Dagblaðið - 17.02.1979, Page 24

Dagblaðið - 17.02.1979, Page 24
Lifrarpylsa DB-mynd Bj.Bj. Lystug nýlist Þetta óvenjulega myndverk var á ný- listasýningu Nýlistasafnsins í Ásmund- arsal í Reykjavík og mun ekki hafa sér- stakt nafn. Eins og lesendur sjá er þetta lifrarpylsukeppur með spakmæli eftir R. South, enskan guðfræðing sem uppi var fyrir mörg hundruð árum. Mynd- verkið er eftir Kristján Guðmundsson. Póstur og sími hækka um 12% Póst- og símaþjónusta hækkar um 12% á næstunni — simagjöldin frá og með næsta þriðjudegi, póstgjöld 1. marz. Helztu breytingar á símagjöldum eru að stofngjald hækkar úr 41.000 i 46.000, hvert umframskref úr 15 krónum í 17 og afnotagjald af heimilis- síma úr 6.900 krónum á ársfjórðungi í 7.700 krónur. Þessi gjöld eru öll án söluskatts, þannig að óhætt er að bæta við 20%, eins og venja er þegar Póst- og símamálastofnunin gefur upp verð. öll önnur símaþjónusta hækkar í sam- ræmi við þetta. Þá hækkar póstburðargjald fyrir al- mennt 20 gramma bréf úr 80 kr. í 90 kr. og burðargjald fyrir prentað mál i sama þyngdarflokki úr 70 krónum i áttatiu. -ÓV. Ákaf Range Rover, gljáandi og nýlegur, lenti út af vegi skammt fyrir ofan brúna á Korpu um þrjúleytið í gær. Öku- maður var einn á ferð og missti hann stjórn á bílnum vegna veðurs og svipti- vinds. Var billinn á leið í átt til Reykjavíkur en lenti út af hinum megin vegarins. Þar hvolfdi bilnum og stað- næmdist í leysingapolli um hálfs metra djúpum og fór ökumaður á kaf í það leysingavatn. Ökumaðurinn var ómeiddur en blautur en bíllinn svolítið skemmdur. -ASt. „ Víkingasveit” í Reykjavíkur- lögreglu C stakri þjálfun ] Myndirnar eru teknar í nýja grinda- turninum á æfingasvæði lögreglunnar. Hann er til margra æfinga nytsam- legur. Við fengum ungan mann — kannski verðandi lögreglumann — tilW. að klifra í honum. DB-myndir. v Áform eru uppi um mjög aukna þjálfun lögreglumanna í Reykjavik og hefur nú verið valin sveit 36 manna sem mun hefja auknar æfingar í Laugar- dalshöll og íþróttahúsi KR, auk þess sem þjálfun fer fram á æfingasvæði lögreglunnar á Seltjamarnesi. í þessari 36 manna sveit era einungis reyndir lögreglumenn og segja sumir þeirra yngri, sem ekki voru valdir, að þarna sé verið að mynd einhverja „súpersveit”. Óskandi væri að lögreglan eignaðist góða „víkingasveit” sem kannski fengi þjálfun í viðureign við það sem er nú daglegt brauð í útlöndum og ekki svo óhugsanlegt hér, eins og t.d. flugvéla- ræningja, árásarmenn á sendiráð svo eitthvað sé nefnt. Fyrsta skrefið var að þrekprófa sveit- ina. Stóðust flestir það próf með ágætum en útkoman varð þó ekki al- mennt eins góð og skyldi. Á grundvelli þess eru æfingar auknar með aukinni og bættri aðstöðu, bæði úti og inni. Sérstök æfingaaðstaða ef að skapast til æfinga á björgun manna úr sjó og vötnum, t.d. úr höfninni. Einn liður þjálfunarinnar er notkun nýrra tækja við slíka björgun. Þá er risinn nýr grindaturn á úti- svæði Iögreglunnar sem nýta má til margs konar æfinga. Allir hljóta að fagna aukinni þjálfun lögreglumanna og vonandi myndast fijótt slík „vikingasveit”, sem í upp- hafi var ýjað að, sem hæf er til að mæta vanda sem ekki hefur verið dag- legt brauð hér en gæti orðið fyrr en nokkurn grunar. -ASt. Eskif jöröur: Fundarauglýsingar týndust í álnavörudótinu f„Pöntó” Þeir Karl Steinar Guðnason og Vil- mundur Gylfason efndu til opins fundar í Valhöll á Eskifirði sl. sunnu- dag. Sjö manns mættu á fundinum. Þeir náðu sem sé ekki postulatölunni tólf. Það er trú mín að fjölmenni hefði verið á fundinum ef fólk hefði vitað um hann. En alþýðuflokksmenn hér eru ekki að hringja í fólk til að láta vita af komu svo tiginna manna heldur aug- lýstu þeir á smámiðum innan um álna- vörudót í „Pöntó” og ein smáauglýs- ing var á hraðfrystihúsinu, svo lítil að enginn tók eftir. Sjálfri þótti mér leitt að vita ekki um fundinn. Vilmundur hefur oft minnt mig á Palla hennar Guðrúnar Helga- dóttur sem sýndur var í sjónvarpinu fyrst eftir að Vilmundur komst á þing. Áður var hann í sjónvarpinu að taka menn í gegn og fletta ofan af þeim. Þá var hann eins og einræðisherra. Nú síðast, er hann kom fram í sjónvarpinu nýlega, var hann eins og þingmanni sæmdi og mér sýndist að búið væri að beizla hann og temja vel. Batnandi manni er bezt að lifa. Ég harma því að forgörðum fór tækifæri til að sjá menn sem koma fram í svona mörgum myndum og era óútreiknanlegir. - Regina / ASt. „Westrænir” menningarstraumar: Hamborgarinn stýfður úr hnefa í jámbrautarvagni — á mótum Miklubrautar og Réttarholtsvegar fáist tilskilin leyfi fyrir veitingarekstrinum Hver veit nema Reykvíkingar kaupi innan tíðar snarl og ferðanesti úr „drive in” járnbrautarvagni á mótum Miklubrautar og Réttarholts- vegar. Á fundi borgarráðs Reykjavíkur 9. febrúar sl. var lagt fram bréf Ásgeirs H. Eirikssonar varðandi veitingastað á umræddum stað og var þvi bréfi visað til umsagnar skipulagsnefndar. Ásgeir er eigandi pylsuvagnsins í Austurstræti sem borið hefur á ný danska menningarstrauma að ströndum hinnar fornu skattlendu. En Ásgeir lætur ekki þar við sitja. Austlægir straumar nægja ekki þegar til lengdar lætur og hamborgara- menning stórveldisins i vestri er rómuð. Þegar Ásgeir var á ferð í Banda- ríkjunum á liðnu sumri sá hann járn- brautarvagna með eldhúsi og sætum fyrir u.þ.b. þrjá tugi manna. Veit- ingavagna þessa er hægt að fá keypta og sagði Ásgeir í viðtali við DB að þeir væru virkilega fallegir. Slíkan vagn hefur Ásgeir hugsað sér að fá sér og koma fyrir á járn- brautarteinum á mótum Miklu- brautar og Réttarholtsvegar, fáist til- skilin leyfi. Gangi vel má hengja annan vagn aftan í og byggja brautarstöð. Þarna geta menn ekið að vögnunum og tjáð pantanir sínar í hátalara og siðan er allt tilbúið er þeir komast að vögnunum. Ásgeir sagðist vongóður um að leyfi fengjust. Stefnubreyting hefði orðið hjá borgaryfirvöldum með veit- ingu leyfa fyrir pylsuvagna og nú fengju neytendasjónarmið að ráða ferðinni. Brautarvagnarnir kæmu þvi i réttu framhaldi af pylsuvögnunum. - JH honum frfálst, úháð dagbJað LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979. Fontur ÞH sleginn Ríkis Fontur ÞH-255 við Torfunefsbryggju á Akureyri. —Mynd: Dagur/ÁÞ. Annað og síðasta uppboð var haldið á Þórshafnartogaranum Fonti ÞH-255 á Húsavik í gærdag. Togarinn var sleg- inn ríkisábyrgðasjóði fyrir 570 millj- ónir króna en það er sama upphæð og boðin var í togarann á fyrra upp- boðinu. Að sögn Sigurðar Briem uppboðs- haldara komu ekki önnur tilboð i tog- arann. Mættir á staðinn voru lögmenn veðhafa og lögmaður eiganda togar- ans. Fontur var eign Útgerðarfélags Þórs- hafnar. Uppboðsbeiðendur vora Fisk- veiðasjóður íslands og Skúli J. Pálmá- son hæstaréttarlögmaður . Togarinn liggur nú í Akureyrarhöfn lagtí nóvember. -JH. Fannst særð og hungruð í Mosfellssveit Gullfalleg og vel vanin tík af Lábra- dor Cheesapeak Bay Retriever-kyni leitaði skjóls við hús i Hlíðartúni á dög- unum. Var hún allstygg og sýnilega' hrædd og í uppnámi enda særð á trýni og að því er virtist eitthvað sjúk á vinstra auga. Henni var veitt húsaskjól og hungur hennar satt. Nú er hún geymd í Dýra- spítalanum og bíður eiganda síns. Enginn sem átt hefur slíkan hund getur týnt honum án þess að verða var við. Og vonandi vitjar eigandi tíkarinnar hennar fljótt. -ASt. yRaupíðVi t/Siuiíd >n fl) TÖLVUR * JDGT BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.