Dagblaðið - 15.03.1979, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979.
Hafísjakar víða
á fjörum nyrða
— en hætta á landlægum ís virðist ekki mikil vegna breyttrar veðurspár
„Það eru hafisjakar víða á fjörum
á Hornströndum og sennilega einnig
á Sléttu og á Langanesi,” sagði
Þröstur Sigtryggsson skipherra hjá
Landhelgisgæzlunni i simtali við DB í
gær. „Þetta er lummuís, sem tortím-
ist fljótlega í heitari sjó og við meiri
hrcyfingu. Veðurspáin er nú þannig
að meginísinn ætti ekki að koma nær
landinu og stakir jakar hverfa fljót-
lega ef vindátt breytist. Vindátt hefur
mun meiri áhrif á jakaburð en haf-
straumar,” sagði Þröstur.
Ekki er talin ástæða til að ætla að
lcngd íssins til austurs boöi hættu og
Þannig liggur isinn norðan við land-
ið. ., -Kon: J. Kcykdal.
er þá einkum höfð í huga ný veðurspá
um suölæga vindátt á þcssum
slóðum. Við slíka breytingu velkist ís-
inn meira og eyöist, einkum stakir
jakar. Standist veðurspáin ætti
ástandið að breytast fljótt, en eins og
var í dag er full ástæða til aðgátar við
siglingu að næturlagi og i snjókomu,
að sögn Þrastar.
Þröstur kvaðst vita til þess að i 8
vindstigum gætu hraðskreiðustu jak-
ar náð 30 sjómílna reki á sólarhring. í
5—6 vindstigum væri rek jaka 0,6—
0,7 sjómílur á klukkustund. Vindur
væri þvi meiri þáttur en straumur
hvað snertir ferð jakanna.
-ASt.
LIVÍA
HIN
GRIMMA
ÁÍS
LANDI!
Hin kaldrifjaða Livía sem við öll
þekkjum úr þáttunum Ég, Kládíus,
sem eiginkonu Ágústusar keisara,'
verður gestur Anglia-félagsins dag-
ana 22.—27. marz næstkomandi og
mun m.a. sitja árshátíð félagsins 23.
marz að Hótel Loftleiðum. Hún
heitir raunar Stan Phillips og er talin
meðal hæfustu leikkvenna Bretlands
Óvenjuleg hlið á Livíu — blið-
mennskan uppmáluð.
í dag. Fékk verðlaun sem bezta sjónv-
arpsleikkona ársins m.a., fyrir leik
sinn í Ég, Kládíus. Eins og e.t.v.
nokkra rekur minni til lék hún hlut-
verk Mrs. Pankhurst í þáttunum
Shoulder to Shoulder, eða Saman við
stöndum, um jafnréttisbaráttu
kvenna í Bretlandi á síðustu öld.
-GH
Guðbjartsmálið aftur í gang:
„VIL EKKIÞURFA AÐ UGGJA
UNDIR SVONA VITLEYSU”
Rannsókn Guðbjartsmálsins svo-
nefnda er um það bil að hefjast af
fullum krafti eins og DB greindi frá í
gær. Rannsóknin mun einkum bein-
ast að samskiptum Guðbjarts heitins
Pálssonar við Örn Clausen hrl., Sam-
vinnubankann c/o Kristleifur Jóns-
son bankastjóri og útibú Útvegs-
bankans í Kópavogi. Dagblaðið
hafði í gær samband við þá Kristleif
Jónsson og Örn Clausen.
Kristleifur sagðist ekkert vilja um
málið segja þar sem honum hefði
ekki unnizt tími til að lesa frétt Dag-
blaðsins.
örn sagði: ,,Ég hef aldrei verið
kallaður fyrir í þessu máli. Strax og
ég sá þetta i Dagblaðinu hringdi ég í
Hallvarð Einvarðsson og spurði hann
hvort ekki væri hægt að hraða rann-
sókninni þar sem þetta væri farið að
birtast í blöðunum.”
Örn sagðist ekki vilja þurfa að
liggja undir svona vitleysu og þess
vegna legði hann áherzlu á að rann-
sókninni yrði hraðað. ,,Ég skal hafa
viðtal við ykkur strax og rannsókn-
inni er lokið og ég býð ykkur það hér
með,” sagði Örn að lokum.
-GAJ-
— segir Örn Clausen hrl
Visitöludeilan:
BSRB slæst í för
með ASI
Bandalag starfsmanna rikis og bæja
hefur slegizt í för með Alþýðusam-
bandinu í mótmælum gegn verðbóta-
kaflanum í efnahagsfrumvarpi Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra.
Bæði ASÍ og BSRB mótmæla sér-
staklega eftirfarandi atriðum:
Að verðbótavisitala sé sett i 100 1.
febrúar 1979, sem ætla megi að skerði
verðbætur 1. júní.
Að vísitöluviðmiðun verði breytt á
3ja mánaða fresti, sem valdi kjara-
skerðingu.
Að tóbak og áfengi verði tekið inn í
grunn vísitölunnar og þannig raskað
ákvæðum gildandi kjarasamninga og
kjör skert.
Að tekin sé upp og lögfest viðskipta-
kjaravisitala án samninga. Sérstaklega
er mótmælt viðmiðun slíkrar vísitölu
við tímasetningu sem frumvarpið
greinir.
Að tekinn sé upp óskilgreindur skatt-
ur vegna hækkana olíuverðs sem komi
ekki inn í verðbótavísitölu. Með þessu
segja forystumenn launþegasamtak-
anna að sé opnuð leið til ótiltekinnar
skattlagningar og breytingar gerðar á
vísitöluákvæðum án samninga.
-HH.
Þingmenn
teknir tali:
Eru kosningar á næsta leiti?
Oft hefur því verið spáð að þessi rikisstjórn væri
að faila en alltaf hefur eitthvað orðið henni til
bjargar. Menn eru þó sammála um að aldrei hafi
hún staðið eins tæpt og einmitt nú. Dagblaðið tók
fjóra þingmenn tali, einn úr hverjum stjórnmála-
flokki, og spurði hvernig kosningar legðust i þá og
hvort þeir teldu að kosningar væru á næsta leiti.
-GAJ-
„Þessi ríkisstjórn var
byggð á völtum fótum”
„Ef slitnar upp úr þessu endanlega
þá er ekkert líklegra en það verði kosn-
ingar, og þá munum við hlýða því kalli.
Ég hef alltaf búizt við því að það yrðu
kosningar á þessu ári,” sagði Ingvar
Gíslason, þingmaður Framsóknar-
flokksins.
„Pólitikin hefur verið ótrygg í nokk-
ur ár og einkanlega í ár. Þessi rikis-
stjórn var alltaf byggð á völtum fótum
og ég var því andvígur á sínum tíma að
Framsókn myndaði þessa stjórn. En
siðan hef ég stutt hana með ráðum og
dáð og hún hefur unnið allsæmileg
verk.”
Ingvar sagði að ef stjórnin félli þá
væri þar fyrst og fremst um að kenna
einstökum ódug ráðherra Alþýðu-
bandalagsins sem væru ekki sjálfráðir
gerða sinna fyrir ofríki vissra manna í
klíkumútíbæ.
„Kosningar leggjast svona engan
veginn í mig,” sagði Ingvar. „En við
munum gera okkar bezta til að
endurvinna það fylgi sem við höfum
tapað.” -GAJ-
„Hlýtur að vera hægt
að f inna millileið”
— segir Garðar Sigurðsson (AB)
„Þið Dagblaðsmenn ættuð að vita Alþýðubandalagsins.
það manna bezt að við getum verið ,,Sá flokkur sem stendur svona þétt
óhræddir við kosningar. Þið hafið spáð við hliðina á verkalýðnum, hann fær
okkur góðu gengi og ég treysti því að hans stuðning. Hins vegar vil ég ekki
það verði a.m.k. ekki lakara,” sagði vera að spá kosningum. Ég tel hugsan-
Garðar Sigurðsson, þingmaður legt að semja um ágreiningsefnin enn-
— segir Ingvar
Gíslason (F)
Ingvar Gislason (F).
Vilmundur Gylfason (A),
GarOar Sigurðsson (AB).
þá. Það hlýtur að vera hægt að finna
millileið.” -GAJ-
„Kosningar
leggjast
vel f mig”
— segir Vilmundur
Gylfason (A)
„Kosningar leggjast vel í mig, en ég
veit ekkert hvort af þeim verður,”
sagði Vilmundur Gylfason.
,,Ég hef trú á þeim verkum sem ég
hef verið að vinna að hér en ef ekki er
um annað að ræða þá förum við í þess-
ar kosningar og þær leggjast vel í mig.”
-GAJ-
„Sjálfstæðismenn reiðu-
búnir til kosninga”
— segir Lárus Jónsson (S)
„Við Sjálfstæðismenn erum alltaf
reiðubúnir til kosninga og við lögðum
fram tillögu um það fyrir skömmu. Ég
reikna með að þær færu vel fyrir Sjálf-
stæðisfiokkinn og þá vonandi fyrir
þjóðina um leið,” sagði Lárus Jóns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Hins vegar er ég ekki viss um að til
kosninga komi. Stjórnarflokkunum
ber skylda til að koma saman efnahags-
stefnu og ég tel það ekki fullreynt enn.
Ég tel því ekki hægt að fullyrða að
stefni í kosningar fyrr en afstaða
manna til frumvarps forsætisráðherra
kemur fram á þingi.”
-GAJ-