Dagblaðið - 18.05.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ1979.
Einu sinni enn:
AGRÐNINGURINNAN
STJÓRNARHERBÚÐANNA
—og nú um kjaramálin — Leitað álits þingmanna úr öllum
f lokkum um vænlegar aðgerðir ríkisst jórnarinnar
Einu sinni enn er kominn upp
ágreiningur í stjómarherbúðunum.
Nú eru það kjaramálin sem ekki
hefur náðst samstaða um. Alþýðu-
bandalag og Framsóknarflokkur
hafa lagt fram tillögur fyrir nokkru
og Alþýðuflokkurinn kynnti sínar til-
lögur í gær.
í tillögum Alþýðubandalags segir,
að sett skuli þak á vísitölugreiðslur
við 380 þús. kr. mánaðarlaun. Þá
verði stofnuð sérstök yfirnefnd í
verðlagsmálum, sem leyfi ekki verð-
hækkanir nema vegna erlendra verð-
hækkana eða ef rekstrarstöðvun
vofir yfir.
Framsóknarflokkurinn vill lög-
bindingu grunnkaups og stöðvun
verkfalla til áramóta. Þak verði sett
við 400 þúsund kr. mánaðarlaun og
skyldusparnaður tekinn upp á há
laun. Samningaleið verði reynd við
aðila vinnumarkaðarins, en hörku
beitt, ef þarf.
Alþýðuflokkurinn hefur hafnað
afskiptum ríkisvaldsins af kaupsamn-
ingum.
Dagblaðið ræddi í gær við einn
þingmann úr hverjum stjómarflokki
og auk þess einn þingmann stjórnar-
andstöðunnar. Þingmenn vom
beðnir að láta i Ijós persónulega af-
stöðu sína til þeirra aðgerða sem
ríkisstjórnin ætti að grípa til í kjara-
málunum. .jjj
FinnurTorfi Stefánsson (A):
„Frjálsa samninga”
,,Ég styð þá samþykkt sem gerð
var á fundi Alþýðuflokksins í nótt,
þar sem kveðið er á um frjálsa
samninga aðila vinnumarkaðarins,”
sagði Finnur Torfi Stefánsson, þing-
maður Alþýðuflokksins. ,,Ég tel það
raunhæft 'til 'árangurs. Samstaða
náðist um afstöðu þingflokksins i
meginatriðum.
Ríkisstjórnir undanfarinna ára
hafa alltaf beitt sömu aðferðum, sem
hafa gert aðila vinnumarkaðarins
nánast ábyrgðarlausa. Þessar að-
gerðir ríkisstjórnanna hafa komið á
skekkju í þjóðmálunum.
Þessa stöðu þarf nauðsynlega að
jafna, þannig að vinnuveitendur og
launþegar geti samið um laun með
eðlilegum hætti. ”
- JH
»
Finnur Torfi Stefánsson.
Vilhjálmur Hjálmarsson (¥):
„Ekki fullrætt
„Þetta er ekki fullrætt mál,” sagði
Vilhjáimur Hjálmarsson, þingmaður
Framsóknarflokksins. ,,Ég sé ekki
tilgang í því aðþingmenn tjái sig per-
sónulega í svo vandamiklu máli. Á
þingi sit ég að vísu sem einstaklingur
en starfa í samtökum. t svo vanda-
sömum málum sem kjaramálunum
ber að ráða sinum málum og mynda
sér skoðun sem er meira en persónu-
leg skoðun einstakra manna.
í heild fylgi ég tillögum sem mót-
mál”
aðar hafa verið innan þingflokks
Framsóknarflokksins. Það á síðan
eftir að færa þær nánar út og síðan
yfir í stærri heild, þ.e. ná samstöðu
innan stjórnarinnar.”
- JH
H
Geir Hallgrímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson (AB):
Vilhjálmur Hjálmarsson.
#•
Geir Hallgrímsson (S):
„Aðhaklj festa og
frjálsir samningar”
Svar Geirs Hallgrímssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, var
skýrt og skorinort: ,,Ég tel,” sagði
Geir, „að leysa beri kjaradeilur með
frjálsum samningum milli aðila
vinnumarkaðarins.
f þeim efnum verða menn að sýna
aðhald og festu.”
-JH.
„Alþýðuflokkurinn
stendur í vegi
fyrir aðgerðum”
„Það eru nú-um 10 dagar síðan við
Alþýðubandalagsmenn lögðum fram
okkar tillögur og allan þann tíma
höfum við beðið eftir Alþýðuflokkn-
um,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
þingthaður Alþýðubandalagsins.
„Þeir hafa haldið fjölda funda, en nú
eftir síðasta þingflokksfundinn skila
þeir auðu.
Við viljum tafarlaust fá lög um þak
í visitölumálinu og stöðvun verð-
hækkana. Það blasir við, ef ekkert
verður að gert, að flugmenn fá í
næsta mánuði á annað hundrað þús-
unda í kauphækkun, til viðbótar við
hina fyrri. En Alþýðuflokkurinn
stendur í vegi fyrir því að eitthvað sé
gert.
Þjóðin bíður eftir því að ríkis-
stjórnin geri eitthvað. En flokkur
sem hefur engar tillögur, eins og Al-
þýðuflokkurinn, verður að gera það
upp við sig hvort hann verður áfram í
ríkisstjórn eða ekki.
Athyglisvert er að nú á sama tíma
skuli koma fram samhljóða tillaga
Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks í
skattamálum. Þeir eru e.t.v. að
undirbúa nýja viðreisn.” .jh
Ólafur Ragnar Grlmsson.
KASSABILARALLY SKATA
frá Hverageröi til Kópavogshælis til styrktar Kópavogshæli dagana 26. og 27 maínk.
CTVDI/T lí DM m A D semiafnframteruhappdrættismiðar, verða
O I I If l\ I Mlf lYlltl Alf seldirnæstudaga —
Takið sölumönnum vel og styrkið gott málefni — Markmiðið er að kaupa
FÓLKSFLUTNINGABÍL FYRIR VISTFÓLK KÓPAVOGSHÆUS
i -«■ . ................Frjálst framlag er hægt að senda á gírónúmer63336-4—