Dagblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Prúðu leikararnir nýkomnir Manch. Utd. sigraði Tottenham - 24 á Old Trafford íManchester. Mætir Liverpool í undan- úrslitum bikarsins Manchester United sigraði Totten- ham 2—0 á Old Trafford í enska Bikarnum í gærkvöld. United mætir því Liverpool i undanúrslitum en Manch. Utd. sigraði einmitt Liverpool 2—1 í úrslitum á Wembley fyrir tveimur árum. Sigur Manch. Utd. var verðskuldaður á Old Trafford og Tottenham hafði litið fram að færa. Þó skall hurð nærri hælum í fyrri hálfleik þegar Martin Buchan bjargaði á línu fyrir Manchesterliðið. Þá þegar hafði United náð forustu. Joe Jordan, er átti mjög góðan leik, sifellt ógnandi með hæð sinni og hraða skoraði. Jordan hefur verið frá í tvo mánuði vegna meiðsla, eftir meiðsli, sem hann hlaut í landsleik Skota. Og Sammy Mcllroy bætti við öðru marki Manch. Utd. á 55. mínútu eftir góðan undirbúning Mike Thomas, velska landsliðsmannsins hjá United. Annars urðu úrslit á Englandi i gær- kvöld. Nottm. Forest-Norwich 2—1 WBA-Chelsea 1—0 2. deild Blackburn-Oldham 0—2 Stoke-Orient 3—1 Sunderland-Crystal Palace 1—2 3. deild Chester-Rotherham. 0—1 Chesterfield-BIackpooI 1—3 4. deild Wigan-Torquay 3—1 WBA hefur nú tapað aðeins tveimur stigum meir en Liverpool í 1. deild. Ally Brown skoraði sigurmark WBA á Chelsea á The Hawthorns í gærkvöld. Og meistarar Nottingham Forest sigruðu Norwich 2—1, með tveimur mörkum enska landsliðsmannsins Tony Woodcock á City Ground í Nottingham. Sextugur datt ílukkupottinn í 29. leikviku getrauna kom fram einn seðill með 12 réttum og átti hann sextugur vélstjórí i Reykjavík. Hlýtur hann kr. 848.500.- fyrír sinn 4 raða seðil. Með 11 rétta voru 4 seðlar og vinningur á hvern kr. 90.900.- Vegna tafanna, sem orðið hafa á bikarkeppninni ensku, var ekki hægt að notast við leiki úr 8-liða úrslitum þeirrar , keppni á laugardag. Þegar seðillinn fór i prentun, voru aðeins fyrír hendi 9 leikir i 1. og 2. deild og var fyllt upp með 3 leikjum úr 3. deild, en hvað um það, allir leikirnir gátu farið fram. Firmakeppni Blikana — úrslitakeppnin um helgina Unanfarna þrjá sunnudaga hefur staðið yfir 16 liða undankeppni i fjórum riðlum í UBK-firmakeppninni í handknattleik 1979. Sigurliðin úr riðlunum, alls fjögur, leika síðan til úr slita næsta sunnudag í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ milli kl. 15 og 18. Liðin í úrslitunum eru frá Verzlunarbankanum, Dagblað- inu/Hilmi, Skýrsluvélum og ISAL. Ef marka má leiki undankcppninnar verður þetta fjörug og skemmtileg barátta þar sem jafnt þekktir og óþekktir handknattleiksmenn sýna sannkölluð tilþríf f íþróttinni. Sigurvegararnir i Keflavik, fremri röð frá vinstrí: Sveinn Valdimarsson, Guðný Aftari röð: Unnur Magnadóttir, Eðvarð Eðvarðsson, Haildóra Magnúsdó Guðmundsdóttir. Ósigur Celtic á Park Head — í Glasgow í skozka bikarnum gegn Aberdeen, 1-2 Hinir 37 þúsund áhorfendur sem flykktust til Park Head i Glasgow til að fylgjast með viðureign Celtic og Aberdeen i skozka Bikarnum urðu fyrír miklum vonbrígðum. Aberdeen sigraði Celtic fyrír framan eigin áhorf- endur og Aberdeen mætir því Hibernian í undanúrslitum í skozka Bikarnum. Tvö mörk á fyrstu 13. mín. leiks-j ins lögðu grunn að sigri Aberdeen. | BBC talaði um að bæði mörkin mættu skrifast á reikning enska markvarðarins hjá Birmingham, Peter Latchford. Davidson náði forustu fyrir Aberdeen og Archibald jók muninn í 2—0, eftir aðeins 13. mínútur. Það sljákkaði mjög í áhorfendum. Þrátt fyrir þunga sókn Celtic varð lítið ágengt gegn sterkri vörn Aberdeen. Á 60. mínútu var Alfie Conn tekinn út af hjá Celtic og Bobby Lennox kom inn á sem varamaður. Aðeins þremur mínútum síðar minnkaði Lennox muninn i 2—1 en þar við sat. Aberdeen fór með sigur af hólmi og mætir því Hibemian í undanúrslitum. f úrvalsdeildinni skozku fóm fram nokkrir leikir og úrslit urðu: Dundee United-Partick 2—1 Rangers-Hibernian 1—0 Morton-Motherwell 6—0 Gordon Smith skoraði sigurmark Rangers gegn Hibernian. En sigur Rangers hefði átt að verða stærri, fór illa með upplögð tækifæri. Þó slapp Rangers i lokin, þegar Jackson handlék knöttinn í vítateig Rangers. AUir á Ibrox sáu atvikið, en dómarinn, Valendne er dæmdi hér tvívegis síðast- liðið haust, lokaði augunum fyrir at- vikinu og Rangers slapp með skrekkinn. Dundee United vann góðan sigur á Partick, 2—1. Paul Hegarty náði forustu fyrir Dundee United þegar á 2. mínútu en Partick náði að jafna á 58. mínútu, McAdam var þá að verki. En Paul Hegarty hafði ekki sagt sitt síðasta orð. Hann skoraði sigurmark Dundee United á75. mínútu. Námskeið íblaki Blaksamband íslands genst fyrír A- stigs námskeiði i blaki dagana 31. marz — 1. april 1979. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til skrifstofu ÍSÍ, Rvík, sími 83377, fyrir 25. marz. Þar fást nánari upplýsingar um námskeiðið. Fræðslunefnd BLÍ. Sundmót Barna- skóla Keflavíkur — keppt íf jórum aldursflokkum aðeins i öxl. Á sunnudaginn fór fram i Sundhöll Keflavíkur fyrsta sundmót Barna- skóla Keflavíkur. Keppt var í 50 metra bringustundi stúikna og pilta í fjórum aldursflokkum — það er 3., 4., 5. og 6. bekk bamaskólans. Sigurvegarar í mótinu í Keflavík urðu: í 3. bekk Stúlkur; Guðbjörg Guðmundsdóttir 56.4 Piltar: Sigurður Hinriksson 59.4 í 4. bekk Stúlkur: Unnur Magnadóttir Piltar: 55.8 Sveinn Valdimarsson í. S.bekk 50.3 Stúlkur: Guðný Aðalsteinsdóttir Piltar: 51.6 Eðvarð Þ. Eðvarðsson í. 6. bekk 38.1 Stúlkur: Halldóra Magnúsdóttir Piltar: 46.6 Jóhann Björnsson 40.7 Þess má geta að tími Eðvarðs er undir íslandsmeti sveina en þar sem laugin í Keflavík er aðeins tæpir 17 metrar að lengd þá fæst það ekki stað- fest, til þess þyrfti 25 metra laug. Húsnæðismálastofnun ríkisins Laugavegi 77 Útboö Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- og söluíbúða í Neskaupstað, óskar eftir tilboðum í byggingu 11 íbúða fjölbýlishúss við Nesbakka í Neskaupstað. Húsinu skal skila fullbúnu með grófjafnaðri lóð 15. október 1980. Útboðsgögn verða til afhendingar á Bæjarskrifstofu Neskaupstaðar og hjá Tæknideild Húsnæðismálastofnunar ríkisins frá 16. mars, gegn 30.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til sömu aðila eigi síðar en þriðjudaginn 10. apríl kl. 11.00 og verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- og söluíbúða í Neskaupstað.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.