Dagblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 34

Dagblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 34
-salur Dagur höfrungsins Skemmtileg og spennandi bandarísk Panavisionlitmynd með George C. Scott og Trish van Devere Islenzkur texti Endursýnd kl. 3,5,7,9 og 11. salur Makleg málagjöld Afar spennandi og viðburðarík litmynd, meðCharles Bronson og Liv Ullmann. Islenzkur texti. Bönnuðinnan 14ára. Endursýnd kl. 3,05, 5,05, 7,05, 9.05 og 11,05. 'Salur C Kóngur í New York 'r*«- Sprenghlægileg og fjðrug ádeilukyik-l mynd, gerð af Charlie Chaplin. — Ein-! hver harðasta ádeilumynd sem meistari' Chaplin gerði. Höfundur, leikstjóri og aðalleikari: Charlie Chaplin. Sýndlkl. 3,5, 7,9 og 11. solur Varist vætuna Sprenghlægileg gamanmynd með Jackie Gleason. ' lslenzkur texti. Endursýnd kl. 3.15 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978. í GAMLA BÍÓ »mlU47B; Arnarborgin Hin fræga og vinsæla kvikmynd. Endursýnd kl. 5 og 9. íslenzkur texti. Bönnuðinnan 14ára. D 1 HAFNARBIO I Jólamynd 1978 Tvær af hinum frábæru stuttu myndum meistara Chaplins sýndar saman: AXLIÐ BYSSURNAR og PÍLAGRÍMURINN Höfundur, leikstjóri og aðalleikari: Charlie Chaplin Góðaskemmtun. Sýnd kl. 5,7,9og 11. Kvikmyndir AUSTURBÆJARBlÓ: Klu Klux Klan sýnir klæm- ar, aöalhlutverk Richard Burton og Lee Marvin, kl. 5, 7 og 9, bönnuð innan 16 ára. GAMLA BÍÓ: Sjá auglýsingu. HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu. HAFNARFJARÐARBÍÓ: Hryllingsóperan (The Rocky horror picture show) kl. 9. HÁSKÓLABÍÓ: Himnaríki má bíða kl. 5, 7 og 9. Hækkað verð. LAUGARÁSBÍÓ: Jólamyndin 1978. Ókindin önnur kl. 5,7.30 og 10. Bönnuð innan 16 ára. NÝJA BÍÓ: Þrumur og eldingar, kl. 5,7 og 9, bönnuí innanMára. REGNBOGINN: Sjá auglýsingu. STJÖRNUBÍÓ: Ævintýri popparans, aðalhlutverk Robin Askwith, Anthony Booth, Sheila White, kl. 7,9 og 11, bönnuð bömum. Við erum ósigrandi kl. 5. TÓNABÍÓ: Þrumufleygur og léttfeti, aðalhlutverk, Clint Eastwood, Jeff Bridges, George Kennedy, kl. 5, 7.10og9.20. Verður þú ökumaður ársins 9 Aukin tillitssemi bætir umferðina UMFERÐARRÁÐ Dagblað , án ríkisstyrks Það lifi (S Útvarp Sjónvarp Sjónvarp í kvöld kl. 20.40: Eins og maðurinn sáir hættir Ræturnar koma í staðinn Síðasti þáttur myndaflokksins Eins og maðurinn sáir er í sjónvarpinu í kvöld. Þann 3. janúar kemur ekki síðri mynda- flokkur hans í stað. Það eru Ræturnar (Roots) sem gerður er eftir sögu Alex Haleys. 1 síðasta þætti flokksins Eins og maðurinn sáirvar greint frá ört fallandi stjörnu Henchards. Verður hann sér til skammar með ölæði er Albert prins er væntanlegur til bæjarins. Óvart verður Henchard til þess að taka Lucettu með sér í fallinu er ástarbréf hennar komast i hendur almennings. Deyr hún af skömm að lokum. Newton sem raunverulega var faðir Elisabeth-Jane skýtur óvænt upp kollin- um og hyggst finna dóttur sina. Henchard segir hana dána og Newton snýr við. Henchard hyggst fyrirfara sér en hættir við á síðustu stundu. Framhaldsmyndaflokkurinn Rætur hefur valdið miklu umtaii i Bandaríkjun- um þaðan sem hann kemur. 1 honum er saga negranna þar í landi sögð frá sjónarhóli þeirra. Aðalpersónan er Kunta Kinte Afríkumaður sem fluttur er til Bandaríkjanna sem þræll. Saga fjölskyldu hans er rakin í 7 ættliði af Alex Haley, höfundi sögunnar. Alex er núna 57 ára og býr i Holly- wood. Hann er þekktur vestra sem blaðamaður og rithöfundur og sú vinna sem hann lagði í að grafa upp sögu fjöl- skyldu sinnar hefur tryggt orðstír hans ævilangt. í bók sinni lýsir Alex hverju skrefi þessarar leitar að uppruna sínum, D Kunta Kinta, aðalpersónan 1 Rótum. meðal annars ferðum sem hann tók sér á hendur inn í frumskóga Afríku. Myndaflokkurinn Ræturnar er í 10 þáttum en upphaflega bókin er 800 síður í vasabroti og með smáu letri. Þykir því líklegt að einhverju hafi verið sleppt. - DS » Alex Haley, höfundur bókarinnar Roots. RÚMENÍA — sjónvarp í kvöld kl. 21.40: Hvað bíður Rúmena reiðist Rússar meira? Brezk mynd um lifskjör og framtiðar- horfur í Rúmeniu er á dagskrá sjón- yarpsins í kvöld. Þýðandi og þulur með myndinni er Jón O. Edwald. Eins og flestum mun kunnugt af fréttum valda forystumenn Rúmena Rússum nú auknum áhyggjum. Ceausescu forseti neitar að leggja fram það fé til Varsjárbandalagsins sem Rúss- ar krefja hann um og býður á svipuðum tima Hua Kuo Feng heim og fer sjálfur að finna Carter Bandaríkjaforseta. Carter sendi einnig Blumenthal fjár- málaráðherra sinn austur til Rúmeníu. Þessi hegðun Ceausescu hefur valdið mönnum á Vesturlöndum vaxandi furðu þar sem stefna hans gengur i al- gjört berhögg við stefnu móðurveldisins í austri. Nýlega var haldinn Natófundur þar sem þessi deila var rædd og reynt að fá upp hvað eiginlega væri um að vera eystra. En eins og oft áður verða getgát- urnar að nægja. - DS Ceausescu forseti Rúmcniu við Niagara- fossa er hann heimsótti Bandarikin og Kanada nýlega. Útvarp Miðvikudagur 20. desember 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.20 Lltll bamatiminn. Finnborg Scheving stjórnar. 13.40 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Blessuð skepnan” eftir James HerrioL Bryndís Vlglundsdóttir les þýðingu sina(19). 15.00 Miðdegistónleikan Adrian Ruiz leikur pianóverk eftir Christian Sinding/Itzhak Perl- man og Vladimír Ashkenazý leika Sónötu nr.1 1 I f-moll fyrir fiðlu og píanó op. 80 eftir Pro- koffjeff. 15.40 íslenzkt mái. Endurtekinn þáttur Ásgeirs Bl. Magnússonar frá 16. þ.m. ‘16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn- ir). 16.30 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 (Jtvarpssaga barnanna: „Skjótráður skip- stjðrl” eftir Ragnar Þorsteinsson. Björg Áma dóttir les (3). 17.40 Á hvitum reitum og svörtum. Guðmundur Arnlaugsson flytur skákþátt og efnir til jóla- getraunar meðal hlustenda. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaaukl. Tilkynningar. 19.45 Einsöngun Rut L. Magnússon syngur lög eftir Jakob Hallgrimsson og Hjálmar H. Ragn- arsson. Jónas Ingimundarson leikur á pianó, Jósef Magnússon á flautu og Pétur Þorvalds- son á selló. 20.05 0r skólaUfínu. Kristján E. Guðmundsson stjórnar þættinum. 20.35 Útvarpssagan: „Fljótt fljótt, sagði fugl- inn” eftir Thor Vilhjálmsson. Höfundur les (25). 21.00 Djassþáttur í umsjá Jóns Múla Ámason- ar. 21.45 íþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá. 22.05 Norðan heiða. Magnús Ólafsson á Sveins- stöðum i Þingi sér um þáttinn og talar við nokkra Skagfirðinga. Orð kvöldsins á jólaföstu. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. 22.50 Úr tónlistarlifínu. Knútur R. Magnússon sér um þáttinn. 23.05 Ljðð eftir Þorstein Valdimarsson. Þórar- inn Guðnason læknir les. 23.20 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson, kynnir. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sjónvarp D Miðvikudagur 20. desember 18.00 Kvakk-kvakk. 18.05 Gullgrafararnir. Nýsjálenskur mynda- flokkur í þrettán þáttum. Aðalhlutverk Andrew Hawthom. Fyrsti þáttur. Faðir Scotts starfar i guUnámu í öðrum landshluta. Þegar hann kemur ekki heim á tilsettum tima þykist Scott viss um að eitthvað hafí komið fyrir. Hann ákveður þvi að leita að föður sínum og á leiðinni lendir hann I margvíslegum ævintýr- um. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.30 Könnun Miðjarðarhafsins. Þriðji þáttur. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 18.55 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 „Eins og maðurinn sáir”. Sjöundi þáttur. Sögulok. Efni sjötta þáttar: Albert prins er væntanlegur I heimsókn til Casterbridge. Henchard krefst þess að fá að bjóða prinsinn velkominn, en því er hafnað. Jopp les ástarbréf Lucettu á kránni. Tilheyrendur ákveða að refsa þeim Henchard með því að efna til smán- argöngu, bg verður Lucettu svo mikið um, að hún deyr. Henchard truflar móttökuathöfn Alberts prins, og Farfrae leggur á hann hendur. Henchard hyggst hefna sln, en þegar á hólminn er komið þyrmir hann lifi Farfrae. Newson, faðir Elisabeth-Jane, birtist óvænt og hyggst finna dóttur sína. Henchard segir hana látna, og fer Newson leiðar sinnar við svo bú- ið. Henchard hyggst fyrirfara sér, en hættir við á síðustu stundu. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. 21.40 Rúmenia. Bresk mynd um lífskjör og fram- tíðarhorfur I Rúmeníu. Þýðandi og þulur Jón i O. Edwald. ‘ 22.20 Vesturfararnir. Áttundi og síðasti þáttur. Siðasta bréfið til Svíþjóðar. Þýðandi Jón O. Edwald. Áður á dagskrá í janúar 1975. (Nord- vision). 23.10 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.