Dagblaðið - 26.07.1979, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1979.
Ekki stanzlaust hægt að
hækka veró landbúnaðarvara
Herdis Hermóðsdóttir, Eskifirði,
skrifar vegna athugasemda Ólafar
Ólafsdóttur i DB 19. júli:
Ólöf spyr hvort ég hafi „patent-
lausn” á vanda landbúnaðarins.
Fjarri fer því, enda yrði hún sjálfsagt
ekki þegin, þótt ég hefði hana.
Tvennt veit ég þó. Annað er það
að ef bændur telja sig eiga í vök að
verjast fjárhagslega er ekki um að
kenna of lágu verði landbúnaðar-
vara. Engin nálæg þjóð mun knúin
til að greiða venjuleg matvæli
þvíliku verði og íslenzkir neytendur,
sér í lagi ef miðað er við laun. í því
sambandi vil ég skora á DB að birta
nú samanburðartölur um það, eins
og blaðið hefur áður gert, og hafi
heila þökk fyrir.
Hitt er annað að það er ekki hægt
að hækka stanzlaust verð land-
"" búnaðarvara Bændur eru fram-
leiðendur og hljóta sem slíkir að leita
ráða til að gera framleiðsluna sam-
keppnishæfa við erlendan land-
búnað.
Vil ég nú vitna í orð manns, sem
ég tel að enginn geti brugðið um
heimsku eða þekkingarleysi, en það
er Bjarni Benediktsson, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Hann sagði í ræðu fyrir 13 árum
að það hlyti að vera lausnin á vanda
landbúnaðarins að auka framleiðslu
þeirra sem bezt og ódýrast geta fram-
leitt, svo ekki væri hægt að „sýna
fram á, að það mundi verka meira til
verðhækkunar innanlands að flytja
þar erlendar landbúnaðarvörur
heldur en nokkuð annað, jafnvel þó
hinar erlendu væru hafðar í hæsta
tollaflokki.” En það er einmitt það
sem nú hefur skeð. Enda hefur ekki
verið farið eftir varnaðarorðum
Bjarna Benediktssonar, heldur fetuð
„hin leiðin” af forystu bændanna og
of mörgum bændum, með lands-
kunnum árangri.
Ólöf virðist undrast aö ég telji
mikið til bænda lagt. >ví vil ég benda
henni á að á fjárlögum þessa árs eru
tveir liðir sem heita „búnaðarmál”
""
10%
BENSÍNSPARNAÐUR
samsvarar 31 krónu pr. litra.
Allir sem fást við stillingar bílvéla vita, að bensineyðslan
eykst um 10—25% milU kveikjustilUnga.
Eftir ísetningu LUMENITION kveikjunnar losna bíleig-
endur algjörlega við þá eyðsluaukningu, sem sUtnar platin-
ur valda, þvi í þeim búnaði er ekkert, sem sUtnar eða
breytist.
Með LUMENITION vinnur véUn alltaf eins og kveikjan
væri nýstillt.
LUMENITION fylgir 3ja ára ábyrgð.
Varð miðað vMS
gengi 20.7. '79:
KR. 46.000.-
HABERG HS
SIMI: 84788.
Síðasta sending í sumar!
SU M ARSTRIG A-
SANDALAR
VERÐ AÐEINS KR. 7.950.-
Ef bændur eiga f vök að verjast er ekki of lágu verði landbúnaðarvara um að kenna, segir Herdis Hermóðsdottir.
og hljóða upp á 10 milljarða og
„niðurgreiðslur” sem eru upp á 18
milljarða.
>etta eru kannski smápeningar í
hennar augum. En það má til saman-
burðar taka að orkumálin, sem að
flestra dómi æltu að vera stærsti
póstur fjárlaganna við ríkjandi
aðstæður, eru á sömu fjárlögum
aðeins 6 milljaröar króna. Svo
dæmalaust er þetta ástand!
Ráðamenn útvarpsins:
Eru þeir búnir aö gleyma
hlustendakönnuninni?
Sigurður sló á þráðinn:
Ég get ekki orða bundizt eftir að
hafa rennt augum yfir dagskrá út-
varpsins í þessari viku. >að er
bókstaflega ekkert annað á
boöstólum en klassísk tónlist,
fílharmóníur og sinfóniur.
Eru ráðamenn útvarpsins búnir að
gleyma hver varð niöurstaðan úr
hlustendakönnuninni? >að er
næstum því enginn sem hlustar á
þetta efni. Hvernig stendur þá á því
að svona þættir eru að sliga dag-
skrána?
Mikið þætti mér vænt um ef ein-
hver af ráðamönnum útvarpsins vildi.
hugsa um þetta mál og aðhafast
eitthvað. Mér finnst að við sem greið-
um afnotagjöldin skilvíslega eigum
fulla heimtingu á því.
FÍB BEITISÉR FYR-
IR FJÖLGUN RAFBÍLA
Magnús Guðmundsson hringdi
og kvaðst vilja beina þeim tilmælum
til Félags íslenskra bifreiðaeigenda,
sem að undanförnu hefur mótmælt
bensínhækkunum, að þeir sinntu líka
jákvæðari málum. Taldi hann að FÍB
ætti að beita sér fyrir því að rafbílar
kæmu í stað bensínbíla, en eins og
kunnugt er af fréttum DB kom fyrsti
rafbíllinn til Islands á föstudaginn og
verður hann dl sýnis einhvern tíma á
næstunni.
I
Fyrsti rafbillinn kom til landsins á
föstudaginn. Þá var þessi mynd tekin á
hafnarbakkanum f Reykjavfk.
DB-mynd S.
Pennavinir í Suöur-Af ríku
— pennavinaklúbbur í Reykjavík gefi sig fram
Sigrún Lilja Bergþórsdóttir, skrifar:
Ég hef verið beðin að útvega eftir-
töldum konum pennavini hér á
íslandi og langar mig því að biðja ÖB
að birta nöfn þeirra í blaðinu. Mig
langar einnig til að komast í samband
við pennavinaklúbbinn sem mig
minnir að hafi verið stofnaður i
Reykjavík í vetur. Mynduð þið vilja
biðja þá í klúbbnum að birta
heimilisfang sitt i blaðinu. Ég tek
það fram að ég er ekki sjálf að biðja
um pennavini.
Nöfnin eru þessi:
Mrs. Myra Fabrie, 2 Ferndale Ave,
Morningside, Durban 4001, South
Africa. Hún óskar eftir pennavinum
á aldrinum 40 til 60 ára, af báðum
kynjum.
Miss Bronlyn Fabrie, sama heimilis-
fang. Hún er 17 ára og óskar eftir
pennavinum af báðum kynjum á
aldrinum 18 til 28 ára.
Miss Violet Appara, 37 Poppy Place,
Asherville, Durban, South Africa.
Húner 24ára.
i