Dagblaðið - 15.02.1979, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
Framsóknarmenn vilja
takmarka skoðanakannanir
— vilja koma í veg fyrir „eitthvað sem þjóðmálaskúmar, kauphéðnar og áróðursapparöt kalla almemíarsköðariakannanir )
Þrír þingmenn Framsóknarflokksins
hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar
um að Alþingi álykti að fela ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir setningu laga
um almennar skoðanakannanir. Þessir
þrír eru Páll Pétursson, Alexander
Stefánsson og Ingvar Gislason.
Segir í greinargerð með frumvarpinu
að reynslan hafi sýnt, „að ekki er það
lýðræðislegri stjórnskipan eða eðlilegri
skoðanamyndun í þjóðfélaginu til fram-
dráttar að óvandaöir aðilar eða pólitísk
áróðursmálgögn hafi leyfi til þess að
framkvæma „athuganir”, sem þeim
siðaii haldist uppi að kalla marktækar
skoðanakannanir um hin mikilvægustu
efni.”
Telja þingmenn tvímælalaust auðvelt
að hafa áhrif á skoðanir almennings með
óvönduðum skoðanakönnunum, sem
BAGBIAÐIB
A-Kti. - MANI'D
fxjálst,1
úháð
tlanhlajf
______
HIISI)I)MNS||)I M< I A I).A1 (.1 ÍSINI.AIIIM. AM.KtIDM A »MHOI.TI 11.- ADAI.slMI 170))
skoðanakönnun DB:
kS tórsigur A Iþýðuflokks
- fylgishmn Framsóknar
M |««><ni T*p luiiuiu pc/Mni uiSuhrsui
nguiHwn. tanJw ul «cm tpuiða *.»u »ldu ckki A*>«Auflukkui
tOknorflnkkiint Al t*ua tpufnuigunm (.'imiKfi fcmrt liimvknnfl
tt» mAlu *ifl t« o* Fikmtkkn *A fk mikmn hluu if |*t* S)kl(iuctatn
L A|iýAub»iuUKiiA nukkiu SpHtirð um aiktKflum. f«i ckki »ð *cfa um Samtokin
Okm hfunaðimta AHWhjhamlala(i
NiðufMnðut S.ata ckki
.Kýtekkr
70 1)1* OkktcAnw 10) 17
U 7.7« Ef |»i' tcnt ckki ncfndu kk*t
1)5 ))3* htu. cru icfcnif uf. .ctðuf tk«mi
10 1.7« tanm« I prttcnium il t.«um
75 l)J« k .Kðaiohn tiðutiu knamngji
I) )t>* AWðuflnkkuf )).!«!
1« l«J* ) famtðknarfl l).«*i)4«i
)l ii% S|klfttað>n )7J*M).7l
10) I7J* Samtflkm )J*4 4JI
nAnabídcAmokdn.
LOK4Ð
YTXiM
YTÐGEKÐA
að Laugavegi 28
BcntUini
viðskiptavinum á
Ask Suðurlandsbraut 14
sem er með spennandi
nýmæli í smáréttum
allan daginn
Laugavegi 28
síðan eru „blásnar út í fjölmiðlum”.
„Því er það brýnt að settar verði
skorður við þvi að þjóðmálaskúmar,
kaupahéðnar eða áróðursapparöt geti
sett á svið hömlulaust eitthvað sem þau
geti kallað almennar skoðanakannanir
og unnið þannig sjónarmiðum sínum
eða skjólstæðingum brautargengi.”
-HP.
Ólafur Ragnarsson ritstjóri Vísis:
Rétt að setja
einhverjar reglur....
„Mér finnst í rauninni mjög þarft að
setja einhverjar reglur um hvemig eigi
að framkvæma skoðanakannanir,” sagði
Ólafur Ragnarsson, ritstjóri Vísis I
viðtali við Dagblaðið. „Nefni ég þar sér-
staklega ýmis atriði um framkvæmdina,
hversu stórt úrtakið eigi að vera
o.s.frv.”.
Ólafur sagði það í rauninni furðulegt,
hversu menn virtust trúa eins og nýju
neti öllu sem kallað væri skoðana-
könnun, enda þótt augljósir gallar væru
þar á. Nefndi hann sem dæmi hlustenda-
könnun Ríkisútvarpsins, þar sem byggt
væri á svörum eitthvað á annað
hundrað manns í 200 þúsund manna
þjóðfélagi.
„Það er því að mínu viti rétt að setja
einhverjar reglur, en einhver ríkisrekin
nefnd getur þó aldrei bannað mönnum
að gera kannanir. Þeir sem eru óánægðir
með niðurstöður marktækra skoðana-
kannana eins og kannanirnar um
síðustu kosningar, eiga að líta i eigin
barm,” sagði Ólafur ennfremur.
HP.
Forsiða Dagblaðsins 19. júní i sumar, þegar greint var frá niðurstöðum skoðana-
könnunar blaðsins um úrslit alþingiskosninga.
Jónas Kristjánsson ritstjóri Dagblaðsins:
Bara venjulegt rugl...
„Þetta er bara þetta venjulega rugl í
mönnum sem tapa kosningum, en
kunna ekki að tapa kosningum,” sagði
Jónas Kristjánsson, ritstjóri Dagblaðsins
um þingsályktunartillögu þingmann-
anna þriggja.
„Skoðanakannanir okkar eru unnar
með eðlilegum hætti og hafa verið ákaf-
lega marktækar. Ef þær hefðu ekki verið
það hefðu niðurstöður kosninganna átt
að verða aðrar, en sú varð ekki raunin.
HP.
Kópavogur:
Allar fóstrur hætta
um næstu mánaðamót
Fóstrur í Kópavogi sögðu allar upp
störfum 1. desember sl. eins og DB
greindi frá á á sínum tíma og leggja
þær niður störf i. marz nk. Nú á
þriðja mánuð hefur lltið gerzt i málum
fóstranna og eru þær nokkuð teknar
að ókyrrast og telja bæjaryfirvöld ekki
hafa sinnt þessu máli sem skyldi.
Jóhanna Thorsteinsson for-
stöðukona dagheimilisins við
Furugrund í Kópavogi sagði að allan
þennan tíma heföi enginn formlegur
fundur verið haldinn í samninga-
málum. Fóstrur fara fram á launa-
flokkshækkanir, en fóstrur taka nú
laun eftir 10. flokki BSRB. Þær fara
fram á að byrjunarlaun hækki í 12.
flokk, eftir eins árs starf flytjist þær I
13. flokk og eftir fjögurra ára starf I
14. flokk. 1 þessum efnum miða
fóstrur sig við kennara og hjúkrunar-
fræðinga.
Jóhanna sagði að aðeins einn
óformlegur fundur hefði verið haldinn
með fóstrunum og meirihluta bæjar-
ráðs. Þar hefðu bæjarráðsmenn lýst
yfir velvilja sínum i málinu, en síðan
hefði ekkert gerzt. Jóhanna sagði það
skýrt tekið fram I reglum að bæjarráö
mætti fresta hópuppsögnum í allt að 6
mánuði, enda væri það tilkynnt
viðkomandi starfsmönnum eigi siðar
en mánuði eftir að uppsagnirnar
bárust.
„Bæjarstjórn hefur því misst af
þessari frestun,” sagði Jóhanna. „Og
vilji þeir fá ráðherra til að fresta verk-
fallinu þarf það að gerast með minnst
mánaðarfyrirvara, svo þar er sömu
sögu aðsegja.”
„Það eina sem hefur gerzt er að
bæjarstjórn hefur fengið Böðvar
Guðmundsson hagráðunaut til þess að
vinna að starfsmati, en það mat mun
ekki liggja fyrir fyrr en í júli.”
Starfsmannafélag Kópavogsbæjar
er samningsaðili fyrir fóstrurnar í
Kópavogi.
-JH.
Verða þau skilin ein eftir á ieikvöllunum og dagheimiium i Kópavogi um mánaöa-
mótin? DB-mynd: Magnús Hjörleifsson.
Bæjarritarinn í Kópavogi:
Á ekki von á að
fóstrur gangi út
— launaflokksbreytingar ekki fyrr en í júlí
„Það verður ekki um launaflokks-
breytingar að ræða hjá fóstrunum
fyrir 1. júlí,” sagði Jón Guðlaugur
Magnússon bæjarritari í Kópavogi.
Samningar renna þá út. Fóstrurnar
vita um hug bæjarfulltrúa til þessa
máls, þ.e. að þessi mál verði leiðrétt í
næstu samningum.
Málefni fóstranna hafa ekki verið
formlega rædd ennþá, en heimildar-
ákvæði eru um frestun í þrjá mánuði.
Starfsmannafélag Kópavogsbæjar
er samningsaðili og alveg á næstunni
verða mál fóstranna rædd. Á þessu
stigi á ég ekki von á þvi að fóstrurnar
gangi út 1. marz nk„” sagði bæjar-
ritari. Þær hafa að ýmsu leyti betri
kjör hér en i nágrannasveitar-
félögunum, t.d. færri börn hver og
lengra sumarfrí. Þá er nýbúið að
hækka forstöðukonur í 14. launaflokk,
til samræmis við hækkun í Reykja-
vik.”
—JH.