Dagblaðið - 15.02.1979, Síða 15
Íshokkí
aftur
stundað
— en aðstaðan setur
. mönnum takmörk
Við búum á Íslandi, landi elds og isa
er oft sagt, en þrátt fyrir það hafa ýmsar
vetrariþróttir átt erfitt uppdráttar hér,
skiðaiþróttin og skautar. Aðstöðuleysið
hefur mjög háð mönnum en á undanförn-
um árum hafa skiðamenn litið bjartari
augum til framtiðarinnar.
Það sama er hins vegar ekki hægt að
segja um skautaáhugamenn. Jú, Tjörnin
og Melavöllurinn eru enn í fullu gildi og
það er alveg ágætt, en enn eitt árið hafa
áætlanir um skautahöll verið settar á
hakann. Ishokkí er gífurlega vinsælt í
öllum norðlægari löndum nema á
íslandi. Sjálfsagt er ekki um að kenna
ájjugaleysi eða að íshokkí iiggi illa fyrir
ökkur. Heldur miklu fremur að aðstöðu-
le'ysiö hefur veriö algjört.
Þó eru áhugamenn um íshokkí á
Akureyri og í Reykjavík, sem ekki láta
deigan siga. Þeir á Akureyri eru þó betur
settir, að því leyti að þeir hafa ramma í
kring um völlinn sinn. Slíku láni eiga
Reykvíkingar ekki að fagna. Aðstöðu-
leysi íshokkísins vestur á Melavelli er al-
gjört og því kom sigur þeirra gegn Akur-
eyringum á óvart. En áreiðanlega yrði
íshokkí vinsælt hérlendis sem í ná-
grannalöndum okkar, væri einungis lá-
marksaðstaða fyrir hendi.
SKÍ-stjarnan.
Áfangamerki SKÍ.
SKÍ-merkið.
Gerd Muller, vill nú hætta.
Gerd Muller
vill hætta
nú þegar
Gerd Mtiller, einn skæðasti marka-
skorari allra tima, hefur skrifað félagi
sínu, Bayern Munchen, og boðizt til að
hætta, nú þegar. Bayern mun ákveða i
næstu viku hvort félagið iáti Muller fara
en hann hafði ákveðið að leggja skóna á
hilluna i vor.
Orðrómur er uppi um að Gerd Muller
hyggi á að fara til Bandaríkjanna í fót-
spor félaga síns, Franz Beckenbauer.
Beiðni Muller um að fá að fara frá
félaginu nú þegar kom verulega á óvart í
V-Þýzkalandi.
Gerd Muller hefur nánast unnið til
alls, sem knattspyrnumann dreymir um.
Hann hefur leikið 62 landsleiki — og
skorað 68 mörk en slikt er nánast eins-
dæmi í heiminum. Hann skoraði sigur-
mark V-Þjóðverja er þeir unnu heims-
meistaratignina í Munchen 1974.
Dæmigert Mullermark þar sem hann
nýtti sér tækifæri eins og elding. Hann
vann með félagi sínu, Bayern Munchen,
v-þýzku meistaratignina fjórum sinnum.
Hann varð fjórum sinnum v-þýzkur
bikarmeistari, hann varð þrívegis
Evrópumeistari félagsliða og einu sinni
vann Bayern Munchen Evrópukeppni
bikarhafa. Nú þykir ljóst að ferill þessa
snjalla leikmanns i^V-Þýzkalandi sé á
enda — einhvers mesta knattspyrnu-
manns allra tima.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
SKÍ af stað með skíðatrimm
— þar sem almenningi gefst kostur á að vinna til eigin verðlauna
Skiðasamband Íslands hefur sett á
laggirnar umfangsmikið skiðatrimm þar
sem íslendingum gefst kostur á beinlínis
að keppa við sjáifa sig. Fyrst um sinn
verður aðaláherzla lögð á skiðagöngu og
svig en framkvæmd hins nýja skiða-
trimms verður i höndum skiðaráða og
skiðafélaga á hinum ýmsu stöðum á land-
inu.
Skíðasambandið gengst fyrir skíða-
trimminu fyrir forgöngu ÍSÍ, sem á
undanförnum árum hefur unnið að út-
breiðslu iþrótta fyrir almenning —
trimmið svokallaða. Það hefur verið gert
á margvíslegan hátt en árið 1977 ákvað
ÍSÍ að feta nýjar brautir, reyna að gera
sérsamböndin virkari í trimminu. Og
skíðasambandið reið á vaðið — hefur
byggt upp athyglisvert kerfi, að norskri
fyrirmynd þar sem einstaklingurinn
keppir við sjálfan sig og gefst kostur á að
vinna til verðlauna ef svo má að orði
komast sem hann að vísu verður að
auka sjálfur.
Skíðasambandið er nú að fara af stað
með skíðatrimmið. — Efnt verður til
sérstaks trimmdags fljótlega og farið
verður í fjöldagöngur á skíðum.
Það verða í sjálfu sér engar kvaðir í
sambandi við skíðatrimmið. Hver og
einn getur hagaö æfingum sínum að
vild, eins og honum hentar. Merki verða
gefin út — „verðlaunamerki”. Þessi
merki getur fólk keypt þegar það hefur
náð áfanga — en markmiðið er að fólk
hafi að einhverju að stefna. Þegar einum
áfanga er lokið þá tekur hinn næsti við.
Fyrirmyndin er norsk og í Noregi er
þetta fyrirkomulag gífurtega vinsælt.
í upphafi verða gefin út þrjú merki.
Þar er fyrst „SKÍ stjarna”. Silfurlitað
barmmerki, snjókristall með stöfum SKÍ
í. Til að vinna til SKÍ-stjörnunnar eru
ekki gerðar miklar kröfur. Merkið á að
gefa til kynna, að handhafi þess sé byrj-
aður í skíðatrimmi. Einfaldlega að vera
byrjaður á skíðaæfingum í göngu, svigi
eða stökki. Ekki er krafizt neinna ákveð-
inna afreka.
Þá er áfangamerki SKÍ. Það er einnig
barmmerki, skíði I kross með snjókristal
þar sem þau skerast. Þau eru úr bronsi,
silfri og gulli. Til að vinna sér rétt til
áfangamerkis SKÍ þurfa menn að
„safna” kílómetrum, léggja að baki
ákveðnar vegalengdir í göngu, svigi eða
stökki, samkvæmt reglum. Til að vinna
til áfangamerkisins þá er þessa krafizt og
miðast þetta við eitt ár:
Brons Silfur Gull
ðáraog
yngri 10 km 15 km 30 km
9-10 ára 15 km 25 km 50 km
ll-13ára 25 km 50 km 100 km
14-55 ára 50 km 75 km 150 km
56ára og
eldri 25 km 50 km 100 km
Þetta á við um gönguna, til að vinna
til áfangamerkisins i alpagreinunum, þá
gildir lengd brekkunnar, sem farin er.
Þátttakendur skrá fengna kílómetra á
sérstakt kort, áfangakort SKÍ, sem SKÍ
gefur út. Þar eru dálkar fyrir dagsetning-
ar, hvert gengið er og fyrir fjölda kíló-
metra. Þessu korti, sem verður að vera
undirskrifað af öðrum er síðan fram-
visað til skíðaráðs eða skíðafélaganna á
staðnum til að fá keypt viðkomandi
merki, sem árangur gefur tilefni til.
Nota má kortið i 5 ár, eða þar til það er
útfyllt. Þátttakandi fær siðan nýtt kort
til nýs áfanga. En lokatakmark er afreks-
bikar SKÍ, en slíkan bikar er ekki hægt
að vinna fyrr en eftir 25 ára þátttöku.
Af þeim þremur merkjum, sem í upp-
hafi eru gefin út er svo SKÍ merkið,
barmmerki með stöfum SKÍ. Það er gert
úr bronsi, silfri og gulli og selt eins og
hin merkin. Það er veitt fyrir þátttöku í
almenningsmóti í göngu eða svigi og er
gert ráð fyrir að lágmarksárangri sé náð.
Öllum er heimil þátttaka í þessum
mótum, að því tilskyldu að góður undir-
búningur í skíðaíþróttinni hafi átt sér
stað hjá viðkomandi. Mót jjessi er ráð-
gert að halda fyrir almenning á öllum
skíðastöðum landsins, nokkrum sinnum
á ári hverju. Að loknu SKÍ merkinu þá
er stefnt að veggskiidi úr bronsi, silfri og
gulli — þannig tekur eitt markmiðið við
af öðru og lokatakmarkið er afreksbikar
SKÍ eftir 25 ára þátttöku.
Þetta nýja fyrirkomulag SKÍ er ákaf-
lega viðamikið en veitir almenningi
ákveðið takmark. í Noregi er þetta gífur-
lega vinsælt enda skíöaíþróttin þar ákaf-
lega vinsæl meðal almennings.
Fulltrúar SKÍ víðs vegar um landið
munu gefa allar nánari upplýsingar um
skíðatrimmið, sem nú er verið að hleypa
af stokkunum.
Ipswich keypti Frans Thyssen
— frá Twente Enchede
Ipswich Town hefur keypt hollenzka
iandsiiðsmanninn Frans Thyssen frá
Twente Enchede fyrir 200 þúsund pund.
Bobby Robson hefur verið á hælunum á
Thyssen siðustu vikurnar og það var
loks i gær að Tobson tókst að ganga frá
kaupunum.
Thyssen gengur í lið með félaga
sínum, Arnold Muhren en þeir'voru
saman hjá Twente. Þeir munu leika á
miðjunni fyrir Ipswich. Bobby Robson
hefur verið á höttunum eftir góðum leik-
i manni til að fylla skarð það er Brian Tol-
bot skildi eftir sig er hann fór til Arsenal
fyrir 400 þúsund pund.
Vetrarhörkurnar settu í gærkvöld enn
mark sitt á ensku knattspyrnuna. Fjöldi
leikja átti að fara fram en aðeins tveir
voru leiknir. Enn einu sinni varð að
fresta viðureignum Úlfanna og New-
castle og WBA og Leeds.
Tveir leikir fóru hins vegar fram í 4.
deild og úrslit urðu:
Torquay—Bradrod, 1—2.
Wigan—Wimbledon, 1—2.
SKÍÐASAMBAND
ÍSLANDS
Á fullu i ishokki á Melavellinum. Hvenær skyldi fshokkf slá i gegn á íslandi?
DB-mynd Bjarnleifur.
Þá var annar kunnur kappi i fréttum á
Englandi f gær, Geoff Hurst, fyrrum
enskur landsliðsmiðherji en hann skor-
aði þrjú mörk i úrslitaleik Englendinga
og V-Þjóðverja f Lundúnum 1966. Eini
maðurinn sem hefur afrekað það. Hann
er nú efstur á óskalista Peterborough og
mun ræða við forráðamenn Peter-
borough um að taka við félaginu sem nú
er f 20. sæti f 3. deild. Hann hefur undan-
farin þrjú ár verið framkvæmdastjóri
Telford.
Maraþon-
knattspyrna
íMosfellssveit
Á sunnudag ki. 14 hefja 8 ungir Mos-
fellingar maraþonknattspyrnu. Tilgang-
jur þeirra er annárs vegar að safna fé til
tækjakaupa við fþróttahúsið að Varmá
og hins vegar að slá Íslandsmetið i mara-
þonknattspyrnu.
Hagnaður keppninnar rennur óskipt-
ur til tækjakaupa og hyggjast strákarnir
ganga i hús og safna áheitum sem eru
200 krónur fyrir hverja klukkustund.