Dagblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979. 3 ADGERÐR Á BARNAÁRI Það hlýtur að vera lýðum ljóst að börnin eru betur komin i umsjá menntaðra fóstra sem sinna þvi starfi eingöngu að annast börnin. Laufey og Erla skrifa: Málefni barna á forskólaaldri Á hvaða sviði verða böm á for- skólaaldri harðast úti hér á landi? Að sjálfsögðu má nefna marga þaetti sem bæta þarf úr. Einna mikilvæg- astan teljum við þann sem við gerum að umtalsefni hér — skort á dag- vistarrými. Ekki er víst að allir geri sér ljósar afleiðingar þess mikla munar sem er á tölu dagvistarrýma og á fjölda þeirra bama sem ekki geta dvalizt hjá foreldrum allan daginn vegna úti- vinnu þeirra. Hvar em öll þessi börn á daginn? Sum em hjá fullorðnum ættingjum, önnur eru i umsjá eldri systkina sem sjálf em í mörgum tilfellum á aldrinum 8 til 14 ára. Flest Raddir lesenda eru þó hjá dagmömmum og það er algengt að börn í síðastnefnda hópnum hafi fengið að kynnast þremur eða fleiri dagmömmum er þau ná 6 ára aldri. Slík skipti em talin óheppileg fyrir sálarlíf barna en eru óumflýjanleg vegna þess hve dag- mömmur eru óáreiðanleg lausn á dagvistarvandanum. Þær hætta af ýmsum ástæðum: veikjast, flytjast burt, fara 1 frí er þeim hentar o.s.frv. Einnig er venjan sú að þær stundi heimilisstörf samhliða gæzlu 3—7 ára barna, auk þess að sinna sínum eigin bömum. Þessar konur em alls ekki ámælisverðar. Þærgera yfirleitt sitt bezta og em í mörgum tilfellum neyddar til starfsins vegna þess að þær fá hvergi gæzlu fyrir sín eigin böm. Það hlýtur að vera lýðum ljóst að bömin eru betur komin í umsjá menntaðra fóstra sem sinna því starfi eingöngu að annast börnin. Þau ættu að geta átakalaust fengið inni á góðum barnaheimilum í sínum hverfum þar sem þau geta dvalizt allan forskólaaldurinn. Þar læra þau að umgangast önnur böm, þau fá margs konar andlega örvun og yfir- leitt hollan mat. Síðast en ekki sízt sleppa þau við öryggisleysið sem fylgir stöðugum umskiptum. Hvernig er leyst úr þessum málum í dag? Skorturinn á dagvistarrými er svo mikill að einungis forgangshópar koma bömum sínum að, og það eftir langa bið. Giftir foreldrar, sem ekki eru 1 námi, fá ekki einu sinni að setja nöfn barna sinna á biðlista dag- heimilanna. Undanskildar eru hér sumar starfsstéttir sjúkrahúsanna og þeir sem eiga kost á einkadag- heimilum. Einnig veldur dagheimila- fátæktin og fóstruskorturinn því að of mörg börn eru á hverja fóstru á dagheimilunum. Fóstruskorturinn stafar m.a. af því að lítið er hlúð að Fósturskólanum af hálfu ríkisins og hann fjársveltur. Hér verður ekki komið inn á málefni bama á skólaaldri en sama vandræðaástandið ríkir þar vegna skorts á skóladagheimilum og starfs- aðstöðu fyrir bömin til að læra í skólunum. Hvað skal gera? Nú verða allir foreldrar og aðrir velunnarar barna að nota tækifærið á barnaárinu og þrýsta á um að barnaheimilum verði fjölgað til sam- ræmis þörfinni og þau einnig bætt tafarlaust. Ekki má heldur gleyma að 'krefjast bættrar aðstöðu Fóstur- skólans og kjarabóta fyrir fóstrur. Liklega verða menn seint sammála um hvað eigi að gera við Torfuna. Raddir lesenda taka við skilaboðum til umsjónar- manns þáttaríns „Heimil- islæknir svarar" í sima 27022, kl. 13-15 alla virka daga. Akið á hægri akrein DÖMUDEILD FALLEGT URVAL AF TÍZKUFATNAÐI ÚR ÚRVALS ULLAREFÉUM GLÆSILEGUR KLÆÐNAÐUF FYRIR | FERMINGARSTÚLKURNAFa FERMINGARSKYRTUR ÁDREIMGI fej ÍMÖRGUM i.LITUM —farið f ramúr á þeirri vinstri Einar S. Jónsson skrifar: Ég átti samtal við lög- Hentugast er að nota hægri akrein til aksturs og þá vinstri til framúr- aksturs. En hvað á að gera á mestu annatimum? regluvarðstjóra þann 12.3 vegna þess ófremdarástands er ríkti í umferðar- menningu okkar er ökumenn notuðu vinstri akreinar til aksturs en ekki til framúrkeyrslu. Tjáði lögregluvarðstjóri mér að ekkert sektarákvæði væri til um þetta mál í umferðarlögum. Aftur á móti tæki fólk því mjög vel ef því væri bent á hve slæmur þessi keyrslumáti væri. Samt sem áður væri litill árangur af þessum tilmælum lög- reglunnar. Einar spyr því hvort ekki sé brýn nauðsyn á herferð í þessum málum þannig að fólk almennt æki á hægri akrein en notáði þá vinstri til framúr- aksturs. Spurning dagsins Hvort kanntu betur við snjó eða rign- ingu? Helga Jónsdóttir hjúkrunarnemi: Ég er hrifnari af snjónum vegna þess að þá gefst tækifæri til að fara á skiði og þess háttar. Magnús Guðmundsson, 11 ára: Ég er hrifnari af snjónum og er alls ekki búinn að fá nóg af honum. Maður blotnar svo i rigningunni. Erla Sigvaldadóttir meinatæknlr: Ég kann betur við snjóinn og vil hafa hann á vetuma. Hins vegar leiðist mér rigningin. Ásbjörn Pálsson húsvörður: Það fer allt eftir þvi á hvaða árstíma það er. Ég kann betur við snjó á veturna en rigningu ásumrin. Jón Þ. Arason málarí: Ég kann betur við rigninguna og er búinn að fá alveg nóg af snjónum. Herborg Slgtryggsdóttir nemi: Ætli ég kunni ekki betur við snjóinn. En það fer þó eftir þvi hvort maður er labbandi eða á bil.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.