Dagblaðið - 17.02.1979, Side 15

Dagblaðið - 17.02.1979, Side 15
 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979. Nýlistasafniö kynnt 15 N Fyrir tæpum tveim árum var hér sett á laggirnar ný listastofnun er nefndist Nýlistasafn og var þá kynnt í fjölmiðlum. Markmið hennar var margþætt, m.a. að bjarga frá glötun og skrásetja verk yngri manna, íslenskra sem erlendra sem hér hafa verið á sýn- ingum undanfarin 20 ár eöa svo og aðrar listastofnanir hafa ekki gefið gaum. Einnig var þessu safni ætlað það hlutverk að vera miðstöð nýjustu strauma og tilrauna í islenskri list og stuðla að opinberri umræðu og kynn- ingu á nýjustu listastílum og vanmetn- um tímabilum i listum. Frá stofnun hafa meðlimir, sem nú eru 26, unnið að því að skrásetja safnið og bæta við það, en samkvæmt skipulagsskrá eru meðlimir skuldbundnir til að láta af hendi rakna eitt listaverk árlega og á það að tryggja eðlilega endurnýjun safnsins. Gríðarlegar eignir Til þess að kynna starfsemina var nú í vikunni efnt til lokaðrar kynning- arsýningar á verkum í eigu safnsins i Ásmundarsal. Þar kom í Ijós að eignir þess eru gríðarlegar, bæði af verkum og alls kyns rituðum heimildum um ís- lenska og erlenda list. Sögðu aðstand- Myndlist endur að safnið hefði getað fyllt Kjar- valsstaði og meira til, hefði það sýnt verk sín þar. T.d. á það um 450 verk sem ekki var hægt að sýná sökum þess að þau þarf að ramma inn. Er Ijóst að hlaupa þarf undir bagga með þessari stofnun á einhvern hátt til þess að hún fái gegnt hlutverki sínu sem er á allan hátt nauðsynlegt í menningarþjóðfé- lagi. Á kynningarsýningunni voru verk á öllum veggjum, á borðum og i gler- kössum og svo niður á næstu hæð. Hér er vart tími til þess að fjalla um eignir safnsins i smáatriðum, en þar er margan skemmtilegan gripinn að finna. Safnið á t.d. verk eftir Beuys, Vostell, Richard Hamilton, Dorothy Iannone og svo Diter Rot, en fari sem horfir má ætla að það muni brátt eiga eitt besta einkasafn í Evrópu á verkum þessa þýska galdrakarls. Hangandi taska Það er t.d. stórmerkilegt að sjá naglaverk eftir Diter sem gert er mörgum árum á undan Zeró stefnunni þýsku og nagla-manninum Uecker. Diter á einnig mikið hljóðfæri sem virkar á lyktar-prinsipi, en nú er lítið orðið eftir af þeim ilmi. Ekki er síður gaman að skoða gömul verk nokkurra íslenskra lista- AÐALSTEINN INGÓLFSSON Hörður Agústsson og J6n Gunnar Árnason við verk Diter Rots, Lyktarpipurnar. manna af yngri kynslóðinni. T.d. á Kristján Guðmundsson þarna merki- lega hangandi „tösku", uppfulla af alls kyns föngum, Guðbergur Bergsson á fyndin verk og nýjar hliðar koma í Ijós á mörgum öðrum. En rækileg umfjöll- un um eignir safnsins verður að bíða betri tíma og umfangsmikillar yfirlits- sýningar. Safnið er enn á hrakhólum hvað húsnæði snertir. Geymslur hefur það tekið á leigu, en alla sýningaraðstöðu skortir enn sem komið er. Aðstand- endur segja að framtíðarverkefni verði að gera reksturinn sem fjölbreytileg- astan hvað varðar sýningarhald og fyrirlestra víða um land. Fullkomin spjaldskrá Ætlunin er einnig að koma á fót bókasafni og fræðimönnum, lista- mönnum og listnemum verði gefinn kostur á að notfæra sér þær heimildir er fyrir liggja. Brýnasta verkefnið segja þeir að sé að koma upp fullkom- inni spjaldskrá með litskyggnum af öllum listaverkum sem safninu berast. Hefur stofnun safnsins þegar vakið nokkra athygli erlendis og hafa borist óformlegar fyrirspurnir frá erlendum aðilum um möguleg sýningarskipti milli íslands og annarra landa. Von- andi tekst þessu ágæta fyrirtæki að vinna það verk sem það hefur ætlað sér. V SKILIÐ OKKUR NÁTTÚRUNNI Um bókmenntir og vistf ræði „Guð skóp landslagið en mann- eskjan borgina,” skrifaði enski rit- höfundurinn Cowper fyrir næstum 200 árum. En mörgum áratugum áður hafði hinn franski hugsuður J.J. Rousseau þegar reifað þá hug- mynd. Án þess að hafa fundið fyrir fnyknum og kolarykinu frá Birming- ham eða Manchester hóf hann að hvetja fólk „til baka, til náttúrunn- ar”. Þetta hefur verið viðkvæði margra rithöfunda síðan, meðan les- endur þeirra kúldrast í stórborgun- um, umvafðir reykjarmekki. í dag heita náttúruljóð ekki lengur þvi nafni, heldur vistfræði- ljóð, — sem gæti bent til þess að skáldin ættu nú í vandræðum með að finna nokkra náttúru til að yrkja um. Hún er nefnilega að hverfa í mengun og rányrkju. Spyrja mætti hvort nátt- úruljóð nútímans séu til einhvers brúkleg, eða hvort þau hverfi lesand- anum úr huga á leið út í náttúruna, eins og títt er með rómantískan kveð- skap. Handbók Hafi lesandinn áhuga á því að sleppa skáldskap og fræðast rækilega um ömurlegar framtíðarhorfur manns og náttúru, þá mæli ég ein- dregið með því að fólk venji sig á daglega eða vikulega skammta af „Ökolögisk handbog” eftir Niels Munk Plum sem út kom árið 1977. Bókin er nefnilega sneisafull af upp- lýsingum, vel rökstuddum en jafn- framt óþægilegum, m.a. um meng- unina sem er að gera út af við okkur og hina vaxandi rányrkju á auðlind- um jarðarinnar sem nú á sér stað. Einnig er fjallað um hina sjúklegu og næstum ómanneskjulegu trú á fram- leiðslu- og neysluaukningu á ári hverju — og hvernig stjórnmála- mennirnir, hvar í flokki sem þeir standa, loka augunum af hræðslu við staðreyndir. Þær staðreyndir eru; að verði ekki hætt nú þegar að framlciða gjörsamlega ónauðsynlega hluti sem menga allt okkar líf þá verður vart langt liðið á næstu öld þegar engin náttúra verður til fyrir skáld að skrifa um og ekkert fólk til að lesa það sem þau skrifa. Framleiðsludýrkun okkar mun þá hafa bundið enda á allt líf á jörðinni. Handbók Plums inniheldur almenna þekkingu af bestu gerð. Sjálfur er höfundurinn verkfræðingur og fyrir allmörgum árum lagði hann þekk- ingu sína í hugmyndabanka sem hefur það að markmiði að ,,lána” al- menningi upplýsingar, bæði gagnrýn- ar og þjóðfélagslega nytsamlegar. Þessi bók var ekki eins umtöluð og „Oprör fra midten” en í þjóðfélags- umræðu komandi ára kemur hún ef- laust að meira gagni. Refilstigir og nýir vegir „Tekur eiturflóðið við af okkur?” spyr Thorkild Björnvig í Ijóðinu Erf- inginn sem er í ljóðabókinni „Delfin- en” frá 1975. I þessari bók svo og í ljóðasafninu „Morgenmörke” frá 1977 lætur Björnvig i ljós áhyggjur yfir framtíð manns og heims, af eins mikilli sannfæringu og Munk Plum. í „Miljödigte” sem er jafn- framt undirtitill „Delfinen” , svo og í þeim greinum og fyrirlestrum sem Björnvig hefur látið frá sér fara, sést að höfundur hefur sett sig vandlega inn i skoðanir sérfræðinga í um- hverfismálum. En þegar hann yfir- færir vitneskju sína í ljóðrænt form er hann ekki ávallt auðlesinn. Hann ýtir við lesandanum og reynir að fá hann til að finna til samsemdar með allri sköpuninni. Við eigum að finna til ástúðar og ábyrgðar gagn- vart náttúrunni, þannig að „augað, í stað þess að kljúfa og búta sundur, liði græðandi yfir trjábörk, skel, fjöður, skinn og húð og skilji hvernig veröldin er samsett, lið fyrir lið”. Sjálfur býr Björnvig á Samsö við Danmerkurstrendur, þar sem enn er ferskt loft að finna. Eyjaskeggjar Rithöfundurinn Vagn Lundbye býr einnig á smáeyju, Langeland. í skáld- sögu sinni „Tilbage til Anholt”, sem lögð var fram fyrir hönd Danmerkur í sambandi við bókmenntaverðlaun Norðurlanda í ár, skrifar hann um aðra og smærri eyju. Heiti bókarinn- ar ber vott um blending barnslegrar alvöru og íróníu, — og minnir okkur kannski á.það að þegar rithöfundur- inn heimsótti Norræna húsið fyrir tveim árum, hafði hann fléttað hár sitt sem Indíáni til að láta i Ijós fyrir- Norrænar bókmenntir PeterSöby Kristensen litningu sína á Evrópumönnum og samúð með íbúum fjórða heimsins. í skáldsögu Lundbyes segir frá Jónasi sem kemur til Anholt til að grennslast eftir afa sínum. Jónas veit að aldar- fjórðungi áður hafði afinn strandað við Anholt eftir Grænlandssiglingu og siðan horfið sporlaust. Um sama leyti er lögreglan að leita að græn- lensku stúlkunni Naju sem einnig virðist hafa horfið skyndilega. Á Anholt hittir Jónas Rollu-Jens sem kemur frá Kristjaniu. „Kristjanía er staður þar sem maður lærir það um samfélagið sem samfélagið sjálft virðist hafa gleymt,” segir Rollu- Jens. Á eyjunni Anholt geta menn hins vegar orðið sér úti um fróðleik um mannssálina og náttúruöflin. Og þar verður mönnum einnig Ijóst að „vesöld fer vaxandi í veröldinni. Hungur, mengun, þjóðamorð”. Vagn Lundbye reynir að nota spennu sakamálasögunnar til að benda á manngildi og heilbrigða nátt- úruskynjun hins kyrrláta bændasam- félags. Hann reynir einnig að sjá ein- hverja von i framtíðinni. En því miður eru það ekki margir í iðnaðar- hverfum stórborganna sem lesa bækur hans. Franitíðarskáldsaga Bjarne B. Reuter hefur áður skrif- að bækur fyrir börn og unglinga, m.a. „Zappa” sem lýsir á raunsæjan hátt uppvexti fjögurra unglinga í út- borg Kaupmannahafnar í byrjun sjötta áratugarins, þegar velmegunin er smátt og smátt að unga út ofbeldi, offramleiðslu og einmana börnum. Skáldsaga hans fyrir fullorðna, „Slusernes Kejser” frá 1978, er fram- tiðarverk af hefðbundinni gerð og segir frá nokkrum þeirra sem lifa af kj arnork usty rj öld. Það er helst tvennt sem er eftirtekt- arvert við þessa bók. í fyrsta lagi lætur höfundur að því liggja að sið- menningin hafi ekki tortímst vegna stríðs og sprengjuregns. Sprengjun- um beita vitstola stjórnmálamenn og hershöfðingjar í dauðans ofboði eftir að samfélagið hefur hrunið saman af vistfræðilegum orsökum. í öðru lagi er spenna bókarinnar byggð upp á valdabaráttu og togstreitu um ferskt og hreint vatn. Sú barátta gengur í raun út á það að beita ekki vopnum, heldur mannlegri útsjónarsemi og eiginleikum. í baráttunni læra menn að meta og hagnýta náttúruna, án þess að misbjóða henni. Eins og allar góðar hrollvekjur um framtíðina, fjallar bókin einnig um það hvernig við getum komið i veg fyrir að allt fari í hundana. Bókin er spennandi afiestrar og hún er alls ekki að telja okkur trú um það að með því einu að gefa náttúrunni mannlegt yfirbragð, munum við standast alla storma sem á okkur kynnu að dynja. Hún reynir að útskýra fyrir okkur hvernig árekstrum og sjálfselsku mannanna er háttað. Boðskapur hennar er, að þrátt fyrir mismunandi viðhorf, geti manneskjan lært að leysa allan ágreining, með samvinnu og sam- stöðu. f því felst einnig að umgangast náttúruna á nærfærinn hátt, svo hennar verði notið enn um sinn. Bjarne B. Reuter lýsir því óhugn- anlega skýrt hvernig sú siðmenning sem við þekkjum leggst í eyði um næstu aldamót, — eftir u.þ.b. 20 ár. Að því leyti eru þeir á sömu línu, hann og Niels Munk Plum. Hafi þeir rétt fyrir sér, erum við rétt um það bil að súpa seyðið af því að hafa látið forheimskun og hugsunarleysið ráða ferðinni. Heimskan stefnir enn ótrauð á framleiðsluaukningu og meiri neyslu. Erfitt er að segja hvort hægt er að nota bókmenntir til að koma vitinu fyrir stjórnmálamenn hvað þetta snertir og kannski er enn erfiðara að segja til um hvernig bók- menntirnar eiga að gera slíkt. Kannski verðum við enn á lífi eftir 25 ár og getum þá lagt orð í belg.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.