Dagblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978. 35 wí'tH"'*; Jólagjöfin hans er gjafakassi frá Heildverilun ‘^étur^éturóóon k/\ Suðurgata 14 Símar 2-10-20 og 2-51-01 skrauti ogjólapappír sem engmn annar ermed ÚR SKÓLALÍFINU - útvarp í kvSld kl. 20.05: Menntaskólinn á Lauuarvatni. Er drukkið meira á Laugar- vatni en annars staðar ? MUHÚBIO Laugavegi 178 — Sími 86780 (næsta hús við Sjónvarpið) „Loksins létum við verða af því að fara út á land og byrjum á þvi að fara á Laugarvatn. Þaðan er Menntaskólinn kynntur,” sagði Kristján E. Guðmunds- son menntaskólakennari um þáttinn Úr skólalífinu sem er á dagskrá útvarpsins i kvöld. „Fjallað verður um félagslíf nem- enda. bæði iþróttalif og skemmtanalíf. Laugarvatnsskólinn er að þvi leyti sér- stakur að hann er eini hreini heima- vistarmenntaskólinn á landinu. Á Akur- eyri og Ísafirði eru að visu heimavistir en nemendur búa einnig i bæjunum sjálfum. Slíkt er nær óþekkt á Laugar- vatni. Vegna þessa hafa myndazt ýmsar sérkennilegar venjur og siðir á Laugar- vatni sem hvergi finnast annars staðar. Ég fæ nokkra nemendur þaðan til þess að greina mér frá þessum venjum. Við tölum einnig um þann kostnað sem fylgir því að vera i heimavistarskóla og kosti þess og galla. Ég varpa fram spurningu sem ofl hefur heyrzt, um hvort drukkið sé meira á Laugarvatni en í öðrum framhalds- skólum. Það telja nemendur fráleitt. Hins vegar beri meira á þvi þegar 200 manns séu samankomnir allan sólar- hringinn. Þetta er eflaust rétt hjá þeim,” sagði Kristján. - DS Smurbrauðstofan BJORNINN Njátsgötu 49 - Simi 15105 GULLGRAFARARNIR - sjónvarp í dag kl. 18.05: HITTIR FURÐUFÓLK í LEITINNIAÐ PABBA Nýr myndaflokkur fyrir börn og ungl- inga hefst í dag i sjónvarpinu. Kemur hann alla leið frá andfætlingum okkar á Nýja Sjálandi og nefnist Gullgrafar- arnir. Sagt er frá drengnum Scott sem dvelur hjá frænku sinni og frænda þar eð faðir hans er i gullleit. Þegar faðirinn kemur ekki á fyrirfram ákveðnum tima aftur fer Scott að gruna að ekki sé allt með felldu. Þegar svo ferðakoffort föðurins kemur með eigum hans í er strákur viss um að eitthvað hafi komið- fyrir. Hann ákveður þvi að taka sér ferð á hendur i leit að föður sinum. Scott reynir að komast sem laumufar- þegi nteð birgðalest sem er á leið til gull- graftarsvæðanna. Á þvi ferðalagi kynn- jst hann ýmsu skritnu fólki. Meðal ann- ars ræningjum, Kinverjum og töfra- manni. Scott er leikinn af dreng að nafni Andrew Hawthorn. Myndaflokkurinn um hann er i þrettán þáttum og hefur Jóhanna Jóhannsdóttir þýtt þá. - DS Andrew Hawthorn l hlutverki Scotts.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.