Dagblaðið - 16.06.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979
5
Verðiðáolíunni:
SKRÁNINGIN FÆST ÚR
„PLATTS OUGRAM”
„Platt’s Oilgram” er nafnið á tíma-
ritinu sem segir til um hver sé verð-
skráningin á oliunni í Rotterdam,
Curacao og víðar. Upplýsir tímaritið
hve mikið við þurfum að borga fyrir
oliuna sem er komin vel á veg með að
setja okkur á hausinn.
Tímarit þetta er prentað og póstlagt
daglega svo olíufélögunum berst það
mjög reglulega. Er samkvæmt þessu
daglega tímariti reiknað út verðlag olí-
unnar sem Rússarnir eru síðan að bera í
okkur af og til með risastórum olíu-
skipum sínum.
Sem kunnugt er fóru íslendingar
fram á að verðið á bensíni yrði miðað
við Rotterdammarkaðinn. Var það á
meðan hann var okkur hagstæður en
nú er hann orðinn okkur óhagstæður
svo að nú er meiningin að fara fram á
að fá eitthvað hagstæðara til að miða
við. Það gæti hins vegar orðið til þess
að ef olíuverð lækkaði þar yrðu
íslendingar af þeirri hagkvæmni sem
það gæti haft í för með sér að miða
olíuverðið við Rotterdammarkaðinn.
Ritið Platt’s Oilgram er ekki heimilt
að sýna opinberlega, að sögn Vilhjálms
Jónssonar, forstjóra Olíufélagsins hf.,
og ekki heimilt að endurrita upplýsing-
ar úr því, samkvæmt áskriftarsamningi
Hinar sjö systur oliugróðafyrírtækj-
anna.
olíufélaganna við útgáfustjórn Platt’ s
Oilgram. -BH.
Peningalyktin hefur á undanförnum
árum hrjáð margan íslendinginn, en
það eru líka til staðir þar sem aldrei er
kvartað yfir svo dýrmætri lykt sem
fiskimjölsverksmiðjurnar spúa frá sér.
í Keflavík hefur geisað heilagt stríð
gegn fiskimjölsverksmiðjunni sem
stendur við aðalleiðina til bæjarins.
Hefur því verið hótað að hætta rekstri
verksmiðjunnar fyrst hún ekki fær
starfsleyfi enn um sinn án hreinsitækja.
Ókunnur borgari í Njarðvík eða
Keflavík festi upp táknrænt skilti á
næsta símastaur við verksmiðjuna. Er
á því mynd af manni með þvotta-
klemmu á nefinu. Enginn veit hver
verknaðinn framdi, en merkið hefur
fengið að standa óáreitt.
Suður í Sandgerði spúði önnur verk-
smiðja sömu tegundar miklum reyk
upp í heiðan himinn. í Sandgerði er
aldrei kvartað yfir þessari lykt. Hana
leggur líka mjög sjaldan yfir bæinn, þvi
norðvestanátt, sem til þarf, er sjald-
gæf-
- ASt.
Tekur Ferðamáiasjóður
félagssamtök fram
yf ir einkaf yrirtæki?
Hugleiðing-
arbyggðar
ámis-
skilningi
— segir Heimir
Hannesson
„Hugleiðingar í opnu bréfi Sam-
bands veitinga- og gistihúsaeigenda eru
byggðar á misskilningi,” sagði Heimir
Hannesson, formaður Ferðamálasjóðs,
í samtali við DB. Fram hefur komið í
fréttum að veitinga- og gistihúsaeig-
endur telja Ferðamálasjóð hygla félags-
samtökum á kostnaðeinkafyrirtækja.
„Starfsemi Ferðamálasjóðs hefur
verið fólgin í því að ráðstafa með lán-
um til einstaklinga, hlutafélaga og
sveitarfélaga mjög verulegum og aukn-
um fjármunum um landsbyggðina í
sambandi við ný hótel. Þetta hefur
verið gert í mjög auknum mæli og með
betri kjörum en nokkru sinni fyrr,”
sagði Heimir Hannesson ennfremur.
í sambandi við sölu Flókalundar til
verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörð-
um tók Heimir fram að þegar sjóðs-
stjórnin hefði tekið ákvörðun sína
hefði hún að sjálfsögðu haft í huga
hagsmuni Ferðamálasjóðs og telji að
þeirra sé gætt í þessu tilviki. Á það
megi einnig benda að í nágrenni Flóka-
lundar sé nú rekin umfangsmikil or-
lofsstarfsemi á vegum verkalýðshreyf-
ingarinnar og því ekki óeðlilegt að
heimamenn hefðu áhuga á að eignast
staðinn.
Heimir Hannesson minnti að lokum
á að Ferðamálaráð hefði opinberum
skyldum að gegna og orlofsmál væru
einnig ferðamál sem mikilvægt væri að
sinna.
-GM
Plnsfcos lil* QZE0
PLASTPOKAR
FYLA SEM KVARTAÐ ER YFIR OG
FÝLA SEM EKKIER KVARTAÐ YFIR
Þeir brosa i kampinn Kefivikingarnir yfir merkinu sem að næturlagi var sett upp i
námunda við fiskimjölsverksmiðjuna við innkeyrsluna i bæinn.
t Sandgerði spýr fiskimjölsverksmiðja reyk án afláts. Þar er aldrei kvartað.
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
17.JUNI 1979
Þjóðhátíð
Reykjavíkiir
DAGSKRA
I. DAGSKRÁIN HEFST:
Kl. 09.55 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavik.
KJ. 10.00 Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá
Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum
v/Suðurgötu. Lúðrasveit verkalýðsins leikur: Sjá roðann á
hnjúkunum háu. Stjórnandi Ellcrt Karlsson.
II. VIÐ AUSTURVÖLL:
Lúðrasveit verkalýðsins leikur ættjarðarlög á Austurvelli.
Kl. 10.40 ' Hátíðin sett: Jón H. Karlsson, formaður þjóðhátíðarnefndar.
Karlakór Reykjavíkur syngur: Yíir voru ættarlandi. Söngstjóri
Páll Pampichler Pálsson.
Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, leggur blómsveig frá ís-
lensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Karlakór Reykjavíkur syngur þjóðsönginn.
Ávarp forsætisráðherra, Ólafs Jóhannessonar.
Karlakór Reykjavíkur syngur: Island ögrum skorið.
Ávarp fjallkonunnar.
Lúðrasveit verkalýðsins leikur: Ég vil elska mitt land.
Kynnir: Vilhelm G. Kristinsson.
Kl. 11.15 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prestur séra Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel.
Einsöngvari: Garðar Cortes.
III. LEIKUR LÚÐRASVEITA:
Kl. 09.30 Við Hrafnistu.
Kl. 10.15 ViðHátún.
Kl. 11.00 Við Borgarspítalann.
Kl. 09.30 Við Elliheimilið Grund.
Kl. 10.15 Við Landspítalann.
Kl. 11.00 Við Landakotsspítalann.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Herradsbygd Skola
Korps leika.
Stjórnendur: ólafur L. Kristjánsson og Björn Töraasen.
IV. TlVOLÍ:
Kl. 14.00—18.00 Skátatívolí, Kassabílaakstur og Götuleikhús nemenda úr
Lciklistarskóla íslands, í Lækjargötu og á Lækjartorgi.
V. LEIKUR FYRIR ALLA:
Kl. 14.00—18.00 Við Kjarvalsstaði leika fóstrur, Tóti trúður (Ketill Larsen)
o.fl. við börn á öllum aldri. Farið í leiki og sagðar sögur. Brúðu-
leikhús, tafl o.fl.
Kl. 14.45 Gengið frá Kjarvalsstöðum að Hlemmi.
VI. SKRÚÐGÖNGUR:
Kl. 15.15 Safnast saman á Hlemmtorgi og við Sundlaug Vesturbæjar.
Frá Hlemmtorgi verður gengið um Laugaveg, Bankastræti og
Ingólfsstræti á Arnarhól. Lúðrasveitin Svanur leikur, undir
stjórn Sæbjörns Jónssonar.
Frá Sundlaug .Vesturbæjar verður gengið um Hofsvallagötu,
Túngötu, Garðastræti, Vesturgötu og Hafnarstræti á Arnarhól.
Lúðrasveit Réykjavíkur leikur, undir stjórn Þorvaldar Stein-
grimssonar.
Skátar ganga undir fánum fyrir skrúðgöngunum og stjórna þeim.
VII. BARNASKEMMTUN Á ARNARHÓL:
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Herradsbygd Skola
Korps leika. Stjórnendur: Ólafur L. Kristjánsson og Björn
Töraasen.
Kl. 16.00 Samfclld dagskrá:
Stjórnandi: Helga Hjörvar.
Textahöfundur: Jón Hjartarson o.fl.
Undirleikari: Carl Billich.
Þátttakendur:
Árni Tryggvason, Randver Þorláksson,
Bessi Bjarnason, Sigríður Þorvaldsdóttir,
Guðrún Alfreðsdóttir, Sigurður Sigurjónsson.
VIII. LAUGARDALSVÖLLUR 20 ÁRA:
Kl. 13.50
Kl. 14.15
Kl. 15.30
„Landshlaup F.R.I. 1979“ hefst.
Sigurjón Pétursson, forscti borgarstjórnar flytur ávarp.
Hlaupið verður um eftirfarandi götur: Reykjaveg, Borgartún,
Snorrabraut, Laugaveg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg,
Sóleyjargötu, Hringbraut og Reykjanesbraut.
Knattspyrna:
Reykjavík — I.B.K. 3. f.l.
Reykjavík —I.A. 4. fl.
Rcykjavík —F.H. 5. fl.
17. júní mótið í frjálsum íþróttum, síðari dagur.
IX. NAUTHÓLSVIK:
Kl. 14.00—18.00 Siglingaklúbbur Æskulýðs,ráðs Reykjavíkur verður opinn
og urigum sem öldnum gefinn kostur á að kynna sér siglinga-
íþróttina.
X. KVÖLDSKEMMTUN:
KJ. 21.00 H.L.H.-flokkurinn leikur í Austurstræti.
Diskótek á Lækjartorgi.
Skemmtuninni lýkur kl. 23.30.
O 82655