Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.05.1979, Qupperneq 5

Dagblaðið - 12.05.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1979. 5 Deildakeppnin ískák: — og Seltjamarnes í 2. deild Þegar aðeins eru fjórir leikir eftir í deildakeppninni Skáksambands íslands er staðan þannig í 1. deild: 1. Taflfélag Reykjavíkur 41,5 v., 2.-3. Skákfélag Akureyrar og Skákfélagið Mjölnir 32,5 v., 4. Taflfélag Kópa- vogs 28,5 v., 5. Skákfélag Hafnar- fjarðar 24 v., 6. Skákfélag Keflavíkur 23 v„ 7. Taflfélag HreyfUs 14 v. 8. Skáksamband Austfjarða 12 v. S 2. deild hefur Taflfélag Seltjarnarness þegar sigrað með 31 vinningi og þar með tryggt sér keppnisrétt i 1. deild næsta vetur. Af siðustu úrslitum í 1. deild má nefna Ölfusárbrú enn ekki á áætlun: Brúarskorturinn kostar Stokkseyri og Eyrar- bakka 85-100 millj. á ári — hvergi meiri f ólksfækkun en einmitt þar—fólkið flytur brott að TR sigraði Mjölni með 5—3, Kópavogur sigraði Austfirði með 6,5—1,5 og Keflavík sigraði með Hreyfil með5— 2. Taflfélag Reykjavikur er sigur- vegari í 1. deild og er það i fjórða sinn sem þaö sigrar í keppninni sem nú fer fram í 5. sinn. Mjölnir hefur sigrað einu sinni. -GAJ- „Ef á að fresta brúarframkvæmdun- um enn einu sinni er hætt við að ekki þurfi að ræða frekar um þessa brú vegna þess að engir yrðu til að nota hana. Á síðustu tveimur árum hafa fjörutíu manns flutt héðan,” sagði Magnús Karel Hannesson, sveitar- stjórnarmaður á Eyrarbakka, í samtali við DB. í fyrrakvöld héldu hreppsnefndar- menn á Eyrarbakka og Stokkseyri fund með þingmönnum Suðurlandskjör- dæmis vegna þess að verið er að leggja fram á Alþingi vegaáætlun til fjögurra ára þar sem ekki er minnzt einu orði á Ölfusárbrú. Á fundinum var lögð fram greinar- gerð þar sem sýnt er fram á nauðsyn brúarinnar. Þar kemur meðal annars fram að fimm mánuði ársins er Þor- lákshöfn heimahöfn Eyrbekkinga og Stokkseyringa vegna þess að trygginga- félögin taka ekki í mál að tryggja báta í þessum höfnum á þeim tíma vegna lé- legra hafnarskilyrða á Eyrarbakka og Stokkseyri. í skýrslunni kemur og fram að sá aukakostnaður sem hinir 1100 Eyrbekkingar og Stokkseyringar beri vegna dráttar á byggingu Ölfusárbrúar nemi 85—'110 milljónum á ári. Bent er á að vegalengdin Eyrarbakki — Þor- lákshöfn mundi styttast úr 43,18 km í 15,45 km með tilkomu brúarinnar og vegalengdin Stokkseyri — Þorlákshöfn mundi styttast úr 44,96 km í 20,25 km. Bent er á að Þrengslavegur hafi á sín- um tima verið byggður með brú í Ós- eyrarnesi sem forsendu. Þorlákshöfn var gerð að landshöfn með sömu for- sendu og landshöfnin stækkuð, enn á sömu forsendu. Fjárveitingar til hafnargerðar á Eyrarbakka og Stokkseyri hafa um langt árabil verið langt undir þörfum á þeirri forsendu að brú í Óseyrarnesi muni létta framkvæmdaþörf við hafn- irnar. Jafnhliða því hefur fram- kvæmdaleysið við hafnirnar og óra- fjarlægð til „heimahafnar” í Þorláks- höfn hvað eftir annað steypt yfir þessi þorp hundruð milljóna króna tjónum vegna skipsskaða og fast að þvi lagt i rústir atvinnumöguleika íbúanna. 1 skýrslunni er bent á að kostnaðarauki fiskvinnslustöðvanna á Eyrarbakka og Stokkseyri af brúarleysinu í beinum flutningskostnaði hafi numið 30 millj- ónum króna mánuðina janúar-april á þessu ári. Þá er og minnt á að hitaveilu- möguleikar byggist á vatnsöflun vestan Ölfusár. Það þurfi þvi engan að undra þótt meiri fólksfækkun hafi orðið i þessum byggðum en þekkist annars staðar á landinu undanfarin ár. Að óbreyttum samgöngum hljóti þessi þró- un að halda áfram unz y fir lýkur. -GAJ Ekki þessum að þakka að ekki varð slys af „Það ætti að taka prófið af bílstjór- anurn fyrir þetta,” sagði lögregluþjónn sem leit inn á ritstjórn og sá þessa mynd. Þetta er víst hættulegur leikur. Pilt- urinn rak allt í einu efri búkinn — og vel það — út um gluggann á bílnum og kona á smábil við hliðina hrökklaðist upp á gangstétt. Það var ekki þessum pilti að þakka að ekki varð alvariegl slys. DB-mynd Sv. Þorm. HÁSKÓLINN FYLGIST MEÐ LYFJA- STYRKLEIKA í BLÓDIVISTMANNA — yf irlýsing Þrastar Laxdal, læknis Tjaldanesheimilisins Reykjavík 10. maí 1979. Dagblaðið, Reykjavík. í Dagblaðinu hafa undanfarna daga birzt öfgafull og órökstudd skrif varðandi illa meðferð á vist- mönnum Tjaldanesheimilisins í Mos- fellssveit. Vitnað er í atburði sem eiga að hafa átt sér stað fyrir u.þ.b. 3 árum og forstöðumaður heimilisins borinn þungum sökum. Meðal annars er þvi fleygt fram að „óhugnanlegum tilraunúm” með lyf hafi verið beitt, að undirlagi læknis heimilisins ,,að því er tjáð var”. Hér er um að ræða augljósa van- þekkingu og villandi vitpisburð fyrr- verandi starfsfólks á Tjaldanesi svo að ástæða þykir að leiða fram stað- reyndir þótt á þessum vettvangi sé. Á Tjaldanesi dvelja að jafnaði 24 þroskaheftir piltar, mismunandi heilaskaðaðir. Nokkrir piltanna eru einnig haldnir flogaveiki og þurfa á stöðugri og margvíslegri lyfjameð- ferð að halda. í slæmum köstum getur oft þurft að bæta við lyfjum ,,i sprautuformiVlyfjum sem verka vel á flogaköstin en eru vissulega einnig „róandi” — undir venjulegum kring- umstæðum. Sumir þessara pilta hafa svarað mjög illa flogaveikimeðferð, eins og títt er með heilaskaðaða ein- staklinga. Hefur því ósjaldan þurft að þreifa sig áfram með ýmsar krampalyfjategundir í mismunandi skömmtum, í von um beztan árang- ur. Þessum lyfjagjöfum er öllum stjórnað af lækni heimilisins og fylgzt með lyfjastyrkleika í blóði með mælingum á Rannsóknastofu Há- skólans í lyfjafræði, nokkrum sinn- um á ári. Þá hafa örfáir piltanna fengið tímabundnar lyfjagjafir vegna árás- arhneigðar, mjög erfiðra hegðunar- vandkvæða eða geðsýkikasta og þá ávallt verið reynt að minnka og hætta við lyfin þegar fært þótti, hverju sinni. Komið hefur fyrir að þurft hafi að leggja vistmann inn á Kleppsspít- ala til að hafa hann undir stöðugu lækniseftirliti, meðan önnur og meiri lyfjameðferð væri reynd heldur en sú sem tíðkast á Tjaldanesi til að koma viðkomandi úr bráðu geðsýkikasti. Lyfjagjafir og lyfjaskammtabreyt- ingar á Tjaldanesi hafa mér vitanlega aðeins farið fram í fullu samráði við lækni og „lyfjum á línuna” og „óhugnanlegum tilraunum” vísa ég til föðurhúsanna. Tel ég reyndar nokkuð athyglisvert að aldrei sá fyrrnefnt starfsfólk heimilisins ástæðu til að kvarta við lækni út af ómaklegum lyfjagjöfum. Þess má einnig geta að stærstur hluti vistmanna hefur aldrei fengið nein lyf, nema vitamín. Sem læknir Tjaldanesheimilisins vitni að frjálslegu og hlýju viðmóti sem velferð drengjanna virðist ávallt undanfarin sjö ár hef ég jafnan dáðst starfsfólks við vistmenn og er for- sitja í fyrirrúmi. að heimilisbrag þar og aðeins orðið stöðumaður sizt undanskilinn þar Þröstur Laxdal læknir. SÚPER-HLUTAVELTA VERÐUR HALDIN í IÐNAÐARMAIMIMAHÚSIIMU SUNNUDAGINN 13. MAÍ NK. KL. 2 E.H. SKÓLALÚÐRASVEIT ÁRBÆJAR OG BREIÐ HOLTS LEIKUR. ★ Meðal vinninga eru utanlandsferðir með Samvinnu- ferðum. ★ Yfir 10.000 vinningar. ★ Enginnúll. ★ Gamla krónan ífullu verðgildi. ★ Verðgildi allra vinninga yfir kostnaðarverði. ★ Allur ágóði til líknar- ogstyrktarmála. Kiwanisklúbburinn ELLIÐI

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.