Dagblaðið - 05.07.1979, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ1979.
13
Inni i bænum malar konan kaffi en Steina stenrtur raunamætfd hjá. Konuna A bænum leikur Arnhildur Jónsdóttir en
Steinu leikur Frfða Gylfadóttir. Á bak við tunnu sér f þýzkan tæknimann. DB-mynd Bjarnleifur
sem hinum nýja Hlíðabæ er ætlaður
þurfti að gera á honum nokkrar breyt-
ingar og var þeim í rauninni ekki lokið
þegar DB-menn litu við. Síma- og raf-i
magnsh'nur mega ekki sjást þannig að
taka verður þær niður á meðan á
myndatöku stendur. Vitinn á Hvalnesi
er einnig of nýtízkulegur til að mega
sjást og er vandamál hvernig á að hylja
hann. Helzt hefur komið til álita, að
sögn Benedikts, að hylja hann segli sem
á væru siðan málaðir klettar. Þó getur
þetta orðið vandamál þar sem oft vill
hvessa á Hvalnesinu.
Veðrið verður líka að vera af réttri
gerð, hvorki rigning né sólskin. Heldur
þurr dumbungur, alveg eins og var dag-
inn sem DB-menn voru á ferð. Bene-
dikt var þó ekki of bjartsýnn á að í
Lóninu yrðu margir slíkir dagar í ágúst-
mánuði. „Það hefur komið fyrir að
það rigndi nær allan ágúst,” segir
hann.
Innviðir í Reykjavík
En þó útveggir Hlíðabæjarins séu í
Lóninu eru innviðir hans í Reykjavík,
nánar tiltekið í Ármúlanum. Þar fer
núna fram upptaka af miklum móði
og gengur vel að sögn Björns Bjöms-
sonar leikmyndateiknara. Gerði hann
ráð fyrir að myndinni yrði lokið í(
október í haust þó upptaka í Þýzka-
landi hafi ekki gengiö eins vel og á
varð kosið vegna veðurs.
- DS
nýkomnir í miklu úrvali
HÖGG-
DEYFAR
íflestartegundir
bifreida á ótrúlega
hagstæðuverði
ATH.
Breytt símanúmer Póstsendum um allt land
og heimilisfang.
HÖGGDEYFIR
Smiðjuvegi 14
Sími 77152
Þegar timbríð þrýtur...
SKJÓTA BÓFARN-
IR HVER ANNAN
j Þegar bófarnir eru farnir að skjóta
hver annan er illt i efni. Sérlega þó
þegar löggustöðin er hinum megin
við götuna og búast má við árás
þaðan á hverri stundu. Og önnur
jöggustöð er ofar i götunni. En þegar
bófavirki á tveim hæðum er komið
upp fyllast menn hofmóði og vilja
bara skjóta þá sem næstir eru, jafn-
vel félaga sina.
Bófana þrjá hittum við á Höfn i
Hornafirði. I alvörunni eru þeir engir
bófar heldur bara strákar á starfs-
velli, þeim fyrsta sem komið hefur
verið upp á Höfn. Á vellinum þeim
|eru 60 krakkar meira og minna allan
daginn, 40 á aldrinum 5—8 ára og 20
|8—12 ára. Lttlu krakkamir vilja
ólmir fá að komast að lika en ákveðið
var að ekld yrðu teknir yngri en 5 ára
vegna hættu á meiðslum á litlum
fingrum.
Starfsemin á starfsveilinum hefur
gengið það vei að ekki hefst undan að
útvega timbur til bygginga. Þvi lá
vinna að mestu niðri er DB-menn
heimsóttu völlinn. En daginn eftir
var hafizt handa, þó grenjandi rign-
ing væri komin.
- DS / DB-mynd Trausti
wrAkO^01 B-L-Ú-S-S-U-R
í fjjölmörgum litum
Verzlanahölfínni
Laugavegi26,2. hæð. Sími 17744
Næg bílastæði, Grettisgötumegin.