Dagblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979. i • 141 Rangers bikarmeistari íþriðju tilrauninni! —Sigraði Hibemian 3-2 í gær eftir framlengingu —Liðin léku samtals ífimm og hálfa klukkustund Glasgow Rangers varð skozkur bikarmeistarí i gærkvöld á Hampden Park, þegar liðið sigraði Hibernian frá Edinborg i þríðja úrslitaleik liðanna, 3—2, eftir framlengingu. Naumt var það — sigurmark Rangers sjálfsmark bakvarðar Hibs. Þetta voru nokkrar sárabætur fyrir leikmenn Rangers eftir tapið fyrir Það var Pétur Brynjarsson, sem skoraði annað mark Reynis gegn Þrótti i 2. deild á sunnudag — ekki Brynjar Pétursson eins og stóð i DB i gær. Celtic í skozku úrvalsdeildinni, þar sem Celtic tryggði sér skozka meistaratitil- inn. Rangers og Hibernian þurftu þrjá leiki til að fá úrslit í bikarkeppninni. Léku samtals i fimm og hálfa klukku- stund. Fyrsta leiknum var ekki fram- lengt en hinum tveimur. Tveimur fyrstu leikjunum lauk án þess mark væri skorað — en í gær urðu þau fimm. Hibernian náði forustu á 16. min. með marki Tony Higgs eftir að mark- vörður Rangers Peter McCloy hafði hálfvarið skot frá Gordon Rae. Derek Johnstone tókst að jafna fyrir Rangers á 42. mín. og náði forustu á 61. min. Eftir það hugsuðu leikmenn Rangers mest um að „hanga” á markinu en tókst ekki. Á 78. mín. var Bobby Hutchison felldur innan vítateigs Rangers og Alister McLeod skoraði úr vitinu. 2—2 eftir venjulegan leiktíma. Framlengt og þegar fjórar mín. voru af síðari hálfleik framlengingarinnar varð Arthur Graham, bakvörður Hibs, fyrir þeirri óheppni að skalla knöttinn í eigið mark eftir að Gordon Smith hafði spyrnt fyrir mark Hibernian. Sex mín. fyrr hafði markvörður Hibemian, Jim McArthur varið vítaspyrnu. Þetta var í 23. sinn sem Rangers er skozkur bikar- meistari í knattspyrnu. Gerry Francis, QPR, fyrrum fyrirliði enska landsliflsins, hefur veríð seldur til nágrannaliflsins Crystal Palace i Lundúnum fyrir 400 þúsund sterlings- pund. :j0 qubas j.wL i JSj0D uæj iu0s jæu0Ai) VNn»IA bs©| uj0s up|B bjb 91. jipun jB6uj|6un ji||b jssjæq qia JBcj VÐ3in»IA VNn»IA up|B ujnssocJ b buubuj Jipunsnc) 0S BS0| jacJ jiuæA>jiUBS B60|n>|!A VNn»IA ns?| bjb Z9-9L ujnuupiB b BJQjndsQB o/0ge ipUBJSJ B iUBUijl BUS0| jS0UI NV»IA BJOJS -B6u!SÁ|6nB bj>|SU0|Si spuBqiuBS 60 s6uba6bh jBunuuo>|B|Q!UJ|ofj uinQoisjnQju tuiæA>|UJBS : KRR hafði lengi forustuhlut- verk ííslenzkri knattspymu „Fyrstu áratugina hafði Knatt- spyrnuráð Reykjavíkur algjört forustu- hlutverk i islenzkrí knattspyrnu — fékk fyrsta þjálfarann erlendis frá hingað til lands, hafði frumkvæði afl stofnum sérsambands knattspymumanna, og stóð fyrir fyrsta landsleik íslands i knattspymu,” sagði Ólafur P. Erlends- son, formaður KRR, í samtali við DB en á þessu árí eru 60 ár liflin frá stofnun KRR. Afmælisins er minnst í dag. Knattspyrnuráð Reykjavíkur var skipað á fundi stjómar ÍSf. hinn 29. maí 1919. Þá var skipuð nefnd, sem vera skyldi sameiginleg forysta um efl- ingu knattspyrnunnar og til að sameina knattspyrnufélögin í höfuðstaðnum til aukina átaka um framgang hennar þar. Nefndin var kölluð Knattspyrnunefnd Reykjavíkur. Fljótlega var ákveðið, að starfssvið nefndarinnar yrði víkkað og næði dl landsins alls. Jafnframt var nafni nefndarinnar breytt í Knattspyrnuráð íslands. Hélzt sú skipan til ársins 1923, að starfssviðið er aftur bundið við —Knattspymuráð Reykjavíkur60ára ídag HALLUR Sl'MONARSON Unglingamet í tugþraut — ogElíasfórenn yfir 7000 stigin Elías Sveinsson, FH, varð íslands- meistarí í tugþraut og náði enn einu sinni meir en 7000 stigum — 7277 sdg. Hann hljóp 110 m grindahlaup í gær á 15.6, kastaði kringlu 43.02 og spjóti 59.58 m, stökk 4.00 m í stangarstökki og hljóp 1500 m á 4:43.0 mín. Þorsteinn Þórsson úr Skagafirði varð annar og bætti 14 ára gamalt unglingamet Ólafs Guðmundssonar. Hlaut 6775 stig — en met Ólafs var á sínum tíma Norðurlandamet unglinga. Helga Halldórsdótdr, KR, varð íslandsmeistari í fimmtarþraut kvenna. Hlaut 3336 stig, sem er nýtt meyjamet. María Guðnadóttir varð önnur með 3068 stig. Ágúst Ásgeirsson, ÍR, varð íslands- meistari í 10000 m hlaupi og náði þokkalegum árangri á ísl. mælikvarða. Hljóp á 31:50.2 mín. Þá vaktí athygli að 16 ára Ármenningur Sigurður Einarsson kastaði spjóti 60.66 m. Elías Sveinsson — enn einu sinni yfir 7000 stig. Reykjavík og nafninu breytt í Knatt- spyrnuráð Reykjavíkur. Fyrsti erlendi þjálfarinn í knattspyrnu kom hingað á vegum KRR árið 1922 og starfaði hér í tvo mánuði. Var sá skozkur og hét R. Tempelton. Fyrsta sameiginlega keppnisför islenzkra knattskpyrnu- manna utan, styrkt af ráðinu, var farin til Færeyja árið 1930. Fyrsti erlendi knattspyrnuflokkurinn, sem hingað kom með tilstyrk KRR var Civil Service, sem kom árið 1922. Fyrsti landsleikur íslands i knatt- spymu fór fram hinn 17. júlí 1946 undir forystu KRR. Það var við danska landsliðið og fór leikurinn fram á Melavelli, svo sem flestum er i minni. Tildrögin að þeim leik voru þau, að KRR ákvað að hafa forystu um stofnun sérsambands knattspyrnu- manna. Undirbjó stjóm KRR málið 1946 og fól formanni sínum, Jóni Þórðarsyni, að gera fmmvarp a6 lögum fyrir væntanlegt samband. Eftir mikla undirbúningsvinnu og að beiðni sérráða og íþróttabandalaga, lagði KRR fram skriflega beiðni til ÍSÍ um, að sambandsstjórnin boðaði til stofn- fundar Knattspyrnusambands íslands. Var stofnfundurinn haldinn 26. marz 1947. Strax á fyrstu árum sínum stofnaði KRR sérstakt dómarafélag, nú Knatt- spymudómarafélag Reykjavikur og eru nú um 90 dómarar starfandi á vegum Ægirvann Ægir sigraði KR 8—6 í íslandsmót- inu í sundknattleik í Laugardalslaug í gærkvöld. Mörk Ægis skoruðu Guðjón Guðnason 5, Þorsteinn Geirharðsson 2, og Ólafur Stefánsson. Fyrír KR skoruðu Þórður Ingason 3, Ólafur Gunnlaugsson 2 og Þorgeir Þorgeirs- son. Fyrri umferð mótsins er lokið. Eftir hafa er Ægir með þrjú stig, KR tvö og Ármann eitt stig. Síðari umferðin hefst 5. júní í Laugardalslauginni. Forest í Miinchen Leikmenn Nottingham Forest komu dl Múnchen í V-Þýzkalandi í gær en á morgun, miðvikudag, leika þeir til úr- slita í Evrópubikarnum við Malmö FF, Svíþjóð. Sænsku leikmennirnir komu til Múnchen í morgun. Bretar sigruðu ítugþraut Bretland sigraði i tugþrautarkeppni í Rooscndaal i Hollandi um helgina. Hlaut 22.132 sdg. Holland 21.415 stig og Danmörk 21.242 sdg. Beztum árangrí einstaklings náði Zeniou 7473 stigum, McStravick var næstur með 7383 stig og Alan Drayton þriðji með 7267 stig. KDR. Árið 1952 var stofnaður sérráðs- dómstóll, samkvæmt samþykkt aðal- fundar og skyldi hann fara með öll ágreiningsmál, er upp kæmu við fram- kvæmd knattspyrnuleikja. Þá starfar sérstök aganefnd á vegum ráðsins, svo og mótanefnd, sem hefir eftirlit með framkvæmd allra leikja, sem fram fara á vegum ráðsins, en þeir munu vera 452 í ár. Auk þess fara fram 249 leikir í landsmótum i Reykjavík. Aðildarfélög ráðsins eru nú 9 og eiga öll fulltrúa í stjórn ráðsins. Formaður ráðsins er nú Ólafur P. Erlendsson. Alls hafa verið haldnir 2344 fundir í ráðinu frá stofnun þess. Lengst hafa setið í ráðinu þeir Haraldur Gíslason, sem sat 1125 fundi þess og Ólafur Jóns- son, sem sat 1079 fundi þess. f tilefni afmælisins er ákveöið, að úrval 2.—5. flokks Reykjavíkurfélag- anna leiki við jafnaldra sína utan af landi. Áttu fyrstu leikirnir að fara fram á uppstígningardag, en af óviðráðan- legum ástæðum og eins vegna hins óhagstæða veðurfars í vor, verður að fresta þessum leikjum. Þá er í athugun að fá erlent knattspyrnulið til keppni síðar í sumar í tilefni afmælisins. KRR minnist afmælis síns með kaffi- samsæti að Hótel Loftleiðum í dag, þriðjudaginn 29. maí. Ólafur P. Erlendsson, formaður KRR mörg undanfarín ár. DB-mynd Hörður Haukamir leika á Hvaleyrarholtsvelli —fiórir leikir í 1. deild íkvöld „Við neyðumst til að spila leikinn gegn KR á Hvaleyrarholtsvellinum, eða „Old Trafford” eins og við köllum hann, Haukarnir,” sagfli Pétur Árnason, formaður knattspyrnudeildar Hauka, í samtali við DB í gærdag. „Það hafa enn ekki tekizt samningar á milli FH og Hauka og Hafnarfjarðar- bæjar um afnot af vellinum, þannig að fyrst um sinn spilum við á Hvaleyrar- holtsvellinum.” „ Við eigum rétt á að spila á mölinni í Kaplakrika, en úr því að við erum á annað borð að spila á möl, getum við allt eins spilað á okkar eigin velli,” sagðj Pétur ennfremur. Það er vissu- lega slæmt til þess að vita, að Hauk- arnir þurfi að leika heimaleiki sína á þessum velli, því hann hefur fram að þessu ekki verið talinn með glæsilegri iþróttamannvirkjum þessa lands. Gras- vellir eru ekki margir í nágrenninu og tíðarfarið hefur gert það að verkum að þau félög, sem á annað borð hafa yfir grasvöilum að ráða, reyna að hlifa þeim eins og kostur er. KaplakrikavöUurinn, þ.e. grasvöllur- inn, er engan veginn orðinn góður tU að leika á honum og næsti völlur er upp- hitaði grasvöUurinn við Fífuhvamms- veg í Kópavogi. Haukarnir fóru þess á leit við bæjaryfirvöld í Kópavogi í fyrrahaust, að fá afnot af vellinum, en það fékk ekki mikinn hljómgrunn. Leikur Hauka og KR verður því á möUnni á Hvaleyri kl. 20 í kvöld. Fyrir- fram virðist þetta verða nokkuð jafn leikur. KR náði góðu jafntefU gegn Val í fyrstu umferð mótsins, en á sama tíma töpuðu Haukarnir illa fyrir KA á Akur- eyri. Haukarnir leika nú á heimavelli og með dyggum stuðningi sinna manna ættu þeir að krækja í a.m.k. eitt stig. Það verða fleiri leikir í sviðsljósinu i kvöld. Á Akranesi leika heimamenn og KA frá Akureyri. Skagamenn ættu að vinna auðveldan sigur, en það kann að setja strik í reikninginn, að leikið verður á mölinni, þar eð grasvöUurinn á Jaðarsbökum er engan veginn orðinn góður. í Vestmannaeyjum leika heimamenn við Keflvíkinga í kvöld og eru líkur á að þar verði leikið á grasinu. Eyjamenn fengu tvö hálfgerð heppnisstig gegn Þrótturum í síðustu viku, en ÍBK gerði jafntefU við ÍA í fyrstu umferð móts- ins. JafntefUslegurleikur. Leikur Víkings og Þróttar kl. 20 í kvöld fer örugglega fram á grasi og verður að sjálfsögðu leikið í Laugar- dalnum. Bæði þessi lið hafa valdið vonbrigðum í vor, einkum þó Vík- ingur. Víkingur tapaði fyrir Fram í fyrsta leiknum, 1-3, og Þróttur tapaði fyrir Eyjamönnum. Erfitt er að spá um úrslit en Víkingur er sennUega sigur- stranglegri. - SvS. Setur f imleikameistar- inn íslandsmet á stöng? — EÓP-mótið ífrjálsum íþróttum á fimmtudag Islandsmeistarínn i fimleikum, Sigurflur T. Sigurðsson, KR, mun keppa í stangarstökki á EÓP-mótinu á Fögruvöllum i Laugardal á fimmtudag. Reikna má með að hann bæti 18 ára gamalt íslandsmet Valbjarnar Þorláks- sonar í greininni, sem er 4.50 m, og talið er öruggt, að Sigurður stökkvi fljótt yfir fimm metra á stönginni. EÓP-mótið hefst kl. 19.00. Keppt verður í 200 m hlaupi, þar sem spútnik- inn Oddur Sigurðsson, KA, er meðal keppenda, 800 m hlaupi, kúluvarpi og þar gæti Guðni Halldórsson, KR, varpað yfir 19 metra, hástökki og stangarstökki. Þar keppir Valbjörn einnig en hann er talinn líklegur heims- meistari i 110 m grindahlaupi og stangarstökki og HM öldunga — kepp- endur 45 ára og eldri — síðar i sumar. í kvennagreinum verður keppt i 400 m hlaupi meyja, 100 m hlaupi og lang- stökki. Einnig kringlukasti, þar sem búast má við góðum árangri hjá Guð- rúnu Ingólfsdóttur, Ármanni. Hún hefur verið iðin við að setja íslandsmet að undanfömu. Sanngjam sigur Breiðabliks Breiðablik vann í gærkvöldi afar sannfærandi sigur yfir FH, 3-2, á Kaplakrikavelli eftir að hafa veríð undir 0-2 eftir aðeins 12 mínútur. Blik- arnir gáfust hins vegar ekki upp og þegar upp var staðið var sigurínn fylli- lega sanngjarn og hefði eftir atvikum getað orðifl enn stærri. Leikurinn var ekki nema fjögurra mín. gamall þegar Óttar Sveinsson kom FH á bragðið með potmarki eftir að Sveinn markvörður Blikanna hafði misst knöttinn, en Sveinn var mjög óömggur i markinu og hið sama má segja um kollega hans í FH, Ólaf. Blik- arnir héldu áfram að sækja en á 12. mínútu skoraöi FH aftur. Var þar Þórir Jónsson á ferðinni með gullfal- legt mark utan úr vítateig. —Kópavogsliðið sigraði FH í2. deild íHafnarfirði Smám saman drógu FH-ingar sig í vörnina, en það hefðu þeir ekki átt að gera því þar með eftirlétu þeir Blikun- um miðju vallarins og þá var hálfur björninn unninn. Blikarnir léku oft. mjög skemmtilega saman og á 32. mínútu skoraði Ingólfur Ingólfsson fallegt mark eftír mjög góða samvinnu framlínumanna Blikanna. Átta mínút- um siðar höfðu Blikarnir svo jafnað metin. Vignir Baldursson skaut þá góðu skoti af um 20 metra færi og skoraði örugglega þrátt fyrir nokkuð góða tilburði Ólafs í markinu. Strax í upphafi síðari hálfieiks skoruðu Blikarnir enn. Þeir Hákon Gunnarsson og Sigurður Grétarsson fléttuðu sig laglega í gegnum vörn FH og Hákon renndi fyrir markið þar sem Ingólfur var réttur maður á réttum stað. Þetta var á48. mín. Eftir markið tóku FH-ingar góðan kipp, en mark Blikanna komst sjaldan í hættu, einna helzt eftír mistök Sveins markvarðar. Á 58. mín. vildu FH-ing- arnir meina að Sveinn hefði fellt einn sóknarrpanna sinna og var ekki Iaust við að það hefði við rök að styðjast. Skömmu áður hafði mark Blikanna fjörsloppið i sömu sókninni og gekk þá mikiðá í teignum. En sókn FH fjaraði út og BHkarnir náðu á ný góðum tökum á leiknum og á síðustu 10 mínútum leiksins fengu þeir fjórum sinnum góð færi til að skora, án árangurs. í heildina var þetta sanngjarn sigur Blikanna, sem leika nú mjög s'kemmti- lega knattspyrnu oft á tíðum. Vignir Baldursson stjórnar miðjuspilinu af mikilli röggsemi og framlínumennirnir, Ingólfur, Hákon og Sigurður eru stór- hættulegir. Vörnin er nokkuð þétt en markvarzlan er alveg hörmung. FH-ingarnir náðu sér aldrei almenni- lega á strik í þessum leik hverju svo sem um er að kenna. Framlína þeirra, sem hafði verið afar beitt i fyrstu tveimur leikjunum, var nú aðeins skugginn af sjálfri sér. Miðjumennirnir börðust mjög vel en skiluðu boltanum illa frá sér. Þá var Pálmi gloppóttur í vörninni og mætti að ósekju reyna að senda meira á samherja sína, en hann gerir í leikjunum. -SSv. „Langtsfðan við höfumfengiðá okkurþrjúmörk” —sagdi Ray Clemence eftir jafn- tefli landsliðs ísraels og Liverpool Landslið ísrael lék við Liverpool i Tel Aviv i gær ognáði Jafntefli 3-3 — jöfnunaratarkifl skoraði ísra- el á síðustu minútu leiksins. Liverpool náfli forustu á 32. min. þegar Jimmy Case skoraði úr vitaspyrnu. Síðan skoraði Ray Kennedy og i byrjun s.h. komst Llverpool í 3-ú með marki David Fairclough. Leik- menn ísrael gáfust ekki upp — Odeon Machnes skoraði og siðan Gidlon Damti með skalia. Á loka- mínútunni jafnaði Danny Neuman. Rétt áður hafði Kenny Dalglish yfirgefiö völlinn haltur. „Það er langt siflan við höfum fengið á okkur þrjú mörk f leik,” sagfli enski landsliðsmarkvörður- inn Ray Clemence eftir leikinn. i 42 leikjum i 1. deild á Englandi fékk hann aflcins á sig 16 mörk. Fyrir leikinn var gengið frá samningi Liverpool og hins 22 ára miðvarðar Avi Colien. Liverpool greiddi 200 þúsund sterlingspund fyrír þennan landsliðs- mann ísrael, sem fæddur er í Egyptalandi. Hreinní3.sæti Finninn Reijo Stahlberg hefur náð langbezta ár- angrí i heimi f kúluvarpi — 21.69 metra. Næstur kemur Bishop Dolgiewics, Kanada, með 20.71 m. Hreinn Halldórsson á þríðja bezta heimsárangurinn, 20.55 metra. Siðan kemur Dave Laut, USA, með 20.47 m og Matthias Schmidt, USA, hefur varpafl 20.16 m. í kringlukasti er Norðmaðurinn Knud Hjeltnes með bezta heimsárangurinn, 69.50 m. Marrku Tuokko, Finnlandi, er annar með 68.12 og gamla kempan Al Oerter, USA, þriðji með 67.00 m. Mac Wilklns, USA, er aðeins i sjötla sæti með 64.78 m. í spjótkasti er Finninn Pentti Sinersaarí beztur með 93.84 m. Annar Bob Bob Roggy, USA, 88.76 m og þriðji Herman Potgieter, S-Afríku, 87.62 m. Siöan „koma tveir Finnar, Arto Hárkönen 87.47 og Antero Puranen 86.70, en hcimsmethafinn Miklos Nemeth, Ungverjalandi, er sjötti með 85.90 m. England fékk ekkiásigmark — í ríðlakeppni UEFA-keppni unglingalandsliða Júgóslavía, Frakkland, Búlgaría og England, sem fékk ekkl á sig mark i undankeppninni, hafa tryggt sér rétt f úrsllt UEFA-keppni unglingalandsliða, sem nú stendur yflr i Austurrfki. Í undanúrslitum leika England — Búlgarla, Júgóslavía og Frakkland. Þeir leikir verða í Vínarborg á fimmtudag. Úrslit í leikjunum í gær urðu þessi: Frakkland —• Holland 2-1, Belgia — Sviss 4-1, England — V- Þýzkaland 2-0, Tékkóslóvakia — Malta 6-0, Júgó- slavia — Noregur3-l, Ungverjaland — Austurrfki 3- 0, Búlgaría — Pólland 4-1, Skotland — Danmörk 2- 1. LokastaAan i riölunum varrt þannig: AhtMMB Frakkland 3 2 1 0 8—3 5 Belgia 3 2 0 1 7-7 4 Holland 3 1 0 2 4—5 2 Svbs 3 0 1 2 3—7 1 B«rWil Kngland 3 3 0 0 8—0 6 Tékkóslóvakta 3 2 0 1 8-3 4 V-Þýzkaland 3 1 0 2 5-4 2 Malta 3 0 0 3 0—14 0 C-H08I Júgóslavia 3 3 0 0 7—2 6 Ungverjaland 3 2 0 1 5—3 4 Austurriki 3 1 0 2 3—5 2 Noregur 3 0 0 3 2-7 0 D-fiAW Búlgaria 3 3 0 0 7—1 6 Skotland 3 2 0 1 5-5 4 Danmork 3 1 0 2 3—4 2 Pólland 3 0 0 3 4—9 0 Staðaní2.deild Selfoss 3 Brelðavlík 3 Þór 2 FH 3 ísafjörður 3 Reynlr 3 Fylkir 3 Austri 3 Magní 3 Þróttur 2 Markahæstu menn: Sumarliði Guðbjartsson, Selfossi, GuðmundurSkarphéðinsson, Þór, Hafþór Helgason, Þór, Andrés Krístjánsson, ísafirði Heimlr Bergsson, Selfossi, Sigurjón Rannversson, Brciðablikí, Ingólfur Ingólfsson, Breiðabliki, Janus Guðlaugsson, FH, Þórir Júnsson, FH, Ótlar Sveinsson, FH, Heimir Ingólfsson, Magna, Kristinn Krístjánsson, Isafirði, Sigurbjörn Marinósson, Austra, 1 0 1 0 0 0 0 1 1 1 10-2 7- 3 8- 4 7-4 7-5 3- 3 5-7 4- 9 2-13 1-4 5 4 3 3 3 2 2 2 2 2 2 ' 2 2

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.