Dagblaðið - 15.02.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
Bandaríkin:
Lýsa ábyrgð á hendur
Sovétmönnum vegna
falls sendiherrans
—segja Sovétmenn hafa verið ráðgjafa lögreglunnar í Afganistan er ráðizt
var gegn mannræningjunum
Bandaríska stjórnin mótmælti í gær-
kvöldi harðlega við Sovétstjórnina
þeim þætti sem hún ætti í dauða
bandaríska sendiherrans Adolph Dubs
Adolph Dubs sendiherra Bandarikj-
anna I Afganistan var drepinn af
mannræningjum, sem vildu skipta á
honum og þrem féiögum þeirra sem
eru i fangelsi þar i landi.
i Afganistan, sem skotinn var til
bana i fyrrinótt. Fullyrt er að I það
minnsta fjórir fulltrúar frá sovézka
sendiráðinu hafi verið viðstaddir og
veitt afgönsku lögreglunni ráð, þegar
ráðizt var á mannræningjana, sem
höfðu sendiherrann í haldi.
Bandarikjamenn segja að meðal
Sovétmannanna, sem viðstaddir voru
hafi verið öryggisfulltrúi sovézka
sendiráðsins.
Bandaríkjamenn hafa mjög gagn-
rýnt afgönsk yfirvöld fyrir aö ganga
ekki að kröfum ræningjanna og i við-
tali, sem settur utanríkisráðherra
Bandaríkjanna Warren Christopher
átti við sendiherra Sovétríkjanna í
Washington, Anatoly Dobrynin í gær-
kvöldi, sagði hinn síðarnefndi, að
bandarísk stjórnvöld væru hneyksluð
á framkomu Sovétmanna í þessu máli.
Teldi Bandaríkjastjórn að Sovétmenn
ættu stóran hlut í ábyrgðinni á dauða
bandariska sendiherrans.
Sovétríkin munu hafa sent þúsundir
af ráðgjöfum til Afganistan eftir að
Mohammad Tarakki komst til valda í
april 1978. Er sá sagður hallast mjög
að marxisma.
Ekki mun hafa munað miklu að
nokkrir Bandaríkjamenn féllu, er
skæruliðar réðust inn í sendiráð
Bandaríkjanna í Teheran i lran. Sagði
William Sullivan, sendiherra Banda-
rikjanna i Teheran og hans fólk slapp
nautnlega úr höndum skæruliða.
sendiherrann William Sullivan, að ef
hermenn Khomeinys hefðu ekki
komið andartökum siðar hefði getað
fariðilla.
Einn bandarískur fréttamaður féll í
Teheran fyrir tveim dögum. Var hann
ásamt fleiri fréttamönnum við glugga
á hóteli einu í Teheran. Féll hann fyrir
byssukúlu er hann teygði sig út um
glugga. Fréttamaðurinn hét Joe Alex
Morris jr. 51 árs að aldri. Hann var
starfandi hjá blaðinu Los Angeles
Times.
Joe Alex Morrís jr., bandaríski blaða-
maðurinn, sem féll fyrir byssukúlu í
Teheran.
Hjartalæknir-
inn orðinn
poppsöngvarí
Christian Barnard, hjartaskurðlækn- sem ber nafn læknisins og er ætlaður til
irinn frægi frá Suður-Afríku, mun á aö styrkja rannsóknir á hjartasjúkdóm-
næstunni koma fram í nýju hlutvekri. um-
Læknirinn, sem frægur er fyrir hjarta- Barnard, sem einnig leikur undir á
skurðaðgerðir, hefur sungið nokkra píanó, syngur lög sem heita nöfnum eins
hjartnæma ástarsöngva inn á plötu, sem °8 Syngdu með mér og Veittu mér ást
brátt kemur út. Allur ágóði rennur i sjóð Þma-
Italía:
Endurbæta á Síðustu
kvöldmáltíðina
ltalir ætla að verja jafnvirði um það Margar viðgerðir hafa farið fram á verk-
bil tvö hundruð milljóna islenzkra króna inu í gegnum aldirnar en með mjög mis-
til aðlagfæra hiðþekkta málverk Siðasta jöfnum árangri. Verkið, sem er freska.
kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci. vargertárið 1497.
fl A/ffiO Allar vörur á
™ stórlækkuðu verði
— T.d. herramokkasínur úr leðri á kr. 5.500. —
Einnig kventöfflur á kr. 6.000. — Frúarskór með
innleggi á kr. 5.000. Margar tegundir á kr. 1.500
- 3.000. £1^^ ver j haerra en 7 þús. kr.
Lopez mexíkóforseti
skorinorður við Carter
Þótt verkföll hafi nú um langa hríö hálflamað allt daglegt llf I Bretlandi heldur hið
daglega hundalif samt áfram. Hundasýning var haldin um helgina f Londou og
tóku þátt f henni um átta þúsund hundar. Fyrstu verðlaun fékk Kerry-bluc terríer-
inn Callaghan frá Leander. Hér sést hann faðma eiganda sinn, Wendy Streatfield,
en verðlaunagripinn má sjá fremst á myndinni.
Jose Lopez, forseti Mexíkó, gerði
Jimmy Carter, forseta Bandaríkjanna,
það mjög vel ljóst í ræðu við móttökuat-
höfn við komu þess síðarnefnda til
Mexíkó að stórabróðurhlutverki Banda-
ríkjanna væri lokið í samskiptum ríkj-
anna. Bandaríkjaforseti, sem meðal ann-
ars hyggst ræða olíuviðskipti í framtíð-
inni, svaraði fáu en tók fram að stund-
um hefði skort á skilning í samskiptum
Bandaríkjanna og Mexíkó. Talið er að
olíulindir i Mexíkó séu einhverjar þær
auðugustu í heiminum i dag.
Erlendar
fréttir
Kúpuflótta-
mennirnir
sekir um að
myrða utan-
ríkisráðherra
Chile
Tveir flóttamenn frá Kúbu hafa verið
fundnir sekir um að hafa myrt Orlando
Letelier fyrrum utanríkisráðherra Chile
og aðstoðarmann hans í Bandaríkjunum
árið 1976. Varsprengju komiðfyrir í bif-
reið þeirra. Kúbumennirnir tveir eru
taldir hafa unnið verkið af frumkvæði
og beiðni leyniþjónustu Chile. Eru þeir
samtals taldir sekir um tíu morð og eiga
yfir höfði sér lífstíðarfangelsisvist.
Susan Ford
gift lífverði
sínum
Susan Ford, dóttir Gerald Ford fyrr-
um forseta Bandaríkjanna, gekk að eiga
Charles Vance, 37 ára gamlan leyni-
þjónustumann, á laugardaginn var.
Athöfnin fór fram í Kaliforníu og voru
um það bil þrjú hundruð manns við-
staddir. Meðal gesta voru Frank Sinatra
og Zsa Zsa Gabor. Susan hefur fram að
þessu stundað ljósmyndun og einnig
unnið sem módel í sjónvarpsauglýsing
um. Hjónakornin munu búa í Los Ange-
les þar sem eiginmaðurinn starfar. Þau
munu nú vera á brúðkaupsferð á ókunn-
um stað. Susan og Charles kynntust
þegar hann var í öryggisverði Hvíta
hússins.
Ákært í
Guyana sjálfs-
morðsmálum
Larry Layton, einn félaga í trúflokki
Jim Jones, sem hafði stöðvar sínar í
Guyana í Mið-Ameríku, mun á mánu-
daginn kemur verða leiddur fyrir rétt í
Georgetown og ákærður fyrir að hafa
myrt Leo Ryan, bandariska öldunga-
deildarþingmanninn og fjóra aðra landa
hans. Gerðist þetta hinn 18. nóvember,
þegar fimmmenningarnir voru að yfir-
gefa Guyana eftiraðhafa kannað ástand
í búðum trúflokksins. Eftir þessi morð
réði Jim Jones, leiðtogi hópsins, sér bana
og leiddi rúmlega níu hundruð manns
með sér i dauðann. Gerðist það annað-
hvort með fjöldasjálfsmorðum eða meiri
eða minni hótunum. Aðeins nokkrir
þeirra sem í búðunum voru komust und-
an.
Hermennirnir
lentu í
snjóskriðu
Þrjátíu austurrískir hermenn urðu
fyrir snjóskriðu nærri Innsbruck í gær.
Voru þeir við æfingar ásamt níutíu
félögum sínum í fjöllunum. Flestum
tókst að losna undan snjófarginu en
vitað er um i það minnsta tvo, sem
fórust.