Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 24
\ r
Innkaupastof nun Reykjavíkur:
Deilur f borgarráði
- pantað hjá SIS - „þoldi ekki bið”
„Við Birgir ísleifur töldum óeðli-
lega staðið að kaupum á einangrun-
arefni fyrir Hitaveituna. Við lögðum
til að pöntun, sem búið er að gera,
verði tekin til baka og að gengið verði
að tilboði lægstbjóðanda,” sagði
Albert Guðmundsson, borgarráðs-
maður, í viðtali við DB. Hann kvað
tillögu þeirra Birgis hafa verið vísað
frá en þeir gert bókun um málið á
borgarráðsfundi í gær.
Á fundinum urðu snarpar
umræður um útboðsgerð og meðferð
Innkaupastofnunar Reykjavíkur á
tilboðum sem bárust í tæka tíð og DB
skýrði fráígær.
■/ „Innkaupastofnunin hafði
ákveðið að bjóða þetta út,” sagði
Albert, ,,og þegar fallið var frá þeim
áformum, átti að láta borgarráð taka
ákvörðun í málinu.”
,,Af hverju er Innkaupastofnunin
að senda útboð til erlendra aðila?”
spurði Albert. „íslenzkir umboðs-
menn eiga að ganga fyrir um útvegun
efnis og vöru. >á fá íslenzkir aðilar
umboðslaun. Þeir greiða hér skatta
og aðstöðu. Þeir eiga að njóta við-
skipta við opinbera aðila,” sagði
Albert Guðmundsson.
Það sem gerðist er í stuttu máli
þetta: Innkaupastofnun Reykjavíkur
annaðist útboð á einangrunarefni
fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Fjórtán
tiiboð bárust t tæka tíð og voru opn-
uð í viðurvist þeirra, sem þess ósk-
uðu. Tólf dögum siðar berst lægst-
bjóðanda fregn um, að Innkaupa-
stofnun hafi samþykkt að taka sínu
tilboði. Hann sótti sjálfur útboðs-
gögn sem aðrir.
Þar sem SÍS hafði ekki gert tilboð í
samkeppni við aðra tilboðsgjafa, var
öllum framkomnum tilboðum hafn-
að, og SÍS gefinn kostur á að gera
tilboð.
Því tilboði var tekið og samdægurs
gerð pöntun á einangrunarefninu á
þeim grundvelli. Þar með telja for-
stjóri og stjórn Innkaupastofnunar
að málið sé endanlega útrætt.
BS.
Borgar-
eignast
Fjala-
köttinn
„Þar sem hvorki borgarráð né
borgarstjórn er reiðubúin til að
staðfesta framtíðarskipulag á lóð-
inni Aðalstræti 8, samþykkir
borgarráð að fela borgarstjóra að
taka nú þegar upp viðræður við
eigendur Aðalstrætis 8 með það í
huga að ná samkomulagi unt, að
borgarsjóður eignist umrædda
eign.”
Þessi tillaga Alberts Guð-
mundssonar í borgarráði síðast-
liðinn föstudag var samþykkt
með 4 samhljóða atkvæðum.
Kristján Benediktsson greiddi
ekki atkvæði.
Með þessu hefur borgarráð
tekið akveðna stefnu til að leysa
vandamál borgarinnar og eiganda
Fjalakattarins þannig að borgin
eignist lóðina.
-BS.
Þerrír á brækumar
Hann gýtur augunum laumulega á
buxurnar og furðar sig í hljóði á þeim
sem reyna að þurrka þvott í frosti og
snjó. Þvottur hangandi úti um þetta
leyti vetrar er líka sjón sem ekki er
algeng. En blessuð- sólin hefur verið
það örlát á komur sínar á skerið undan-
farið að vel má nú reyna að þurrka
plöggin úti, sérstaklega ef tíminn er
nægur og til eru buxur til skiptanna.
DB-mynd Hörður.
1
EiðurGuðnason:
Smyglaðar stöðvar
skipta þúsundum
Póstur og sími hafði skráð 10.400
farstöðvar, litlar, handhægar tal-
stöðvar, síðasta haust en gerir ráð
fyrir að í umferð sé fjöldinn allur af
smygluðum stöðvum sem sumir telji
að skipti þúsundum. >
Eiður Guðnason (A) telur gildandi
reglur um notkun þessara stöðva ekki
i samhengi við veruleikann. Þess
vegna séu reglurnar þverbrotnar.
Hann leggur ti! í þingslyktunartillögu
að fjarskiptareglur Pósts og síma
verði endurskoðaðar að því er varðar
notkun farstöðva i bifreiðum og
öðrum faratækjum, ávinnustöðum, í
heimahúsum og á víðavangi. Endur-
skoðunin skuli taka mið af þeim
tæknilegu framförum, sem hafa
orðið í framleiðslu fjarskiptatækja
og stefna að því að ,,um notkun far-
stöðva gildi raunhæfar reglur, sem
dragi ekki úr gildi stöðvanna sem
öryggistækja.”
-HH.
Feröamenn íHollandi:
* \
Einbýlishúsaverð á höfuðborgarsvæðinu:
ÞAU FÍNUSTU A
300 MILUÓNIR
— samt undir kostnaði, segja fasteignasalar
Söluverð fínustu einbýlishúsa á
höfuðborgarsvæðinu er komið allt
upp í 300 milljónir og sum hver eru
metin jafnvel þar yfir, skv. upplýs-
ingum tveggja fasteignasala er DB
ræddi við í gær.
Tilefnið var auglýsing í Morgun-
blaðinu þar sem maður óskaði eftir
einbýlishúsi og bauð 60 til 70 milljón-
ir í útborgun, sem er einhver hæsta
útborgunartala, sem til þessa hefur
sézt í fasteignaauglýsingum.
Báðir voru þeir á einu máli um að
þrátt fyrir þetta verð væri ekki hægt
að byggja slík hús fyrir svo lága upp-
hæð á verðlagi nú. Væru dýrustu og
stærstu eignirnar hlutfallslega
ódýrari en smáíbúðir og færi það bil
alltaf heldur minnkandi.
Þá sögðu þeir mjög vandasamt
verk að selja slíkar eignir þar sem
yfirgnæfandi meirihluti fólks, sem
spyrði um þær og vildi skoða, væri
að því af einskærri forvitni en ekki í
kauphugleiðingum.
\
KEYPTU SKARTGRIPIFYR-
IR 3,3 MILUÓNIR KRÓNA
— borguöu með verölausum íslenzkum krónum
Skartgripasalar tveir í Haag og í út- eða sem svarar um 3,3 milljónum is- greiða fyrir vörurnar í sænskum
borg hennar, Rijswijkse, í Hollandi lenzkra króna. krónum og var það auðsótt mál, enda
urðu heldur betur fyrir barðinu á . í báðum tilfellum komu snyrtilegir sænskar krónurtrausturgjaldmiðill.
óprúttnum náungum, eins og frétt úr menn á að gizka um fertugt í verzl-
blaðinu Haagse Courant ber með sér. anirnar og töluðu ensku. Keypti ann- Það var ekki fyrr en skartgripasal-
Segir í fréttinni, að þeir hafi verið ar fyrir 12.000 gyllini, úr, hálsmen og arnir tóku saman afrakstur dagsins,
snuðaðir um andvirði úra og skart- hringi og hinn fyrir 8.000gyllini. að hið sanna kom í ljós. „Sænsku”
gripa fyrir allt að 20 'þúsund gyllini Báðir spurðu, hvort þeir mættu krónurnar reyndust íslenzkar!
Sitja skartgripasalarnir nú eftir
með sárt ennið, annar hafði fengið
sem svarar 78 gyllinum, eða 14.000
krónum og hinn 50 gyllini eða um
8.000 krónur!!
Til hinna snyrtilegu ferðamanna
hefurekkert spurzt.
-HP.
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979.
Vísis„frétt”
útíhött
Vísir birti í gær með miklum upp-
slætti „frétt” um, að ríkisstjórnin
hygðist banna verkföll um óákveðinn
tíma. Stjórnmálaforingjar bera þetta til
baka. „Ómerkilegt blaður,” segir
Svavar Gestsson viðskiptaráðherra í
Þjóðviljanum, og Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra segir í Tímanum, að
þetta sé „alveg út í hött”.
Hið rétta mun vera, að ríkisstjórnin
hyggist fresta 3% grunnkaupshækkun
nokkurra stétta, enda kom það fram í
fjölmiðlum fyrir síðustu helgi.
-HH.
Kópavogur:
Lá við meti f
árekstra-
f jölda í sólinni
Sjö árekstrar urðu í Kópavogi í gær
og nálgast það að vera met. Þykir þetta
tíðindum sæta í þessu blíðskaparveðri
og fólk yfirleitt upplagt til hvers sem er.
Ein af ástæðum árekstranna er talin
varasöm hálka á blettum. Vanir öku-
menn varast slíkt en þeim óvönu og
óvarkárari verður oft hált á svellinu.
-ASt.
Verkstjórinn
varlög-
reglufólki
fljótari til
Rétt fyrir kl. 4 i gær var brotizt inn í
nýbyggingu Félagsmiðstöðvarinnar í
Árbæ og þar stórskemmt einangrunar-
plast með því að mölva það. Lögreglan
og rannsóknarlögreglufólk gengu í
málið en á því urðu ekki lyktir um sinn
þrátt fyrir það.
í gærkvöldi tilkynnti hins vegar verk-
stjóri við bygginguna, að hann hefði
upplýst málið. Voru þarna unglingar á
ferð með ekki óþekkt dólgslæti.
-ASt.
Kókaínmálið:
Tveir játa til
viðbótar
Tveir íslendinganna sem sitja í
gæzluvarðhaldi i Kaupmannahöfn hafa
nú játað að hafa séð um dreifingu á
fíkniefnum sem Ungverjinn, er með
þeim var handtekinn, sá um að afla.
Enn hefur ekkert komið fram við
yfirheyrslur um það hvaðan fíkniefnin,
sem voru aðallega kókaín, eru komin
til Danmerkur. Þá hefur enn ekkert
komið fram um að tengsl séu á milli
þessa fólks í Kaupmannahöfn og ís-
lendings sem situr í gæzluvarðhaldi i
Helsingjaborg í Svíþjóð, en hann segir
svo vera.
Fjármunir þeir sem fundust við
handtöku fólksins eru taldir söluhagn-
aður af fikniefnasölu.
-HP.
Kaupiö\
lS TÖLVUR í
IX QG TÖLVUUI
BANKASTRÆTI 8
<£Í!VH2l*&