Dagblaðið - 04.07.1979, Side 23
Nú er tími sundnámskeiðanna og í Litla barnatímanum í dag verður einmitt fjallað um sundkennslu.
IÞRÓTTIR - útvarp kl. 21,45:
Knattspyrnumenn
— eru þeir góðir
eða slæmir?
íþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar er á dagskrá útvarpstns í kvöld
kl. 21,45 og verður meðal annars rætt
við formann Ungmenna og íþróttasam-
bands Austurlands, Hermann Níels-
son.
Að sögn Hermanns verður spjallað
um allt í sambandi við iþróttir á
Austurlandi en þar eru nú blómlegir
tímar þó að rígur sé á milli fjarða.
Einnig verður rætt um 1. deild í fót-
bolta, en tvö stig skilja nú 1. og 7. lið.
Eru íslendingar svona góðir eða svona
lélegir? Þeirri spurningu verður reynt
að leita svars við.
Að síðustu ef tími vinnst til verður
spjallað við dómara um þeirra starf,
hvort þeir verði fyrir ásókn leikmanna
og fleira í þeim dúr. Þátturinn er
tuttugu mínútna langur.
-ELA
Hermann Gunnarsson verður með sinn
vanalega iþróttaþátt i kvöld.
DB-mynd Bj.Bj.
Helga Þ. Stephensen heldur áfram að
kynna Lagið mitt á morgun.
DB-mynd Jim Smart
UMRÆÐUÞÁTTUR — útvarp sunnudag:
ÞINGMENN STJÓRNA
UMRÆÐUM
Á síðasta útvarpsráðsfundi fyrir
sumarfrí var ákveðið að næstu sunnu-
daga yrðu umræðuþættir í útvarpi.
Ekki þó venjulegir umræðuþættir þar
sem fréttamaður stjórnar heldur
verður breytt út af venju. Ætlunin er að
fá einn þingmann úr hverjum stjórn-
málaflokki til að stýra umræðunum og
jafnframt að velja mál sem yrði til
umræðu. Þó er sú krafa gerð að við-
komandi þingmaður velji ekki flokk-
pólitískt þingmál til umfjöllunar.
Ekki hefur enn fengizt þingmaður
sem taka vill að sér verkið. Útvarpsráð
stakk upp á fjórum þingmönnum, þeim
Vilmundi Gylfasyni, Friðriki Sophus-
syni, Ólafi Ragnari Grímssyni og Páli
Péturssyni. Ekki hefur þó enn náðst í
þessa menn þannig að hugsanlega gæti
orðið breyting á.
Fyrsti þáttur verður sem sagt næsta
sunnudag, en ennþá hefur tíminn ekki
verið ákveðinn. -ELA
Eflaust verður skemmtilegt að heyra
þingmenn setja sig I fréttamannastöðu.
í fyrramálið er á dagskrá útvarpsins
þátturinn Verzlun og viðskipti kl. 11,00
og er það Ingvi Hrafn Jónsson sem er
umsjónarmaður.
í þættinum verður fjallað um lífið í
stórmarkaði og spjallað við verzlunar-
stjóra í Hagkaup og viðskiptavini þar
um hvernig það sé að verzla i stór-
markaði og fleira. Þátturinn nefnist
Heimsókn í stórmarkað og er hann
stundarfjórðungs langur.
-ELA
Margir tclja sig gera betri kaup I stór-
mörkuðum og myndast oft gífurlegar
biðraðir eins og meðfylgjandi mynd
sýnir. DB-mynd: Ragnar Th.
Lagið mitt
heldur áfram
Á siðasta útvarpsráðsfundi fyrir
sumarfrí, var ákveðið að Lagið mitt,
þáttur fyrir yngri en 12, héldi áfram.
Útvarpsráð féllst ekki á að þátturinn
yrði lagður niður og verður hann því á
morgun á sínum venjulega tíma kl.
17.20. Áður auglýst dagskrá breytist
þvi eftir því.
-ELA
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1979.
Utvarp
Sjónvarp
ELÍN
ALBERTS
DÖTTIR
LITU BARN ATÍMINN - útvarp M. 17,20:
HBMSÓKNÁ
SUNDSTAÐI
Litli barnatíminn er á dagskrá út-
varpsins í dag kl. 17,20 og er hann að
þessu sinni í umsjá Steinunnar
Jóhannesdóttur. Steinunn hefur gert
fyrir útvarpið fjóra litla barnatima sem
fluttir verða einu sinni í viku í júlí-
mánuði.
j hverjum þætti er tekið fyrir
ákveðið afmarkað efni og að þessu
sinni er það sund og sundkennsla. Flest
börn á aldrinum 6—8 ára eru um þessar
mundir upptekin í sundnámskeiðum
sem haldin eru um allt land.
Steinunn heimsækir nokkra staði þar
sem sundkennsla fer fram og ræðir við
börn og kennara. í þættinum verður
ennfremur lesið úr tveim bókum, Adda
lærir að synda eftir Jennu og Hreiðar
og Jón Oddur og Jón Bjarni eftir
Guðrúnu Helgadóttur og er það
höfundurinn sjálfur sem les kafla úr
bókinni sem fjallar um sama efni og
þátturinn sjálfur.
Litli barnatíminn er tuttugu mínútur
aðlengd.
-ELA
VERZLUN 0G VIÐSKIPTI
—útvarpkl. 11,00:
HEIMSÓKN í
STÓRMARKAÐ