Dagblaðið - 24.04.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979.
Uganda:
REKA FLÓTTA
HERS AMINS
Herliðinu frá Tansaniu og liði
hinnar nýju stjórnar í Uganda, sem er
undir forsæti Yusufu Lule, gengur vel
að leggja undir sig þjóðveginn sem
liggur til Kenya en hann er mjög
mikilvæpur fyrir alla flutninga til
landíjins. Hermcnn trúir Idi Amin
fyrrum tors :. hafaekki veitt teljandi
mótspyrnu siðan borgin Jinja féll í
hendur nýju stjóri inni fyrir tveim
dögum. Eúizt var við pvi að þjóðveg-
urinn tú Kenya, sem er um það bil
eitt hundraðog sextiu kílómetra langur,
mundi allur vera kominn í hendur
stjórnarhersins innan nokkurra
klukkustunda.
Litlar áreiðanlegar fregnir berast af
Idi Amin. Hann er ýmist sagður í
Uganda eða í Líbvu eða írak til að út-
vega her sínum vopn og verjur. Hrika-
legar fregnir hafa borizt af hryðjuverk-
um hermanna hans á flóttanum. Á
myndinni hér að ofan sést Ugandab'úi,
sem tekinn hefur verið höndum af her-
mönnum frá Tansaníu. Var hann talinn
einn af fyrrverandi liðsmönnum í her
Idi Amin.
Verzlunarstjóri óskast
Þarf að vera áreiðanlegur.
Viðkomandi þarf að hafa góða undirstöðu-
menntun, þ.e.a.s. verzlunar- eða sambærilega
menntun.
Upplýsingar fyrir hádegi að Vitastíg 3 eða eftir
kl. 20 í síma 75729.
CHEVROLET
CONCOURS
árg. ’77. Gullfallegur einka-dekurbíll, ekinn 26 þ. km, 6 cyl., sjálf-
skiptur I gólfí með vökvastýri og bremsur. Skipti mögúleg á seljanleg-
um bil. Til sýnis á staðnum.
BJLAKAUP
illlnuluJLllffim^iitíluAiifflíiflllmnúniMiltffttllllliHiiililiiiiliiiliíiÍ
SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030
Washington:
100.000 MANNA
SÉRSVEITIR VERJI
MIÐAUSTURLÖND
Nú stendur yfir í Pentagon varnar-
málaráðuneyti Bandaríkjanna loka-
undirbúningur fyrir stofnun sér-
stakra hersveita, sem eiga ávallt að
vera til reiðu til að verja brýna hags-
muni Bandaríkjanna víðs vegar um
heiminn. í hersveitum þessum eiga að
vera eitthundrað þúsund menn og á
útbúnaður þeirra að vera þannig að
ekkert á að skorta. Herþotur, skrið-
drekar og alls konar vopn eiga að
vera til reiðu.
Að sögn New York Times en þar
birtist fregn um þessimál,er hér verið
að stofna herlið sem á að hafa það
að höfuðtilgangi að geta gripið inn í
gang mála í Miðausturlöndum ef
þörf krefur.
í Pentagon mun einnig, að sögn
New York Times vera unnið að sér-
stökum varnaráætlunum í Mið-
austurlöndum í samvinnu við vin-
veitt ríki í þeim heimshluta.
Ástæðan fyrir stofnun þessara
sérstöku sveita eru hinir mikilvægu
hagsmunir Bandaríkjanna og Vestur-
Evrópu í Miðausturlöndum. Þaðan
kemur mikill hluti þeirrar oliu, sem
flutt er til vestrænna ríkja. Hags-
munir Bandarikjanna urðu fyrir
miklu áfalli við fall keisarastjórnar-
innar í íran og vilja þeir bæta sér það
upp sem fyrst.
Einnig hafa Bandaríkjamenn tekið
að sér mikilvægt öryggiseftirlitsstarf í
Miðausturlöndum, þegar friðar-
samningar ísraels og Egyptalands
voru undirritaðir.
Hinar sérstöku hersveitir eiga að
vera búnar öllum nýjasta búnaði svo
sem flugskeytum af fullkomnustu
gerð. Eiga að vera liðsmenn úr land-
her, flugher og flota meðal hinna
hundrað þúsund manna. Að sögn
New York Times eiga liðssveitirnar
að vera tilbúnar til hernaðaraðgerða
á svæðinu frá íran í norðri alveg til
furstadæmisins Oman syðst á
Arabiuskaganum.
Þessar sveitir eiga aðeins að grípa
til vopna og aðgerða samkvæmt
beinni skipun Bandaríkjaforseta.
Fylgismenn Muzorewa biskups fagna nú sigri og allt bendir til þess að hann verði fyrsti svarti forsætisráðherra Ródesiu. Á
myndinni sjást þeir veifa myndum af foringja sinum á fundi á götum Salisbury.
Ródesía:
Kosningaregfur
vorubrotnar
segirShhole
—f lokkur Muzorewa biskups virðist munu sigra
samkvæmt fyrstu tölum um kosningaúrslit
Sithole, einn þriggja svartra ráð-
herra í bráoabirgðastjórn Ian Smith í
Ródesíu, hefur opinberlega lýst yfir
því að hann telji kosningaúrslitin í
Ródesíu ekki munu sýna hinn rétta
vilja svartra þar í landi. Sithole sem
er einn leiðtoga fjögurra flokka
svartra sem þátt tóku í kosningunum
hefur ekki tiltekið nein sérstök dæmi
um kosningasvik eða misferli. Hann
hélt því fram í gær að kosningaúrslit-
in sýndu aðeins vilja þeirra ráða-
manna i Salisbury sem sett hefðu
kosningarnar á svið en ekki vilja
svartra íbúa Ródesíu.
Fyrstu tölur um talningu atkvæða
úr kosningunum, sem talið er að
tæplega 64% svartra ibúa hafi tekið
þátt í, benda til þess að flokkur
Muzorewa biskups muni vinna sigur
og fá verulega meira fylgi en flokkur
Sithole. Benda því likur til þess að
Muzorewa verði fyrsti forsætisráð-
herra Ródesiu eftir að hin nýja
stjórnarskrá tekur gildi.
Bæði Muzorewa og Sithole tóku
upp samvinnu við Ian Smith, for-
sætisráðherra hvíta minnihlutans í
landinu. Urðu þeir ráðherrar í bráða-
birgðastjórn hans ásamt þriðja svarta
leiðtoganum Chirau ættarhöfðingja.
Undirbjó sú stjórn nýja stjórnarskrá
þar sem réttindi svertingja í Ródesíu
voru aukin mjög þó svo gert væri ráð
fyrir verulegum sérréttindum hvítra í
landinu enn um hrið.
Hafa þeir þremenningar verið for-
dæmdir af öðrum leiðtogum svartra í
landinu, sem nú berjast með skæru-
hernaði gegn Ródesíustjórn. Engin
erlend ríki fyrir utan Suður-Afríku
hafa viljað viðurkenna stjórn
Ródesíu eða þær stjórnarskrár-
breytingar sem þar er verið að gera.
Hin mikla þátttaka í kosningunum
þar er þó verulegur sigur fyrir Ian
Smith og hina þrjár svörtu sam-
starfsmenn hans. Þó gæti óeining
milli þeirra spillt fyrir viðleitni þeirra.