Dagblaðið - 05.07.1979, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979.
17
Selur f bala. Á efri myndinni er Kjammi i taugastriði við selkóp á hlaðinu.
DB-myndir Dagbjartur Jónsson
Veiða sel þrátt fyrir
mótmælaraddir Sædýrasafniö
Selaveiðar eru ekki ýkja algengar hér
á landi enda mjög margir á móti því að
selir séu drepnir, hvort sem um er að
ræða hér eða annars staðar. Jafnvel
frægustu kvikmyndaleikkonur láta sér
annt um selinn og berjast af fullum
krafti til að fá hann friðaðan.
Bændur i Gaulverjabæ láta sér fátt
um finnast aðgerðir leikkvennanna og
annarra og veiða sinn sel þrátt fyrir há-
værar mótmælaraddir. Þeir hafa þó
ekki orðið fyrir aðkasti ennþá að
minnsta kosti.
Jón Sturluson, Jón Tómasson o£
Þormóður Sturluson á Fljótshólum í
Gaulverjabæ hafa veitt sel undanfarin
sumur í Þjórsá. Hafa þeir selt Sædýra-
safninu selina sem aftur selur þá til
fjarlægra landa.
Nú á dögunum veiddu þeir nokkra
seli í háf og komu þeim lifandi heim á
bæjarhlað. Hundurinn á bænum,
Kjammi, var nú ekkert sérlega hrifinn
af þessum kynlegu gestum og snerist í
kringum selina eins og meðfylgjandi
‘myndir sýna.
- ELA
Htibner
heitur
Dr. Robert Húbner, vestur-
þýzki stórmeistarinn sterki, einn
alsterkasti skákmaður heimsins
um þessar mundir, hefur svarað
boði SÍ og TR um þátttöku í
næsta Reykjavikurskákmóti.
Kveðst hann mjög gjarna vilja
taka þátt í því, en vill þó sjá
aðeins til fram yfir millisvæða-
mótið, sem hann ávann sér rétt til
þátttöku í í Luzern. Telur hann
sig eiga nokkra möguleika á að
komast í áskorendaeinvígin og ef
þau rekast ekki á við mótið í
Reykjavík þá er hann tilbúinn að
koma.
Hverfandi líkur verður að telja
á því að áskorendaein.vígi heims-
meistarakeppninnar hefjist fyrr
en næsta vor, þar eð millisvæða-
mótunum lýkur ekki fyrr en f
októberlok. Þá er eftir að draga
um hverjir tefla saman og útvega
mótshaldara. Það ættu því að
vera mjög miklar líkur á því að
dr. Húbner sláist í hóp þeirra
sterku skákmanna sem þegar hafa
tilkynnt þátttöku en það eru stór-
meistararnir Kortsnoj, Browne og
Stean eins og DB hefur áður
greint frá.
- GAJ
Hestur
týndur í
Mosfelts-
sveit
Einn af blaðberum okkar varð
fyrir því óhappi að hestur hans
hvarf frá Laxnesi í Mosfellssveit
fyrir um tveimur vikum. Sást
síðast til hans við Geitháls á
laugardaginn.
Hesturinn er rauður, glófextur,
með hvíta stjörnu í enni og stórt L
er merkt á vinstri síðu hans.
Þeir sem gætu gefið einhverjar
upplýsingar vinsamlega hringi i
ölmu í síma 16967 eða Henning
Clausen, 18836.
Hljómgæði í sérflokki, tvöfaldur
tónbreytir.
Söpholt, 19 -Reykjav
Ekta viður, hnota, palisander.
3ja ára ábyrgð á myndlampa, 1 á
áöHuöðru. \>Ss?
Gertfyrir flarlægðina 2 6 metrár.
100% einingarkerfi, - '. - -'
Kah-kerfi.
i tommur.
pi high bright, sem er
KYNNINGAR
VERÐ
26" KR. 559.900.-
Útborgun frú kr. 200þús.
Eftirstöðvar á 6 mánuðum.