Dagblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 9
9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979.
Erlendar
fréttir
/<// Amin hefur dval-
iö íLíbýu frá íapríl
Idi Amin fyrrum leiðtogi í Uganda
er í Líbýu að sögn brezka útvarpsins.
Sjónvarpsfréttamaður, sem þar var á
ferð á fimmtudaginn var segir að
einræðisherrann fyrrverandi hafi sézt
þar sem hann var umkringdur líf-
vörðum við glæsihótel eitt i Tripoli.
Þar búa eiginkonur hans tvær ásamt
sextán börnum.
Vitnar sjónvarpsmaðurinn i
sjónarvotta en hótelsins var vandlega
gætt og harðlokað fyrir umgangi
venjulegs fólks.
Mjög hefur verið velt vöngum yfir
dvalarstað Idi Amin að undanförnu
síðan hersveitir hans biðu ósigur fyrir
liði frá Tansaníu í fyrra mánuði.
Nú er sagt að Idi Amiii hafi verið íf
Líbýu frá þvi í aprilmánuði. Sjálfur
segir sjónvarpsfréttamaðurinn brezki
að hann hafi séð eiginkonu Amins
ásamt börnum þeirra á strönd við
hótelið í Tripoli.
DANIR FENGU
BORÐVÍNFYR-
IR EÐALVÍN
Danskur vinkaupmaður, sem
verzlað hefur með franskt eðalvín
— eða svo hefur verið álitið hing-
að til — hefur líklega keypt kött-
inn í sekknum.
Við könnun hjá frönsku fyrir-
tæki kom í ljós að sjötíu þúsund
flöskur af rauðvíni, sem seldar
hafa verið á 144 danskar krónur
flaskan eða jafnvirði nærri tíu
þúsunda íslenzkra innihéldu allt
annað og ómerkara vín. Að réttu
lagi átti ekki að selja flöskumar á
nema 45 krónur danskar eða tæp-
lega þrjú þúsund krónur íslenzk-
ar.
Vörusvikin uppgötvuðust fyrst
við rannsókn á tólf þúsund rauð-
vínsfloskum en talið er að samtals
hafi vcrið fliiitar inn til Dan-
merkui eiit hundrað þúsund
flöskural Innusviknarauðvíni.
Astæðan fyrir þvi að franska
fyrirtækið greip til þessa ráðs við
sölu á rauðvíninu var erfitt ástand
i fjármálunum.
Þeir aðilar, sem hafa eiga eftir-
lit með franskri vínframleiðslu
segja að þetta mál geti ekki talizt
stórhneyksli. Aðeins hafi komið i
Ijós um það bil hundrað þúsund
flöskur með fölsku víni af fjöru-
tiu milljón flaskna ársframleiðslu
sömu aðila.
SETIÐ FYRIR RÉni
Khomeini og stjóm hans hefur staðið lögreglu keisarans — Savak —. Er
fyrir mörgum aftökum á fyrri valda- hann að lýsa sakleysi sínu skömmu
mönnum keisarans í Iran. A mynd- áður en hann var líflátinn ásamt
inni sést einn þeirra fyrir rétti ásamt tuttugu og einum öðrum eftir eins
félögum sínum. í miðju er fyrrum dags réttarhöld.
svæðisstjóri í hinni illræmdu öryggis-
Danir virðast ekkt taka drottningar ýkjahátiólega. Eins og fram hetur komið i DB er Elfsabet Bretadrottning i heimsókn íija
frænku sinni Margréti drottningu f Danmörku. Nokkrum dögum áður en Elisabet kom til Danaveldis fóru þessar — drottn-
ingar — um götur Kaupmannahafnar og var fagnað vel af vegfarendum. 1 Ijós kom þó fljótt að þarna voru gervidrottningar á
ferð. Alvörudrottningarnar fóru ekki um stræti fyrr en í fyrradag.
írak:
Kaupsýslumaður í líf stíðarfangelsi fyrir mútur
og njósnir
fyrra en itrekaðar tilraunir brezku ingar um mál hans hafa að sögn engan
stjómarinnar til að fá gögn eða upplýs- árangur borið.
Brezkur kaupsýslumaður hefur verið
dæmdur i lífstíðarfangelsi í Írak fyrir
'mútur og viðskiptanjósnir, að því er til-
kynnt var í London í gær. Var þetta til-
kynnt til brezku stjórnarinnar af sendi-
herra írak í London en engar upplýs-
ingar höfðu borizt áður þaðan hvorki
um ástæður fyrir handtöku kaupsýslu-
mannsins eða réttarhöld yfir honum.
Bretinn, sem er 52 ára gamall sölu-
maður var handtekinn í september í
Ekkert breytist þó ég falli
— segir Tito Júgóslavíuforseti
Tito forseti Júgóslavíu gaf
sovézkum leiðtogum í Moskvu
það vel til kynna i gær að stefna
Júgóslava gagnvart Sovétríkjun-
um mundi ekkert breytast við frá-
fall hans. Gagnstæð sjónarmið
ráðamanna þessara ríkja væru að
eins eðlileg og söguleg staðreynd,
sagði forsetinn. Tito er í opin-
berri heimsókn í Sovétríkjunum.
Þykir hann til muna brattari en
Brésnef forseti Sovétríkjanna sem
þó er aðeins 72 ára eða fjórtán
árum yngri en Tito.
Odýrír amerískir hjóibarðar
Sendum ípóstkröfu um allt land
E 78x15 KR. 19.500 BR 78x13
G 78x15 KR. 21.500 615x13
H 78x15 KR. 23.600 700x13
L78x15 KR. 27.600 BR 78x14
LRx15 KR. 31.500 GR 78x14
HR 70x15 KR. 29.200 H 78x14
JRx15 KR. 29.800 B 78x14
GR 78 x 15 KR. 26.500 P205/70Rx14
HR 78x15 KR. 27.400 P205/75R x 14
SAMYANG HJÓLBARÐAR
615x13 KR. 13.750 135x14
560x13 KR. 14.350 E 78x14
590x13 KR. 15.450 560x15
A78x13 KR. 16.550 700x15 jeppa
B 78x13 640x13 KR. 19.300 KR. 17.200 700x16 jeppa
KR. 16.600
KR. 16.500
KR. 15.600
KR. 17.900
KR. 19.800
KR. 22.300
KR. 16.900
KR. 22.800
KR. 21.800
KR. 22.950
KR. 23.650
KR. 17.750
KR. 35.800
KR. 36.600
• Sólaðir hjó/barðar ávallt fyrirliggjandi
• Einnig margar aðrar gerðir hjólbarða
• Sannfæríst með þvíað leita til okkar
Gúmmívinnustofan Skipholti 35 Sími 31055