Dagblaðið - 26.07.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ1979.
5
Brotlendingin á Hveravöllum í gær:
SviptMndur
grandaöivéfínni >
— er líklegast ónýt eftir
Eftir því sem næst verður komizt
mun sterkur sviptivindur aftan- og
ofaná flugvélina skömmu eftir flugtak
af Hveravallaflugvelli, hafa orðið til
þess að 4 sæta vélin TF-ROM brotlenti
með fjórum mönnum í gærmorgun.
Björgunarþyrla af Keflavíkurflug-
velli sótti mennina fjóra, sem í vélinni
voru og sluppu ómeiddir nema einn,
sem skarst eitthvað. Flugmaðurinn var
íslenzkur og þrautreyndur á vélina, en
farþegarnir erlendir.
Vélin er jafnve! talin ónýt eftir. Hún
er metin á um 16 milljónir og er rétti-
lega vátryggð. Starfsmenn loftferða-
eftirlitsins héldu landleiðis til Hvera-
valla í gær til að kanna vettvang.
-GS.
Flugmaðurinn, Björn Rúriksson,
þakkar bandarískum flugliða fyrir
hjálpina við komuna til Reykjavikur í
gær. DB-mynd: Árni Páll.
►
Einn farþeganna skarst í brotlending-
unni og var fiuttur á sjúkrabörum á
sjúkrahús, þar sem hann átti skamma
viðdvöl. DB-mynd: Árni Páll.
r r
HREFNUHASAR AISAFIRDI
— réttur settur út af href nukjöti í norskum báti
„Við og aðrir norskir sjómenn
höfum alltaf fengið hjartanlegar mót-
tökur í íslenzkum höfnum, en ,,mót-
tökurnar” á ísafirði eru miklu verri en
ég hugsaði að gæti gerzt,” sagði stýri-
maður á norska hvalfangaranum Toft-
buen i samtali við DB í gærmorgun.
Norðmennirnir voru á leið til hrefnu-
veiða á Grænlandsmiðum og komu inn
til ísafjarðar að taka olíu og ís, en
einnig tii að fá gert við bilun um borð.
Á dekki bátsins var hrefnukjöt undir
plasti. Einhverjum ísfirðingum datt í
hug að hrefnan hefði verið veidd i
íslenzkri landhelgi og kærðu norsku
sjóarana til bæjarfógetaembættisins.
„Skipstjórinn var færður til yfirheyrslu
hjá fógeta í fyrrinótt og við fjórir
saman teknir af lögreglu og yfir-
heyrðir,” sagði Ragnar stýrimaður og
var auðheyrilega allt annað en ánægður
með viðskipti sín við laganna verði á
ísafirði.
„Við fengum alvana hrefnuveiðimenn
til að skoða kjötið og þeir báru fyrir
rétti að útilokað væri að það væri
meira en 20 klukkustunda gamalt,”
sagði Guðmundur Sigurjónsson, full-
trúi bæjarfógeta á ísafirði. „Norski
skipstjórinn stóð hins vegar fastur á því
að þeir hefði veitt hvalinn fyrir þremur
sólarhringum milli Islands og Noregs.
Framburður hinna úr áhöfninni kom
heim og saman við má! skipstjórans.
Ég ákvað í samráði við vararíkissak-
sóknara að fella málið niður og því er
þar með lokið,” sagði Guðmundur.
„Það er blóðugt að fá á sig vitlausar
ákærur á borð við þessa, á sama tíma
og íslendingar sjálfir brjóta alþjóðleg
lög um hvalveiðar,” sagði norski stýri-
maðurinn. „Það er algerlega bannað
að koma með hrefnur í heilu lagi í land
og skera þær þar. Lög mæla fyrir um
að hvalirnir skuli skornir um borð.”
-ARH
Hrefnuskurður á bryggjunni á Ölafsfirði i júní sl. Þar voru sjómenn af Nirði frá Akur-
eyri að gera að afla sinum. Norskur hrefnuveiðimaður hélt þvi fram við DB, að lögum
samkvæmt eigi að skera hrefnurnar um borð. DB-mynd: Árni Páil.
Ökuleikniskeppni BFÖ og DB
Næst keppt íKefla-
víkogáSelfossi
Það verða Keflvíkingar og Selfyss-
ingar sem næst reyna sig í ökuleiknis-
keppni BFÖ og Dagblaðsins.Keppnin
i Kefiavík fer fram á laugardaginn og
er umsjónarmaður með henni þar
Gottskálk Ólafsson í síma 92-2664.
Á Selfossi verður keppt á sunnu-
daginn við Barnaskólann. Umsjónar-
maður þar er Smári Guðmundsson í
síma 99-1598.
Þeir sem hug hafa á þátttöku á
þessum stöðum eru beðnir að til-
kynna þátttökuna til ofangreindra
manna. Keppnin er opin öllum, ekki
aðeins heimamönnum á stöðunum.
Sigurvegarar eða þeir tveir sem eru
á aldrinum 18—25 ára og bezt gengur
öðlast rétt til úrslitakeppninnar í
haust um það hverjir tveir hljóti
Lundúnaferð og keppnisrétt fyrir
íslands hönd í ökuleikni á alþjóðlegri
keppni í Englandi.
Það er því að miklu að keppa auk
þess sem ökuleiknisþrautirnar eru
skemmtilegt viðfangsefni fyrir góða
ökumenn. -ASt.
V
Teg.853.
Utur Ljösbrúnt leður
Lrtur Ljösbrúnt leflur
Stœrflir 37-41
> Áflur kr. 11.470.
Núkr. 7.500.-
Tog.858
Áflurkr. 11.270.
Nú kr. 5.995.-
Stœrflir: 38-41
Áflurkr. 11.470.
Núkr. 7.600.-
Stærflir: 36-41
Áflur kr. 9.995.-
Nú kr. 5.995.-
,Teg. 857.
Utir Natur leflur efla beige nubuk leflur
Stærðir 36-41
flur kr. 11.470.-
Núkr. 7.500.-
Teg. 856. Litin Gulbrúnt leflur
efla beige nubuk leflur
mzöZíéiéSk- Stœrflin 36-41
Mk ' Áflurkr. 11.470.
Núkr. 7.500.-
Teg. 75201.
Litir: Brúnt demin
efla beige demin.
Teg. 75309
Litin Beige domin efla
biátt demin.
Súciúir: 36—41.
Stærflin 36-41
Áflurkr. 7.980.-
Nú kr. 4.995.
Áflurkr. 7.980.
Núkr. 4.995.-
Teg. 63/414
.'Litin Brúnt nubuk leflur
efla öNfugrænt
nubuk leflur.
Áflurkr. 17.885.-
Núkr. 7.885,-
Teg.360
Utur Natur laflur.
Stærðir 40 og 41.
Aflurkr. 13.770.-
Núkr. 6.995.-
KJARAKAUP — MIKIL VERDLÆKKUN
L:
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
Sími 14181 — Póstsendum