Dagblaðið - 05.07.1979, Page 14

Dagblaðið - 05.07.1979, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1979. rc Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Brian Little til Birming- ham fyrir600.000 Brian Little. Brian Little, cinn allra bezti leik- maður Aston Villa, var í gærkvöld seldur til nágrannaliðsins og erkifjend- anna Birmingham City fyrir 600.000 sterlingspund. Sala hans kcmur mjög á óvart, en hins ber að gæta að Birming- ham hefur haft góð fjárráð cftir söluna á Trevor Francis til Nottingham Forest. Þar kom milljón í kassann. Það sem mesta athygli vekur er sú staðreynd að Little skuli ganga til liðs við Birmingham sem er í 2. deild. Aston Villa lét ekki þar við sitja í gær og seldi einnig John Grcgory til Brigh- ton fyrir 300.000 pund. Alan Mullery er greinilega byrjaður að styrkja lið sitt en eigendur Brighton segjast ieggja allt í sölurnar ef það megi verða til þess að félagið standi sig vel á sínu fyrsta keppnistímabili i 1. deild i sögu félags- ins. Gregory kom til Villa frá Peter- borough fyrir smápening fyrir nokkrum árum og sala hans kom álíka mikið á óvart og sala Little. Þá var gamla kempan John Hollins scld í gær frá Queen’s Park Rangers til Arsenal fyrir 75.000 pund og kemur það jafnvel enn meira á óvart en hinar sölurnar tvær til samans. Hollins er orðinn 32 ára gamall og búinn að lifa sitt fegursta skeið sem knattspyrnu- maður. Hollins lék lengst af með.. Chelsea og varð t.d. bikarmeistari með Chelsea 1970 og Evrópumeistari bikar- hafa árið eftir með félaginu. í gærkvöldi var einnig skýrt frá því að framkvæmdastjóri Ipswich, Bobby Robson, væri líkast til á förum til spænska liðsins Atletico Bilbao, en ekki var það staðfest. Ef af veröur er það nokkuð óvænt því ekki er nema rúmt ár síðan að Ipswich gerði 10 ára samning við Robson i kjölfar bikar- sigursins yfir Arsenal. Annað mark KR-inga i uppsiglingu. Stefán Örn S KR-in 3. deild —blanda sér varla íbatc Það voru áhyggjufullir forráðamenn KR '■ sem fylgdust með leik sinna manna gegn 3. deildar liði Siglufjarðar í bikarkeppni KSÍ á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Þrátt fyrir 3-1 sigur KR höfðu þeir fulla ástæðu til að vera áhyggjufullir því að á köflum var erfitt að greina, hvort liðið er í hópi efstu liða 1. deildar og hvort liðið er neðarlega í 3. deild. Siglfirðingar komu verulega á óvart í leiknum með góðri baráttu. Þrátt fyrir að KR-ingar skoruðu strax á 9. minútu leiksins gáfust þeir ekki upp heldur börðust vel leik- inn á enda og það var ekki fyrr en á loka- Létthjá — spiluðu Fylki sundur c Hinir ungu og frísku Blikar úr Kópavogin- um áttu ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér þátttökurétt í næstu umferð bikarkeppninnar, er þeir unnu Fylki næsta auðveldlega 4-0 í fjörugum og oft bráðvel lciknum leik á grasvellinum í Kópavogi. Staðan í hálfleik var 2-0. Blikarnir höfðu undirtökin allt frá fyrstu mínútu og það var aðeins um miðbik fyrri hálfleiksins að Fylkir náði að sýna eitthvað að ráði. Sóknin var þó næsta bitlaus allan tímann og varnarmenn Blikanna afstýrðu hættunni venjulega löngu áður en til kasta Sveins markvarðar kom. Strax á 2. mínútu komst Sigurður Grétars- son í gegn en skaut framhjá. Þar með var tónninn gefinn og á 9. mínútu skoruðu Blik- arnir fyrsta markið. Eftir hornspyrnu náði Sigurður Grétarsson að gefa vel fyrir markið þff sem nýliðinn Ólafur Björnsson skallaði í markið af stuttu færi, en minnstu munaði að varnármönnum Fylkis tækist að bjarga. Eftir þetta mark kom eini dauði kafli leiks- ins. Lítið var um færi og áhugaleysi ein- kenndi bæði lið, einkum Blikana sem voru næsta öruggir með sig. Fyrsta hættulega sókn Fylkis kom á 27. mínútu en endahnút- inn vantaði eins og endranær og ekkert varð úr. Blikarnir náðu hins vegár af og til stór- skemmtilegum sóknarlotum og úr einni slíkri brenndi Ólafur Björnsson af í dauðafæri eftir að Sigurður hafði hlaupið vöm Fylkis af sér og gefið mjög vel fyrir markið. Á 43. mínútu kom síðan annað markið. Heiðar Breiðfjörð lék skemmtilega í gegnum vörnina og einn varnarmanna Fylkis renndi sér á knöttinn og greip með höndum —- víta- spyrna. Úr vítinu skoraði Sigurður Grétars- son af miklu öryggi. Kunnugir segja að

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.