Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
Jóhann H. Jónsson bæjarfulltrúi Kópavogi:
[ Bjarga þarfOlíwnöl hf.
— en skipta um stjórn fyrirtækisins
Fulltrúar Framsóknarflokksins í
bæjarstjórn Kópavogs björguöu for-
manni bæjarráðs, Birni Ólafssyni, einum
þriggja fulltrúa Alþýðubandalags, frá
vantrausti á síðasta bæjarstjórnarfundi.
DB ræddi í gær við Jóhann H. Jó^s-
son bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins
og spurði hann um tillöguna og viðskipti
Kópavogsbæjar og Olíumalar hf.
„Það er erfitt að segja af eða á um það
hvort Björn Ólafsson hefur farið út fyrir
verksvið sitt, með oliumalarláninu. Það
er algengt í viðskiptum að lána efni og
ég hef aldrei verið hræddur um að við
fengjum ekki olíumölina til baka. Olíu-
möl hf. hefur nú lagt fram tryggingu
fyrir olíumalarláninu.
En það var ekki rétt að farið við lán-
veitinguna og það viðurkennir Björn.
Þar er aðeins um mannleg mistök að
ræða sem réttlæta ekki beinlínis van-
traust. En nú er fengið veð í vél hjá
Olíumöl hf., sem metin er á 80 milljónir
króna, en olíumalarskuldin er metin á
16—20 milljónir króna.
Ég tel að það megi til með að bjarga
Olíumöl hf.,” sagði Jóhann. „Þetta er
mjög þarft fyrirtæki. En það verður ekki
gert af neinu viti nema ríkið komi inn
sem stór hluthafi, annað hvort Vega-
gerðin eða Framkvæmdastofnun. Þetta
fyrirtæki hefur komið sér upp blöndun-
araðstöðu, sem er mjög mikilvæg sveit-
arfélögunum sem að fyrirtækinu standa
og ekki síður rikinu.
En það má segja að það séu óeðlileg
vinnubrögð hjá stjórnarformanni Olíu-
malar hf. að halda ekki aðalfund í fyrir-
tækinu í tvö og hálft ár og ég er hissa á
formanninum, Ólafi G. Einassyni
alþingismanni, að gera slíka skyssu.
Það má auðvitað segja að bæjarstjórn
hefði getað ályktað um aðalfundinn og
reynt þannig að hafa áhrif á gerðir
stjórnarformannsins.
Viðskipti Kópavogsbæjar viðOlíumöl
hf. eru alveg skýr og þar eru engin vafa-
atriði. Það er misskilningur hjá Helgu
Sigurjónsdóttur bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins sem heldur því fram í DB I
gær að svo sé og hafi verið í langan tíma.
Það er að vísu galli að hafa þurft að
geyma birgðir Kópavogsbæjar á at-
hafnasvæði Olíumalar hf. og um tíma
var deilt um eignarrétt á tæplega 500
tonnum en I dag er ekki ágreiningur um
það magn. Olíumöl hf. hefur samþykkt
að greiða Kópavogsbæ það magn, auk
þeirra rúmlega 1400 tonna sem fyrir-
tækið fékk lánað.
Það er vilji okkar framsóknarmanna
að aukið verði við hlutafé Olíumalar hf.,
en ekki er óeðlilegt miðað við það sem á
undan er gengið að skipt verði um stjórn
fyrirtækisins.” -JH.
Steingrímur Steingrfmsson varabæjarfulltrui í Kópavogi:
Ekkert vit í að auka hluta-
fé hjá gjaldþrota fyrirtæki
„Eftir þessa atkvæðagreiðslu tel ég að
Bjöm Ólafsson sé siðferðilega fallinn,”
sagði Steingrímur Steingrimsson vara-
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Kópa-
vogi. „Það er ekki venja að menn taki
þátt i persónulegu kjöri og bjargi þannig
sjálfum sér. En hér er fyrst og fremst um
innanflokksmál hjá Alþýðubandalaginu
aðræða.
En í þessu olíumalarmáli er íhaldið
með skollaleik. Það var í meirihluta síð-
asta kjörtímabil í Kópavogi og ber
ábyrgð á þeim viðskiptum sem þá áttu
sér stað við Olíumöl hf. Og stjórnarfor-
maður Olíumalar hf. er alþingismaður
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hann heldur
ekki aðalfund í Oliumöl hf. á þriðja ár.
En siðan tengist Björn Ólafsson þessu
öllu. Hann er aðaleigandi Mats hf. sem
sá um eftirlit með öllum eignum Kópa-
vogsbæjar á meðan Sjálfstæðisflokkur-
inn var í meirihlutaaðstöðu. Hann átti
því að vita hvemig öll mál gagnvart
Olíumöl hf. stóðu. Það kostar skattgreið-
endur í Kópavogi fleiri hundruð
milljóna að koma þessu fyrirtæki afturí
lag.
Það þarf að koma þessum málum á
hreint og Alþýðuflokkurinn sér enga á-
stæðu til þess að gefa neitt eftir i þeim
málum. Minnzt hefur verið á ábyrgð
Sjálfstæðisflokksins frá fyrri stjórn, en
þar er ábyrgð Framsóknarflokksins
einnig jafnmikil.
Ég sé ekki að grundvöllur sé fyrir
hlutafjáraukningu I fyrirtækinu í dag.
Fyrst þarf að koma málum í lag. Þaö er
ekkert vit í þvi að auka hlutafé hjá gjald-
þrota fyrirtæki.”
-JH.
A
m
£
M?
vidéo
KONSERT
Penthúsió
VERÐUR MEÐ KAFFI
Á BOÐSTOLUM
Munið söfnunina
GLEYMD BÖRN '79„
giro nr. 1979-04
Hall&©atcs
OG FLEIRI
HEIMSFRÆGIR
LISTAMENN
FORGOnOI
CHIID79
,80»1
J
Mickie
er hress og kátur
* GOD MÚSIK
★ GÓD STEMNING
Árni Þórarinsson blaðamaður, annar tveggja væntanlegra ritstjóra Helgar-
póstsins, sem ætlað er að komi út ekki sfðar en i apríl. DB-mynd: Bj. Bj.
Nafn komið á nýja vikublaðið:
„Helgarpóstuvinn”
— gefið út af sérstöku útgáf ufélagi en
í rekstrartengslum við Alþýðublaðið
„Það er ekki rétt sem fram kom hjá
Árna Gunnarssyni í útvarpinu i fyrra-
dag að hið nýja vikublað sem er i
bígerð væri helgarblað
Alþýðublaðsins,” sagði Bjarni P.
Magnússon, formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþýðuflokksins og
væntanlegur starfsmaður hins nýja
vikublaðs sem hlotið hefur nafnið
Helgarpósturinn.
„Það verður sér ritstjórn á Helgar-
póstinum algerlega óháð Alþýðu-
flokknum og Alþýðublaðinu. En þar
sem fjársterkir aðilar standa ekki að
hinu nýja blaði er rekstrarkostnaður
Alþýðublaðsins og hins nýja blaðs
sameiginlegur. Til þess að lenda ekki í
sömu vandræðum með prentunina á
Helgarpóstinum og Dagblaðið lenti í í
Blaðaprenti var farið bil beggja og
Alþýðublaðið gefur blaðið út. Þar
verður nánast sama form á og jiegar
Reykjaprent gaf út Alþýðublaðið.
Einnig er eðlilegt að Alþýðublaðið
njóti samninganna líka og þvi er
meiningin að Helgarpósturinn verði
borinn áskrifendum Alþýðublaðsins.
Að öðru leyti er engin samtenging þar
á milli.
Ritstjórar Helgarpóstsins, Árni
Þórarinsson og Björn Vignir Sigur-
pálsson, gengu hart eftir þvi að Helg-
arpósturinn yrði ekki flokksblað.
Flokkstjórn Alþýðuflokksins sam-
þykkti það. Alþýðuflokkurinn getur
því sætt gagnrýni í hinu nýja blaði til
jafns við aðra. Ritstjórarnir hafa fullt
frelsi og sitja heldur ekki þingflokks-
fundi Alþýðuflokksins eða gegna
öðrum skyldum, sem Alþýðublaðsrit-
stjóri gegnir.
„Ekki er endanlega Ijóst um út-
komutíma,” sagði Bjarni, „en vonazt
er til að það verði ekki síðar en í apríl.
Helgarpósturinn verður dálítið öðru
visi en dagblöð. Áherzla verður lögð á
menningarmál og e.t.v. fréttaskýring-
ar, en ekki almennar fréttir. Farinn
verður millivegur milli dagblaða og
timarita.
Gjaldskrá Blaðaprents er orðin
Alþýðublaðinu mjög óhagstæð, þar
sem það er aðeins fjórar síður. Þessi
viðbót bætir það ástand. Það er ekki
rétt sem fram kom í Morgunblaðinu
nýlega að prentun Alþýðublaðsins
væri Blaðprenti óhagstæð, heldur
öfugt.
Menn hafa tekið málaleitan um
prentun Helgarpóstsins vel. Ég fór á
fund Blaðprents í síðustu viku og
skýrði frá hugmyndum um blaðið.
Fundur í Blaðprenti verður væntan-
lega haldinn í næstu viku þar sem for-
maður stjórnar er nú erlendis.”
„Við reynum að tryggja okkur gegn
flokkspólitík,” sagði Árni Þórárinsson
annar ritstjóra hins nýja blaðs. Það
verður ekki flokkspólitískur leiðari í
blaðinu og að því stendur sérstakt út-
gáfufélag, en útgáfan er fjármögnuð af
Alþýðuflokknum.” -JH.
Hellissandur:
Mjólkin undin upp
úr kæliskápunum
íbúar á norðanverðu Snæfellsnesi
eru nú orðnir langþreyttir á því að fá
sífellt lekar mjólkurfernur. Mjólkin
berst frá mjólkurbúinu i Búðardal, en
að sögn fréttaritara DB áHellissandi
eru pökkunarvélar búsins nánast
ónýtar.
Menn þurfa því að standa i því oft á
dag að hreinsa mjólk úr kæliskápum
sínum. Mjólkin er seld I kaupfélaginu
áHellissandiog þar þarf að vinda upp
mjólk í fleiri fötur á dag.
Hafsteinn/JH.
Er Sjálfstæðisf lokkurinn farinn að smyrja
kosningavélina?
Lokaf undur um
skattamálin íValhöll
á mánudaginn
Skattamálafundir hverfafélaga
Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn
mánudag voru fjölsóttir. Lokafundur
um þennan málaflokk verður haldinn
næstkomandi mánudag í Valhöll.
Almennar umræður, sem fram fóru
á eftir framsöguræðum, sýndu
ótvíræðan áhuga og báru jafnvel
sumar vott um að byrjað væri að
smyrja kosningavélina.
Framsögumenn á 5 hverfafundum
skiptu þannig með sér verkum að á
hverjum fundi fjallaði annar tveggja
framsögumanna um skattamálastefnu
Sjálfstæðisflokksins en hinn um hinn
faglega og tölulega þátt.
Samanburður var gerður á skatta-
stefnu Sjálfstæðisflokksins annars veg-
ar og vinstri flokkanna hins vegar.
Framsögumenn á fundinum voru
Björn Þórhallsson, Ólafur G. Einars-
son, Sveinn Jónsson, Sigurgeir Sig-
urðsson, Þorvarður Elíasson, Eyjólfur
K. Jónsspn, Valdimar Ólafsson,
Matthías Á. Mathiesen, Árni Árnason
og Lárus Jónsson.
Á lokafundinum um skattamálin i
Valhöll næstkomandi mánudag verða
þeir framsögumenn Birgir Isleifur
GunnarssonogEllertB. Schram. BS.