreynd.
ÍR-ingar vildu fá þessum leik frestað
vegna þess að 3 leikmenn liðsins höfðu
fyrr um daginn verið í prófum í há-
skólanum — og lagt hartað sér dagana á
■ undan. Mótanefnd varð ekki við þeim
tilmælum — og hafði auðvitað mikið til
sins máls.
Fylkir byrjaði betur i leiknum.
Skoraði tvö fyrstu mörkin en ÍR jafnaði
í 2—2 og siðan mátti sjá allar jafnteflis-
tölur upp i 5—5. ÍR-ingar komust þá
tveimur mörkum yfir, 7—5, en á eftir
Jylgdi mjög slæmur kafli hjá liðinu. Það
skoraði ekki mark i 13. mín. Fylkir
komst yfir í 9—7 en rétt fyrir hléið
minnkaði Bjami Bessason muninn í 9—
8.
Siðari hálfleikur var mjög jafn. Allar
jafnteflistölur frá 9—9 upp í endanlegu
úrslitin 19—19 og liðin skiptust á um
forustuna. Jafnara gat það ekki verið —
og úrslitin eðlileg. Synd ef annað hvort
liðið hefði tapað þessum leik.
Fylkir er í framför og mörk Péturs
Bjarnasonar verða stöðugt sterkari hjá
SEX FRÁ ÚRSUTA-
LEIK HM 74 MEÐ
— þegar Vestur-Þjódver jar og
Hollendingar leika landsleik í kvöld
Vestur-Þjódverjar og Hollendingar
leika vináttulcik I knattspyrnu i Diissel-
dorf i kvöld. Aðeins sex þeirra leik-
manna, sem léku úrslitaleikinn i heims-
mcistarakcppninni 1974, verða með i
kvöld, Reiner Bonhof og Sepp Maier hjá
Þjóðverjum. Maier byrjar ekki í mark-
iniL iHjá Hollendingum Necskcns, Rep,
Janscn og Kroll. Þá er Rijsbcrgen í hol-
lenzka landsliðshópnunt en litlar likur
taldar á að hann leiki I kvöld.
1 úrslitaleik þessara landa 1974 sigr-
uðu Vestur-Þjóðverjar 2—1 eftir að
Neeskens hafði skorað fyrir Holland úr
vítaspyrnu á 2. mín. leiksins.
Þjálfarar liðanna tilkynntu liðsskipan
sína í gærkvöld. Þýzka liðið verður
þannig skipað: Burdenski, Zewe, Kaltz,
Bonhof, Dietz, Stielike, Cullmann, All-
ofs, Abramczik, Fischer og Rummen-
igge. Varamenn Maier, Zimmermann,
Föster, Russmann, Toppmöller og
Borchers.
Holland: Schrijvers, Krol, Poortliet,
Brandts, Hovenkamp, Jansen, Neesk-
ens, Willy van der Kerkhof, La Ling,
Rep, Koster. Varamenn: Doesburg,
, Rijsbergen, Wildschut, Metdo og
Vermeulen.
Holland er án fjögurra landsliðs-
manna, sem leika með Anderlecht,
Rensenbrink, Geels, Dusbaba og Haan.
Allir aðgöngumiðar, 68 þúsund, hafa
verið seldir.
Varamenn Liverpool skoruðu
tvívegis en það nægði ekki
— Anderlecht f rá Briíssel sigraði í stórbikar Evrópu í knattspyrnunni þrátt fyrir tap í Liverpool
lliMIUM
á AnHeld í gær 2—1 en sigur 1 fyrri
leiknum í Briissel 3—1 færði belgiska
liðinu sigur samanlagt 4—3. Anderlccht
er handhafi Evrópubikars bikarhafa —
sigraði i þeirri keppni i vor og einnig
1976 — en Liverpool hefur tvö siðustu
árin verið sigurvegari i Evrópubikarnum
— keppni meistaraliða, og því Evrópu-
mcistari félagsliða.
Emlyn Hughes, fyrrum fyrirliði Liver-
pool, lék með liði sínu á ný vegna
meiðsla Alan Kennédy og það var
hann, sem náði forustu fyrir Liverpool á
13. minútu. Aðstæður voru hinar erfið-
ustu á Anfield — leikurinn byrjaði
stundarfjórðungi of seint vegna frosts og
þoku og áttu leikmenn beggja liða erfitt
meðað fótasigá frosnum vellinum. Um
tíma leit út fyrir að fresta yrði leiknum.
Leikmenn Anderlecht klæddust æfinga-
buxum til varnar.
Liverpool byrjaði betur og Hughes
skoraði eftir að markvörður Anderlecht
hafði hálfvarið skot frá Jimmy Case.
Knötturinn hrökk af honum til Hughes,
sem hafði fylgt fast eftir, og gamla
kempan sendi knöttinn í netið við gífur-
leg fagnaðarlæti áhorfenda.
En Liverpool tókst ekki að fylgja
þessu eftir og leikurinn var i jafnræði.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Brciðabliks i Kópavogi vcrður haldinn
að Hamraborg 1 (niðri) i kvöld kl. 20.30.
V enjuleg aðalfundarstörf.
Steve Ogrizovic, sem lék í fyrsta sinn á
þessu leiktímabili t marki Liverpool
vegna meiðsla Ray Clemence, varði
mjög vel frá Martens, sem hafði komið
inn sem varamaöur Hollendingsins
Ruud Geels. Hins vegar átti hann enga
möguleika að verja frá belgiska lands-
liðsmanninum Francois van der Elst á
71. min. eftir að van der Elst hafði leikið
á vörnina í samvinnu við hollenzka
landsliðsmanninn Robby Rensenbrink.
Hollendingarnir Arie Haan og Dusbaba
léku einnig með Anderlecht í gær auk
þeirra tveggja, sem áður voru nefndir.
Þeir geta því ekki leikið í hollenzka
landsliðinu, sem leikur við Vestur-Þjóð-
verja i Dusseldorf í kvöld.
Á 85. mín. tókst David Fairclough,
sem lék í stað Steve Heighway, að skora
sigurmark Liverpool — renndi knettin-
um i markið af stuttu færi. Phil Thomp-
son lék fram með knöttinn — gaf langa
sendingu á Kenny Dalglish, sem renndi
iknettinum til Fairclough „super-vara-
mannsins", sem lítið hefur leikið með
Liverpool á þessu leiktímabili. Fleiri
urðu mörkin ekki og áhorfendur í kuld-
anum á Anfield aðeins 23.598.
Liðin voru þannig skipuð: Liverpool:
Orgizovic, Neal, Hughes, Thompson,
Ray Kennedy, Hansen, Dalglish, C’ase,
Fairclough. McDermott og Souness.
Anderlecht: Munaron, van Binst. van
Toom, Dusbaba, Thissen, Vercauteren.
van der Elst. Geels (Martens), Haan.
Coeck og Rensenbrink.
Belglska stórfélagið Anderlecht frá
Brussel — með fjóra hollenzka lands-
liðsmenn I sínum röðum — sigraði i stór-
bikar Evrópu i knattspyrnunni i gær.
Tapaði þó síðari leik sinum við Liverpool
Janus fer ekki
tii Standard
Janus Guðlaugsson, landsliðsmaður-
inn kunni i knattspyrnunni hjá FH, mun
ekki gerast atvinnumaður með belgiska
félaginu, Standard Liege — liðinu, sem
Ásgeir Sigurvinsson leikur með. Janus
gat komizt á samning hjá félaginu i stutt-
an tima — eða út þetta leikár en hafði
ekki áhuga á þvi.
Framkvæmdastjóri og þjálfari Stand-
ard fóru miklurn viðurkenningarorðum
um Janus — sögðu hann sterkan leik-
mann og persónuleika. Hins vegar eru
þeir að leita eftir sóknarmönnum en hafa
talsvert úrval leikmanna í varnar- og
framvarðastöður. Á þessu stigi málsins
verður þvi ekkert af samningi hjá Stand-
ard og Janusi.
Að því er DB hefur frétt mun Ásgeir
Sigurvinsson engan veginn sáttur við
þessi málalok — og að einhverju leyti
munu forráðamenn Standard hafa geng-
ið á bak orða sinna I þessu máli.
Hinn 30. desember næstkomandi er
lokadagur hjá belgisku félögunum að
ráða til sin leikmenn, sem mega leika
með liðunum á þessu leikttmabili. Hvort
La Louviere endurnýjar tilboð sitt til
Janusar á eftir að koma á daginn. Félag-
ið hefur þegar ráðið þá Karl Þórðarson
og Þorstein Bjarnason til sin — og á
bókum félagsins er enn einn útlendingur,
Þjóðverji, sem leikur i framlínunni. Með
belgisku liðunum mega þrír erlendir leik-
menn leika — en eftir að leikmenn hafa
leikið fimm ár I Belgiu tcljast þeir ekki
lengur til útlcndinga.
-hsim.
B-lið Vestur-Þjóðverja i knattspyrn-
unni sigraði B-lið Hollands 2—1 (1—1) 1
leik i Bochum í Vestur-Þýzkalandi í gær.
ísrael og Rúmenia gerðu jafntefli i
landsleik I knattspyrnu í Tel Aviv i gær.
Lokatölur 1—1 (0—0). Malmillian skor-
aöi fyrir ísrael en Stann jafnaði á 78.
mínútu. Áhorfendur voru lOþúsund.
íþróttir
REVIE SETTUR í TÍU ÁRA BANN
í BREZKU KNATTSPYRNUNNI!
—og Álan Ball var dæmdur í3000 sterlingspunda sekt
leikmönnum þess. I heild einn bezti
leikur liðsins i deildinni. Gunnar
Baldursson var mjög ógnandi og sama er
að segja um Einar Einarsson. Jón
Gunnarsson varði markið með
tilþrifum. Stefán Hjálmarsson er
skemmtilegur hornamaður og Sigurður
Símonarson seigur á línunni.
Hjá ÍR vakti ungur piltur, Bjarni
Bjarnason, hvað mesta athygli — fljótur
og skotharður. Mikið efni en var ekki
nógu mikið inn á. Nafni hans Bessason
lék sinn bezta leik í mótinu hingað til en
á óvart kom hve vörn lR opnaðist oft
illa. Markvarzla Jens Einarssonar varð
eftir þvi — hann var ekki sjálfum sér
likur að þessu sinni. Það kom sér illa
fyrir ÍR-inga því Jens hefur verið áber-
andi bezti leikmaður liðsins í móti., t
Mörk ÍK skoruðu Bjarni Bessason 6,
Guðjón Marteinsson 3, Brynjólfur
Markússon 3/1, Bjarni Bjarnason 2,
Sigurður Gislason 2, Sigurður Svavars-
son 2/2 og Guðmundur Þórðarson eitt.
Mörk Fylkis skoruðu Gunnar Baldurs-
son 8/3, Einar Einarsson 4, Einar
Ágústsson 2, Sigurður Símonarson 2,
Jón Ágústsson, Kristinn Sigurðsson og
HalldórSigurðssoneitt hver.
Dómarar voru Gunnar Steingrimsson
og Hjálmur Sigurðsson. j leiknum fékk
Fylkir 6 víti — skoraði úr þremur, og
mark upp úr einu þeirra. ÍR fékk fimm
víti — tvö misnotuð. Einum leikmanni
úr hvoru liði var vikið af leikvelli.
Staðan eftir leik ÍR og Fylkis i gær í
1. deild Íslandsmótsins i handknattlcik
ernúþannig: -
Víkingur 7 5 1 1 159-143 11
Valur 5 4 1 0 99—84 9
FH 6 4 0 2 120—102 8
Haukar 7 3 0 4 146—145 6
Fram 7 3 0 4 139-152 6
ÍR 7 2 1 4 124—136 5
Fylkir 7 1 2 4 126-135 4
HK 6 1 1 4 106—122 3
Valur á eftir að leika tvo leiki í fyrri
umferðinni — gegn HK og FH. Leik
Vals og HK, sem vera átti i Laugardals-
höllinni annað kvöld, hefur verið frestað
að ósk Valsmanna. Mikið álag hefur
verið á leikmönnum liðsins að undan-
förnu. Leikur Vals og FH er fyrsti
leikurinn á skrá eftir áramótin -hsím.
Teitur Þórðarson á ritstjórn DB i gær.
DB-mynd Kagnar I h. Sigurðsson.
OSTER LEIKURI
KÍNA OG BRASILÍU
—Teitur Þórðarson kominn heim í jólafrí
eftir keppnisför til Jamaíka
„Það hefur haft geysilega þýðingu fyrir Öster að
verða sænskur meistari i knattspyrnu. Ýmiskonar
boð hafa strcymt til félagsins. Við erum nýkomnir úr
kcppnisför til Jamaika — og 24. janúar verður
haldið til Kína. Þar leiknir þrir til fjórir leikir — og
áður en keppnistfmabilið hefst i apríl í Sviþjóð
verður önnur glæsifcrð farin. Nokkrir leikir háðir i
Brasilíu svo við hjá Öster ættum að vera mjög vel
undirbúnir fyrir næsta keppnistímabil,” sagði Teitur
Þórðarson. þcgar DB ræddi við hann i gær. Teiturj
er nýkominn heim i jólafrí og verður hér til sjötta
janúar. Þá hefjast æflngar aftur hjá Öster. Sem
kunnugt er varð Teitur sænskur meistari með félag-
inu á síðasta leiktimabili — fyrsti erlendi lcikmaður-
inn, sem verður mcistari i knattspyrnu i Sviarfki.
Þriðji íslendingurinn, sem verður meistari með er-J
lendu félagi. Albert Guðmundsson varð mcistari i
þremur löndum, Italiu, Frakklandi og Skotlandi og
Jóhannes Eðvaldsson hefur orðið skozkur meistari.
Teitur leit vel út í gær — hress og kátur og sól-
brúnn og fannst heldur kalt á ístandi. Skiljanlegt
eftir að vera nýkominn úr sólinni í Karabiska haf-
inu. öster lék tvo leiki á Jamaíka.
„Þessi keppnisför var verðlaun til leikmanna Öst-
er fyrir að hljóta sænska meistaratitilinn. Við fórum
fyrst ásamt eiginkonum okkar og unnustum til New
York og vorum i fjóra sólarhringa þar. Síðan var
haldið til Jamaika og leiknir þar tveir leikir. Öster
sigraði í báðum 4—1 og 4—0,” sagði Teitur enn-
fremur og það var ekki fyrr en við höfðum spurt
hann í þaula að það koma í ljós. að Teitur skoraði
fjögur mörk i þessum leikjum — eða helming marka
öster.
„Það hefur verið mikið um að erlend félög sæktu
eftir sænskum leikmönnum í haust og vetur. Eink
um frá belgísku félögunum og nokkrir leikmenn
hafa farið til Belgiu. Litið hefur þó verið um að þeir
hafi gerzt atvinnumenn þar enda búa sænskir knatt-
spyrnumenn yfirleitt við góð kjör hjá sínum félög
um. Við höfðum frétt að belgisk og hollenzk félög
hefðu áhuga á Teiti — en hann vildi ekkert um það
ræða á þcssu stigi. Hins vegar eru líkur á þvi að
fyrirliði öster, Hakon Arvidsson, gerizt leikmaður
hjá bandariska félaginu Fort Lauderdale á Florída.
þar sem Gordon Banks og aðrir frægir kappar leika.
Bandaríska félagið hefur boðið Arvidsson um eina
milljón sænskra króna — eða um 75 milljónir ís
lenzkra króna. Það er allt stórt í sniðum hjá Banda
rikjamönnum.
Teitur var á hraðferð í gær — í ýmsu að snúast)
Reykjavik áður en haldið var upp á Akranes aftur
Þar dvelst Teitur og fjölskylda hans um jólin og ára
mótin — en siðan haldið aftur til Sviþjóðar og glæsi
ferðir til Kína og Brasilíu framundan.