Dagblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 28
Eldhúsdagsumræður ígærkvöídí:
Forseti með vald
forsætisráðherra?
- fjármálarádherra villafnema vísitölukerfid
stefntað aðgerdum gegn hálaunamönnum
„Kerfið er ekki lengur nothæft.”
Kannski væri rétt að breyta því,
þannig að' kosinn yrði forseti með
vald forsætisráðherra. Hann skipaði
síðan 8 einstaklinga i ráðherrastöður.
Þessi tillaga kom fram hjá Eiði
Guðnasyni (A) í eldhúsdagsumræö-
unum í gærkvöld.
Tómas Arnason fjármálaráðherra
vildi láta afnema visitölukerfið,
Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð-
herra sagði, að almannaheill væri
stefnt í voða með núverandi verkföll-.
um og þyrfti harðar aðgerðir i þeim
efnum, þótt alþýðuflokksmenn vildu
annars frjálsa samninga. Ragnar
Arnalds menntamálaráðherra sagði,
að Alþýðubandalagið mundi engan
þátt eiga i boðum og bönnum i al-
mennum kjaramálum, „en siðferðis
lega rökrétt” væri, að önnur lögmál
giltu um hálaunahópa.
Steingrímur Hermannsson dóms-
málaráðherra sagti, að sáttanefndir í
verkföllunum heföu lítinn tima og
„fljótlega” yrði á að reyna og rikis-
stjórnin yrði að grípa í taumana i
verkföllunum.
„Dauðateygjurnar"
Ellert B. Schram (S) sagði, að nú
gætu menn sennilega greint dauða-
teygjur ríkisstjórnarinnar, sem væri
að springa á margs konar tillögum
um kjaraskerðingu.
Matthías Á. Mathiesen (S) sagði,
að eftir nær 9 mánaða stjórnleysi
blasti við eitt mesta efnahagsöng-
þveiti, sem við heföum kynnzt.
-HH.
Krafla:
Sér fyrir
endann á
hrinunni
,,Það sér fyrir endann á þessari
hrinu,” sagði Páll Einarsson jarðeðlis-
fræðingur við Kröflu í morgun. „Það
hefur hægt á siginu og skjálftum hefur
fækkað. Við sjáum því fram á rólegan
tíma, líklega fjóra næstu mánuði, en
erfitt er að segja nákvæmlega hvenær
vænta megi næstu umbrota á
svæðinu.”
-JH.
Ólaf ur bakk-
armeð
þingslitin
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra hefur „bakkað” frá hugmyndum
um að slita þingi á morgun. Hann upp-
lýsti á alþingi i dag.að hann stefndi að
þingslitum næsta miðvikudag.
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksmenn
vilja.að þing sitji, þar til ljóst sé, til
hvaða aðgerða rikisstjórnin hyggist,,
grípa í launamálunum.
-HH.
Sprengiefni
stolið í nótt
í morgun varð ljóst að brotizt hafði
verið inn í geymslur Vatnsveitunnar hjá
Jaðri. Er talið að eitthvað af sprengi-
efni hafi horfið, en málið var í rann-
sókn.
—ASt.
Það er Ijót aðkoman að húsinu við Jðnsteig I Mosfellssveit. Dýrar rúður hafa verið
múlhrotnar og einangrun brennd úr loftinu (litla myndin). DB-myndir Ragnar Th.
RÁÐIZT AÐ FOK-
HELDU HÚSIMED
GRJÓTIOG ELDI
Furðulegar aðfarir í Mosfellssveit
Mjög mikil og nánast óskiljanleg
skemmdarverk hafa verið unnin á húsi,
sem stendur fokhelt viö Jónsteig i Mos-
fellssveit. Er nú svo komið að húsið
vekur athygli sérhvers vegfaranda, en
skemmdarverkin hafa verið unnin
smátt og smátt, sennilegast af ungling-
um.
Nú er svo komið að tíu rúður hússins
eru brotnar. Allt hafa þetta verið tvö-
faldar rúður í stállista og mun hver
rúða kosta nokkra tugi þúsunda auk
ísetningar.
Þegar betur er að gáð kemur i ljós að
plasteinangrun sem steypt hefur verið í
loft bílskúrs sem áfastur er við húsið
hefur á kafla verið brennd. Hafa ungl-
ingar sézt að verki kringum húsið með
logandi flyksur úr lofteinangrun bíl-
skúrsins.
Á skrifstofu Mosfellshrepps fengust
þær upplýsingar að hús þetta hefði
verið í smiöum í fimm ár. Mun það
hafa verið byggt til sölu, en sölu þess
frestað allan þennan tíma af ástæðum
sem sérfróðum eru taldar skiljanlegar.
Eigandi hússins er skráður til heimilis í
Reykjavík.
Hjá lögreglunni í Hafnarfirði liggur
engin kæra fyrir, varðandi skemmdirn-
ar á húsinu, en athygli lögreglunnar
hefur þó verið vakin á skemmdarverk-
unum, sem síðan hafa aukizt að mun.
—ASt.
Leyfi þarf til myndatöku á Alþingi:
MNGMÖNNUMILLA VID SKRÍPAMYNDIR
Þegar blaðamaður og ljósmyndari
Dagblaðsins gerðu sér ferðá Alþingi í
gær, vakti það athygli að ljós-
myndara blaðsins var visað burt af
göngum Alþingis. Þingverðir báru
þvi við að blaðaljósmyndarar lægju
nú öllum stundum fyrir þingmönn-
um, til þess að ná af þeim myndum í
ýnisum afkáralegum stellingum. Því
mætti ekki lengur koma inn í húsið,
án leyfis..
Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri
Alþingis. sagði að hér væri ekki um
neinar nýjar reglur að ræða, heldur
væri aðeins verið að framfylgja
gömlum venjum. Blaðamenn ættu að
snúa sér til þingvarða, eða forseta
hverrar deildar og biðja um leyfi til
myndatöku og viðtala. Hér væri
aðeins um formsatriði að ræða og
hingað til hefði engum verið neitað
um slíkt leyfi.
„Við ætlumst til háttvísi af blað'a-
mönnum, en nokkrir þingmenn hafa
kvartað við mig, vegna þess að ljós-
myndarar hafa legiö yfir þeim lengi,
til þess að ná af þeim myndum í
óþægilegum stellingum. Við erum
aðeins að tryggja starfsfrið þing-
manna.
Þetta hefur þó ekki verið rætt
nýlega við forsetana og hér er ekki
um neinar hömlur að ræða. Hér er
aðeins verið að framfylgja reglum.”
-JH.
,Bara að ég væri ennþá ráðherra, þá kæmust þið ekki upp með þessar mynda-
ökur.” DB-mynd: Ragnar Th.
Irjálst, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR 18. MAl 1979.
f
Skipum fjölgkr óðum i höfnum.
Farmenn:
Fundur með
f
sáttanefnd
f
Farmenn funda í dag með sáttanefnd
ríkisins. Fundurinn hefst kl. 16. AUt
situr við það. sama í farmannaverkfall-
inu, ‘ að sögn Páls Hermannssonar
blaðafulltrúa FFSÍ í morgun. Alls hafa
•nú stöðvast 24 skip i verkfallinu, sem
staðið hefur á fjórðu viku.
-JH
I
I
„Verkfall”
mjólkurfræðinga:
I
„Stöðvið
í
þessa
löglausu
I
í
í
kúgun”
— segja Neytenda-
samtökin
— Munum leggja
áherzlu á skyr,
rjóma, undanrennu
ogjógúrteftir
helgina, segir
forstjórí Mjólkur-
samsölunnar
„Mjólkursamsalan mun leggja
áherzlu á að vörum eins og skyri,
rjóma, undanrennu og jógúrt verði
dreift í verzlanir eftir helgi,” sagði
Guðlaugur Björgvinsson fram-
kvæmdastjóri í samtali við DB í
morgun. Næg mjólk á að vera í verzl-
unum í dag og um helgina.
Neytendasamtökin hafa mótmælt
framkvæmd verkfalls mjólkurfræð-
inga, sem þau segja bitna eingöngu á
neytendum.
Einu störfm sem stöðvazt hafi í verk-
fallinu séu við dreifingu mjólkur og
mjólkurvara í verzlanir. Þau störf séu
hins vegar aldrei í umsjá mjólkurfræð-
inga.
Þetta telja Neytendasamtökin lög-
laust og skora á stjórnvöld að „stöðva
slíka kúgun”, sem enga stoð eigi í
lögum um vinnudeilur.
-ÓG.
4
4