Dagblaðið - 28.03.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979.
9
Magnús Gunnarsson
skákmeistari Suðurlands
Skákþingi Suðurlands lauk um
síðastliðna helgi. Skákmeistari
Suðurlands varð Magnús Gunnars-
son, Selfossi. Hann hlaut 6 vinninga.
í 2. sæti varð Helgi Hauksson,
Taflfélagi Árnesinga, méð 5,5
vinninga og í 3. sæti varð Hannes
Ólafsson, Taflfélagi Rangæinga,
með 5 vinninga. Þá tefldi Magnús
Gunnarsson fjöltefli á 24 borðum og
vann hann 22 skákir, gerði eitt jafn-
tefli og tapaði einni skák. -GAJ-
Símamálaráðherra og
símamálastjóri mæta
á borgarafundi
í Mosf ellssveit
Símamálin í Mosfellssveit eru nú í
brennipunkti. Gerðist það síðast að
sveitin varð algerlega símasambands-
laus bæði innan sveitar og út eða inn
yfir sveitarmörkin í einu mesta
verðuráhlaupi sem hér hefur komið á
síðari árum.
Mosfellssveit býr við það einstaka
fyrirkomulag að þar er risið glæsilegt
símstöðvarhús en i þetta glæsilega
hús vantar nýju stöðvartækin sem ein
geta leyst vanda sívaxandi byggðar í
Mosfellshreppi og nágrenni. Hefur
þetta ekki aðeins valdið íbúum efra
vandræðum heldur og því starfsfólki
Pósts- og síma, sem þar starfar og
fær engu ráðið um gang mála.
Á morgun klukkan 20.30 verður
almennur borgarafundur sveitarinnar
í Hlégarði. Junior Chamber hefur
undirbúið þann fund. Á fundinn
koma sem gestir Ragnar Arnalds
ráðherra símamála, Jón A. Skúlason
póst og símamálastjóri, Oddur Ólafs-
son alþingismaður og Pétur Bjarna-
son skólastjóri auk fleiri.
Það þarf víst vart að hvetja Mos-
fellinga til að mæta vel á þennan
fund og sýna samstöðu sína um það
réttlætis- og öryggismá! sem síma-
málin eru byggðarlaginu.
-ASt.
ATH! TAKMARKAÐAR BIRGÐIR
INNRETTINGAR SKEIFAN 7
Sfmar 31113 - 83913
Deilt um vandamál aldraðra:
„Það skilja allir
nema ráðamenn”
—segir Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Grundar
„Þetta er bara þýtt úr sænsku.
Þetta passar hjá þeim en ekki hjá
okkur og það skilja allir nema
ráðamenn að það vantar pláss fyrir
aldraða. Það er sjálfsagt að hafa sam-
vinnu en menn ættu að tala minna og
gera meira,” sagði Gísli Sigurbjörns-
son, forstjóri Elli- og hjúkrlfeimilisins
Grundar, í samtali við Dagblaðið. En i
fyrri viku var haldinn fundur í
Öldrunarfræðifélagi íslands þar sem
mjög voru skiptar skoðanir um hvernig
vandamál aldraðra yrðu bezt leyst.
Ýmsir hafa álitið að hér á íslandi væri
nægilegt pláss á elliheimilum, en það
vantaði burayfirstjórn áþau mál þannig
að þeir sem helzt þyrltu á þessum rúm-
um að halda fengju þau. Gísli er ekki á
sama máli.
,,Það fjölgar ekkert sjúkrarúmun-
um við það,” sagði Gísli. „Erlendis er
þetta þannig að félagsmálaskrifstofan
hefur á hendi sinni alla vistráðningu
sem borgin hefur yfir að ráða. En það
dettur þó engum í hug að fara að
ráðskast með þau elliheimili sem frjáls
félagasamtök ráða yfir.” Gísli sagði
að á tíu ára tímabili hefði fólki 80
ára og eldra fjölgað úr 1200 upp í
rúmlega 2000, eða um 66% á meðan
öðrum íbúum hefði fjölgað um 3.2%
og nú vantaði pláss og það vissu allir
nema ráðamenn.
-GAJ-
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri.
DB-mynd Hörður.
„Vantar lang-
legudeiídir”
segir Albert
Guðmundsson
alþingismaður
Kópavogur:
HJUKRUNARHEIM-
ILIFYRIR ALDNA
- sérstakt sjálfseignarfyrirtæki þar sem ekki er
beðið eftir síóbúnum lausnum hins opinbera
Guðsteinn Þengilsson læknir og Páll
Félagasamtökin í Kópavogi ætla
ekki að bíða eftir síðbúnum lausnum
opinberra aðila til þess að ráða til
lykta vistunarmálum aldraðra. Þau
hafa stigið merkilegt skref.
Um rösklega eins árs skeið hefur
verið í undirbúningi stofnun félaga-
samtaka í Kópavogi til að sameinast
um stofnun sjálfseignarfyrirtækis
sem hefði það markmið að reisa
hjúkrunarheimili fyrir aldraða í
bæjarfélaginu.
Hinn 17. marz siðastliðinn voru
samtök eftirtalinna félaga í Kópavogi
stofnuð formlega í formi sjálfs-
eignarstofnunar: Junior Chamber !
Kópavogi, Kirkjufélag Digranes-
prestakalls, Kiwanisklúbburinn
Eldey, Kvenfélag Kópavogs, Lions-
klúbbur Kópavogs, Lionsklúbburinn
Muninn, Rotaryklúbbur Kópavogs
og Soroptimistaklúbbur Kópavogs.
Á fundinum voru lagðar fram
nokkrar milljónir króna i stofnfé.
Formaður stjórnar sjálfseignar-
stofnunarinnar er Ásgeir Jóhannes-
son forstjóri, formaður, Hildur Hálf-
dánardóttir, ritari, Soffia Eygló sjómanna.
Jónsdóttir, gjaldkeri, og í varastjórn
Bjarnason prentari. Auk þeirra eiga
sæti i fulltrúaráði: lngimar
Sigurðsson, Haukur Hannesson,
lónína Jónsdóttir og Sigurður Örn
Gíslason.
Viðræður við bæjarráð Kópavogs
um staðsetningu og samstarf urn
væntanlegt hjúkrunarheimili eru í
undirbúningi.
Stjórnin er að undirbúa þetta
framtak enn frekar, meðal annars að
kynna öllum bæjarbúum málið.
Það er fátítt, ef ekki einsdæmi,
að svo mörg félög og klúbbar nái
samstöðu um málefni eins og það
sem hér er til viðfangs. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að opinberunt
aðilum virðist ákaflega þungt í skauti
að hrinda í framkvæmd aðkallandi
lausn nauðsynjamála eins og þvi sem
hér er stefnt að.
Þess má til dæntis geta að um
70% af vistrými fyrir fólk á borgar-
svæðinu er í eigu sjálfscignar-
stofnana. Þar eru kunnust ellihcimil-
ið Grund og Dvalarheintili aldraðra
-BS.
,,Það sem læknar hafa ekki áttað
sig á er að sú byggingarnefnd, sem ég er
formaður fyrir, er til að leysa félagsleg
mál fyrir aldraða, ekki fyrir sjúka
aldraða. En auðvitað er engin stétt
þarfari i þjónustunni við sjúka aldraða
en læknarnir,” sagði Albert
Guðmundsson alþingismaður er DB
hafði samband við hann vegna um-
mæla sem hann á að hafa látið fara frá
sér á fundi í Öldrunarfélaginu um að
læknar ættu ekki að koma nálægt
þessum málum.
„Það sem ég er að gera tilheyrir
ekki sjúkraþættinum. Sjúkir aldraðir
eru ekkert annað fólk en sjúkt fólk
almennt. Þessar byggingar sem ég hef
staðið fyrir eiga að leysa vistunar-
vandamál og rjúfa einangrun gamla
fólksins. Næsta bygging er vistunar-
heimili sem tekur við öldruðu fólki sem
ekki getur lengur hugsað um sig sjálft,
Þar yrði meira um að ræða eftirlit en
sjúkraþjónustu. Að sjálfsögðu vantar
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 — Simi 15105
Albert Guðmundsson.
langlegudeildir en ekki virðist nógu
mikill skilningur við gerð fjárlaga á
nauðsyn þess að B-álma Borg-
arspítalans komist upp. Hún verður að
koma upp eins fljótt og auðið er,”
sagði Albert að lokum. -GAJ-
ílÍUiltSSKIW
INNRETTINGAR
Höfum fengið sendingu af hinum vinsælu
útskornu hurðum -
Takmarkaðar birgðir - Nú er tækifærið
Þeir sem lagt hafa inn pantanir eru beðnir að vitja þeirra