Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.02.1979, Qupperneq 12

Dagblaðið - 14.02.1979, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRUAR 1979. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979. 13 12 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I Svíar hafa valið í Spánarkeppnina Sviar hafa valið landsliðið 1 handknattleik, sem leikur i ólyrnpíu- og B-keppninni á Spáni — en sú keppni hefst í næstu viku. Val landsliðsþjálfarans, Bertil Andersen kom ekki á óvart, nema það, að hann valdi Bengt Persson, 24ra ára lögregluþjón frá Malmö í liðið. Svíar eru 1 riðli með Noregi og Búlgariu. Tvö efstu liðin í keppninni á Spáni komast i keppni hand- knattleiksins á ólympíuleikunum i Moskvu næsta ár. Sjö efstu liðin í siðustu heimsmeistarakeppni tryggðu sér þann rétt á HM i Danmörku fyrir ári — en auk þess leika í Moskvu lið frá Asíu, Afriku og Ameríku. Samtals 12. Sænska landsliðið verður þannig skipað á Spáni: Markverðir: Claes Hellgren, Heim, Göran Haby, Redbergslid, og Thomas Gustavsson, Heim. Aðrir leikmenn: Lars-Göran Jonsson, Kristianstad, Basti Rasmussen, Ystad, Lars Norgren, AIK, Bo Andersson, Eskilstuna, Bengt Hansson, Göran Bengtsson, Lars-Börje Hasselberg og Jörgen Abra- hamsson, allir Drott, Ingemar Andersson og Thomas Augustsson, Heim, Bengt Hakonsson og Bo Persson, Vikingarna auk Bengt Persson, Malmö. Uli Hoeness stjóri Bayern Bayern Miinchen hefur ráðið einn þekktasta knatt- spyrnukappa Vestur-Þýzkalands sem framkvæmda- stjóra frá og með 1. júll að telja. Það er Ule Hoeness, fyrrum leikmaður félagsins á veldistímum þess fyrír nokkrum árum. Hoeness varð heimsmeistarí i liði Vcstur-Þýzkalands 1974 og lék í allt 31 landsleik. Stjörnukvöld í Laugardalshöll Það verður stjörnukvöld i Laugardalshöll i kvöld — og hámarkið i íokin verður keppni milli bandarísku körfuknattleiksmannanna, sem leika hér á landi og islenzka landsliðsins f körfuknattleik. Ómar Ragnarsson verður með stjörnulið sitt á ferðinni — iþróttafréttamenn leika við íslandsmeist- ara Vals i innanhússknattspyrnu, þar sem eitthvað verður gert til að hefta Valsmenn. Vftakeppni verður i körfunni milli islenzkra og bandariskra leikmanna — Halli og Laddi koma öllum i gott skap, og margt ann- að verður á dagskrá, sem gleðja mun augað. Stjörnu- kvöldið hefst kl. 20.00. Sex mörk Sigga Helsingborgar-liðin Vikingarna og Olympia gerðu jafntefli 17-17 í innbyrðisviðureign sinni i Allsvenskan i handboltanum. Sigurður Sveinsson átti stjörnuleik með Olympia. Skoraði sex mörk og var markhæstur í leiknum. Sannkölluð skotsýning hjá honum, skrifuöu sænsku blöðin. Þá kom mjög á óvart að Ystad vann efsta liðið Heim 25-21 i Ystad. Heim hefur nú þriggja stiga forustu eftir 18 umferðir. Nordquist til USA Fyrirliði sænska landsliðsins i knattspyrnu, Björn Nordquist, sem leikið hefur fleiri landsleiki i knatt- spyrnu en nokkur annar, mun leika með bandariska liðinu Minnesota Kicks i framtiðinni. Gerði samning til 2ja ára. Árslaun um 15 milljónir isl. króna auk bónusa. Lézt eftir keppni Í5000 m hlaupi Ungur hlauparí i Filippseyjum lézt eftir að hafa orðið i fimmta sæti i 5000 metra hlaupi i keppni i Mindanao — 800km fyrír sunnan Manila á Filippseyj- um. Keppnin var f siðustu viku og hlauparínn Madim Tambada féll i miðju hlaupi. Hann stóð á fætur og hélt áfram og lauk hlaupinu. Þegar hann var kominn yfir marklínuna missti hann meðvitund — var f skyndi ekið á sjúkrahús en aliar tilraunir til að bjarga Iffi hans mis- tókust. Haukar hlutu bæði stigin gegn Fylki Haukar yfirgáfu fallliðin fyrir fullt og allt i 1. deildinni f handknattleiknum, þegar þeir sigruðu Fylki f fjörugum leik f fþróttahúsinu i Hafnarfirði f gærkvöld, 23—21. Það var oft mikil spenna en gæðin voru ekki að sama skapi alltaf mikil. Haukar eru f fimmta sæti i deild- inni með 10 stig — fimm stigum á undan liðunum, sem koma næst á eftir, Fylki og ÍR. HK rekur svo lestina með fjögur stig. Fallbaráttan verður þvf milli þess- ara þriggja liða. Lokakafli leiksins í gær var tvísýnn — og þá urðu Fylkismönnum á ýms mis- tök, eins og svo oft áður undir lok leikja, svo Haukar stóðu uppi sem sigurvegar- ar. Taugar nýliðanna úr Árbænum hafa oft gefið sig þegar mest hefur á reynt á lokamínútunum. Eins var I gær. Jafnt var 19—19 og um tíu mínútur eftir af leiknum. Þá tókst Haukum að skora tvö mörk — annað fyrir mikinn klaufaskap Fylkis og þeim fengna hlut héldu Hauk- ar til loka, 21—19. Bæði lið skoruðu tvö mörk það sem eftir lifði leiksins og úrslit því 23-21. Framan af virtist sem Haukar ætluðu að tryggja sér öruggan sigur — léku þá af öryggi hins sterka. Haukar komust í 7—4 en þá datt allur botn úr leik liðsins. Fylkir gekk á lagið og skoraði næstu fimm mörk og staðan breyttist í 9—7 fyrir Fylki. En lokakafla hálfleiksins réttu Haukar sinn hlut á ný. Jöfnuðu og komust síðan yfir. Staðan 11—10 fyrir Hauka. Slakur árangur Fylkis lokakafla hvers hálfleiks hefur verið afgerandi fyrir liðið í keppninni, leikmenn ekki í nógu góðri æfingu til að leika á fullu heilan hálfleik — og einnig byggist þetta að nokkru á því, að félagið hefur ekki nægilegt mannaval. Slappleiki, þegar þreyta sezt í lykilmenn liðsins. Síöasti hálfleikur var lengstum mjög jafn. Allar jafnteflistölur sáust á ljósa- töflunni upp í 19—19. Þá komu mörkin tvö, sem færðu Haukum sigur. Mörk Hauka í gær skoruðu Hörður Harðarson 7/5, Ingimar Haraldsson 5, Andrés Kristjánsson 5/3, Árni Sverris- son 3, Ólafur Jóhannesson 2/1 og Stefán Jónsson. Mörk Fylkis skoruðu Sigurður Símonarson 5, Einar Einarsson 5, Magnús Sigurðsson 3/2, Halldór Sig- urðsson 3, Gunnar Baldursson 3, Einar Ágústsson og ögmundur Kristinsson. Á eftir þessum leik léku Haukar og Valur í 1. deild kvenna. Haukastúlkurn- ar unnu þar heldur óvæntan sigur, 17— 14, í allskemmtilegum leik — en Vals- liðið er þó ekki hið sama og áður. Óvenjuhá markaskorun í kvennaleik og framan af var jafnræði með liðunum. Síðan sigu Haukastúlkurnar framúr — vel hvattar af áhorfendum. Komust í 7—4 — síðan 10—6. Valsstúlkurnar gáfust ekki upp. Tókst að jafna i 13—13 en þá var púðrið búið. Lokakaflann skoruðu Haukar fjögur mörk gegn einu og unnu sanngjarnan sigur. Þær Guðrún og Halldóra skoruðu mest hjá Haukum, fjögur mörk hvor en Harpa skoraði helming marka Vals, eða sjö. Halldór Halldórsson: Mikill áhugi er nú á ísknattleik I Reykjavik og undanfarnar vikur og mánuói hefur mátt sjá margan knáan kappann leika listir sinar á skautasvellinu — og fastar æfingar -ru f fshokkey hjá Skautafélagi Reykjavfkur á Melavellinum gamla, góða. Bjarnleifur Ijósmyndarí leit þar við f gærkvöid og tók þá myndina að ofan af görpum Skautafé- lagsins. Þeir komu vissulega á óvart norður á Akureyrí — unnu stórsigur á Akureyringum, sem hafa veríð ókrýndir konungar f fshokkey hér á landi hingað til. Hvar liggur meinið hjá Breiðabliki? Mjög fannst mér það táknrænt fyrir störf flestra stjórna knattspyrnudeilda Breiðabliks, sem ég þekki til, yfirlýsing- in f Morgunblaðinu 2. febrúar sfðastlið- inn. Þar segir, að nýskipuð stjórn knatt- spyrnudeildarinnar hafi útvegað þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins cg mátti á þvf skilja að allir hlutir væru nú komnir f stakasta lag. Röð og regla á öllu — ja, jú, að vfsu vantaði að útvega þjálfara fyrír alla yngri flokkana. En það er nú kannski ekki eins áríðandi, eða hvað? Yngri flokkarnir verða að skipa miklu hærri sess hjá íslenzkum félögum en þeir gera í dag. Við vitum vel að þessir drengir eru flestir verðandi meistara- flokksmenn og ber að undirbúa þá miklu betur en gert er fyrir stærri átök og það tekst bara með góðri kennslu uppvaxtar- árin. Uppbygging 1 molúm Það sem gerðist hjá Breiðabliki sl. keppnisár er að uppbygging undanfarin ár hefur brugðizt hrapallega. Ekki hefur tekizt að laða fram hæfa einstaklinga til að fylla upp i skörð meistaraflokksins og einnig af sömu orsökum hefur sam- keppnin um stöður í liðinu ekki verið fyrir hendi. Slíkt er bagalegt hverju fé- lagi eins og berlega kom fram hjá Breiða- bliki sl. ár. Það er lífsnauðsyn hverju knatt- spyrnufélagi aö byggja upp á eðlilegan hátt, — myndist gap eins og í fyrra hjá Breiðabliki, er ekki von á góðu. Það var hreinlega skortur sl. ár á nógu góðum 2. flokks-mönnum til uppfyllingar, leik- mönnum með einhverja leikreynslu og getu til að taka við. Það er ekki nóg bara að vera ungur — getan verður að vera fyrir hendi. Greinilegt er, að 2. flokks-mönnum fé- lagsins hefur ekki verið gefinn möguleiki á nógu mörgum leikjum með meistara- flokki undanfarin ár. Allur undirbúning- ur yngri leikmanna, sem eru að hefja sinn meistaraflokksferil, þarf að vera miklu betri en hefur tíðkazt hjá Breiða- bliki. Meistaraflokkur er jú sá flokkur, sem allir piltar eru að keppa að — og all- ur æfingaferill pilts gegnum flokkana á að miða að því að skapa sem hæfastan meistaraflokksmann — það er lokatak- markið. Þar kemur í ljós hvort vel hefur verið unnið. Það kom berlega í ljós hjá Breiðabliki sl. ár að illa hafði tekizt til í þessum efnum. Nánara samstarf þjálfara Nauðsynlegt er að gott samband sé milli þjálfara flokkanna þannig, að góður grundvöllur skapist til að hægt sé að samræma sem bezt alla þjálfun og aðra uppfræðslu. En ekki eins og nú — menn talast ekki við: Hver er að bauka í sínu horni, uppfullir af áhuga um að reyna að ná í það minnsta í einn bikar fyrir sinn flokk, sem er náttúrlega tak- mark út af fyrir sig. En hræddur er ég um að sú glýja, sem menn fá í augun af þessum skínandi verðlaunagripum, bindi Halldór Halldórsson. þjálfara yngri flokkanna við sitt starf. Eitt er öruggt að rangt er að staðið í þjálfun á yngri aldursflokkunum. Ef skilja má yfirlýsinguna í Mbl. rétt kemur nýja stjórnin ekki auga á þetta. Þar má lesa milli línanna. „Við erum sko í öllu með á nótunum eins og hingað til. Meistaraflokk er nefnilega borgið.” Hvílík fásinna. Meistaraflokk er aldrei borgið fyrr en unglingaþjálfun og öll uppbygging er í betra lagi en tiðkast hjá Breiðabliki. Svo mætti eflaust segja um fleiri félög á Islandi. Hver er tilgangur unglingaþjálfunar? Miklu meiri vinnu þarf að leggja í þjálfun á yngri leikmönnum en gert er og þar ríður á að nota hvern tima til kennslu og aftur kennslu þann alltof stutta tima, sem afmarkaður er til þessara starfa. Tækjabúnaður og önnur aðstaða þyrfti að vera allt önnur og betri en nú tíðkast. Við hinir fullorðnu verðum að gera okkur betur grein fyrir því hver tilgangur unglingaþjálfunar er — og svari hver fyrir sig. Stjórnleysi 1978 Stjórn knattspyrnudeildar verður að starfa af víðsýni. Stjórnsemi getur ráðið úrslitum. Heimsins bezti þjálfari getur litlu áorkað ef grundvöllurinn er ekki góður til framdráttar. Þegar stjórn knattspyrnudeildar getur ekki staðið með þjálfara og stutt við bak hans í starfi er ekki von á góðu. Það var reynsla mín þann stutta tíma, sem ég starfaði hjá Breiðabliki sem þjálfari meistaraflokks í byrjun árs 1978. Um mánaðamótin janúar-febrúar varð ég að láta af störfum vegna óviðunandi ástands leikmanna og glundroða stjórn- arinnar. Skýrslu um hið slæma ástand gaf ég þáverandi stjórn þann 9. febrúar 1978. Varaði ég þar við þeirri hættu sem fram- undan væri. Sú viðvörun var vissulega á rökum reist eins og síðar kom í Ijós á keppnistímabilinu. Sú skýrsla hefur hvergi komið fram ennþá — ekki einu sinni á aðalfundi knattspyrnudeildarinn- ar. Allir sjá að slíkt getur ekki gengið. Meiri reglu verður að hafa eigi hlutirnir að takast. í hópíþróttum verður að vera viss agi og gott skipulag svo leikmenn hafi eitt- hvað markvisst að fara eftir. Leikmenn Breiðabliks eru í raun engu frábrugðnir leikmönnum annarra liða hvað varðar metnað og vilja til að ná árangri. Stjórn- in brást I sínu starfi — á því leikur eng- inn vafi. Þannig kemur það mér fyrir sjónir að minnsta kosti. Góður ef niviður Margar ánægjustundir hef ég átt með Breiðabliksmönnum og ég vil veg Breiðabliks sem mestan. Þess vegna er svolítið ergilegt að horfa upp á þessi slæ- legu vinnubrögð varðandi unglingaþjálf- unina og aðra uppbyggingu innan fé- lagsins, sem auðvitað bitnar alltaf síðast og ekki sízt á meistaraflokknum. I Breiðabliki eru margir efnilegir, ungir knattspyrnumenn, sem gætu hafið nafn félagsins til vegs og virðingar. En án réttrar handleiðslu forustunnar ná þessir piltar ekki að verða afreksmenn í íþróttinni. Vonandi beitir hin nýja stjórn knatt- spyrnudeildarinnar sér af alefli, því mikið er í veði að vel takizt. Og ég óska Breiðabliki alls hins bezta í framtíðinni. Halldór Halldórsson, knattspyrnuþjálfari. Liverpool á ný í efsta sætið — Sigraði Birmingham í gærkvöld með 1-0 og Arsenal skauzt upp í annað sæti ef tir sigur á QPR Evrópumeistarar Liverpool nýttu fyrsta tækifæri til að komast á toppinn á ný í 1. deildinni ensku — sigruðu i gær- kvöld neðsta liðið í deildinni, Birming- ham, með 1-0 á Anfield i Liverpool. Arsenal lék i vesturbæ Lundúnaborgar við Queens Park Rangers — sigraði og skauzt upp i annað sætið f deildinni. Hefur betri markamun en Everton. Liverpool hefur nú 37 stig — en Arsenal og Everton 36 stig. Þar sem leikafjöldi efstu liðanna i 1. deild er misjafn er raun- hæfara að Uta á töpuð stig þeirra. Liver- pool hefur tapað níu stigum, West Bromwich Albion 12, Everton 14, Nott- ingham Forest 15 og Arsenal 16. Arsenal hefur því tapað sjö stigum meir en Liverpool. Hávaðarok á Anfield gerði leikmönn- um Liverpool og Birmingham erfitt fyrir í gærkvöld. Birmingham lék sterkan varnarleik — oftast með alla ellefu menn liðsins í eða við vítateig. Gallacher og Tarantini voru þar mjög sterkir — en þeir gátu þó ekki komið í veg fyrir, að Liverpool skoraði. Það var á 37. mínútu. Ray Kennedy skallaði knöttinn fyrir fætur Graham Souness og skozki lands- liðsmaðurinn skoraði með föstu skoti neðst í markið. Áhorfendur bjuggust við markaregni — efsta liðið gegn því neðsta — en það varð ekki og frétta- menn BBC sögðu, að Liverpool-liðið hefði leikið langt frá sínu bezta. En þýðingarmikil stig unnust — og það var fyrir öllu hjá Evrópumeisturunum. Birmingham tapaði þarna sínum níunda leik í röð. Von liðsins að halda sæti í 1. deild er nú mjög veik, svo ekki sé meira sagt. Jim Smith, framkvæmdastjóri Birmingham, sagði fyrr i vikunni að félagið mundi ekki nota milljón sterl- ingspundin, sem það fékk fyrir Trevor Francis frá Nottingham Forest, til að kaupa nýja leikmenn strax. Enginn asi í því sambandi. Allar skuldir, um 500 þús- und sterlingspund, greiddar fyrst, og síðan reynt að byggja upp fyrir framtíð- ina. Þrátt fyrir tapið i gær lék Birming- ham-liðið betur en oftast áður á leik- tímabilinu —. átti þó aðeins þrjú skot á mark Liverpool. Úrslit í leikjunum í gær urðu þessi: 1. deild Liverpool — Birmingham 1-0 QPR — Arsenal 1-2 3. deild Carlisle — Bury 1-2 Southend — Sheff. Wed. 2-1 4. deild Crewe — Doncaster 2-4 Arsenal hafði yfirburði gegn QPR frá byrjun en það tók tíma áð nýta þá yfir- burði í mörk. Ekki fyrr en eftir rúman klukkustundarleik að Arsenal skoraði — og þó komu tvö mörk á fjórum mínút- um. Fyrst skoraði David Price — siðan Liam Brady. Fjórum mín. fyrir leikslok skoraði Don Shanks eina mark QPR, og liðið er í alvarlegri fallhættu. Áhorf- endur voru rúmlega 21 þúsund. Stjórn ensku deildakeppninnar ákvað í gær að leikir í deildakeppninni skyldu ganga fyrir á laugardag en þá á fimmta umferð bikarkeppninnar einnig að fara fram. Enn er ekki alveg öruggt hvaða lið leika saman i nokkrum leikjum í bikar- keppninni — en það ætti að einhverju leyti að skýrast í kvöld. Ef ekki fást úrslit og liðin geta af þeim ástæðum ekki leikið í bikarkeppninnin á laugardag, leika þau í deildakeppninni en í bikarnum á mánudag. Staða efstu og neðstu liða í 1. deild er nú þannig: Liverpool 23 17 3 3 50-10 37 Arsenal 26 14 8 4 45-22 36 Everton 25 13 10 2 37-19 36 WBA 23 14 6 3 48-22 34 Leeds 27 12 9 6 49-32 33 Middlesbro 24 6 6 12 32-35 18 Bolton 23 6 6 11 29-41 18 QPR 25 4 10 11 24-37 18 Wolves 25 7 3 15 24-46 17 Chelsea 24 4 6 14 27-51 14 Birmingham 25 2 4 19 21-43 8

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.