Dagblaðið - 12.05.1979, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1979.
Allir geta keppt í spyrnu
Notkun kvartmílubrautarinnar
Standard kvartmíluf lokkur
Fjórar stórkeppnir í sumar
Síðastliðið haust var fyrsta mann-
virkið, sem einungis er ætlað til iðk-
unar bifreiðaíþrótta, tilbúið. Er það
að sjálfsögðu kvartmílubrautin í
Kapelluhrauni sem þar er átt við.
Þrátt fyrir að átta mánuðir séu frá
malbikun brautarinnar hefur hún
lítið sem ekkert verið notuð og má
þar um kenna vondum veðrum. Eins
og flestir vita er ekki hægt að keppa í
kvartmiluakstri í votviðri, og enn þá
síður í hálku og snjó. Það er fyrst nú
sem brautin fer að koma að tilætluð-
um notum.
Meginmarkmið með byggingu
brautarinnar voru að fjarlægja hrað-
akstur og kappakstur af götum borg-
ar og bæja og þjóðvegum inn á lok-
að, löglegt svæði þar sem hvorki al-
menningi né búfénaði stafaði hætta
af. Eigandi brautarinnar, Kvartmílu-
klúbburinn, var stofnaður með þetta
markmið i huga, svo og að'koma upp
aðstöðu fyrir félagsmenn klúbbsins.
Þrjú ár liðu frá stofnun klúbbsins þar
til brautin var malbikuð og á þeim
tíma hefur stjórn Kvartmíluklúbbsins
barist gegn hvers kyns ólöglegum
hraðakstri og orðið vel ágengt. Alltaf
voru þó einhverjir sem kepptu í
spyrnu á þjóðvegum í kringum
höfuðborgina og var þeim ef til vill
nokkur vorkunn meðan ekki var til
nein keppnisbraut, en með tilkomu
hennar hafa þeir enga afsökun fyrir
athæfi sínu. Lögreglan hefur tekið
alltof vægt á brotum þessara manna
með tilliti til að þeir stofna sér og sak-
lausum vegfarendum í mikla hættu
með skipulagslausum og handahófs-
kenndum kappakstri í skjóli myrk-
urs.
Æfingar á brautinni
Svo sem fyrr sagði hefur kvart-
mílubrautin verið tekin í notkun og
geta félagsmenn Kvartmíluklúbbsins
æft sig þar og prófað bíla sína.
Þegar æfingar fara fram verður að
tilkynna lögreglunni í Hafnarfirði
það en æfingin verður alltaf að vera
undir stjórn einhvers i stjórn Kvart-
míluklúbbsins eða trúnaðarmanna
stjórnarinnar, sem hafa þá lyklavöld
að brautinni. Við æfingarnar gilda
nokkrar reglur, sem allir verða að
faraeftir, en þær eru að einungis einn
bíll fer eftir brautinni í einu og verður
hann að aka tilbakabrautina aftur að
starfsvæðinu en ekki eftir sjálfri
keppnisbrautinni. ökumenn verða að
nota öryggisbelti og hafa hjálm á
höfði. Til að fá að fara á brautina
þurfa menn að vera félagar í Kvart-
míluklúbbnum og vart þarf að taka
það fram að allir bílarnir verða að
vera í fullkomnu lagi.
Keppnir á brautinni
Ef tveir bilar fara eftir brautinni í
einu er um bifreiðaiþróttakeppni að
ræða og þá verður að fá sérstakt leyfi
hjá dómsmálaráðuneytinu, tryggja
bílana sérstaklega og fullnægja
ýmsum öðrum skilyrðum.
Fyrirhugað er að halda þrjár stórar
kvartmílukeppnir í sumar auk sand-
spyrnukeppni. Fyrsta kvartmílu-
keppnin á að vera sunnudaginn 20.
maí. Verið er að smíða nýjar tíma-
græjur fyrir klúbbinn og veltur allt á
því hvort þær verða tilbúnar hvort
.keppnin verður þann 20. eða 27. mai.
Ekki er nauðsynlegl að vera með átta strokka bíl til að keppa í kvartmílu-
akstri. Þessi BMW eróbreytturog mun keppa i standard kvartmíluflokki.
Chevrolet Corvette árg. ’69: Þessi bíll lenti í árekstri fyrir tveimur árum en nú er veriö að gera hann upp og verður hann .
byggður upp frá grunni með keppnir í standard flokki i huga. DB-myndir Jóhann Kristjánsson.
Guðmundur Kjartansson, gjaldkcri Kvartmíluklúbbsins, gerir heiðarlega tilraun til að slátra dekkjunum undir bil sínum
meðan nokkrir félagar hans halda bílnum föstum. DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Kvartmílukeppnistímabilið ís-
lenska, það fyrsta í röðinni, fer nú
senn að hefjast og af því tilefni
munum við nú kynna flokkaskipt-
ingu og reglur Kvartmíluklúbbsins
sem keppt verður eftir. Kvartmílu-
íþróttin er bifreiðaíþrótt almennings
vegna þess að hægt er að keppa á svo
að segja hvaða bíl sem er. í kvart-
mílukeppni eru bílarnir flokkaðir á
tvennan hátt. í fyrsta lagi eru bílarnir
flokkaðir eftir því hvort þeir eru í
upprunalegri mynd eða meira og
minna sérsmíðaðir. Síðan eru þeir
flokkaðir í undirflokka eftir þyngd
og vélarstærð. Það eru því ekki alltaf
kraftmestu bílarnir sem vinna, auk
þess sem ökumaðurinn hefur sitt að
segja.
íslensku kvartmílureglurnar eru
byggöar á reglum bandaríska kvart-
mílusambandsins (National Hot Rod
Association) og voru þýddar úr
sænsku yfir á islensku. í islensku
reglunum eru sænsku nöfnin á flokk-
unum notuð og hefur það valdið
nokkrum ruglingi, einkum vegna þess
að islenskir kvartmílingar lesa mest
amerísk kvartmílublöð og bækur.
Standard flokkur
Fyrsti flokkurinn, sem við segjum
frá, nefnist standard flokkur og er
það sem Ameríkanar kall? Stock
Eliminator. í þeim flokki má breyta
bílunum minnst. Ekki má hreyfa við
innréttingunni í bílnum og verða
jafnvel gólfmotturnar að vera á
Sínum stað. Vélin í bílnum verður að
vera upprunaleg og má ekki nota
annan útbúnað en verksmiöjan gefur
upp. Leyfilegt er að bora vélarblokk-
ina út í 0.060 tommur en ekki má
breyta þjöppuhlutfalli né öðru. Þá er
einnig óleyfilegt að létta kasthjól og
aðra snúningshluti vélarinnar. Kamb-
ás, ventlar og ventlagormar veröa að
vera upprunalegir. Þá má ekki skipta
um blöndung, en leyfilegt er að
skipta um nálar í blöndungnum.
Óleyfilegt er að taka vatnsdælu,
dínamó og viftuspaða úr sambandi.
Leyfilegt er að taka púströr og hljóð-
kúta undan bílnum. Þá má einnig
fjarlægja loftsíur af vélinni. Þá má
nota hvaða drifhlutfall sem er í hás-
inguna og einnig má setja læst mis-
munadrif í hana. Breyta máyfirbygg-
ingu bílsins en þær breytingar mega
ekki á nokkurn hátt breyta þyngdar-
punkti hans. Þá er einnig óheimilt að
hækka eða lækka bílinn að framan
eða aftan til að færa þyngdarpunkt
hans. Óleyfilegt er að setja göt eða
opnanir, sem ekki eru upprunalegar á
bílnum, á vélarlokið.
Framdekk bílsins verða að vera í
upprunalegri stærð en leyfilegt er að
breyta stærð afturdekkja og nota sér-
stök keppnisdekk, slikka. Þá verða
bílar í standard flokki að fylgja regl-
um um gerð og búnað ökutækja á ís-
landi. Ekki er þetta tæmandi upp-
talning á reglunum en gefur vonandi
einhverja hugmynd um hvað má og
hvað má ekki i standard kvartmílu-
flokki.
Jóhann Kristjánsson.
Sandspyrnukeppnin verður að vanda
um miðjan júní á söndunum við ósa
ölfusár. Hinar keppnirnar verða svo
í júlí og ágúst. Nú þegar er byrjað að
vinna í að fá erlenda keppendur á
júlíkeppnina og verður reynt að fá
nokkra bíla sem mundu geta keppt
við íslensku bilana.
Jóhann Kristjánsson.