Dagblaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 1
 íriálst úháð dagblað RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAROG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022. I ! 5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRtlAR 1979 — 38. TBL. „Hart er i ári,” hugsaði kisi, þegar hann rölti í gser frá Alþingishúsinu suður klakabrynjað Templarasundið, „efnahagstil- lögur Ólafs óaðgengilegar og ég tala ekki meira við þessa menn” — en þó ber hann skottið að alþingismanna sið, auðvelt er að grípa I það, snúa honum og lokka til baka með loforði um volga mjólkurskál eða nýjar efnahagstillögur. Ekki berum við kennsl á köttinn en miðað við stjórnmálastöðuna nú mun hann liklegast tilheyra Alþýðubandalaginu. -GS/DB-mynd R.Th. ..... .......... Verðlaunahaf inn í getraunaleik DB og Vikunnar „Hvað veiztu um tónlist?” Dreymdi tvisvar fyrir því að hún myndi sigra -sjáPOPPábls. 15 Safamýrarmálið: 48 manns í yf irheyrslu — en fátt eða ekkert nýtt komið fram Alls hafa 48 menn og konur verið yfirheyrð í sambandi við Safamýrar- málið svonefnda. Pilturinn, er var hjá Sunnu Hildi Svavarsdóttur, er lögregl- an var kvödd í Safamýrina hina ör- lagaríku nótt, heldur fast við sinn fyrsta framburð. Neitar hann afdrátt- arlaust að hafa barið stúlkuna, en viðurkennir að hafa hrint henni. Þeir sem yfirheyrðir hafa verið voru á einhvern hátt í samvistum við Sunnu Hildi og piltinn, sem enn situr í gæzluvarðhaldi, kvöldið áður og um nóttina er atburðirnir gerðust. Njörður Snæhólm yfirlögreglu- þjónn sagði að verið væri að ganga frá málsskjölum, sem siðan færu til sak- sóknara. -ASt. -----------------------------\ Vinna lögð á vogarskálar — kjallaragrein Konráðs G. Eggertssonar um rækjuveiðar á innfjörðum — bls. 11 „Átak í orkusparnaði” — sjá bls. 8 Engin ástúð í einkastríðinu Einkastríð Olafs Ketilssonar við yfirvöld heldur áfram. Skólanemendur virðast heldur vilja fara með Ólafi en Sérleyfisbllum Selfoss, sem fengu sér- leyfið til Laugarvatns eftir að það var tekið af Ólafi. Ólafur þarf nú hópferðar- leyfi fyrir hverja ferð, en fær það leyfi ekki alltaf að sögn Steinþórs Ólafssonar eftirlitsmanns. Á mánudagskvöld fór Ólafur með þrjá fulla bíla til Laugarvatns og kom eftirlitsmaöurinn þá á vettvang þar sem hann taldi um klárt lögbrot að ræða. Hér má sjá þá Steinþór og Ólaf fyrir framan einn bíla Ólafs og virðist svo sem eitthvað annað en ástúð skíni úr augum þeirra. - JH / DB-mynd Ragnar Th. ífnahagsfrunivarí> Ólafs — sjá bls. 5 Ekkert sam- komulag á næstunni — segir Ragnar Mjög hlynntir frumvarpinu — segir Benedikt Venjuleg látaíæti — segir Ellert Getur tekið breytingum — segir Ólafur 15-20% HÆKKUN OLIU IÞESSUM MANUÐI „Væntanleg fyrsta hækkun á olíu og bensíni mun nema 15—20% og skella yfir fyrir enda þessa mánaðar,” sagði Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra í viðtali við Dagblaðið í morgun. „Það eru þó hreinir smámunir í samanburði við það, sem á eftir kemur.” Svavar sagði, að nefnd sú, sem skipuð hefði verið fulltrúum þriggja ráðuneyta, sjávarútvegs, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta, hefði skilað tillög- um sinum á ríkisstjórnarfundinum i gærmorgun. „Það var ákveðið, að leyfa þeirri hækkun, sem er i kerfinu að koma fram, og að ekki þyrfti að grípa til niðurgreiðslna á olíum ennþá,” sagði Svavar. „Þetta bitnar hvað harðast á útgerðinni og á þeim, sem kynda með olíu og í þvi sambandi má benda á, að olíustyrkur var hækkaður um 50% um áramótin. Við glimum hins vegar við mikinn vanda og höfum rætt möguleikana á því að ákveða krónu- tölu i skatt af bensíni, en ekki prósentu eins og verið hefur.” - HP — smamunir miðað við það semáeftir kemur, segir viðskipta- ráðherra

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.