Dagblaðið - 26.07.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 26.07.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ1979. sem þarlend stjórnvöld geti engu ráðið um. Brauð á að hækka þar um 50%, bifreiðar um 20% og bensin og oliurum 30%. Áætlanir um að brauð og aðrar matvörur hækki í verði hafa legið í loftinu um langt árabil i Ungverja- landi. Brauð og brauðvörur hafa til dæmis verið seldar á sama verði síðan kommúnistar komust þar til valda upp úr lokum síðari heimsstyrjaldar. Hefur það verið framkvæmt með niðurgreiðslum úr opinberum sjóðum. Hefur það meðal annars haft þær afleiðingar oft á tíðum að ódýrara hefur verið fyrir bændur að fóðra svínin með brauði heldur en venju- legu fóðri. Þrátt fyrir þetta og aðra ókosd sem slíkar stórfelldar niður- greiðslur hafa í för með sér þá hefur þeim verið haldið áfram fram til þessa. Niðurfelling þeirra hefur verið talin svo pólitiskt hættuleg og vafa- samt skref að enginn hefur fengizt til aðstiga það. Ungverjaland er vegna nær algjörs skorts á ýmsum hráefnum dl iðnaðarframleiðslu og orkuvinnslu, sérlega viðkvæmt fyrir öllum verð- breytingum á alþjóðamörkuðum. Bæði Tékkóslóvakía og Ungverja- land fá nær alla olíu sína og bensín frá Sovétríkjunum vegna efnahags- samvrnnunnar i Efnahagsbandalagi Austur-Evrópuríkjanna COMEC- ON. Þrátt fyrir það hefur olíuverð þegar stigið innan bandalagsins og búizt er við að svo verði áfram ef svo fer sem allir hyggja, að oliuvörur hækkiá alþjóðamörkuðum. Fyrr á árum, þegar margir töldu” stöðugt verðlag einn af þeim kostum sem ríkisbúskapur eins og hann er meira og minna rekinn í Sovétríkjun- um og öðrum ríkjum í Austur-. Evrópu, hefðu slíkar verðhækkanir þótt stórtíðindum sæta. öllum þeim sem kynnt hafa sér málin og fylgzt með þróun þeirra er þó löngu orðið Ijóst að það að taka upp ríkissósíalisma að hætti Austur- Evrópuríkja tryggir engan veginn stöðugt verðlag. Þessi ríki eru háð þróun alheimsverðlagsmála. Sum Austur-Evrópuríki eru háðari henni en önnur. Alveg eins og i vestrænum ríkjum. TR0TZKY0G SÓSÍAUSMINN Þann 20. þessa mánaðar birtíst í Dagblaðinu grein eftir Ásgeir Daníelsson undir fyrirsögninni „Það sem frjálshyggjan og stalínisminn eiga sameiginlegt.” Þótt margt sé furðulegt í ritsmíð þessari, þá verður hér aðeins tekið fyrir eitt atriði úr henni, en það er að því er þar haldið' jfram, að tilvitnun í byltingar- foringjann Leon Trotzky í bók minni „Frjálshyggja og alræðishyggja”, bls. 87, sé í rauninni fölsuð, þvi að orðum og efni sé þannig vikið við, að slíkt gefi alranga mynd af því, sem hann raunverulega sagði. Þar sem ég tel þetta með öllu úr lausu lofti gripið, tel ég rétt að fara hér um þetta nokkrum orðum. Tilvitnunin í bók minni hljóðar svo: ,,í ríki, þar sem ríkið er eini atvinnuveitandinn, leiðir stjórnarandstaða til hægs 'hungurdauða. Gamla reglan: ,,Sá Isem ekki vinnur á ekki mat að fá,” víkur fyrir reglunni: ,,Sá sem ekki hlýðir fær ekki mat.” Heimild mín fyrir þessu er sú, að þessi orð Trotzkys eru notuð sem einkunnar- orð eða mottó fyrir kafla í bók iFriedrichs Hayek, „Leiðin til ánauðar” (The road to serfdom). Vitnar Hayek í blaðsiðutal og út- komuár bókar Trotzkys „Byltingin svikin”. Ég hefi ekki kannað þetta nánar, því að ég hugsaði sem svo að jafnvel ómerkilegur ritsnápur myndi ekki áræða, svo fremi hann væri heill á geðsmunum, að vitna í ákveðna blaðsíðu bókar, sem allir hefðu aðgang að, en segja svo allt annað en í tílvitnuninni stæði, hvað þá þegar heimskunnur vísindamaður á í hlut. Hin fyllri tilvitnun Ásgeirs í texta Trotzkys (að visu eftir sænski þýðingu) staðfestír að minum dómi fullkomlega, að mat mitt á þessu var rétt. En þýðing Ásgeirs á lengri til- vitnun í Trotzky hljóðar svo: „Þeir sem voru virkastir voru teknir hönd- um og kastað í fangelsi eða fanga- búðir. Hvað afganginn snertí, þá ráð- lagði Stalín í Pravda yfirvöldum í hverju héraði að útvega þeim ekki vinnu. í landi þar sem ríkið er eini atvinnurekandinn þýðir þetta hæg- fara hungurdauða. Það er búið að skipta á gömlu reglunni: „Sá sem ekki vinnur á ekki mat að fá,” og nýrri reglu: „Sá sem ekki hlýðir, fær eicki mat.” Skammirnar um Stalín eru óvið- komandi efni jjess kafla, sem Hayek velur þessi orð Trotzkys sem einkunnarorð fyrir og því óviðeig- andi að hafa þær með. Það, sem á eftir fer, er því umorðun með tilliti til þess, en án þess að um neina efnis- breytingu sé að ræða. Að „stjórnar- andstaða” kemur í staðinn fyrir „þetta” er engin efnisbreýtíng, þvi auðvitað er Trotzky hér að átelja meðferð Stalíns á andstæðingum sín- um. Nú segir Ásgeir að vísu sennilega svo: „Þetta er bæði rangt og villandi hjá prófessornum. Ummæli Trotzkys eru aðeins átölur á framkvæmd sósíalismans i Sovétríkjunum á valdatíma Stalíns. Ólafur, Hayek & co. draga hins vegar fjöður yfir þetta, en heimfæra þessi ummæli á sósíalismann almennt. Þetta er það, sem ég kalla fölsun.” En hér er að mínum dómi misst sjónar á því, sem ég tel kjarna þessa máls. Trotzky er hér að lýsa um- komuleysi einstaklingsins gagnvart rikisvaldinu í landi, þar sem rikið er eini atvinnurekandinn. Hann byggir þetta að vísu á reynslunni í Sovét- ríkjunum á valdatima Stalíns. En auðvitaö á það sama við alls staðar, þar sem því skilyrði er fullnægt, að ríkið er eini atvinnurekandinn. Annað væri rökleysa, sem sízt er á- stæða til að skrifa á reikning svo skarpgáfaðs manns sem Trotzky var. Af þessu dró Trotzky þá röicréttu ályktun, að í slíku þjóðfélagi gilti sú regla, að sá sem ekki hlýddi fengi ekki mat. Annað mál er svo hitt, hvort jafn- aðarmerki beri að setja milli lands, þar sem ríkið er eini atvinnurek- andinn, og sósíalisma. Það er allt háð þvi, hvaða skilningur er lagður í’ orðið sósíalismi. Ef Júgóslavía er til ^mmmm Kjallarinn Ólafur Bjömsson dæmis talin sósiaiiskt rfki, þá gildi þetta ekki. Þó að þar í landi sé vissu- lega einræði á stjórnmálasviðinu, þá er ríkið engan veginn alrátt á efna- hagssviðinu. Þar á sér stað veruleg valddreifing. Sama átti í raun við í Sovétríkjun- um á seinni hluta valdatíma Lenins, meðan Nep.-stefnunni svokölluðu var fylgt. Alræði rikisvaldsins i efna- hagsmálum kom fyrst til sögunnar með 5 ára áætlunum Stalíns. En þetta alræði í efnahagsmálum rikir ekki eingöngu i þeim löndum, sem telja sig sósialísk. Það sama á við i fasistaríkjunum, að minnsta kosti á styrjaldartimum. Jafnvel í löndum eins og Bretlandi og Bandarikjunum var efnahagsvaldið á árum heims- styrjaldarinnar síðari i þeim mæli samþjappað hjá ríkisvaldinu, að ekki var þá gott að standa uppi í hárinu á þeim, ef það beitti jsessu valdi gagn- vart andstæðingum. En ekki skal þessi hlið málsins rædd hér frekar. Ólafur Björnsson prófessor. NORSKUR „IMPERÍAUSMI” bolfiskurinn er ca. 10 sinnum verð- mætari en loðnan og jafngildir þetta því 50.000 tonnum af loönu. Ef meta á upp verðmætalega stöðu eftir við- ræðumar við Norðmenn og þá reynslu sem fyrir liggur um hlaup is- lenzku loðnunnar í átt til Jan Mayen og Norðmenn hefðu heimild til að taka þar 100.000 tonn af loðnu á ári væri hér um hámark að ræða fimmta hvert ár, svo að aflinn yrði þá 20.000 tonn á ári tíl jafnaðar. Nú hefur maður heyrt að það væri jafnvel enn- þá lengra milli þess er loðnan hleypur í átt til Jan Mayen, svo þá yrði dæmið ennþá óhagstæðara fyrir Norðmenn. En hvernig geta olíu- furstarnir norsku, sem fá gefins jafn- virði 50.000 tonna loðnu á ári í is- lenzkri efnahagslögsögu, ætlað að hrifsa til sín í viðbót við gjafirnar (ölmusuna) með óþokkabrögðum 20.000 tonn til viðbótar á ári? Þetta er svo furðuleg staða, að hún er ein- stakt fyrirbæri og á sér ekki hlið- stæðu í heiminum, þiggjandinn er með kúgunaraðgerðir og hótanir. Svona haga menn sér eingöngu, ef þeir álíta að þeir séu að eiga við litað fólk suður í Afríku fyrir 100 árum. En því miður er ýmislegt í samninga- sögu íslendinga á lýðveldistímanum sem flokkast undir þetta eins og þegar gengið var inn á þá kröfu Norðmanna í járnblendinu, að þeir, sem eru með 33% eignaraðild, skyldu fá neitunarvald. Enda lét misnotkun- in á þessu valdi ekki standa á sér, er þeir hækka orkuverðið 1 norsku olí- unni miskunnarlaust og verðið á is- lenzka rafurmagninu skal standa í stað. Þannig hagar sér eingöngu þjóð með nýlenduhugsunarhátt gagnvart kunnáttuminni og reynslusnauðari smáþjóð. Norska ímyndin í heiminum Norðmenn hafa gjarnan viljað að heimurinn liti á þá sem sérstaka sann- girnis- og frjálslyndisþjóð. Ut á þessa ímynd var Tryggve Lie skipaður fyrsti aðalframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna. Og það er ekki nóg fyrir Norðmenn að vera með pen- ingalega og tæknilega aðstoð viö van- þróaöar þjóðir, þegar þeir á sama tima beita öllum brögðum og ósann- girni við að reyna að hafa af smá- þjóðinni íslendingum og nálægum nágrönnum, að vísu með hvítan litar- hátt, allt það sem þeir geta. Það er kominn timi tíl að Norðmenn sýni snefil af stórmennsku í framkomu sinni gagnvart fslendingum. Gleggsta dæmið um lítilmennskuna kemur skýrt í ljós, þegar athuguð eru verð- mætín í 20.000 tonnum af loðnu á ári fyrir Norðmenn. Þeir voru nú um daginn á landaþeytingi með 2 ráð- herra og herflugvél til að tryggja sér 20.000 tonn af loðnu á ári. Vita menn aö 1 tonn af loðnu kostar sama og 2 karton af sígarettum? Maður skyldi halda að norskir ráðherrar hefðu annað að gera en að eltast við 40.000 sígarettukarton á ári alla leið vestur til íslands. Hvað kostaði eldsneytið á herflugvélina fram og til baka og kaupið á mannskapnum sem fylgdi? Að því frádregnu, hvað eru mörg sígarettukarton eftir? Nei, þegar Norðmenn ætla að plata sveitamann- inn þá verða þeir að finna því það form, að þeir verði ekki að viðundr- um sjálfir um leið. Norsku kratarnir eru heimsveldissinnarnir Skv. mjög ábyggilegum heimild- um, sem mér bárust með velþekktum norskum blaðamanni, liggur það fyrir að það eru norsku kratarnir, sem ekki virðast skilja tímatöfluna í samtíðinni viðvíkjandi landalegri út- þenslustefnu. Norðmenn rekur þó vist ennþá minni til, er ríki fullt hern- aðarmáttar árið 1940 rak útþenslu- stefnu gegn þeirra eigin landi og her- nam allan Noreg. Þar sem ekki eru 40 ár liðin frá þessum atburðum ætti þetta ennþá að vera í fersku minni. Það eru ekki nema 34 ár síðan Norð- menn losnuðu undan þessari út- þenslustefnu Þýzkalands, þótt heitið hafi að um stundarsakir hafi átt að vera. Það er því óskammfeilið og blátt áfram hjákátlegt og algjörlega afsökunarlaust að Norðmenn skuli ekki hafa, þegar samþykktírnar á Hafréttarráðstefnunni frá 1958 öðl- uðust alþjóðlegt lagagildi og fyrir lá að strandríkið öðlaðist eignarheimild til alls landgrunns, tilkynnt islenzku ríkisstjóminni, að Jan Mayen væri að sjálfsögðu hluti islenzka land- grunnsins og þar með íslenzk eign. En í þess stað kusu þeir að halda uppi sams konar útþenslustefnu og Þjóð- verjar beittu þá sjálfa 1940—1945. Eftir allt þeirra tal um kvislinga og kúgun nasistiskrar útþenslustefnu höfum við íslendingar sizt af öllu átt von á þvi i Norður-Evrópu, að 1 stað- inn fyrir þýzka útþenslu-nasista væru komnir útþenslu-Norðmenn. Það er rétt að minna á það hér og nú, að á íslandi var tekið á móti norskum mönnum í herþjónustu sem frændum og vinum, þótt þeir kæmu hér sem bandamenn Breta, þeirrar þjóðar sem hernam ísland og var á íslandi í nákvæmlega sömu stöðu og Þjóð- verjar í Noregi. Svo virðist að Norð- menn séu búnir að gleyma þessu eða hefur ef til vill alltaf verið fyrir ofan þeirra skilning. Það er blátt áfram þjóðamauðsyn Norðmanna að skila Jan Mayen til íslendinga, ef þeir á annað borð vilja láta taka mark á sér og söguskoðun sinni í 2. heimsstyrjöldinni. Annars 7yppta menn einfaldlega öxlum og segja, hernám Noregs, þýzk út- þenslustefna, sjáið þið norsku út- þenslustefnuna, Svalbarði, Austur- Grænland og Jan Mayen. Þýzka her- námsliðið er á brott frá Noregi, en Norðmenn halda ennþá í hluta is- lenzka landgrunnsins á Jan Mayen. Prófsteinn á íslenzka pólitíkusa Það er óþarfi að fara yfir sögu samninga íslands við erlendar þjóðir á undanfömum áratugum. Sú hörm- ungarsaga er íslenzku þjóðinni nægjanlega kunn. En það sló mig nokkuð illa, þegar á því þinginu, sem samþykkti aö íslendingar ættu að halda einarðlega á málum sínum gagnvart Jan Mayen, skyldu vera samþykkt lög, þar sem landgrunn ís- lands er takmarkað við 200 mílur og talað um samninga við aðrar þjóðir þar fyrir utan, þegar fyrir liggur að landgrunn tslands nær langt út fyrir 200 mílur samktæmt alþjóðalögum. Hefði verið nokkru vitmeira að hafa orðalagið, „landgrunn íslands nær eins langt út og alþjóðalög frekast heimila”. Ef til samninga þyrfti að koma, sjá allir, hversu samnings- staðan er miklu sterkari, þegar is- lenzk lög stoppa ekki við 200 mílur. Annars er hér um landaréttindi að ræða, sem hafa verið takmörkuð með lögum og því brjóta þessi lög sennilega í berhögg við stjórnarskrár- ákvæði. En, að þessi lög skuli hafa farið athugasemdalitið gegnum Al- þingi, sýnir bezt, hvers konar stimpl- unarskrifstofa Alþingi er orðið í þinglok. En því hvílir ennþá meiri ábyrgð á þeim mönnum sem með þessi mál fara nú. Þingmenn Norð- lendinga og Austurlands verða að standa saman sem einn maður, því það það er fyrst og fremst um at- vinnulegt athafnasvæði þessara fjórðunga hér að ræða í framtíðinni. Hætt er við því, að þeir þingmenn frá þessum fjórðungum sem ekki standa fast á rétti íslendinga og kröfunni til Jan Mayen, fái lítinn trúnað kjós- enda og máttu sumir lítið missa sið- ast, þótt ágætir gáfu- og dugnaðar- menn séu. Lokaorð Það er landfræðileg staðreynd, að Jan Mayen er hluti islenzka land- grunnsins, sem í formi smáeyjar fer upp fyrir yfirborð sjávar. Það er al- þjóðleg lagaleg staðreynd, að strand- rikið á landgrunnið og það takmark- ast ekki viö 200 mílur heldur nýt- ingarmörk. Það er staðreynd, að ef Norðmenn ætla ekki að drýgja óaft- urkallanlega sögulega synd gagnvart tslendingum og söguskoðun sjálfra sin ber þeim að afhenda íslendingum þann hluta íslenzka landgrunnsins, sem þeir hafa gert tílraun til að slá eign sinni á. Að þetta verði gert er forsenda þess, að skynsamlegasta stjórnun á veiðum íslenzka loðnu- stofnsins takist og þar með verði tryggður einn hornsteinn íslenzkra efnahagsmála og sjálfstæðis. Pétur Guðjónsson, form. Félags áhugamanna um sjávarútvegsmál. /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.