Dagblaðið - 18.05.1979, Page 8
DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979.
8
Olfuverðshækkanir:
Ekkert eftiríit með
Rotterdam-markaði
—tillaga f ranska orkumálaráðherrans um slíkt felld á ráðherraf undi
Efnahagsbandalagsins
Orkumálaráðherrar Elnahags-
bandalagsrikjanna ákváðu á fundi
sinum í gær aö fallast ekki á tillögu
hins franska starfsbróður síns um að
taka upp sterkt eftirlit með olíu-
markaðinum í Rotterdam.
Ákvörðun þessi var tekin í ljósi
þess að ef gripið yrði til slíkra ráða
mundi vera hætta á að markaðurinn
yrði fluttur annað. í Rotterdam hefur
verið boðin fram hráolía og hefur
verðið þar ráðið mjög miklu um
heimsmarkaðsverð þeirra vöru. Að
undanförnu hafa komið fram
háværar ásakanir um að olíu-
markaðurinn í Rotterdam gæfi til
kynna verð, sem væru óraunhæf og
ylli með því skaðlegum sveiflum á
olíuverði.
Franski orkumálaráðherran Andre
Giraue tilkynnti eftir fundinn, að
þrátt fyrir þessa ákvörðun ráðherr-
anna um að skipta sér ekki að hinni
svonefndu frjálsu verðmyndun á
olíumarkaðinum i Rotterdam mundu
Efnahagsbandalagsrik'm óska eftir
fundi með sérfræðingum oliufram-
leiðsluríkja til að reyna að finna eðli-
lega og heppilega leið út úr núverandi
olíukreppu. Sagði ráðherrann að
nauðsynlegt væri að slik sérfræðinga-
nefnd starfaði stöðugt því þau vanda-
mál sem upp kæmu í samskiptum
olíuframleiðsluríkja og hinna, sem
keyptu væru mörg og viðkvæm.
Orkuráðherra Efnahagsbandalags-
ríkjanna neituðu að fallast á þá
skoðun nefndar á vegum bandalags-
ins, sem segir að ríki þess geri ekki
nóg til að bæta nýtingu þeirrar orku,
sem þegar er notuð.
Ogsvo
erþað
hárið!
Þau hafa veriö sæl — og þrcytt —
hárgreiðsluhjúin Graham og Barbara
Sylvester, þegar þessu fléttuverki var
lokiö. Það var framkvæmt á hár-
greiðslustofu í lllum-vöruhúsinu við
Strikið í Kaupmannahöfn. Eigandi
hársins hefur þurft að sýna mikla
þolinmæði, en árangurinn er líka
glæsilegur.
Það er ekki gott að segja hvaðan
hugmyndin er fengin — sumir gizka á
Kráku þá sem sagt er frá í fornaldar-
sögum. Hún átti aö ganga á fund
Ragnars Loðbrókar og vera hvorki
klædd né óklædd. En þetta var bráð-
greind kona og leysti þrautina þannig
að hún fléttaði sig inn í eigið hár. Og
kóngurinn varð svo hrifinn að hann
vildi cndilcga ganga að eiga hana á
stundinni.
En það segir sig sjálft að þessi
greiðsla hentar bezt við hátiðleg tæki-
færi.
Marokkó tók átta
spænska togara
Strandgæzla Marokkó tók í gær
fjóra spánska togara, sem voru að
veiðum út af strönd landsins. Voru
þeir færðir til hafnar í Casablanca en
þar voru fyrir fjórir aðrir spánskir
togarar, sem teknir voru á mánudag-
inn síðastliðinn.
Að sögn yfirvalda í Marokkó brutu
stjórnendur togaranna reglur um
veiðar i efnahagslögsögu Marokkó.
Marokkómenn munu hafa aukið
eftirlit með veiðum spænskra skipa
við strendur landsins eftir að Adolfo
Suarez forsætisráðherra Spánar átti
fund með forustumönnuniPolisario-
skæruliða fyrr í þessum mánuði. Var
fundurinn í Alsír. Spánverjar afhentu
Marokkó og Mauritaníu hluta
Sahara eyðimerkurinnar árið 1976.
Hafa Polisarioskæruliðarnir ávallt
barizt fyrir sjálfstæði hinnar fyrrum
spænsku Sahara. Stjórninni í
Marokkó mun ekki hafa likað
viðræður spænska forsætisráðherr-
ans við skæruliðana.
Washington:
LÖGIN LEYFA
EKKILÆKK-
UN LAUNANNA
Einn starfsmaður Bandarikjastjórnar
hefur gefizt upp fyrir kerfinu og sagt
upp störfum. Hann taldi sig hafa
fengið óréttmæta launahækkun og
vildi losnavið hanaen tókst ekki.
Maðurinn, sem heitir Andrew Bavas
hefur hingað til haft um það bil 40.000
dollara á ári, sem þykja dágóð laun í
Bandaríkjunum. Starfaði hann við
Félags- og heilbrigðisstofnun alríkisins
i Washington.
í nóvember siðastliðnum var ákveðið
af hinum vísu starfsmönnum launa-
deilda bandaríska stjórnarráðsins að
hækka bæri laun Bavas um 1272
dollara. Bavas taldi aftur á móti, að
laun sín væru nægilega há fyrir og vildi
skila aftur launahækkuninni.
Við athugun kom i Ijós að ekki var
hægt að lækka mann í launum, sem
þegar hefur fengið launahækkun og
starfar hjá alrík isstjórninni.
Var Bavas nú nóg boðið. Hann
sagðist reyndar aldrei hafa verið mjög
trúaður á kerfið en nú ofbyði honum.
Siðasti starfsdagur Andrew Bavas'
hjá Félags- og heilbrigðisstofnuninni i
Washington var 30. apríl síðastliðinn.
Danmörk:
Sólarorkan hitar
upp 126 íbúðir
—fyrsta fram-
kvæmd sinnar
tegundarþar
ílandiverður
íFredrikshavn
Fyrsta sólarorkustöðin verður til-
búin í Danmörku í byrjun árs 1981 og
er ætlunin, að hún hiti upp húsasam-
stæðu þar sem eru hundrað tuttugu
og sex ibúðir. Eru byggingar þessar í
Frederikshavn og gerir byggingar-
félagið, sem reisa mun íbúðirnar sér
vonir um að not verði af sólarork-
unni helming ársins. Hugmyndin er
að nota orkuna bæði til að sjá
ibúunum fyrir heitu vatni og einnig
að hita upp húsnæðið.
Ðanska ríkið hyggst styrkja fram-
kvæmd þessa að nokkru og með þeim
styrk gera forsvarsmenn verksins sér
vonir um að það verði arðbært í það
minnsta þegar fram liða stundir.
Ætlunin er að sameiginlegur sól-
skermur verði fyrir allar byggingar-
samstæðurnar. í frétt um þessi mál
kemur fram að helztj þröskuldurinn í
veginum fyrir að sólarorkuvirkjunin
verði að veruleika gæti orðið einka-
réttur annarra aðila til að sjá vissum
byggðum fyrir orku.
Þeir sem að baki sólarorkuverinu
standa, segjast þó ekki hafa mikla trú
á að þeir verði stöðvaðir á þann hátt
þar sem bæði þjóðfélagið í heild og
þeir sem í húsunum búi muni hagnast
á orkuveri þeirra.
Áætlað er að heildarkostnaður við
að reisa sólarorkustöð fyrir hinar
hundrað tuttugu og sex ibúðir muni
nema jafnvirði um það bil þrjú
hundruð milljóna íslenzkra króna.
Tannlæknirinn
fékk ekki
að skipta
um naf n
Tannlækninum Nathan Feigelman
fannst að allar hans sorgir yrðu létt-
bærari ef hann aðeins fengi nafn sitt og
símanúmer skráð í símaskrána framar
en hinir tannlæknarnir í borginni. Þar
sem símaskáin í Newport í Bandaríkj-
unum er eins og aðrar slíkar skrár og
nöfnum raðað eftir stafrófsröð var illt i
efni fyrir Feigelman. Hann dó þó ekki
ráðalaus.
í byrjun þessa árs kom út ný síma-
skrá og þar trónaði Aaron A. Aaron
tannlæknir fremstur sinna starfs-
bræðra. Fljótlega komu samtök tann-
lækna í borginni auga á að þarna var
kominn köttur í ból bjarnar og enginn
tannlæknir með þessu nafni var til í
Newport.
Við rannsókn kom í Ijós að þarna var
gamli Feigelman á ferðinni. Situr hann
nú uppi með sárt ennið og gamla nafn-
ið. Tannlæknafélagið veitti honum auk
þess harða áminningu fyrir tiltækið.
Castro á ferð
um Mexicó
Fidel Castro forseti Kúbu, sem er í
opinberri heimsókn í Mexico hvatti til
þess að efnahagskerfi heimsins yrði
endurskipulagt þjóðum þriðja heimsins
til hagsbóta.
Danmörk:
Fall-
hlíf-
inopn-
aöist
ekki
Vivian Lindholm danskur fall-
hlífarstökkvari hefur nú reynt það
sem allir félagar hennar óttast
mest. Fallhlífin hennar opnaðist
ekki. Vivian var að sýna ásamt
félögum sínum við flugvöll á
Lálandi og kastaði sér síðust út úr
flugvélinni. Þegar hún var komin
vel frá henni ætlaði hún að opna
aðalfallhlífina. Ekkert skeði og
Vivian hélt áfram að falla með
miklum hraða.
Nú fengu áhorfendur að sjá
hvernig hún reyndi stöðugt
árangurslaust að opna varfallhlíf-
ina þá ekki nema í um það bil
fjögur hundruð metra hæð yfir
jörðu. Við þetta allt flæktist auk
þess hönd hennar í línunum og
ekkert virtist geta orðið henni til
bjargar.
Að lokum greip Vivian til þess
ráðs að toga í snúruna, sem tengd
er við varafallhlifina með vinstri
hendinni. — Það tókst að lokum.
Við það að hún opnaðist dró
verulega úr fallinu en það var
samt svo mikið að Vivian missti
meðvitund er hún snerti jörðina.
Fljótlega var henni komið til
hjálpar og losuð úr þeirri flækju
af línum sem hún var í. Síðan var
stúlkunni ekið á sjúkrahús.
Vivian reyndist ekki hafa meitt
sig á nokkurn merkjanlegan hátt.
Við tilraunir sinar til aö opna
varafallhlífarnar breytti hún svo
mikið um stefnu í loftinu að á
tímabili var óttast að hún mundi
lenda á byggingum í nágrenni
flugvallarins. Svo fór þó ekki.
Sjálf segir Vivian Lindholm, að
hún muni síðast af sér, þegar
fætur hennar snertu jörðina eftir
fallið. Hún hefur stokkið 250
sinnum í fallhlíf og sagðist ekki
ætla að hætta þvt, þrátt fyrir
óhappið.