Dagblaðið - 26.07.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 26.07.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1979. „RIKIД SÖLU- SKATTSKÓNGUR Hœstu greiðendur sölugjalds árið 1978 1. Afengis- og tóbaksvershin rikisins og ivfjaverslunin 2. Otfufélagió h.f. 3. Póstur og simi 4. Skeljungur h.f. 5. Olfuverslun Istands h.f. 6. Samband fsl. samvinnufélaga 7. Rafmagnsveita Reykjavikur 8. Veltir h.f. 9. Innkaupastofnun rlkisins 10. Páimi Jónsson (Hagkaup) 1.1. Bifreióar og lamtbúnaðarvélar h.f. 12. Samvinnutryggingar 13. Rafmagnsveitur rikisins. 14. HeklahJ. 15. Sveinn Egilsson h.f. 16. Brunabótafélag lslands 17. Státurfélag Suóuriands 18. Reykjavlkurborg og Reykjavlkurhöfn 19. Ingvar Helgason 20. Bilaborg h.f. 21. Flugleióir h J. og hótel Esja 22. Hósasmiðjan hf. 23. Sjóvátryggingafélag Islands hf. 24. Vcgagerð rikisins 25. Heimilistxki s.f. 26. Toyota-umboðið h.f. 27. Innkaupastofnun Reykjavfkur 28. Karnabxr h J. 29. Kaupfélng Reykjavlkur og nágr. 30. Vðrumarkaðurinn h.f. 31. Ra»ir hJ. 32. Radióbúðin h.f. kr. 3.493.784.043 kr. 1.638.536.155 kr. 1.425.451.905 kr. 1J45.013.789 kr. 1.191.968.784 kr. 1.077.123.013 kr. 838.768.700 577.985.769 513.790.617 502.509J10 495.223.331 484.143.235 478.769.092 471.174.956 450.940.258 378.511.007 365.502.8S5 338.488.278 332.690.651 302.777.553 294.609.108 292:467.100 277,489.218 267.726.328 248.802.601 235.471 JS4 225.902.767 218.970.093 216.961.663 209.404.287 204.181.186 202.758.165 kr. kr. kr kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. Pálmi með hæsta aðstöðugjaldið Einstaklingar í Reykjavlk, sem greiða mest í aðstöðugjald 1. Pálmi Jónsson Ásendi 1. 2. Ingólfur Guðbrandsson Laugarásvegur 21 3. Þorvaldur Guðmundsson Háahlíð 12 4. Rolf Johansen Laugarásvegur 46 5. Þorbjörn Jóhannesson Flókagata 59 6. Hrafn Bachmann Geitland 35 7. Eirikur Ketilsson Skaftahlíð 15 8-9. Einar G. Asgeirsson Grundargerði 8. 8-9. Gunnar Guðjónsson Langholtsvegur 78 10. Bjarni I. Arnason Haukanesi 23. Garð. 11. Gunnar Snorrason Suðurhólar 8 12. Friðrik Bertelsen Einimelur 17 13. Guðbjöm Guðjónsson Kjalarland 6. 14. Björgvin Schram Sörlaskjól 1. 15. Valdimar Jóhannsson Grenimelur 21. 16. Emil Hjartarson Laugarásvegur 16. 17. Pétur Nikulásson Laugarásvegur 23. 18. Sigurður Olafsson Teigagerði 17. 19. Lárus Fjeidsted Laufsásvegur 35 UPPHÆÐ 48.845.700 13.204.200 11.450.900 10.434.500 8.862.400 6.592.000 6.500.000 5.850.000 5.850.000 5.625.100 5.200.000 4.667.000 4.351.900 4.291.500 4.265.600 4.123.000 3.805.900 3.304.200 3.250.000 Eignarskattur Þorvaldar Guðmundssonar hæstur Einstaklingar I Reykjavik sem greiða hœstan eignarskatt. 1. Þorvaldur Guðmundsson, Háahlíð 12 2. Sigurður Valdimarsson, Lynghagi 3. 3. Þorkell Valdimarsson, Bergþórugata 23. 4. Sigriður Valdimarsdóttir, Freyjugata 46. 5. Gunnar B. Jensson, Suðurlandsbr. Selásdal. 6. Emil Hjartarson, Laugarásvegur 16 7. Hannes Guðmundsson, Laugarásvegur 64 8. Hjalti Kristjánsson, Bergstaðastræti 70 9. Sveinn Valfells, Blönduhlíð 15 10. Guðni Þórðarson, Safamýri 93 11. Jón Bjarnason, Bergstaðastræti 44 12. Karl Lúðviksson, Háteigsvegur 10 13. Emanúel Morthens, Stigahlið 93 14. Stefán Öl. Grfmsson,Hátún 7. 15. Friðrik Kristjánsson, Sunnuvegur 29 16. Kornelius Jónsson, Kleifarvegi 14 17. Jón Þórðarson, Stigahlfð 67 18. Einar Þorkeisson, Hamrahlið 29 19. Ebenezer Ásgeirsson, Ármúla 1A 20. Gunnar Jónasson, I.angagerði 9 21. Þorgrimur Þorgrimsson, Skildinganes 23 22. Ingibjörg Pálsdóttir, Skildinganes 33 kr. 8.141.064 kr. 6376.477 6.076.386 5.837.913 4.144.676 4.026.082 4.014.871 3.888.083 3.864.777 3.252.486 3.145.140 2.867.907 2.749.009 2.476.952 2.402.717 2.396.839 2.359.933 2.350.601 2.320.022 2.303.212 2.088.772 2.088.518 Þriðja varðskipið ígangum mánaðamótin —ef tilvill sent á Jan Mayen svæðið „Mannskapurinn er að koma úr sumarleyfum og Ægir bíður klár, þannig að upp úr mánaðamótunum verða væntanlega þrjú varðskip í gangi auk flugvélanna sem við höfum notað meira nú á meðan sjómennirnir hafa verið i leyfum,” sagði Pétur Sigurðsson yfirmaður Landhelgisgæzlunnar í viðtali við DB í gær. Til þessa hefur eftirlit með veiðum erlendra veiðiskipa á Jan Mayen svæðinu aðallega mætt á flugvélum. Þar eru hins vegar þokur algengar þannig að ekki er unnt að framkvæma jafnnáið eftirlit og hægt væri með skipum. Varðskipin tvö sem nú eru í gangi þafa aðallega verið bundin á heima- slóð, þannig að með tilkomu Ægis til viðbótar skapast möguleikar á að senda skip á Jan Mayen svæðið. -GS. ......................9 ( Hjálparstofnun kirkjunnar berst beiðni um hjálp: J 99 FLÓTTADRENG- IR í HONDÚRAS „Þegar loftárásunum Iinnti streymdu þjóðvarðliðar inn í bæinn. Unglingsdrengir voru skotnir, hvar sem til þeirra sást eða dregnir út af heimil- um sínum. Sá sem var ungur var dauðans matur.” Þessi setning er tekin úr frásögn starfsmanns alþjóðasamtakanna Amnesty International af heimsókn hans í flóttamannabúðir i Choluteca í Mið-Ameríkuríkinu Hondúras. Svo sem kunnugt er af fréttum fjölmiðla hafa harðir bardagar geisað í Mið- Ameríkurikinu Nicaragua undanfarnar vikur, en borgarastyjöld hefur verið háð þar í landi nær linnulaust i rúmt hálft annað ár. Flóttamenn hafa steymt yfir landamærin til nágrannaríkjanna, sem eru Costa Rica í suðri og Hondúras í norðri. Stór hluti flóttafólksins eru drengir og unglingspiltar sem hafa orðið að forða sér i skyndingu vegna grimmdarlegra aðfara sumra hermanna í þjóðvarðliði Sómóza einræðisherra. Þeir hafa farið um í sumum borgum og bæjum og haft á brott með sér eða skotið unga menn og drengi til þess að varna því að þeir gengju í lið með and- stæðingum stjórnvalda. í hópi þeirra sem komizt hafa undan til Hondúras eru 99 drengir á aldrinum 6—18 ára. Þeir voru og eru enn í sumsjá kaþólsks prests að nafni Rafael Maria Fabreto. Hjálparstofnun kirkj- unnar hér á landi hefur nú borizt beiðni um aðstoð við þessa drengi, og er það von Hjálparstofnunarinnar að íslend- ingar bregðist vel við þessari beiðni eins og jafnan áður þegar svipaðar beiðnir hafa borizt. -GAJ- Niðurrif hússins nr. 2 við Glerárgötu. DB-mynd Fax. *— OLL HUS AUSTANVERT VID GLERÁRGÖTU RIFIN Það veldur alltaf einhverjum sárs- auka, þegar gömul hús eru rifin. Gapandi sár á húshliðunum veita innsýn í heilar íbúðir. Tárin standa í augum fyrrverandi íbúa þegat gamlar minningar rifjast upp við að sjá mynztur á gömlu veggfóðri eða forn- fálegan klósettkassa. Og þetta eru eðli- leg viðbrögð. Húsið hefir verið hluti af lífsgöngu margra kynslóða í gleði og sorg, en nú skal hjartsláttur hússins stöðvaður. Unnið hefir verið að því undanfarið að rífa öll hús austan Glerárgötu á Akureyri, þ.e. frá Eiðsvelli að Strand- götu. Glerárgatan er hluti af norður- landsvegi og er stefnt að breikkun hennar suður í gegnum utn bæinn allt að Drottningarvegi. í sumar verður lokið við uppfyllingu fra Torfunefs- bryggju að gömlu bryggjunni í innbænum. -Fax. NMISKAK HEFSTIDAG keppendur Norðurlandamótið í skák hefst í Sundsvall í Svíþjóð í dag. Alls eru 22 íslendingar skráðir til þátttöku. Eftirtaldir íslendingar tefla á mótinu: Helgi Ólafsson, alþjm., Jón L. Arnason, Fide-meistari og núver- andi unglingameistari Norðurlanda í skák, Ingvar Ásmundsson, íslands- meistari, Ásgeir Þ. Árnason, Reykja- víkurmeistari, Bragi Halldórsson, Ómar Jónson, Elvar Guðmundsson, Gylfi Þórhallsson, Guðni Sigurbjarnar- son, Jörundur Þórðarson, Jón Þorvarðarson, Björgvin Jónsson, Haukur Bergmann, Sigurður Jónsson, Árni Sigurbjörnsson, sem allir tefla Leiðrétting Tvær prentvillur slæddust inn í kjallaragrein Péturs Péturssonar í DB í gær. Annars vegar var talað um „öflugan Darwinisma,” en átti að standa „öfugan Darwinisma”. Þá var talað um Kristján Sæmundsson, en átti aðstanda Sveinsson. í meistaraflokki og auk þess munu Gunnar Finnlaugsson og Askell Örn Kárason, sem eru búsettir í Svíþjóð bætast í hópinn. í opnum flokki tefla Magnús Alexandersson og Bjarni Magnússon. í unglingaflokki Þröstur Einarsson, skólaskákmeistari Kópa- vogs og í kvennaflokki þær r iðlaug Þorsteinsdóttir, núverandi N >rður- landameistari kvenna og Aslaui, Kristinsdóttir. -GAJ- Heimildasöf nun öryggis- málanef ndar hafin — Gunnar Gunnarsson ráðinn starfsmaður Öryggismálanefndin sem skipuð var eftir síðustu kosningar er að hefja störf um þessar mundir. Hefur nefndin orðið sér útium húsnæði að Skúlagötu 63 og ráðið starfsmann. Hann heitir Gunnar Gunnarsson og er stundakennari í alþjóðastjórn- málum við félagsvísindadeild háskólans. Þess má geta að Gunnar er bróðir Styrmis Gunnarssonar rit- stjóra Morgunblaðsins. Gunnar Gunnarsson sagði í sam- tali við DB að fyrst í stað beindist starf hans að heimildasöfnun og myndi hann hafa samband við stofnanir sem sérhæfa sig í alþjóða- og öryggismálum þæði á Vestur- löndum og í Sovétrikjunum. Einkum kvaðst hann safna gögnum um öryggismál á Norður-Atlantshafi. Formaður öryggismálanefndar- innar er Einar Ágústsson og varafor- maður er Ólafur Ragnar Grimsson. -GM.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.