Dagblaðið - 18.05.1979, Page 6
HESTAR TIL SÖLU
Tilsöluerusjö tamdir
hestar á aldrinum
5—7 vetra.
Upplýsingarísíma50486 eftirkl. 7 e. h.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ1979.
Þingsályktunartillaga Hjörleifs:
IÐNAÐURINN HAFIFORGANG
„Lögð verði forgangsáherzla á
þróun iðnaðar á næstu árum með sér-
stakri áherzlu á aukinn útflutning
iðnaðarvara, segir í greinargerö nýrr-
ar þingsályktunartillögu frá Hjörleifi
Guttormssyni iönaðarráðherra.
í tillögunni segir að markmiðum
iðnaðarstefnu verði meðal annars
náð með áætlunum, er taki til ein-
stakra iöngreina og verkefna í nýiðn-
aði og með opinberum aðgerðum.
„Óhjákvæmilegt er að ríkið eitt sér
eða í samvinnu við aðra aðila taki
þátt í stofnun meiriháttar nýiðnaðar-
fyrirtækja,” segir i greinargerð.
Tillögurnar eru komnar frá sam-
starfsnefnd um iðnþróun, sem Hjör-
leifur skipaði í september og lýtur
formennsku Vilhjálms Lúðvíkssonar,
framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs
ríkisins. '
Þingsályktunartillagan er almennt
orðuð. Markmið iðnaðarstefnu eiga
samkvæmt henni að vera að örvá
framleiðni í iðnaði, þannig að fram-
leiðni hans verði sambærileg við það
sem gerist í helztu viðskiptalöndum
okkar, og skilyrði skapist fyrir betri
lífskjör.
Þá skuli stuðlað að hagkvæmri
fjárfestingu til að fjölga störfum í
iðnaði. Sérstök áherzla verði lögð á
að efla iðnað á þeim sviðum, þar sem
innlendir samkeppnisyfirburðir geta
nýtzt til arðbærrar framleiðslu á vör-
um og þjónustu, jafnt fyrir heima-
markað sem til útflutnings.
Starfsskilyrði skuli bætt, áhrif
starfsfólks á vinnustöðum aukin og
komið í veg fyrir skaðvænleg áhrif af
völdum iðnvæðingar á náttúru lands-
ins og umhverfi.
Forræði landsmanna yfir atvinnu-
lífi og auðlindum verði tryggt og
stuðlað að æskilegri dreifingu og
jafnvægi i þróun byggðar.
-HH
Sjópróf vegna óhappsins er Rangá
fékk á sig brotsjó suður af landinu og
tveir gámar töpuðust I sjóinn sl. sunnu-
dag voruhaldinígærí Reykjavík.
Ljóst er að tjón vegna þessa hefur
orðið mikið, en í öðrum gáminum voru
hreinlætistæki, salerni, baðker og slíkt,
sem fara áttu til Vatnsvirkjans hf. að
söluverðmæti rúmar 22 milljónir
króna.
í hinum var plastgerðarefni sem fara
átti til Vogafells, en þar höfðu menn
ekki gert sér grein fyrir hversu mikil
verðmæti hefðu farið í súginn vegna
þessa.
Annar giimurinn rakst utan I skipið
er atburðutinn varð og dældaði það
lítillega.
- HP
Svæðamótið í Luzern hefst um helgina
Guðmundur, Helgi og
Margeir meðal keppenda
Þrír íslenzkir skákmenn verða
meðal keppenda á svæðamótinu í
Luzern í Sviss sem hefst um helgina.
Þeir eru Guðmundur Sigurjónsson
stórmeistari og alþjóðlegu meistar-
arnir Helgi Ólafsson og Margeir
Pétursson. Alls verða keppendur 22
og komast 3 efstu áfram á milli-
svæðamót sem er áfangi í baráttunni
að heimsmeistaratitlinum. Guð-
mundur Sigurjónsson sagði í samtali
við Dagblaðið i gær, að enn hefðu
ekki borizt fréttir hingað af þvi,
hverjir erlendu þátttakendurnir
verða. Þó er vitað, að þarna verða 4
V-Þjóðverjar, 3 ísraelsmenn, 2 Sviss-
lendingar, 2 Danir, 2 Svíar, 2 Norð-
menn, 2 Finnar og 1 Færeyingur auk
íslendinganna þriggja. Sagðist Guð-
mundur búast við að þarna gætu
orðið einir 8 stórmeistarar. Sagðist
hann reikna með þátttöku manna
eins og Hiibner frá V-Þýzkalandi,
Liberzon frá fsrael og Westerinen frá
Finnlandi. Það er þvi viðbúið að
róðurinn verði erfiður fyrir hina
íslenzku keppendur en þeir hafa þó
margoft sýnt það og s@nnað, að eng-
inn getur bókað sigur gegn þeim.
- GAJ
Svona lltur það út á hárgreiflslukeppni á borð vifl Íslandsmótifl I Laugardalshoií a sunnudaginn.
Erilssamur sunnudagur hjá hárgreiðslufólki:
Fimmtfu keppa í
hárgreiðslu
Þriðja íslandsmeistarakeppnin í hár-
greiðslu og hárskurði verður á sunnu-
daginn i Laugardalshöllinni. Þar keppa
um fimmtíu manns víðs vegar af land-
inu.
Hargreiðslumeistarar og sveinar
keppa í galagreiðslu, tízkugreiðslu í
framúrstefnustíl og klippingu og
blæstri. Meistarar og sveinar í hár-
Leiklistamemar sýndu
árangur fyrsta námsárs
skurði keppa í „frjálsri greiðslu á út-
dregnu módeli”, klippingu og tízku-
greiðslu á eigin módeli og sígildri
„skúlptúrklippingu”.
Hárgreiðslunemar keppa í diskó-
greiðslu og klippingu og blæstri og
rakaranemarnir keppa í frjálsri tízku-
greiðslu á eigin módeli.
Þessar keppnir standa yfir allan
daginn, eða frá 11.30 til 19.00. í dóm-
— íLaugardalshöll
nefnd eru Elsa Haraldsdóttir, marg-
faldur meistari í faginu, Lovísa Jóns-
dóttir, Lýður Sörlason, Vagn Bojesen
og tveir norskir hárgreiðslu- og hár-
skurðarmeistarar, Tore Nörvold og
Kurt Sörensen, sem hingað koma sér-
staklega til dómstarfa.
Aðgangseyrir er 1500 krónur fyrir
fullorðna, 800 krónur fyrir börn.
-ÓV
Nemendur á fyrsta ári í Leiklistar-
skóla ríkisins sýndu á dögunum að-
standendum sínum og öðrum hvað þeir
hafa lært á fyrsta námsári. Á því ári
eru 15 nemendur, í tveim bekkjardeild-
um. Alls eru í skólanum 30 manns á
tveim árum. Gert er ráð fyrir að í haust
verði bætt við einum bekk en alls mun
leiknámið vera fjögur ár.
Myndin sem Bjarnleifur tók sýnir
annan hóp fyrsta árs nemenda á svið-
inu. Leikritið er um Lisu i Undraiandi
og leikstjóri er Pétur Einarsson skóla-
stjóri.
- DS
Hvítt yf ir öllu og
útlit fyrir að
útsæðið verði etið
Allt útlit er nú fyrir að landsmenn
verði að borða útsæðiskartöflur sínar
í ár. Svo illa árar um land allt að eng-
inn þarf að öfundast út í annan af
veöráttunni, hvorki í vetur né það
sem af er sumri. Vonandi rætist spá-
dómur Hrafns Sveinbjarnarsonar á
Hallormsstað að sumarið komi þó 8.
júní kl. 3 að degi til.
Hér á Austurlandi hefur verið NA
átt með snjókomu og næturfrosti,
3—6 stig, sl. tvær og hálfa viku.
Áður hafði verið sæmileg veðrátta í
10 daga og hvarf þá snjór mikið til.
I dag, þriðjudaginn 15., er hvitt
yfir allt en bjart veður, sól og þriggja
stiga hiti. Er þetta ekkert fyrir kaup-
staðarfólkið, sem inni vinnur, en með
skelfingu má hugsa til bænda á þessu
kalda sumri þar sem sauðburður er
hafinn, mikil útivinna og hey sums
staðar lítil.
Á Eskifirði hefur niðursetningu
kartafba oftast verið lokið um
miðjan maí og fyrr ef vel árar, því hér
er veðursæld.
- ASt./ Regina Eskifirði.
Sjópróf vegna Rangár:
TUGMILUÓNA
VERÐMÆTI í
GÁMUNUM