Dagblaðið - 18.05.1979, Page 24
28
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979.
Joan Collins, 44.
Klúbbur 40
Að öllu sé lokið um fertugt? Óekkí
og þá sérstaklega ekki í heimi kvik-
myndanna. Enskir hafa nýverið
kjörið Joan Collins, 44 ára, leikkon-
una með mesta kynferðislega að-
dráttaraflið. Hún er móðir þriggja
stúlkna á aldrinum 16, 15ogsexára,
en i nýjustu kvikmyndinni kemur hún
fram nakin. Segja gagnrýnendur að
ekki verði séð að árin hafi færzt yfir
þann kropp og þá ekki nema til góðs.
í minningabók, sem hún hefur nýlega
sent frá sér, nefnir hún nöfn sem
hvaða kona sem er þyrfti ekki að
skammast sín fyrir, enda þótt að-
stæður séu skringilegar. Sidney
Chaplin, Harry Belafonte, Ryan
O’Neal (þau eiga barn saman) og
Maxwell Reed (sem hún giftist eftir
að hann hafði nauðgað henni).
Ursula Andress sýnir meira af
sínum 43ja ára gamla kroppi en hún
gerði er hún leið upp úr öldunum í
James Bond mynd árið 1962. —
,,Mig hryllir við þeim degi er ég
Brigitle Bardot, 45.
neyðist til þess að afklæðast í myrkri
ef maður er hjá mér,” segir hún.
Þá hefur Sophia Loren, 44 ára,
heldur betur kveðið þær illu tungur,
sem héldu því fram að italskar konur
héldu aðeins línum sínum í nokkur ár
vegna spaghettiáts, niður.
Jane Fonda er 41 árs og hún hafði
satt að segja reiknað með að ferill
hennar sem leikkonu yrði á enda er
hún næði fertugu. En þvert á móti
fær hún æ fleiri tilboð um kvik-
myndaleik og tekur við milljónum
dollara í laun, enda segist hún geta
varið þeim peningum mun viturlegar
en kvikmyndafyrirtækin.
Brigitte Bardot hefur snúið baki
við kvikmyndaleik en hún er bezta
sýningarstúlka fyrir fötin sem hún
teiknar og á sér ungan elskhuga,
Tékkann Miroslav Brozek.
Nýjasti félaginn í Klúbb-40 er
honum ekki beinlínis til skammar,
Ali McGraw.
Þýð. hp.
NN kemur
í stað BB
Frakkar hafa leitað með logandi
Ijósi að arftaka Brigitte Bardot síðan
hún þótti hafa náð aldurstakmörkun-
um. Skyldi engan furða þó þeir
ágætu menn vilji ekki til frambúðar
missa af tekjum sem á tímabili voru
meiri en Renault-verksmiðjurnar öfl-
uðu í þjóðarbúið.
Sú nýjasta, sem menn vonast til að
geti fyllt skarð Bardot, er 28 ára göm-
ul leikkona, Nathalie Nell að nafni.
Andstætt hinni Ijóshærðu BB er
NN dökkhærð. Eins og BB eru sömu
stafirnir í skammstöfun á nafni
hennar, sem þykir til bóta og hún
þykir með eindæmum brosmild. Hér
eru þó nokkrar alvarlegar myndir af
henni. Hún hefur látið hafa eftir sér
að hún kunni ágætlega við það að
verða kyntákn en hún muni samt
ekki missa sjónar á veruleikanum,
sem sé alvarlegur.
Þá þykir hún brjóstgóð og gefur
konum þau ráð að hlaupa sér til
heilsubótar og til þess að viðhalda
stinnum likama.
Guð skóp konuna hét ein af fræg-
ari myndum Brigitle Bardot og það
sköpunarverk verður ekki rýrara við
það að NN komi í kjölfar BB.
- Þýð. hp
Tjáningai
er ein meginforsenda
að frelsi geti viðhaldi^
í samfélagi.