Dagblaðið - 26.07.1979, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLf 1979.
13
3ttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
skellur
timótinu
Staðaní A-riðli:
FH
Fram
Vikingur
Stjarnan
Þróttur
B-riðill
Haukar
ÍR
KR
Ármann
Valur
2 2 0 0 52—36 4
2 2 0 0 56—47 4
2 1 0 1 45—48 2
10 0 1 18—26 0
3 0 0 3 71—85 0
2 2 0 0 53 —41 4
3 2 0 1 70—72 4
2 1 0 1 43—38 2
1 0 0 1 15—22 0
2 0 0 2 42—50 0
Næstu leikir eru í kvöld en þá leika kl. 18.45
Fram og Njarðvík í kvennaflokki og að þeim leik
loknum leika Haukar og Ármann í B-riðlinum.
Kl. 21 leika síðan gestgjafarnir, FH, við Stjörn-
una og aetti FH að vinna öruggan sigur í þeim
leik.
Fstá Akureyriídag
Föstud. 27. kl. 16.00
Knattspyrna
Randers-Vásterás.
Föstud. 27. kl. 19.30
Knattspyrna
KA-Feyenoord (gestaleikur),
Laugard. 28. kl. 14.00
Frjálsaríþróttir, 12greinar.
Laugard. 28. kl. 16.00
Knattspyrna
Akureyri-Randers.
Á laugardagskvöld býður bæjarstjórn Akur-
eyrar öllum þátttakendum til kvöldverðar í
Skiðahótelinu þar sem verðlaun verða afhent. Á
sunnudag fara þátttakendur siðan í skoðunar-
ferð austur í Mývatrissveit (Kröflu) og að Laxá.
Vikinga 1 gærkvöld. DB-mynd S.
fíirök-
urstaða
röttarogVíkings
þrengdur af sóknarmönnum Þróttar og var of
seinn að átta sig. Sannarlega ódýrt mark.
í síðari hálfleik skipti alveg um. Þróttarar
virtust hreinlega hafa misst allan móð! Líkt
og í leiknum gegn Val virtust þeir ekki trúa þvi
að þeir gætu unnið. Það var heppni þeirra að
Víkingsliðið var ekki sterkara en raun bar vitni.
Lárus Guðmundsson gerði þó oft mikinn usla í
vörn Þróttar í hálfleiknum og hann átti allan
heiðurinn af jöfnunarmarkinu á 22. mínútu.
Hann hafði þó leikið vel á varnarmenn Þróttar
og sloppið alveg upp að endamörkum. Þaðan
sendi hann boltann vel út í teiginn til Heimis
Karlssonar, sem sendi boltann til Óskars Þor-
steinssonar, nýliða sem var í dauðafæri við
hægri markstöngina og honum brást .ei boga-
listin. Fátt markvert gerðist í hálfleiknum þótt
Víkingar væru mun ágengari. Lárus Guðmunds-
son, Víkingurinn ungi, var bezti maður vallarins
án þess að sýna nokkurn stórleik.*í lið Vikings
vantaði Sigurlás Þorleifsson og Ragnar Gíslason
sem voru í leikbanni.
-GAJ-
Pétur Pétursson.
„Þetta var miklu betra”
—sagði Pétur Pétursson ef tir leikinn í gær
—Feyenoord leikur í méti með Liverpool
„Þctta var allt annað hjá okkur núna
heldur en í gærgegn Skaganum,” sagði
Pétur Pétursson er DB hitti hann að
máli eftir leikinn. „Við vorum miklu
afslappaðri en í gær og satt bezt að
segja held ég að flugferðin til Islands
hafi eitthvað setið í mönnum þótt það
sé að sjálfsögðu cngin afsökun fyrir lé-
legum leik — liðið á að vera vant slíku
frá sífelldum ferðalögum um Evrópu
þvera og endilanga.”
Hvað kom til að liðið afþakkaði
skoðunarferðina sem var á dagskrá í
dag? ,,Það er geysilega strangur agi hér
hjá okkur á þessum keppnisferðalögum
og við högum okkur eftir fyrirfram
ákveðnu prógrammi og það er hvergi
vikið frá því.”
Hvað tekur við hjá ykkur eftir þessa
ferð hingað? „Við förum og keppum á
móti hjá Schalke 04 í Þýzkalandi á
næstunni og síðan er mót hjá okkur í
iRotterdam en leiktímabilið hefst 18.
ágúst, þannig að við fáum aðeins eins
dags frí eftir ferðina hingað,” sagði
Pétur ennfremur en nú þyrptust að
honum unglingar í Eyjum og vildu fá
eiginhandaráritanir. Ágangurinn var
svo mikill að blm. sá þann kost
vænstan að forða sér. Margir krakk-
anna komu með 100 krónu seðla og
létu Pétur skrifa á þá, sem hann gerði
án þess að vísa nokkrum frá. Mátti sjá
sumar ungu dömurnar svífa í burtu í
sæluvímu með nafnið hans Péturs á
100-krónu seðli í höndunum.
Þau lið sem leika með Feyenoord í
mótinu hjá Schalke 04 eru Liverpool og
Benfica auk Feyenoord og Schalke.
Liðin sem leika á móti Feyenoord eru
síðan Ipswich, Molenbeek og PSV
Eindhoven.
r-