Dagblaðið - 15.03.1979, Side 24
39% lækkun olíuverðs
c
frá miðjum febrúar
—verðið þó enn helmingi hærra en meðalverðið var 1978
j
„Olíustreymi frá íran á nýjan leik
á mestan þátt í því að heimsmarkaðs-
verð á olíu fer nú óðum lækkandi frá
því rosaverði sem olían komst hæst
í,” sagði Vilhjálmur Jónsson for-
stjóri Olíufélagsins í viðtali við DB.
„Meðalverð gasolíu.'sem er okkur
lang þýðingarmest, var árið 1978,
122,62 dollarar á hvert tonn sam-
kvæmt markaðsskráningu í
Rotterdam. Verðið tók svo stökkkipp
upp á við i ársbyrjun og komst hæst í
352.50 dollara á tonnið 16. febr.
Nú 9. marz var verðið aftur komið
niður í 225 dollara á tonn og enn fer
það lækkandi,” sagði Vilhjálmur.
Á íslandi er til geymslurými fyrir
olíu og benzín til rúmlega þriggja
mánaða neyzlu. Skiptist það
birgðarými á olíufélögin þrjú og er
nokkuð jafnt í hlutfalli við sölu
þeirra. Það er nokkurt áhyggjuefni
ráðamanna hve birgðarými er hér
lítið m.a. af öryggisástæðum og eins
til að mæta hugsanlegum tíma-
bundnum verðsveiflum.
Um þetta sagði Vilhjálmur:
„Auðvitað er æskilegt að hér væri
hægt að geyma meiri birgðir, en það
kostar fé sem erfitt er að fá. Til
íslands var keyptur einn farmur þá
olíuverðið var 301 dollar á hvert
tonn. Á leið til landsins er farmur
sem aðallega er benzín. Næsti Rúss-
landsfarmur verður lestaður um
mánaðamótin marz/apríl og hugsan-
lega verður farmur lestaður í Portú-
galfyrirþann tíma.”
Þegar farmurinn sem nýkominn er
til landsins var keyptur á 301 dollar
hvert tonn voru ekki til í landinu
birgðir nema til mánaðarnotkunar.
Var því ekki unnt að bíða lengur með
farmkaup.
En nú horfir allt betur en fyrr á
olíumörkuðum þó enn sé um gífur-
legar verðhækkanir að ræða, miðað
við meðalverð i fyrra. -ASt.
Þórshöfn:
Netaveiðarn-
ar stundaðar
í jakahröngli
Nálægð hafíssins við land á
norðausturhorninu veldur sjómönnum
á Langanesi verulegum óþægindum.
Frá Þórshöfn eru gerðir út sex 20—80
tonna þorskanetabátar og eru þeir nu
daglega á siglingu og veiðum innan um
ísjakana.
Afli sá sem borizt hefur á land frá
áramótum á Þórshöfn nemur nú
rúmlega fimm hundruð tonnum og
hefur verið næg atvinna við vinnslu
aflans. Raunar hefur atvinnuástand á
Þórshöfn verið með bezta- móti í vetur
og í frystihúsinu er verið þessa dagana
að taka upp bónuskerfi. Dagný frá
Siglufirði landaði 120 tonnum af fiski á
þriðjudaginn.
Tíðarfar hefur verið mjög stirt und-
anfarnar vikur, sífelld norðaustan átt
og mikið frost. Snjór er samt fremur
litill á láglendi.
ÓV/PO, Þórshöfn.
Tók til fótanna
er bjöllurnar
glumdu
Ungur maður var í nótt handtekinn í
Hafnarfirði eftir að innbrot hafði ver-
uð framið í Hafnarfjarðarapótek. Er
talið vist að hinn handtekni hafi farið
inn í apótekið en flúið er þjófabjöllur.
tóku að glymja. Maðurinn var all-
slompaður af víni og var i haldi í
morgun.
í apótekinu var farið inn um þak-
glugga. Engu var stolið, slík styggð
hefur komið að þjófmum. við hring-
ingar bjallnanna. -ASt.
Ólafur Jóhannesson:
„Guðmundur stendur við sín orð...”
.Frumvarpið verður lagt fram
dag”, sagði Ólafur Jóhannesson, for-
sætisráðherra í viðtali við DB í
morgun. „Þá geta menn fyrst farið að
ræða það og sjá það í heild sinni.”
Ólafur vildi lítið greina frá fundi
sinum með þeim Guðmundi J.
Guðmundssyni, Karli Steinari og
Ásmundi Stefánssyni í gær: „Eins og
Guðmundur segir, þá áttu þeir leið
framhjá og við ræddum málin. Ég
þekki Guðmund vel frá því að við
unnum að samningum um frumvarp
um lífeyrissjóð sjómanna og ég veit að
hann er maður sem stendur við sín orð.
Það skiptir miklu máli,” sagði Ólafur.
-HP.
Skilvinda sprakk í Fiskimjölsverksmiðjunni á Kletti:
Mildi að ekki varð stórslys
Litlu munaði að stórslys yrði í Fiski-
mjölsverksmiðjunni á Kletti í gær er
skilvinda sprakk og brotin úr henni
þeyttust i allar áttir. Starfsmaður í
verksmiðjunni hafði nýlokið við að
taka skilvinduna út sem kallað er, þ.e.
að hreinsa hana, þegar hún sprakk.
Stóð hann ekki nema um þrem skil-
vindum frá þeirri sem sprakk og var
það mat annarra starfsmanna þarna,
að það hefði verið hin mesta heppni að
hann varð ekki fyrir brotunum úr skil-
vindunni. Starfsmaður sem stóð mun
fjær fékk eina skál úr vindunni i öxlina
en slapp án meiðsla. Að sögn starfs-
manna í verksmiðjunni er ekki vitað
hvað olli sprengingunni og minnast þeir
þess ekki að slíkt hafi komið fyrir áður.
Lengst til hægri á myndinni eru butar úr skitvindunni sem sprakk en vinstra megin er heil sldlvinda. Ekki er vitað hvað
olli sprengingunni. DB-mynd Sv. Þorm.
Nýjar tillögur verkalýðsleiðtoga:
Málamiðlun um úrbætur
handa lægst launuðum
—„við skulum ekki afskrifa ríkisstjórnina,” segir Guðmundur L
„Það er þá að minnsta kosti
einhver að reyna að bjarga ríkis-
stjóminni. Við skulum ekki afskrifa!
hana,” sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-'
mannasambandsins, í viðtali við DB i
morgun. Nokkrir forystumenn
Verkamannasambandsins reyna að
finna málamiðlun. Jón Helgason,
formaður Einingar á Akureyri, sagði
í morgun, að hugsa mætti sér mála-
miðlun, þar sem verðbætur á hin
hærri laun yrðu frystar, svo að unnt
yrði að láta hina lægra launuðu fá
meira.
Með sh'kum bótum og félagslegum
úrbótum telur Jón Helgason og fleiri
í Verkamannasambandinu að finna
mætti málamiðlun svo að efnahags-
frumvarp forsætisráðherra gæti
orðið samþykkt.
Verkamannasambandið heldur
sennilega fund nú um helgina, og
verður þar reynt að setja fram
„pakka” með málamiðlun.
Guðmundur . J. Guðmundsson
sagði að lítið hefði komið út úr fundi,
sem hann og Karl Steinar Guðnason,
varaformaður sambandsins, áttu
með forsætisráðherra í gær. For-
sætisráðherra mun ekki hafa fengizt
til að fresta neitt framlagningu
frumvarpsins, að sögn Steingríms
Hermannssonar dómsmálaráðherra i
morgun.
„Það liggur ljóst fyrir, að frum-
varpinu verður ekki breytt núna,”,
sagði Steingrímur. „Það verður Iagt
fyrir Alþingi óbreytt í dag, en ef
menn kjósa að gera á því einhverjar
breytingar þar, þá erum við til
viðtals, ef slíkt felur ekki í sér,
minnkandi áhrif frumvarpsins í
baráttunni við verðbólguna.”HH/HP
V-
y
frjálst, úháð daghlað
FIMMTllDAGUR 15. MARZ1979
„HefurLúð-
vík lagt
undir sig
útvarp og
sjónvarp?”
— spyrja alþýðuflokks-
ogframsóknarmenn
„Mér finnst mikið alvörumál hvað
Lúðvík Jósepsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, hefur fengið að vaða
uppi i útvarpi og sjónvarpi. Hann fékk
9 mínútur í útvarpi í gærkvöldi og auk
þess var heilmikið haft eftir Svavari
Gestssyni ráðherra. Og svo fékk
Lúðvík 5—6 mínútur einn í sjónvarpi í
gærkvöldi.”
Þetta sagði einn þingmaður Alþýðu-
flokksins í morgun og svipað sjónar-
mið kom fram hjá háttsettum fram-
sóknarmönnum.
„Það athyglisverða er að Lúðvik er
ekki talsmaður nema ákveðins hóps í
Alþýðubandalaginu,” sagði þing-
maðurinn. .jjh
Reykjavík.
borginni
Tveir bíleigendur sem skruppu í
miðborgina i gær, og lögðu bílum
sínum Pósthússtrætismegin við
Reykjavíkurapótek, eru heldur
stúrnir eftir. Grýlukerti eða
jakaklumpar féllu af húsþakinu á
bílana og ollu á þeim nokkrum
skemmdum.
Lögreglan setti vakt við húsið frá
því um nónbil til kvölds er loks fékkst
kranabíll til hreinsunar þaksins.
Ekki urðu slys á fólki, en slík
klakastykki eru lífshættuleg gang-
andi fólki, eins og dæmi eru til um.
-ASt.