Dagblaðið - 19.07.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ1979.
5
Hoppað um borð í norskan hvalfangara í Grindavíkurhöf n:
TEKUR STEFNU A GRÆNLAND
EFTIR BOÐIFRÁ GERVUMETTI
—sjónvarpsaugu „skippersins” hvfla á áhöf ninni alls staðar—nema á náðhúsum
„Við höfum verið á hrefnuveiðum í
Barentshafinu og stefnum nú á Græn-
land. Þar verðum við næstu vikur og
veiðum hrefnu. Leyfilegt er að veiða
120 hvali við Grænland í sumar og mér
skilst að um þá bítist 12 bátar," sagði
Steinar Bastesen, ljúfmannlegur
„skipper” á norska hvalafangaranum
Bastesen. Við fórum um borð í bátinn í
Grindavíkurhöfn til að spjalla um
stund við áhöfnina á þriðjudagskvöld-
ið. Skömmu áður hafði norski dallur-
inn setið fastur á grynningum í hafnar-
mynninu, en „nojurunum” tókst að
losa skip sitt og koma til hafnar. Baste-
sen skipper þakkað það skrúfukerfinu
á nafna sínum bátnum, en báturinn
mun búinn voldugum skrúfum i bak og
fyrir Skipstjórinn var þvi býsna gleiður
yfir því hve farkosturinn stóð sig vel og
eftir að hafa keypt 10 tonn af olíu — á
þrefalt hærra verði en markaðsverð er í
Noregi — og fengið uppgefið hjá
kafara að botn bátsins væri
óskemmdur eftir strandið, þá dró hann
fram koníakstár og norskt kostaöl og
skálaði fyrir öllu saman við gesti sina.
Steinar Bastesen fékk bát sinn af-
hentan fyrir aðeins 2 mánuðum og
leyndi ekki stolti sínu með gripinn.
Enda virtist leikmanni í sjómennsku
Bastesen báturinn vera býsna merkilegt
fley. Hann er 231 tonn að stærð og er
Nafnabrengl íbflafrétt
í DB var á dögunum sagt frá virðu-
legri Dodge-bifreið á Akureyri sem nú
er 31 árs að aldri. Varð okkur á að
segja eigandann heita Gunnar Aust-
mann. Hið rétta nafn hans er Gunnar
Austfjörð og er hann og aðrir beðnir að
virða villuna til betri vegar.
Þeir voru ekkert sérlega
ánœgjulegir á svip, strákarnir á
Hnífsdal, sem blaöamaður hitti
á dögunum, enda veiddist lítið á
stöngina.
DB-mynd JH
búinn til veiða á línu, netum og trolli.
Auk þess er öll aðstaða fyrir hrefnu-
veiðar og þeir félagar skera, pakka og
frysta hrefnurnar um borð.
„Skipperinn” rölti með DB-mönn-
um um bátinn og sýndi helztu tækni-
undur sem fyrirfinnast um borð. Er þar
fyrst að nefna merkilega tölvu sem
tekur við skeytum frá sveimandi gervi-
tunglum á braut um jörðu og út frá
upplýsingum gefur tölvan upp staðar-
ákvörðun, stefnu og ósköpin öll af alls
konar fróðleik sem landkrabbi hættir
sér ekki út í að skýra. í brúnni sáum við
sjónvarpstæki og reyndist það tengt
upptökuvélum niðri í vélarrúmi, í
vinnslusal, á dekki og víðar. Steinar
„skipper” hrærði í tökkum og við
gátum séð um allt skip á skerminum.
Erfitt getur reynzt fyrir hásetana að
v»
Lagt i’ann á Grænlandsmið.
Grunnskólinn íGrundarfirði:
Ahöfnin á Bastesen f brúnni. Steinar „skipper”
svarfdælskur bóndi,” hljóðaði umsögn Arna Páls.
Bastesen f miðið: „Eins og
taka lífinu rólega á vöktunum, því
sjónvarpsaugu „skippersins” hvíla á
þeim á flestum stöðum. Ekkert benti
þó til þess að menn þyrftu að óttast
sjónvarpsupptöku á náðhúsum um
borð i Bastesen. En það er líka nánast
eini staðurinn.
Að lokum fórum við niður í vélar-
rúm. Þar sýndi Steinar merkilega vél
Stef nt að því að skólinn verði
nothæf ur f haust
Unnið er af fullum krafti við lagfær-
ingu skólahússins nýja i Grundarfirði
en eins og kunnugt er af fréttum
skemmdist skólinn mjög í bruna í vor.
Stefnt er að því að kennsla geti hafizt
í skólanum í haust. Guðmundur Os-
valdsson, sveitarstjóri í Grundarfirði,
sagði í samtali við Dagblaðið, að ekki
Miklar skemmdir urðu á þaki skólans'
eins og mvndin sýnir.
DB-myndir Arni Páll
væri vist, að kennslan gæti hafizt 1.
september eins og hafði staðið til en
skólastjóranum er frjálst að byrja ekki
fyrr en 1. október.
Kennsluhúsnæðið, alls um 1000 m’
skemmdist verulega af völdum sóts.
Ekki sízt varð bókasafnið mjög illa úti
en þar skemmdust um 1500 bókatitlar.
Safnið var illa tryggt og fengust ekki
nema um 1300 þúsund í bætur fyrir
bækurnar. Þá fengust rúmar 30 millj-
ónir fyrir fasteignaskemmdir og alls
greiddu tryggingarnar 38,5 milljónir
vegna brunans.
Guðmundur sagði að kennsla yrði
undir öllum kringumstæðum hafin í
skólanum í haust jafnvel þótt við-
gerðum yrði ekki að fullu lokið.
Ekkert íþróttahús er í Grundarfirði
og sagði Guðmundur, að það væri eini
þéttbýliskjarninn á Vesturlandi sem
þannig væri ástatt um. Nú hefði hins
vegar fengizt 300 þúsund króna fjár-
veiting og sagði Guðmundur að þing-
menn kjördæmisins hefðu orðið að
berjast- fyrir þeirri upphæð með oddi
og egg. - GAJ
sem vinnur ferskvatn úr sjó. Að því
búnu hoppuðum við í land, en Bastesen
stýrði nafna sínunt út úr Grindavíkur-
höfn og álei is til Grænlands. Þar
mega hrefnui fara að biðja fyrir sér
hvað úr hverju. -ARH
Fiskumbúðir
skemmdust
afvöldum
reyks
Laust eftir miðnætti a sunnu-
dagskvöld var slökk viliðið í
Grundarfirði kallað að Fisk-
vinnslustöðinni Sæfangi. Talið
var að eldur hefði kviknað í stöð-
inni þar sem talsverðan reyk lagði
frá henni. Við athugun kom í ljós
áð reykurinn stafaði frá blásara í
frystiklefa stöðvarinnar. Gekk
greiðlega að komast fyrir upptök
reyksins. Einhverjar skemmdir
urðu á fiskumbúðum.
- GAJ / BC, Grundarf.
Tilkynning frá
Nýja
hjúkrunarskólanum
Nám í félagshjúkrun hefst 7. jan. 1980.
Upplýsingar veittar í skólanum. Um-
sóknareyðublöð liggja frammi frá 1. til 7.
sept. 79.
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri er laus til umsóknar. Umsóknir,
er greini aldur, menntun og fyrri störf, berist til
stjórnar Fjórðungssjúkrahússins fyrir 10. ágúst
nk.
Staðan verður veitt frá 1, okt. nk. eða eftir sam-
komulagi.
Umsækjendur skulu hafa menntun í viðskipta-
fræði, stjórnun eða hliðstæðum greinum.
Laun samkv. kjarasamningi starfsmanna Akur-
eyrarbæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir stjórnarformaður
Stefán Stefánsson, bæjarverkfræðingur, sími
96—21000. StjórnF.S.A.
SUMAR STRIGA
SANDALAR
VERÐ AÐEINS KR. 7.950.-