Dagblaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979.
7
Má komasthjá olíu-
kreppu ef vinnsla
hefst skjótt f íran
Oliusérfræðingar í London telja að
komast megi hjá endurtekinni olíu-
kreppu í heiminum ef hin nýja rikis-
stjórn í Iran bregður við skjótt og
kemur olíuvinnslu þar í landi aftur af
stað. Telja þeir að endurreisn olíu-
iðnaðarins hljóti að verða mikilsverð-
asta fnál hinnar nýju stjórnar. Á ann-
an hátt verði efnahag landsins ekki
komið á réttan kjöl.
Olía er eina útflutningsvara írans
sem einhverju nemur. Sérfræðingarnir
telja þó að næstu tólf mánuði muni
samdráttur i hráolíuframleiðslu heims-
ins nema um það bil 6%. Þeir reikna
með að olíuframleiðsla írana geti náð
þrem milljónum fata á dag við enda
þessa árs. Er það um það bil helmingur
þess sem framleitt var fyrir verkföllin
og óeirðirnar sem hófust í haust.
James Schlesinger, orkuráðgjafi
Carters Bandarikjaforseta, sagði í gær
að kommúnistar og aðrir óeirðaseggir
réðu nú málum við íranskar oliustöðv-
ar og gætu haft í hendi sér hvort olíu-
vinnsla gæti hafizt þar á ný. Færi svo
að mikill dráttur yrði á að vinnsla
hæfist aftur væri jafnalvarleg olíu-
kreppa og á árunum 1973 og 1974
fyrirsjáanleg.
íran var áður annað stærsta oliuút-
flutningsland heimsins. Schlesinger
sagði í gær að hann væri efins i að
olíuútflutningur írans yrði nokkurn
tíma jafnmikill og í tíð keisarans.
Þegar arabaríkin stöðvuðu olíusölu
til Vesturlanda i árunum 1973 og 1974
var meðal annars gripið til þeirra ráða
að loka bensínstöðvum í Bandaríkjun-
um og víðar á sunnudögum. Jafnvel
var gripið til þess að leyfa bifreiðaeig-
endum aðeins að kaupa bensín annan
hvern dag.
Henry Jackson, öldungadeildar-
þingmaður og formaður orkumála-
nefndar þingsins, boðaði fyrir
nokkrum dögum að ekki yrði hægt að
komast hjá skömmtunaraðgerðum á
bensíni á naKtunni. Sagðist hann bú-
ast við að bensín mundi hækka upp í
einn dollara fyrir gallonið (3,8 litrar).
Ef svo fer verður það um það bil 50%
verðhækkun.
Bandaríkjamenn eru nú sagðir
vinna að því öllum árum að ná eðli-
legu sambandi við hina nýju stjórn í
íran. Ástæðan fyrir þvi er ekki ein
vörðungu olíumálin heldur er vinsam
leg afstaða stjórnarinnar i íran mikil-
væg fyrir Bandaríkin vegna legu lands-
ins.
jStjórn Bazargan forsætisráðherra sem Khomeiny trúarleiðtogi skipaði virðist
traust f sessi og heldur fyrsta fund sinn i dag. Eitt fyrsta verk hennar mun verða að
fá þá skæruliða sem með henni hafa starfað til að skila vopnum sinum. Á mynd-j
inni sést þar sem hópur stuðningsmanna Khomeinys, bæði hermenn og óbreyttir,
biða eftir að taka á móti herdeild
'ggri keisaranum, f vigi f Teheran.
mm
SB& 4
Cartcr
heimsækir
Mexíkó
Jimmy Carter forseti Bandaríkjanna
kemur í dag til Mexíkó í opinbera heim-
sókn. Bandarikjamenn renna hýru auga
til oliulinda þar I landi en talið er að olía
i Mexíkó sé mun meiri en í Saudi-
Arabíu, sem til skamms tíma var talin
olíuauðugasta ríki heims.
*
Svo virðist sem stór hluti höfuðborg-
arinnar í Chad í Mið-Afríku sé á valdi
uppreisnarmanna. Þessi fyrrum franska
nýlenda hefur logað í bardögum siðustu
sólarhringa. Franskt herlið í landinu
hefur tilkynnt að það muni ekki skipta
sér af innanlandsóeirðum.
Erlendar
fréttir
■Mb. Þristur VE-61
er til sölu. Báturinn sem er 55 tonn er smíðaður í
Danmörku 1956 — en endurbyggður 1974.
1 bátnum er:
425 hestafla Caterpillar frá 1976
10 hestafla Buch Ijósavél
64 mílna Decca radar frá 1974
6 tonna trollspil frá Héðni frá 1974
Stýrisvél frá Sharp 1974
Dýptarmælir og fisksjá frá Koden 1974
\sdic fyrir þurran pappír frá Simrad
Koden Ijósmiðunarstöð
Linuspil
Skuttog var sett á bátinn fyrir þremur árum.
Báturinn selst á matsverði, eða því sem næst, og
getur útborgun verið algjörlega i lágmarki ef um
góðar tryggingar er að ræða. Báturinn getur verið
til afhendingar strax.
EIGNAVAL SF.
SUÐURLANDSBRAUT10.
GRÉTAR HARALDSSON HRL.
SÍMAR 85650 OG 85740 ,
EIGNAVAL
auglýsirfasteignir
Brekkugerði — einbýlishús:
Höfum í einkasölu stórglæsilegt einbýlishús við Brekkugerði.
Húsið er á 2 hæðum, samtals að gólffleti 340 mJ. Falleg rækt-
uð lóð, einstakt útsýni. Möguleiki er að útbúa litla íbúð á
neðri hæðinni með sérinngangi.
Garðabær — eldra einbýlishús:
Húsið, sem er forskalað, er hæð og ris. Húsið er töluvert
endurnýjað og er um 180 m' að gólffleti. Stór falleg lóð með
miklum trjágróðri. Verð 22 millj. Möguleiki á að taka litla
íbúð upp í hluta kaupverðsins.
Hraunbær — 3ja herbergja
góð íbúð á 3. hæð. Bein sala eða skipti á 4ra herbergja íbúð i
sama hverfi.
Kóngsbakki — 3ja herbergja
íbúð með sérþvottahúsi, skipti mögulega á stærri ibúð.
Krummahólar — 3ja herbergja
mjög góð ibúð í háhýsi. Bein sala eða skipti á stærri eign.
Arnarnes — sjávarlóð
1250 m' sjávarlóðá norðanverðu Arnarnesi. Án efa sú bezta
á markaðinum.
Arnarnes — 1650 m2 lóð
við Hegranes, verð aðeins kr. 5 milljónir.
EIGNAVAL SF.
SUÐURLANDSBRAUT10.
GRÉTAR HARALDSSON HRL.
SIGURJÓN ARISIGURJÓNSSON
BJARNI JÓNSSON
SÍMAR 33510 - 85650 -85740