Dagblaðið - 14.02.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979.
9
’Homi
Menningin magnast
— nýr pulsuvagn við Laugardalslaugamar
Nýr pylsuvagn var tekinn i notkun á
laugardag, einn þriggja vagna sem borg-
arstjóm Reykjavíkur gaf leyfi fyrir í
haust. Þessi nýi vagn er við sundlaug-
amar i Laugardal. Einn vagn er áður
kominn á Lækjartorg og sá þriðji er
væntanlegur við Sundahöfn.
Eigandi vagnsins við sundlaugarnar
er Tulin Johansen og ræddi Dagblaðið
stuttlega við konu hans Matthildi en
hún afgreiðir pylsurnár. Hún sagði að
salan hefði farið prýðilega af stað um
helgina, þrátt fyrir það að vagninn hefði
ekki verið auglýstur. Vagninn er dansk-
ur og í honum er rafmagn.
Matthildur sagði að starfið i pylsuvagn-
inum væri líflegt og skemmtilegt og litur
hún björtum augum til sumarsins, þegar
ferðum fjölgar I laugarnar.
-JH.
Bátasjómenn telja
skuttogara hættu-
legasta þorskinum
Sjómenn eru ekki á eitt sáttir um það
hverjir séu sekastir í því efni að koma
með lélegt hráefni að landi úr veiðiferð-
um, né heldur hvaða veiðiaðferðir séu
hættulegastar þorskstofninum í þvi
kramarástandi sem hann er nú í.
Bátasjómaður hafði samband við DB
vegna fréttar um margfalt aflamagn
netabáta með blýteinsnet. Taldi hann
aflamagn þeirra mjög gróflega ofmetið,
þegar talað væri um sexfalt meira afla-
magn í blýteinsnet en steinanet.
Sjómaðurinn sagði að blýteinsnetin
hefðu reynzt mun veiðisælli en steina-
netin, einkum þegar afli væri tregur.
Taldi hann nær sanni að þar munaði
25% á aflamagni heldur en þvi sem
fram var haldið í frétt DB á fimmtudag.
1 uppgripaafla munaði engu á veiði-
hæfninni, þvi þá lægi fiskurinn ekki eins
við botn. Þá hafði vinnslustöðvarstjóri í
Grindavik samband út af sömu frétt.
Taldi hann afla Grindavikurbáta nú i
janúar að langmestu leyti vera ufsa og
lítið magn af þorski hefði borizt á land.
Af ufsaafla bátanna nefndi hann dæmi
um 77—88% sem farið hefðu i 1. flokk,
að 8—17% hefðu farið I 2. fokk og að-
eins 4—6% i þriðja flokk. Þorskafli sem
borizt hefði í stöð hans fór 90% í 1.
flokkog 10% i 2. flokk.
Báðir vildu menn þessir halda fram að
skuttogarar væru miklu hættulegri veik-
burða þorskstofninum en bátaflotinn.
Skuttogararnir væru gerðir út allan árs-
ins hring og aldrei kæmi fram hve mikið
af afla þeirra færi beint i bræðsluverk-
smiðjur sem ónýtt hráefni. Þessa hefði
t.d. mjög gætt hjá togurum á Norður-
landi i fyrrasumar. Einnig bentu þeir á
að reknetabátar kæmu oft með ónýtt
hráefni að landi sem færi beint i
bræðslu.
-ASt.
Ef þorskaf linn verður eins í ár og í fyrra:
Verður hægt að
stunda þorskveiðar
fram íagúst?
„Miðaö við sama aflamagn þorsks í
ár og var I fyrra á að vera hægt að
stunda þorskveiðar hér við land eitthvað
fram i ágústmánuð áður en hinu nýja
aflahámarki i tillögum Hafrannsókna-
stofnunarinnar er náð,” sagði Ólafur
Karvel Pálmason fiskifræðingur er hann
benti okkur á villu í frásögn DB á mið-
vikudag.
í DB voru teknar tölur úr aflaskýrsl-
um Fiskifélagsins i fyrra, tölur sem
skráðar eru undir heitinu „Þorskafli”.
Ólafur sagði að þessi skýring ruglaði
marga enda ónákvæm. Undir þessum lið
er átt við botnlægar tegundir fiska.
Á sömu síðu í Ægi er að finna tölur
sérgreindar fyrir þorsk. I lok júni í fyrra
var heildarþorskaflinn 198.000 lestir. í
júlílok var heildarafli ársins orðinn
248.000 lestir og í ágústlok 270.000
lestir. Það hefur því verið um verzlunar-
mannahelgina i fyrra sem búið var að
veiða þær 250 lestir sem Hafrannsókna-
stofnunin telur nú að setja þurfi há-
markið við í ár. Dæmið lítur því ekki
alveg eins illa út og frétt DB gaf til
kynna, þ.e. að aflamagninu yrði náð í
maílok. Hins vegar hefur aflinn til þessa
í ár verið betri en í fyrra, svo hugsazt
getur að aflahámarkinu nú verði náð
fyrr en ef afli verður með sama hætti og
í fyrra.
-ASt.
Dagskammtur fyrir
þessa PHIIjCO
þvottavél!
a(og hún þvær það!)
Tíu manna fjöl-
skylda þarf aö eiga
trausta þvottavél,
sem getur sinnt dag-
legum þvottaþörfum
fjölskyldunnar.
Þessi tíu manna
fjölskylda sést hér á
myndinni meö dag-
skammt sinn af þvotti.
Og þeíta þvær Philco
þvottavélin daglega,
mánuðum og árum
saman.
Þvottavél, sem
stenst slíkt álag
; þarfnast ekki frekari
i meömæla.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Þvottavél í þjónustu
tíu manna fjölskyldu
veröur líka aö vera
sparsöm. Philco
þvottavél tekur inn á
sig bæöi heitt og kalt
vatn, sem sparar raf-
magn og styttir
þvottatíma.
Philco og fallegur
þvottur fara saman.