Dagblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979.
a
23
Útvarp
Sjónvarp
D
'<------------;---------»
Ritgerðarsamkeppni Utvarpsins lokið:
Áhrif hemáms-
ins á hvers-
Aiþingi hefur verið mjög í sviðsljósinu í vetur.
DB-mynd Ragnar Th.Sig.
UMRÆÐUÞÁTTUR—sjónvarp í kvöld kl. 21,00:
Þjóðmálin að þinglokum
Ekki er vafi á því að Alþingi Islend-
inga hefur í vetur verið meira í sviðs-
ljósinu en flest þing er áður hafa setið.
Kemur þar margt til, ekki stzt það að
nýjum mönnum fylgja nýir siðir.
Endurnýjunin í röðum alþingismanna
varð meiri en oftast áður við síðustu
kosningar. Mikið af tiltölulega ungum
og jafnvel óreyndum mönnum kom nú
inn í þingsalina. Þessir menn hafa yfir-
ieitt verið ófeimnir við að láta heyra í
sér og hefur það orðið til þess að fjöl-
miðlarnir hafa fjallað rækilegar um
þingstörfin en oft áður. Þá er því ekki
að leyna að sú stjórn er nú situr hefur
verið heldur völt í sessi og oftar en einu
sinni hefur það beinlínis legið í loftinu
að hún væri að syngja sitt síðasta en
jafnan hefur eitthvað orðið henni til
bjargar. Þá hefur dökkt útlit í ýmsum
atvinnumáium þjóðarinnar og ófriður
á vinnumarkaðinum upp á síðkastið
beint augum manna að Alþingi og
menn hafa spurt hver annan hverjum
tökum þingið mundi taka atvinnumál-
in. Spurningar hafa vaknað um það
hvort verkföll yrðu bönnuð o.s.frv.
Bílamál ráðherranna hafa einnig verið í
■sviðsljósinu eina ferðina enn. Það-
hefur því ýmislegt orðið til að vekja at-
hygU almennings á. störfum Alþingis í
vetur og því verður það að teljast for-
vitnilegt að fá að heyra stjómmálafor-
ingjana segja álit sitt á þjóðmálunum
nú í þinglokin. Umræðunum stýrir
Guðjón Einarsson fréttamaður. -GAJ
KVÖLDVAKA - útvarp kl. 21,00:
UPPHAF SKAUTA-
ÍÞRÓTTARINNAR
— eríndi Lárusar Salómonssonar
Á Kvöldvöku útvarpsins í kvöld
flytur Lárus Salómonsson fyrrum lög-
regluþjónn fyrra erindi sitt um skauta-
íþróttina. Auk þess að vera fremsti
glímumaður landsins um árabil var
Lárus ágætur skautamaður svo hann
ætti að vita hvað hann er að tala um.
Lárus eignaðist sína fyrstu skauta árið
1919 en ekki voru það skautar eins og'
nútímabörn — og unglingar eiga að
venjast heldurleggir.og skíði hans voru
tunnustafir. Hann eignaðist þó fljót-
lega stálskauta og stundaði skauta-’
íþróttina af kappi, en þessi íþrótt var
ekki mikið stunduð á íslandi á þessum
árum. En það átti eftir að breytast.
Í erindi sinu fjallar Lárus um upphaf
skautaíþróttarinnar og hann les kafla
úr mörgum heimildum um jiessa hollu
vetraríþrótt.
-GAJ-
Þriðjudagur
29.
I. mai
12.00 Dagskráin. Tónlcikar. Tilkynningar.
12.20 Fréltir. 12.45 Veöurfrcgnir. Tilkynningar.
A frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miödegissagan: „Þorp i dögun” eftir
Tsjá sjú-lí. Guðmundur Sæmundsson les eigin
þýðingu (15).
15.00 Miödegistónleikar: Filharmoniusveit
Lundúna leikur Hamlet. sinfóniskt Ijóö eftir
Liszt; Bcrnard Haitink stj. / Sinfóniuhljóm
sveit rússneska útvarpsins leikur Sinfóniu í h-
moll op. 54 eftir Sjostakovitsj; Alexander
Gauk stj.
•15.45 Til umhugsunar. Þáttur um áfcngismál i
umsjá Karls Helgasonar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður
fregnir).
16.20 Þjóöleg tónlist frá ýmsum londum. Áskell
Másson kynnir gríska tónlist.
16.40 Popp.
17.20 Sagan: „Mikael mjögsiglandi” eftir Olle
Mattson. Guðni Kolbcinsson les þýðingu sina
(5).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Hafstraumar viö Grænland — velferö
Grænlendinga. Gisli Knstjánsson ritstjóri
flytur erindi eftir Christian Vibe, — þýdd og
endursagt.
20.00 Kammertónlist. Pianótrió i g-moll op. 15
eftir Bedrich Smetana. Suk-tríóð leikur.
20.30 (Jtvarpssagan: „Fórnarlambið” eftir
Hermann Hesse. Hiynur Árnason les þýðingu
sina(l 1).
21.00 Kvöldsaka. a. Einsöngur: Friöbjörn G.
Jónsson syngur. ólafur Vignir Albertsson
leikur á pianó. b. Bernskuár >iö Berufjörö.
Torfi Þorsteinsson bóndi i Haga i Hornafírði
flytur annan hluta frásöguþáttar sins. c. Kvæði
eftir Jón Bencdiktsson á Akureyri. Árni
Helgason les. d. Um skautaiþróttir. Lárus
Salomonsson flytur fyrra erindi sitt. e. Loðnu-
veiöi og raflýsing. Anna Þórhallsdóttir les tvo
kafla úr bók sinni um athafnaár Þórhalls
Daníelssonar á Höfn i Hornafírði. f. Kórsöng-
ur: Karlakórinn Vlslr á Siglufirói syngur.
Söngstjórar. Þormóður Eyjólfsson og Geir-
harður Valtýsson.
22.30 Fréttir. Veöurfregnir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Vlósjá: Ögmundur Jónasson sér um þátt-
inn.
23.05 Harmóníkulög. Sölvi Strand og félagar
leika.
23.15 A hljóóbergi. Umsjónarmaður: Bjöm Th.
Björnsson listfræðingur. „Gúvemessan Geir-
þrúöur” og önnur gamanmál eftir kanadiska
skáldið Stephen Leacock. Kvikmyndaleikar-
inn Christopher Plummer flytur.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög aó eigin
>ali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Sigrún Björns
dóttir byrjar aö lesa söguna „Heima í koti
karls og kóngs í ranni" eftir Mailey og Selover
i þýðingu Steingrims Arasonar.
9.20 Lcikflmi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmls lög frh.
11.00 Kirkjutónlist: Karel Paukert leikur orgel-
verk eftir Ligeti, Alain og Eben á orgel Dóm-
kirkjunnar í Reykjavík.
<
t
30. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
Zé Sjónvarp
Þriðjudagur
29. maí
20.00 Fréttir og >eöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Orka. Þriðji þáttur. Hægri fóturinn flrna-
dýri. lslenskir ökumenn gcta sparað þjóöfélag
inu milljarða króna með þvi að kaupa spar-
neytna bila, hirða vel um þá og aka með
bensínsparnað i huga. Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson. Stjórn upptöku örn Harðarson.
21.00 Þjóómálin aó þinglokum. Umræðuþáttur
með stjórnmálaforingjum. Stjórnandi Guðjón
Einarsson.
21.50 Hulduherinn. Frelsisóöur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
22.40 Dagskrárlok.
Fyrrverandi útvarpsráð samþykkti i
októbermánuði í fyrra, að tillögu út-
varpsráðsmannanna Auðar Auðuns og
Ellerts B. Schram, að efna til ritgerða-
samkeppni, þar sem fólki gæfist kostur
á að senda útvarpinu ritgerðir sem
fjölluðu um reynslu þess og kynni af
hernáminu eða byggðar væru á endur-
minningum frá styrjaldarárunum síð-
ari. Skilafrestur var til 1. marz 1979 og
alls bárust 66 ritgerðir eftir 64 höfunda.
Dómnefnd hefur nú lokið störfum og
ákveðið að fyrstu verðlaun skuli hljóta
höfundur sem sendi ritgerð undir dul-
nefninu ,,275” og reyndist vera Hulda
Pétursdóttir, húsfreyja í Útkoti á Kjal-
arnesi. önnur verðlaun koma í hlut
Péturs Ólafssonar hagfræðings, Mark-
landi 8 í Reykjavik og þriðju verðlaun
hlýtur Gunnar Erlendsson tæknifræð-
ingur, Kópavogsbraut 87 Kópavogi.
Dómnefndinni þóttu ritgerðir þeirra
þriggja höfunda sem viðurkenningu
hljóta að mörgu leyti falla vel inn í
þann ramma sem ritgerðunum var
markaður. í fréttatilkynningu frá Út-
varpinu segir að Hulda lýsi fjölskyldu-
lífi á venjulegu heimili í Reykjavík á
persónulegan hátt og áhrifum hernáms-
ins á hversdagslíf fólks, atvinnu og
hugsunarhátt. Frásögn hennar sé
krydduð nokkurri kímni, mannleg og
lýsandi. Um Pétur Ólafsson segir að
hann dragi upp fjörlega og fróðlega
mynd af hernámsdeginum sjálfum i
Reykjavik, þar sem i senn sé skyggnzt á.
bak við tjöldin og ástandi þjóðlífsins
árið 1940 lýst. Ritgerð Gunnars
Erlendssonar, sem er að verulegu leyti
bundin við Hafnarfjörð, fær þá um-
sögn að í henni komi glöggt fram
hvernig samskipti við brezkt og banda-
rískt herlið urðu gildur þáttur hins dag-
lega veruleika drengja á hans aldri, sem
áttu þess kost að kynnast þvi í návígi og
urðu í senn vitni að sorglegum at-
burðum og spaugilegum atvikum.
Ætlunin er að ritgerðir þær er viður-
kenningu hlutu verði lesnar í útvarp í
sumar, en ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær að því kemur eða lestur þeirra
skipulagður i einstökum atriðum. Út-
varpið hyggst notfæra sér þann rétt
sem það áskildi sér að láta lesa fleiri rit-
gerðir en þær þrjár sem úr hafa verið
valdar til viðurkenningar. Verða þær
lesnar í framhaldi af verðlaunaritgerð-
unum ef um semst við höfundana.
-GAJ-
J
HVALEYRARHOLTSVÖLLUR
I. DEILD
HAUKAR OG KR
LEIKA í KVÖLD KL. 20.00
Fjölmennið á fyrsta
heimaleik
Hauka í I. deild.
Framhaldsskólanám
að loknum grunnskóla
Athygli er vakin á að umsóknarfresti um inngöngu á ýmsar námsbrautir á framhaldsskóla
stigi lýkur 8. júni, og nemendur sem síöar sækja geta ekki vænst skólavistar. Tilskilin um-
sóknareyðublöð fást i þeim grunnskólum, sem brautskrá nemendur úr9. bekk, og i viðkom
andi framhaldsskólum. Leiðbeiningar um hvert senda skuli umsóknir eru á umsóknareyðu
blöðunum. Bent skal á, að i Reykjavik verður tekiðá móti umsóknum í Miðbæjarskólanum
5. og 6. júni kl. 10—17 báða dagana og jafnframt veittar upplýsingar um framhaldsskóla.
Menntamálaréðuneytið, 26. maf 1979.
Til sýnis og sölu í dag og á morgun
Citroen GS 1220 Club árg. 1978, ekinn 23 þús. km.
Stórglæsilegur bíll, sjálfskiptur með sanseruðu lakki,
sílsalistum o.fl.
Erum einnig með á skrá 2 Citroen árg. 1977.
Hafiðsamband viðsölumann í síma 81555.
Globusa
Lágmúla 5 — Sími 81555.