Dagblaðið - 24.04.1979, Page 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979.
2
Jónas Jónasson er gamalkunnur og reyndur útvarpsmaður.
Meira af Jónasi
og f élögum hans í útvarpinu
7210-8868 skrifar:
„Mig langar til þess að þakka út-
varpinu fyrir þann bezta skemmtiþátt
sem það, að mínu áliti, hefur boðið
okkur hlustendum upp á. Á ég þá við
þátt Jónasar Jónassonar. Hann hefur
fengið mjög hæft fólk til liðs við sig,
þau Eddu Björgvinsdóttur, Randver
Þorláksson og Gísla Rúnar Jónsson.
En það er segin saga, ef okkur er
boðið upp á eitthvað mjög gott þá er
alltaf hætt eftir örfáa þætti. Eg vil
mælast til þess að Jónas haldi áfram
með þætti sína og hafi sama fólk sér
til aðstoðar, því ekki veitir af að
hressa svolítið upp á mannskapinn
öðru hverju. Ég vil endurtaka að
betri þátt hef ég ekki heyrt í útvarp-
inu og veit ég að margir eru sammála
mér. Húrra fyrir Jónasi og co og
meira takk, ef mögulegt er.”
Leiðinleg sönglagakeppni
eins og venjulega
Krissa hringdi:
„Hvenær í ósköpunum ætlar sjón-
varpið að hætta að troða inn á okkur
þessari hundleiðinlegu sönglaga-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Ég settist niður annan páskadag til
þess að verða vitni að þessum mikla
atburði er eitt gott lag fengi verðlaun.
Keppnin var liðlega.hálfnuð þegar ég
gaf þá von upp á bátinn að ég ætti
eftir að heyra eitt gott lag í henni og
vonbrigði mín urðu mikil að lokinni
keppni er ég uppgötvaði að ég hafði
aðeins verið að horfa á tízkusýningu
en ekki heyrt eitt einasta lag sem mér
fannst skemmtilegt. Hvernig ætli
standi annars á því þegar fjöldinn
allur af góðum plötum er gefinn út
árlega að í eina keppni sem þessa
safnist saman eingöngu leiðinleg lög.
Sá söngflokkur sem bar sigur úr být-
um að þessu sinni hét Mjólk og
hunang. Að vísu skal ég viðurkenna
að söngkonan í þeim flokki fannst
mér hafa hunangsrödd og þá eru líka
gæði hans upptalin, því t.d. jaðraði
við að annar karlsöngvari hans væri
falskur. Skyldu þátttakendum vera
settar einhverjar reglur við lagasmíð-
ina sem gefur eingöngu leiðinlega og
einhæfa útkomu?
í Dagblaðinu 20. apríl hljóðaði
spurning dagsins á þessa leið:
Horfðir þú á söngvakeppni Evrópu i
sjónvarpinu á annan dag páska? Ég
varð.ekki undrandi á því að sjá að
hver einasta manneskja sem spurð
var svaraði því til að hún hefði verið
léleg. Ég er viss um að fleiri svara
hinu sama, en sjónvarpið virðist lifa í
þeirri góðu trú að það sé að sýna
okkur eitthvað skemmtilegt og
spennandi.”
Hljómsveitin Mjólk og hunang sem hlaut sigurverðlaunin fyrir framlag sitt I sönglagakeppnina umræddu.
BÍLASALAN,
VITATORGI
Simi 29330
i~mé
Ávallt
mikið
notaðra
bffrciða *>ont'ac Le Mans árg. ’69, ekinn 90 þ.
m., 8 cyl., 350 cub., sjálfsk. I gólfi.
Rauður, hvitur og svartur, breið dekk,
nýjar krómfelgur, útvarp, afl-veltistýri,
aflbremsur, algjör klassi. Verð 2,5 m.
Wagoneer árg. ’74, 6 cyl., beinsk.,
brúnn, útvarp, segulband, aflstýrí + -
bremsur. Tombóluprís. Verð 2,5,
skipti.
' ~t tra ^
Austin Mini árg. 1974, ekinn 63 þús.
drapplitur, gott lakk. Vetrardekk út-
varp. Mjög gott eintak. Verð 950
þús.
s rai ws» mm,
sí U jr . ..—
Mazdi 323 árg. 1977, ekinn 72 þús., 2
dyra, sumardekk. Bíll i góðu lagi og
mjög vel útlitandi. Verð 2.980.
______ _ .
M. Benz 280 S árg. ’68, 6 cyl.,
sjálfsk., grár, 4 dyra. Sumard- +
vetrardekk, útvarp. Fallegur bill i góðu
lagi. Vili skipta á yngri Benz, t.d. ’72-
’73. Verð 1900 þús.
Jeep Renegade árg. ’75, eldnn 50 þús.,
8 cyl., 304 cub., rauður, gott lakk.
Breið dekk, krómfelgur, útvarp,
segulband, aflstýrí, spilgrínd, dríf-
lokur, splittað framdríf, styrkt grínd.
Verð 3,7 millj.
I
M. Benz 300 árg. 1976, ekinn 180
þús., 5 cyl., sjálfsk., gulur.
Vetrardekk, útvarp, segulband.
Aflstýri + -bremsur. Verð 7,5 m.,
skipti á ódýrari koma til greina.
BMW 2002 ekinn 84 þús., hvitur,
frábært lakk, ný sumardekk, sjálfsk.,
segulband, aflbremsur. Bill I sérflokki.
Verð 2,7 m.
I
SJ*
Mazda 121 árg. ’77, ekinn 46 þús., 4
cyl., beinsk., 5 gira, grásanseraður,
sumardekk, útvarp, segulband. 6
mán. ábyrgð frá Mazda. Verð 4.3 m.
Cortina 1600 XL árg. ’74, ekin 75
þús., 2 dyra, sumar- + vetrardekk, út-
varp, segulband, rauður. Gulifallegur
bill í toppstandi. Verð 1800 þús.
Ford Cortina 1600 árg. ’73, ekinn 113
þús., 4 cyl., beinsk., dökkbrúnn.
Sumardekk, gott ástand. Verð 1350
þús.
E*r
Mazda 616 árg. ’75, ekinn 53 þús.,
brúns., 4ra dyra, vetrardekk, útvarp.
Bfll i góðu standi. Verð 2,5 m.
Toyota Mark II árg. 1973, ekinn 87
þús., 4 dyra, hvítur. Vetrardekk, út-
varp. Fallegur bill, skoðaður ’79.
Skipti koma tii greina. Verð 2,3 millj.
VW 1303 árg. ’75, Ijósgrænn, sumar-
+ vetrardekk, útvarp, ekinn 55 þús.
Skoðaður ’79. Verð 1600 þús.
■ ~í%v
Datsun 120 Y árg. ’78, ekinn 33.000,4
cyl., beinsk., brúnsanseraður, sumar-
+ vetrardekk, útvarp. 4 dyra sem nýr
bill. Verð 3,5 m. Getur tekið ódýrari
bil upp i.
kl. 7,
laugar-
daga
til kl. 5.
Vegna mikillar sölu undan
faríö vantar okkur fjölmarg-
ar tegundir á skrá, t d. flest-
ar geröir af japönskum bíl-
um, Volvo, Cortinu og
margar aðrar gerðir nýlegra
bíla. Útvegum þvott og bón
á bíla, góð vinna.
BÍLASALAN,
lÍÍM
VITAT0RGI
Sími 29330