Dagblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
Olíumalarmálið:
HATT REITT TIL HOGGS
í ÚRRÆÐALEYSISÍNU
Gissur Jörundur Kristinsson
Kópavogi, skrifan
Stundum grípa menn til óyndis
úrræða í örvinglan. Átakanlegt dæmi
um slíkt atferli sáu menn á forsíðu
Dagblaðsins mánudaginn 5. febrúar sl.
Richard Björgvinsson viðskipta-
fræðingur og bæjarráðsmaður vegur
þar að formanni bæjarráðs Kópavogs
fyrir að hafa tekið ákvörðun um að
lána ríkisstofnun, þ.e. Vegagerðinni,
1000 tonn af oliumöl, í eign Kópa-
vogs, gegn greiðslu í sama.
1 þessu sambandi er rétt að varpa
fram og svara nokkrum spurningum.
Þurfti Kópavogur á þessari oliumöl
að halda vegna eigin framkvæmda?
Nei.
Var þá ekki sjálfsagt að sýna þá
greiðasemi að lána Vegagerðinni þetta
magn gegn greiðslu í sama magni af
nýju og þar af leiðandi betra efni? Jú.
En hvað var þá að? Jú, það var
formgalli.
Rétt hefði verið að leggja málið
fyrirfram fyrir bæjarráð.
Að öðru leyti var um sjálfsagðan
hlut að ræða.
Og var þá sjálfsagt að reiða hátt til
höggs og láta höggið ríða, fyrir neðan
beltisstað.
Á sl. kjörtímabili var Richard Björg-
vinsson aðalforingi Sjálfstæðis-
flokksins sem þá var með 4 bæjarfull-
trúa og var valdamesta aflið í meiri-
hlutasamstarfi.
Hvernig til tókst má best sjá af
viðbrögðum hanseigin flokksmanna.
Þeir höfnuðu honum á eftirminni-
legan hátt i prófkjöri til alþingiskosn-
inga og vildu heldur ganga i þrennu
lagi til bæjarstjórnarkosninga en
leggja nafn sitt við hans.
Þegar athugaður er viðskilnaður
f.v. meirihluta t.d. í skuldasöfnun,
handahófslegum framkvæmdum og
fjárhagsáætlun fyrir sl. ár kemúr i Ijós
að 420 milljónir vantaði á að endar
næðu saman.
Skiljanleg er afstaða þeirra sjálf
stæðismanna sem vörpuðu sér fyrir
borð, sumir hverjir ósyndir, frekar en
una við forystu og framavonir við-
skiptafræðingsins Richards Björgvins-
sonar.
Menn bregðast misjafnlega við
ósigri. Sumir vaxa, aðrir smækka.
Sá meirihluti sem fer með stjórn
bæjarfélagsins í dag hefur markvisst
unnið við að rétta hag bæjar-
félagsins.
Án háváða og fyrirgangs.
Björn Ólafsson form. bæjarráðs
hefur haft forystu um að leysa hnúta
oggreiða úrflækjum.
Maður hefði frekar ætlað að
Richard væri Birni þakklátur fyrir að
afmá förin og þrifa til í fletinu.
En það er öðru nær. t staðinn reiðir
hann til höggs og vegur að velgerðar-
mannisinum.
Ég vona að Richard liti yfir eigin
feril I bæjarmálum Kópavogs sjálfs
sín vegna.
Að lokum þetta.
Dagblaðið er mjög áhrifamikill
fjölmiðill og þvi verður að gera kröfu
til að það taki ekki hvaða ælu sem er
og þenji hana yfir 5 dálka á forsíðu.
Þegar maður eins og Richard á í
hlut er auðvelt að ráða í hvaða hvatir
liggja að baki.
Þaö er hagstætt aö verzla í
Mamt&borq
takið
popp-
þætti
í nætur-
útvarpi
Næturótvarpssinni hringdi:
Húrra fyrir þremenningunum sem
stungu upp á næturútvarpinu. Það var
kominn tími til að einhver tæki af
skarið. Mig langar hins vegar til að
koma með örlitla viðbót við þær hug-
myndir sem fram eru komnar.
í viku hverri eru gerðir og sendir út
talsvert margir tónlistarþættir hjá út-
varpinu. Þó að meirihluti þjóðarinnar
heyri vafalaust þessa þætti eru þeir þó
ófáir sem missa af þeim fyrir einhverra
hluta sakir. Mig langar því til aö gera
það að tillögu minni að Popphornin,
Vinsælustu popplögin, Lög unga fólks-
ins, og hvað þeir nú heita allir þessir
þættir, verðir endurteknir á nóttunni.
Það léttir nokkuð á dagskrárgerðar-
mönnunum sem sjá eiga um að hafa
ofan af fyrir fólki á nóttunni. Hlust-
endahópurinn yrði vitaskuld sá sami
að nokkru leyti en hvað er á móti þvi
að heyra góðan poppþátt tvisvar?
Endur-
DB-mynd Hörður
*
aiifea ^agL & .. mms*
Deilt er um þá ráðstöfun formanns bæjarráðs Kópavogs að lána Vegagerðinni oliumöl.
Raddir
lesenda
Spurning
dagsins
Telurðu að ríkis-
stjórnin sé að falla?
Sigurleifur Tómasson, atvinnulaus: Nei,
ég held ekki. Þetta eru góðir menn og ég
vona að þeir nái að halda þessu saman.
Axel Björnsson: Nei, ég tel það ekki af
því að ég er bjartsýnismaður eins og allir
ráðherrarnir segjast vera, og ég glotti
líka eins og ráðherrarnir.
Axel Ketilsson verzlunarmaðun Nei, ég
held ekki. Þeim þykir of vænt um
stólana. Annað mál er svo hvort ég sé
ánægður með ríkisstjórnina.
Krístin Pálsdóttir verkakona: Ætli hún
séekki löngu fallin.
Haraldur Blöndal lögfræðingun Vinstri
stjórnir falla aldrei fyrr en þær eru
búnar með gjaldeyrisvarasjóðinn. Þess
vegna fellur þessi ríkisstjórn ekki fyrr.
Sigurður Berndsen matsveinn: Já. Er
það ekki? Það væri ekki verra.