Dagblaðið - 16.06.1979, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. JÚNI 1979
Hugleiðing um verkalýðsmál
Kúnar Krisljánsson skrífar:
íslenzkt þjóðfélag í dag er mjög
laust í reipunum, innviðir hinnar
stjórnarfarslegu turnbyggingar eru
viða orðnir fúnir og gegnrotnir og
stafar það af lítilli hugsun og lökum
skilningi á því viðhaldi sem almennt
er krafizt til endingar hluta og efna.
Mörg dæmi eru til um það að
dómsmál okkar eru i algjörum
ólestri, lagasetningar úreltar og stoð-
lausar í samtimanum, refsilöggjöfin
fáránleg og engin raunhæf viðvörun
fyrir hendi af hálfu dómsvaldsins til
þess að hafa hemil á vaxandi tíðni
glæpa.
Almenn virðing fyrir lögum lands
og þjóðar er i lágmarki, samfélagið
allt er í upplausn vegna þeirrar flóð-
bylgju óstöðugleika sem hrjáir allan
hinn vestræna heim, og veldur
óöryggi og festuleysi hjá öllum al-
menningi. 1 viðbót við allt þetta bæt-
ist svo sú staðreynd að mismununin í
þjóðfélaginu er stígandi og stétta-
skipting stöðugt að festa sig betur í
sessi, þannig að atvinnulegir hags-
munahópar hrifsa til sín æ stærri
hluta af þeim sjóði sem með réttu til-
heyrir þjóðarheildinni. Sérhagsmunir
eru settir ofar hagsmunum heildar-
innar og afleiðingin er stjórnleysi og
vanvirt löggjafar- og dómsvald.
Hagsmunahóparnir eða þrýstihóp-
arnir, eins og sumir vilja nefna þá,
eru orðnir svo fyrirferðarmiklir og
sterkir í samfélaginu, að ríkisvaldið
hefur sett ofan, glatað frumkvæði
sínu og verður að miklu leyti að sitja
og standa eftir geðþótta þeirra þrýsti-
hópa sem standa að baki þeim flokk-
um sem mynda ríkisstjórn í það og
það skiptið.
Mistök í
kjarabaráttunni
Þrýstihóparnir eru því réttnefnd
bölvun þjóðfélagsins, þeir slíta fólkið
úr tengslum við hin sameiginlegu
markmið, raða því niður í ákveðin
mengi sem beina spjótum sínum
hvert að öðru. „Allt verður íslands
óhamingju að vopni” var einu sinni
sagt og virðist sú umsögn enn í fullu
gildi. Alþýðusamband íslands er búið
að víkka svo út starfssvið sitt, að inn-
an vébanda þess finnast nú ýmsir sér-
hópar sem raunverulega eiga þar ekki
heima. Hin ólíku viðhorf og hinir að-
skiljanlegu hagsmunir þeirra hópa
sem fyrirfinnast innan sambandsins,
skapa glundroða og fyrirbyggja þá
órofa samstöðu sem verður að vera
fyrir hendi, svo að fullur árangur
náist við ákveðnar aðgerðir verka-
lýðshreyfingarinnar, svo sem verk-
föll.
Ein meginmistök íslenzkrar verka-
lýðshreyfingar á umliðnum árum,
hafa valdið svo miklu tjóni á hinum
almenna áhuga fólks á kjarabarátt-
unni og slitið það svo algerlega úr
sambandi við hana, að það er afar
erfitt og jafnvel illmögulegt að bæta
skaðann. Þessi mistök voru í því fólg-
in, að einstök verkalýðsfélög voru
svipt valdi til að stjórna eigin baráttu
og það vald yfirfært til miðstjórnar
Alþýðusambandsins i Reykjavík.
Kjarabaráttan glataði gildi sínu við
þetta i augum fólksins og það losnaði
úr tengslum við þau áhrif sem það
hefur, að berjast í eigin persónu fyrir
eigin rétti. Staðbundnir hagsmunir
einstakra verkalýðsfélaga voru lítils-
virtir og hlutu dauða þagnarinnar í
meðförum alræðisnefndarinnar i
höfuðborginni. Ýmsir forvigismenn
verkalýðsins hafa spillzt og runnið
inn í flókið spil kerfisins og hlotið þar
magafylli bitlinga.
Menn sem höfðu árum saman pre-
dikað yfir áhugasömum verkamönn-
um nauðsyn þess, að bylta ríkjandi
þjóðskipulagi og byggja á rústum
þess hið stéttlausa þjóðfélag, hurfu
frá hugsjónum sínum og gleyptu við
bitum þeim sem hrukku til þeirra af
borðum valdsmannanna. Var furða
þótt menn yrðu ráðvilltir? Hugsjóna-
legar fyrirmyndir hröpuðu úr hugum
þeirra niður í reyk og eimyrju þess
siðspillta kerfis, sem þeim hafði verið
innrætt að fyrirlíta. Lærifeðurnir
sem höfðu kennt og varað við tál-
snörum auðvaldsins, voru sjálfir
sokknir í viti viðurstyggðarinnar.
Eiginhagsmunir
sigruðu
Hvert varð andsvar margra verka-
manna við slíkri breytni forsvars-
manna sinna? Jú, þeir uröu gripnir
reiði, fundu í sér tilfinningu fyrir því
að þeir hefðu verið sviknir, dregnir á
tálar með lýsingum á hugsjónum sem
áttu sér enga raunhæfa stoð. Þeir
álitu, að þeir hefðu verið notaðir sem
tæki tii að fullnægja framasýki for-
ustumanna sinna. Þeirra stuðningur
átti að vera tryggingin fyrir því, að
viðkomandi forvígismenn kæmust i
færi við nógu feita bita, svo sem
þingmannsstörf, vellaunuð nefnda-
störf og jafnvel bankastjórastöður
með tið og tíma. Sumir ágætir verka-
menn sneru baki við málum verka-
lýðshreyfingarinnar og stjórnmálum
BÍLLINN
75 ÁR Á ÍSLANDI
SÝNING FORNBÍLAKLÚBBSINS
LAUGARDALSHÖLL 16.-24.JÚNÍ
í tilefni þess að 20. júní 1979 eru liðin 75 ár frá komu bílsins til íslands
efnir Fornbílaklúbbur íslands til fjölbreyttrar sýningar í Laugardals-
höllinni, sem standa mun frá 16. til 24. júní 1979.
Afmælisrit, sem jafnframt er sýningarskrá, verður selt á sýningunni. í
ritinu verður m.a. grein um fyrstu bílana á íslandi eftir Þór Magnús-
son, þjóðminjavörð, og mikill fjöldi gamalla mynda af bílum.
Á SÝNINGUNNI VERÐA:
★ ÓUPPGERÐIR GAMLIR BÍLAR
★ GAMLIR BILAR; SEM VERIÐ ER AÐ GERA UPP
★ BREYTTIR (MIXAÐIR) GAMLIR BÍLAR
★ ÞRÓUNARSAGA BÍLA - ALLT FRÁ ELSTA BÍL LAND-
SINS, T-FORD 1917 TIL NÝJUSTU BÍLA
★ GÖMUL MÓTORHJÓL OG REIÐHJÓL
★ MIKILL FJÖLDI MYNDA - ALLT FRÁ FYRSTU ÁRUM
BÍLSINS Á ÍSLANDI
★ ÝMSIR MUNIR TENGDIR BÍLUM - GAMLAR VÉLAR -
HJÓL - MÆLABORÐ
Komið og sjáið merkilega gamla bíla: Dixie Flyer 1919, Cord 1937,
Austin 7 1937, Buick 1947 og allra nýjustu bílana: Mazda RX 7 sport-
bíl 1979, Chevrolet Citation 1979.
Sýningin verður opnuð kl. 14 laugardaginn 16. júní. 17. júní verður
hún opin frá kl. 14-22.30, virka daga frá 17-22.30, laugardag 23. júní
og sunnudag 24. júní frá kl. 14-22.30. Miðvikudaginn 20. júní verður
sýningin opin frá kl. 19-22.30.
5 FORNBILAKLUBBUR ISLANDS
almennt, höfðu fengið óbeit á þeim
og glatað hugsjónaeldi sínum, vegna
þeirrar staðreyndar, að leiðtogar
þeirra höfðu ekki reynzt þess verð-
ugir að bera kyndil frelsisins, höfðu
hrasað á götu hugsjónar þeirrar sem
byggir tilveru sína á jöfnuði allra
manna. Eiginhagsmunir einstaklings-
ins höfðu sigrað og hagsmunir
heildarinnar verið fyrir borð bornir.
Það hefur allt of oft gerzt. Það ber
því að hafa í minni, að hver og einni
sem velst til forustu, verður ósjálfrátt
viðmiðun margra, jafnvel fyrirmynd.
Því er það alltaf mikill skaði hverju
málefni, þegar einhver sem hefur
staðið framarlega í baráttu fyrir því,
hverfur af vígvellinum og haslar sér
jafnvel völl í herbúðum andstæðing-
anna.
Baráttuhugur
þarf aðhald
Til þess að málefni nái fram að
ganga, þarf ákveðna og sterka bar-
áttu, þar sem einbeittur vilji og vök
ull hugur ráða oft úrslitum, því er
það svo nauðsynlegt.að forustu-
mennirnir séu vandanum vaxnir,
óhvikulir og fastir fyrir, en þó jafnan
til viðræðu, á jöfnum og sanngjörn-
um grundvelli. Það mun eflaust ekki
hollt, að hafa sömu mennina i eldlín-
unni ár eftir ár, það er hvorki gott
fyrir þá eða málefni þeirra. Bar-
áttuhugur manna þarf næringu og
aðhald, það er frumskilyrði að menn
séu sér þess fullkomlega meðvitandi,
fyrir hvað þeir eru að berjast. Þess
vegna eru tengsl þeirra sem í eldlín-
unni standa, við umbjóðendur sína,
þann bakhjarl sem þeir styðjast við,
svo óumræðilega mikilvæg og nauð-
synleg.
Hver sem slitinn er úr tengslum við
grundvöU baráttu sinnar, verður
smám saman lítös virði fyrir þá bar-
áttu, getur jafnvel orðið til að skaða
hana. Þess vegna verður alltaf að við-
halda sönnum tengslum milli fólks al-
mennt og þeirra sem berjast fyrir
það, I eldlínu kjarabaráttunnar.
Nú er svo komið, að það er orðið
erfitt, að koma upp stjórn í verka-
lýðsfélagi úti á landi, enginn vill
leggja þar hönd á plóginn. Verka-
lýðsfélagsfundir eru ákaflega Ula
sóttir og áhugaleysið svo yfirgnæf-
andi, að rík nauðsyn er öflugra að-
gerða i því sambandi.
Alþýðusambandið hefur leiðzt út á
villigötur og orðið til þess, að drepa
niður ágætt starf ýmissa félagsein-
inga sem starfað hafa kröftuglega að
málum verkalýðshreyfingarinnar
víða um land.
Raunhæfar aðgerðir
nái fram að ganga
Það er kominn tími tU að valdsöfn-
unarþróuninni verði snúið við, þvi að
hagsmunir verkalýðshreyfingarinnar
byggjast á því, að valdinu verði dreift
til félaganna aftur. Fólkið verður að
vera í nánum tengslum við sína eigin
kjarabaráttu, það er forsenda þess að
almennur áhugi ríki á þessu sviði
meðal þess. Það er ekki í þágu hags-
muna verkalýjýshreyfingarinnar, að
hrúgað sé upp skrifstofubákni i
höfuðborginni, þar sem málefni
verkalýðsins eru tekin fyrir með
hangandi hendi, af stórum hópi
manna sem fyrir löngu eru orðnir
hugsjónalega staðnaðir og áhuga-
lausir I störfum sínum fyrir verka-
fólkið. Það er skilyrðislaus krafa al-
þýðunnar i landinu, að raunhæfar
aðgerðir nái fram að ganga. Þeir
menn sem hafa haft forustuna á
hendi undanfarin ár í kjarabaráttu
fólksins, hafa ekki reynzt þess megn-
ugir að verja kjör þess, hvað þá að
bæta þau. Þeir búa ekki lengur yfir
þeim eldmóði sem-nauðsynlegur er til
þess að starf þeirra beri góðan ár-
angur. Það er orðin brýn þörf fyrir
nýja menn og meðal fólksins í land-
inu hljóta að fyrirfinnast margir ein-
staklingar, bæði karlar og konur,
sem hafa til að bera þá hæfileika og
þann eldmóð áhuga sem forustulið
verkalýðshreyfingar þarf að hafa.
Gegn miðstýringu ASÍ
Saga liðinna ára og áratuga er
dapurleg. Það hefur margt farið
öðruvísi en til var stofnað í sambandi
við þróun þessarar þjóðar. í staðinn
fyrir einingu og þjóðlega samstöðu,
höfum við lotið þungu böli sundur-
lyndis og óláns í allt of ríkum mæU,
langt umfram það sem eðlilegt getur
talizt. Því miður hefur þróun verka-
lýðshreyfingarinnar, þrátt fyrir
margvíslegan ávinning á alllöngum
ferli, verið hörmuleg á margan hátt.
Það er staðreynd, að verkalýðshreyf-
ingin á íslandi gæti verið miklu sterk-
ari en hún er, og eina ástæðan fyrir
því að hún hefur ekki náð þeim styrk
sem hún í raun og veru getur búið
yfir, er keðja mistaka í sambandi við
skipulagningu og framkvæmd upp-
byggingar þess Alþýðusambands-
kerfis sem við þekkjum i dag. Það er
ekki skoðun mín, að það eigi að
leggja niður heildarstjórnun þessara
mála, enda er hún nauðsynleg, að
vissu marki. En það er skoðun mín
ómenguð, að valddreifing sé knýj-
andi nauðsyn, þar sem allt of mikið
vald hefur safnazt á fáar hendur i
Reykjavík, i þessum málum.
Það verður að endurreisa verka-
lýðshreyfinguna með almennan
áhuga og almenna þátttöku fólksins í
kjarabaráttunni sem kjölfestu.