Dagblaðið - 05.07.1979, Blaðsíða 28
Þjóöviljinn heimtar af-
sögn utanríkisráðherra
—breyti hann ekki ákvðrðun um útivist varnarliðsmanna
„Þess verður að krefjast af utan-
ríkisráðherranum að hann dragi
heimildir þessar þegar til baka, en
víki ella úr ríkisstjórninni fyrir manni
sem reiðubúinn er að viðurkenna
stjórnarsáttmálann í verki,” segir í
leiðara Þjóðviljans í morgun. Þar er
verið að mótmæla hinum nýju regl-
um utanríkisráðherra um útivist
varnarliðsmanna.
Morgunblaðið tekur einnig afstöðu
gegn ákvörðun utanríkisráðherra í
leiðara í morgun. Telur blaðið hana
ranga og segir að þau rök sem ráð-
herrann hafi borið fram séu ekki
haldbær. Morgunblaðið segir að
ákvörðunin geti aukið á vandann i
samskiptum íslendinga og varnarliðs-
ins og valdið leiðindum, óþægindum
ogúlfúð. -GM.
Útívisthermanna:
ir
„Vissulega getur til þess komið,”
sagði Einar Ágútsson, formaður
utanrikismálanefndar, í viötali við
DB í morgun þegar hann var spurður
hvort nefndin kynni að álykta gegn
Benedikt Gröndal utanrikisráðherra í
deiiunni um útivistarleyfi hermanna.
Margir nefndarmenn vilja fá fund í
nefndinni til að taka ákvörðun
Benedikts fyrir.
Pitiar Acf ha fiáA ílA
nefndarmenn vildu koma saman og
taka máliö fyrir. ,,Min afstaða er
Ijós,” sagði Einar. ,,Ég er mótfaliinn
þessari ákvörðun, en ég get ekki
gagnrýnt utanrikisráðherra fyrir að
bera hana ekki undir nefndina. Þegar
ég var utanríkisráðherra neitaði ég
beiðnum um aukin útivistarleyfi án
þess að bera undir utanrikismála-
nefnd.”
-HH.
Borgarfulltrúarnir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir (t.h.) og Guórún Helgadóttir hafa oft eldað grátt silfur um Kjarvalsstaði. Myndustarmenn hafa ekki heldur verið á eitt
sáttir um húsið. Allir voru þó I góðu skapi I gær þegar sumardagskráin var kynnt DB-mynd: Bjarnleifur.
Sumar á Kjarvalsstöðum:
35 USTAMENN SYNA VERK SIN
Sumar á Kjarvalsstöðum nefnist sýn-
ing sem opnuð verður á Kjarvalsstöð-
um um næstu helgi. Þrír hópar lista-
fólks sýna verk sín og er það nýbreytni
hér á landi að svo margir hópar sýni í
einu.
Það er Septem-hópurinn, Gallerí
Langbrók og Myndhöggvarafélagið
sem sýna og verður sýningin opnuð í
tvennu lagi. Septem '79 og Gallerí
Langbrók laugardaginn 7. júlí kl. 14 og
Myndhöggvarafélagið, gjömingur
laugardaginn 21. júlí kl. 14.
Ennfremur verða sýnd verk eftir
Jóhannes S. Kjarval sem eru í eigu
Reykjavíkurborgar. Sýningin er ætluð
til að kynna íslenzka list fyrir ferða-
mönnum og til ánægju og fróðleiks
fyrir bæjarbúa, og verður hún opin
fram yfir miðjan ágúst. -ELA
STAÐAN HNIFJÖFN
ágreiningur vegna leggsins milli
Haf nar og Neskaupstaðar
Keppni þeirra Signýjar 08 og Ingu
06 er hnífjöfn. Á síðasta viðkomu-
stað í morgun, Raufarhöfn, voru bát-
arnir jafnir, með 34 stig, en Inga
lagði fyrr af stað til Akureyrar. Á
leiðinni til Vestmannaeyja fékk Inga
10 stig, Signý 7 og Lára 5. Til Hafnar
fékk Inga 7 stig og Signý 10. Til Nes-
kaupstaðar fékk Inga 7 og Signý 10
og til Raufarhafnar fékk Inga 10 en
Signý 7.
Rétt er því að geta þess að ágrein-
ingur er um legginn frá Höfn til Nes-
kaupstaðar. Keppendur á Ingu segja
að þeir á Signýju hafi beðið þá að
bíða eftir sér í hálftíma vegna bilana.
Síðan munaði aðeins 5 mínútum á
bátunum, er þeir komu til Neskaup-
staðar, en Signý var á undan. Kepp-
endur á Signýju segjast oft.á leiðinni
hafa beðið eftir Ingu.
Dómnefnd mun skera úr þessu
ágreiningsátriði þegar komið verður
til Akureyrar og kann sá úrskurður
að breyta stöðunni eitthvað.
-JH
í höfn á Norðfirði. Þar voru kepp-
endurnir ekki á eitt sáttir með
frammistöðu hvor annars á leiðinni
frá Höfn. Það setti hörku í málið og
einvígið var hafið. Ólafur Skagvik og
Bjarni Sveinsson um borð i Ingu,
Ásgeir Ásgeirsson fylgist með.
DB-mynd Ragnar Th.
frjálst, úháð dagbiað
FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1979.
50 manna
hópur leit-
ar bangsa
„Ég verð með öruggt skotvopn í
farangri mínum þegar lagt verður í
leiðangur Útivistar um Hornstrandir á
.föstudaginn,” sagði Jón I. Bjarnason
fararstjóri. „Við munum að sjálfsögðu
leita bjarndýra, ef þau er > þarna að
finna og skotvopnið verður ekki notað
nema í nauðvörn.”
Það verða um 50 Útivistarfélagar í
þessari 9 daga sumarleyfisferð um
Hornstrandir. Gengið verður um víkur
og voga, yfir fjöll, heiðar og firnindi.
Hefur ekki áður farið stærri hópur frá
Útivist í Hornstrandaferð.
__________________-ASt.
Kratarvilja
minnka
bensínskatta
Alþýðuflokksmenn hafa lagt til, að
ríkið taki ekki jafnhátt hlutfall og áður
af bensínverðinu í skatta og gjöld, nú
þegar verðið hækkar næst.
Ekki var vitað í morgun, hvernig
viðtökur tillagan fengi, enda reyndust
ráðherrarnir Svavar Gestsson og
Hjörleifur Guttormsson báðir úti á
landi, en þeir fjalla sem kunnugt er um
viðskipta- og orkumálin. Mikil bensín-
hækkun er væntanleg, en ríkisstjórnin
mun leitast við að halda olíuverði
óbreyttu til húshitunar og fiskiskipa.
-HH.
EM íbridge:
íslendingar
unnu
Norðmenn
íslendingar unnu Norðmenn í 5. um-
ferð EM i bridge með 12—8 en töpuðu
fyrir Pólverjum í gær með 3—17. Pól-
verjar eru nú í 2. sæti með 89 stig
næstir á eftir Frökkum sem töpuðu nú
loks leik, gegn ísrael, 9—11. ítalir eru
nú komnir í 3. sæti með 82 stig, írar eru
í 4. sæti með 80 stig, Svíar í 5. sæti með
76 stig. íslenzka sveitin er nú í 8.—9.
sæti með 64 stig en þátttökuþjóðirnar
eru 21. í dag spila íslendingar gegn
Hollendingum og Þjóðverjum. -GAJ-
Haukur
ennefstur
Þegar aðeins einni umferð er ólokið
á World Open skákmótinu í Bandaríkj-
unum er Haukur Angantýsson enn i
efsta sæti, hefur hlotið 7,5 vinninga að
loknum 9 umferðum. Jafnir honum að
vinningum eru þrír stórmeistarar,
Miles, Georghiu og Bisuquir. Haukur
vann Bandaríkjmanninn Peltz í 8. um-
ferð og gerði jafntefli við brezka stór-
meistarann Miles í 9. umferð. Margeir
Pétursson fylgir efstu mönnum fast
eftir með 7 vinninga. Sævar Bjarnason
'hefur hlotið 5,5. -GAJ-