Dagblaðið - 26.07.1979, Blaðsíða 24
Þorskskammturinn til áramóta, verði staðið við kvótann:
INNAN V» 100 TONN
Á TOGARA Á MÁNUÐI
FRAM TIL ÁRAMÓTA
—eru að fá það magn á nokkrum dögum nú—togurum hugsanlega lagt
Allar líkur eru á að þorskaflinn nú
í júlí verði ekki minni en í síðasta
mánuði, eða um 30 þúsund tonn,
enda er mjög góður afli hjá togurum
og bátum víðast um land. Skv. því
mun þorskaflinn um næstu mánuð.i
mót verða kominn í um 255 þúsund
tonn á árinu, en þorskveiðikvóti
ríkisstjórnarinar fyrir allt árið er
280 til 290 þús. tonn. Verða þá aðeins
eftir um 35 þúsund tonn í fimm mán-
uði, miðað við hærri mörkin.
Sé því magni deilt niður á 70 skut-
togara okkar í fimm mánuði kemur í
Ijós að hver togari má að meðaltali fá
innan við 100 tonn á mánuði af
þorski það sem eftir er af árinu.
Þessa dagana er algengt að þeir séu
að fá 200 til 300 tonn í 5 til 10 daga
veiðiferðum, aðallega þorsk.
Að vísu munu nær allir togararnir
taka út sitt 30 daga þorskveiðibann í
næsta mánuði, allar netaveiðar verða
bannaðar í ágúst og að auki verður
algert þorskveiðibann i viku.
Það breytir þó litlu ofangreindum
skammti á togara því í þeim reikning-
um var öllum bátaflotanum ekki
reiknaður neinn þorskafli það sem
eftir er ársins. Þorskafli bátaflotans
er alltaf mun minni síðari hluta árs en
fyrri hlutann.
Hið opinbera hefur ekki enn boðað
peinar ráðstafanir í ljósi þessa, né
gefið ádrátt um að hækka kvótann.
Margir útvegsmenn telja hins vegar
ókleift að halda úti togurum mánuð-
um saman til að veiða nær eingöngu
ódýrar tegundir svo sem karfa og
ufsa og horfa jafnvel fram á að leggja
tógurum sínum um tíma síðla árs.
- GS
Kröfugerð
háskóla-
manna:
ingarorlof
„eignist starfsmaður bam”—frí vegna veikinda bama
Keflavíkurdeilan
Úrskurður
kaupskrár-
nef ndar lagður
f ram í dag
„Hér er um úrskurð kaupskrár-
nefndar að ræða en um innihaldið get
égekkert sagt,” sagði Helgi Ágústsson
i varnarmálanefnd í samtali við DB í
morgun. Helgi átti kl. 11.30 að ganga á
fund kapteinsins á Keflavikurflugvelli í
morgun og afhenda honum úrskurð
kaupskrárnefndar til lausnar vinnu-
deilu þeirri sem Verzlunarmannafélag
Suðurnesja hefur átt í á Keflavíkurflug-
velli að undanförnu.
Magnús Gíslason, varaformaður
Verzlunarmannafélags Suðurnesja,
sagði í samtali við DB í morgun, að
einkum hefði verið rætt um tvær leiðir í
kaupskrárnefndinni. Annars vegar að
hækka alla aðila um einn flokk en jafn-
framt myndi hlutlaus aðili kanna kjör
verzlunar- og skrifstofufólks í Keflavík
og Reykjavík og yrði því lokið i októ-
ber. Hin leiðin væri að 5% hækkun
kæmi ofan á laun. Sagðist Magnús eiga
von á að fundur yrði haldinn í félaginu
í kvöld eða á morgun þar sem afstaða
yrði tekin til úrskurðar kaupskrár-
nefndar en sem kunnugt er hafði félag-
ið boðað verkfall á föstudagskvöld.
-GAJ
Nauðgunar-
tilraun og
líkamsárás
Fertug kona hefur kært ákveðinn
mann, 35 ára gamlan, fyrir nauðgunar-
tilraun og misþyrmingar. Hefur mað-
urinn verið úrskurðaður i viku
varðhald, en nýverið var kveðinn upp
yfir honum dómur vegna nauðgunartil-
raunar á sl. ári og árásar á konu. Hlaut
hann 10 mánaða fangelsisdóm, sem
hann áfrýjaði til Hæstaréttar. '
Nauðgunartilraunin sem nú er kærð
átti sér stað í íbúð mannsins í vestur-
bænum. Höfðu maðurinn og konan
hitzt í Nauthólsvíkurlæknum og voru
bæði ölvuð. Er partíið barst heim til
mannsins réðst hann að konunni, barði
hana og reyndi nauðgun en ekki þykir
Ijóst hvort tilraunin tókst vegna ölvun-
arástands parsins. -ASt.
Rótaðífar-
angriígeymslu
á Hótel Esju
Þrír náungar, sem allir eru
kunningjar lögreglunnar, voru teknir
fyrir utan Hótel Esju í nótt. Voru þeir
grunaðir um að hafa farið i geymslu-
herbergi í hótelinu og rótað þar í dóti
sem hótelgestur hafði sett í geymslu.
Málið er enn í rannsókn, því ekki liggur
Ijóst fyrir hvort einhverju, eða þá
hverju, var stolið úr föggum ferða-
mannsins. * -ASt.
Yfirvinnukaup verði 1,25 prósent
,»f mánaðarlaunum i stað 1%.
Vinnuvika verði 38 stundir. Per-
sónuuppbót, sem nemi einum
mánaðarlaunum viðkomandi starfs-
manns, verði greidd i desember.
Þetta eru nokkrar af sérkröfum
Bandalags háskólamanna, sem nú
eru komnar fram.
Laugardagar verði ekki taldir meö
orlofsdögum. Þá er gerð krafa um 5
daga vetrarorlof og 10 daga fyrir þá
sem hafa lOárastarfsaldur.
Um fæðingarorlof er gerð þessi
krafa: „Eignist starfsmaður barn,
skal hann eiga rétt á að vera fjarver-
andi á fullum launum i samtals 6
mánuði. Njóti maki launaðs barns-
burðarleyfis skal samanlagt barns-
burðarleyfi foreldra þó aldrei vera
lengra en 6 mánuðir. Sömu reglur
gilda um sambýlisfólk og ef starfs-
maður tekur kjörbarn.”
Um frí vegna veikinda barna er
gerð þessi krafa: „Geti starfsmaður
ekki sótt vinnu vegna veikinda barna
skulu um þau forföll gilda sömu
reglur og um veikindi starfs-
manns . . .”
Starfsmenn verði iíftryggðir.
Rikissjóður greiði 0,25‘ío af launum
st ."smanna í eftirmenntunarsjóð.
' kki er að sinni búið að ákveða
grunnkaupskröfur. Efnt verður til
skoðanakönnunar um verkfallsrétt
meðal BHM-fólks í september, og
verði vilji fyrir honum mun þungi
lagðuráþá kröfu.
-HH.
frjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ1979.
Iscargoflugvél
hætt komin
við Rotter-
damflugvöli
DC—6 vöruflutningaflugvél Iscargo
lenti í alvarlegum erfiðleikum skömmu
eftir flugtak af flugvellinum í
Rotterdam um helgina vegna gang-
truflana.
Er vélin var komin hlaðin á loft fóru
tveir af fjórum mótorum hennar að
ganga skrykkjótt og var þá strax snúið
við aftur til lendingar. í lendingunni
fór svo þriðji mótorinn að „fúska”
eins og sagt er á flugmannamáli,
þannig að vart mátti tæpara standa.
Verið er að rannsaka hvort
óhreinindi í eldsneyti kunni hugsanlega
að hafa valdið gangtruflunum.
Fyrirhugað er að leigja aðra vél, líkleg-
ast frá Spáni, til að hlaupa í skarðið.
-GS.
SOS-merki frá
bátiútaf
Seltjamamesi
Dreginn ílandafgúmbáti
björgunarmanna
Tveir eftirtektarsamir íbúar á Sel-
tjarnarnesi veittu í nótt kl. 1.30 athygli
blikkandi ljósum úti á sjó, undan
Suðurnesi á Seltjarnarnesi. Sáu þeir
fljótt að ljósmerkin þýddu SOS og
brugðu skjótt við, fór annar að gera
SVFÍ viðvart en hinn ók niður í fjöru
og svaraði Ijósmerkjunum. Var þá
kveikt á kyndli og greinilegt að þarna
var bátur í erfiðleikum.
SVFÍ menn á Seltjarnarnesi, björg-
unarsveitin Albert, skutu út gúmbáti og
fóru á vettvang. Komu ljósmerkin frá
18 feta plastbáti af Flugfiskgerð en í
honum hafði orðið alvarleg vélarbilun,
svinghjólið farið af vélarásnum og
næstum sett gat á bátinn.
Bátsverjar höfðu brugðizt rétt við,
lagzt við stjóra og reyndu ljósmerkin
áður en gripið var til neyðarblysa.
Gúmbáturinn dró svo bátinn inn á
Reykjavíkurhöfn og var þangað komið
um kl. 3.30 í nótt. Engum varð meint
af.
700þús. kr.
horfnar undan
koddanum
Þjófnaðarmál, sem snýst um
tæplega 700 þúsund krónur, er nú í
rannsókn hjá RLR. Peningarnir eru
taldir hafa horfið úr íbúð á Klappar-
stíg. Áttíi þeir að vera í leðurpyngju
undirkodda í rúmi.
Talið er hugsanlegt að málið geti
verið fjölskyldumál og var í gær leitað
að bróður eiganda peninganna, ef ske
kynni að hann hefði tekið leðurpung-
inn með öllu innihaldinu.
-ASt.