Dagblaðið - 26.07.1979, Side 23

Dagblaðið - 26.07.1979, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÍJLÍ1979. 8 ■ ■ ■ ■ ■ B BÆJARINS BEZTU Stutt kynningá því athyglis- verðasta sem kvikmyndahús borgarinnar sýna DÆMDUR SAKLAUS Leikstjóri: Arthur Penn, gerð í Bandarflcjunum 1966. Sýningarstaflur Stjömubíó |Nú hefur Stjörnubíó fylgt í kjölfar Austurbæjarbíós og tekið til endursýningar stórmynd af eldri gerðinni. Handritið skrifaði Lillian Kellerman, þótt hún afneitaði afkvæminu síðar. Leikstjórn er í höndum Arthur Penn en hann er þekktastur fyrir myndir sínar jMickey One, Bonnie and Clyde, Little Big Man og The Missouri ÍBreaks. Fjöldi þekktra leikara kemur fram í myndinni eins og Jane . iFond, Robert' Redford og Angie Dickson. Þó er það Marlon Brando sem stelur senunni. Myndin gerist í litlum bæ í Texas og ;fjallar um kynþáttafordóma, stéttaskiptingu og valdabaráttu. jStrokufangi kemur til heimabæjar síns. Hann er grunaður um að jhafa framið morð á flóttanum og bæjarbúar ákveða að taka lögin í Isinar hendur. En lögreglustjórinn er ekki á sama máli, svo til átaka 'kemur. Looking for Mr. Goodbar Leik.tjóri: Rlchard Brooks, gsrfl (Bandsrhiunum 1977 Isýnlngarstafiur Háakólabló Myndin gerist 1975. Theresa Dunn, sem er ein þriggja dætra heit- trúaðrar katólskrar fjölskyldu er að ljúka háskólanámi sínu. Hún 'flytur að heiman enda oft misvindasamt á heimilinu og fær sér vinnu sem kennari daufdumbra barna. En Theresu vantar einhverja fyllingu í lifið. Hún reynir að leita hennar á vlnstúkum í nágrenni' heimilis sins og stofnar þar til skammvinnra kynna við karlkyns gesti vínstúkunnar. En þetta reynist afdrifaríkt i lokin. Looking for’ Mr. Goodbar hefur hlotið góða dóma. Deane Keaton fer með hlut- verk Theresu og ferst þaö vel úr hendi. Dádýrabaninn LeBcstjóri: Michael Cimino, gerfl í Bandarflcjunum 1978. Sýningarstaflur. Ragnboginn Fáar myndir hafa hlotið meira umtal undanfarin ár en Dádýraban- inn. Þótt allir séu ekki á einu máli um ágæti myndarinnar þá hefur' hún fengið fjölda verðlauna og endurvakið umræöurnar um Víet- namstríðið. Myndin fjatlar um þrjá vinnufélaga sem eru sendir til: Víetnam. Þeir eru teknir þar til fanga af Vietcong og ganga í gegn- um ýmsar andlegai* og líkamlegar hörmungar. Þeim tekst að flýja' ;n fangavist þeirra hafði gert þá meira eða minna að andlegum krypplingum. Michael Cimino er ekki alger nýliði í kvikmyndagerð.j Hann á að baki m.a. handritin að myndunum Silent Running og Magnum Force auk þess sem hann leikstýrði Clint Eastwood mynd- inni Thunderbolt and Lightfoot. OFSI Laik.tJÓH: Brian Da Paima, garfi (Bandarikjunum 1979. Sýnignarataður Nýja Bió. Brian De Palma hefur á undanförnum árum eignazt stóran aðdá- endahóp hér á landi. Fyrst var það með myndinni Systurnar (The Sisters), síðan með Paradísaróvættinum (The Phantom of the Para- dise) og síðast en ekki sist með Carrie. í myndinni Ofsi (The Fury); heldur Brian De Palma sig viö hughrif líkt og í Carrie, en teygir nú | lopann enn meira. Handritið er ótrúlega gloppótt og tekur langan tíma að átta sig á hvað er um að vera. Samt sem áður á Brian De Palma góða spretti og mörg atriðin eru mjög vel útfærð sem hroll- vekja. En miðað við hæfileika þásem Brian De Palma hefur sýnt þá er ekki því að neita að áhorfandinn hefur á tilfinningunni að hann sé að sóa þeim. Leikur er þokkanlegur en þó ber Amy Irving af í einu aðalhlutverkanna. ELVIS! ELVlSl Lufitatjfiri: Kay Potocfc, gsrfi (S«9>Jfifl 1977. Sýningantafiur. HáskóUbið s.m mánudagsmynd. Myndin Elvis! EIvis! er byggð á bók sænska rithöfundarins Mariá Grijje og fjallar um 8 ára gamlan dreng scm ber heitið Elvis' Karlson. Móðir hans, sem er enn einlægur Elvis Presley aðdáandi, skirði drenginn i höfuðið á átrúnaðargoði sinu. Elvis á við mörg vandamál að striða. Hann á erfitt með að umgangast jafnaldra sina, fær oft martraðir og vantar ástúð móður sinnar sem virðist oft bera meiri umhyggju fyrir Presley en syninum. Hér er á ferðinnii skemmtilcgt innlegg til barnaársins. Þótt myndin sé ekki fyrir böm þá lýsir hún mjög vel vandamálum og viðhorfi barnsins á næman máta, án þess þó að vera meö óþarfa predikanir. Það sem gerir: myndina einslifandi og raun ber vilni er frábær leikur Elvis og vin- konuhans. Lesendur eru hvattir til afl senda kvik- myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-' hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik- myndaiðnaðinrt. Heimilisfangið er: Kvik- myndir. Daablaðifl, Síðumúla 12, Rvk. c 23 Utvarp Sjónvarp LEIKRIT VIKUNNAR—útvarp kl. 20,10: ÁSTINOG Helga Þ. Stephensen fer með hlutverk Mari. Þorsteinn Gunnarsson fer með hlutverk Hans. sænskur leikritahöfundur, fæddur 1937. Hann skrifaði sín fyrstu sviösverk rúmlega tvítugur og vakti þegar athygli. Árið 1964 kom fyrsta út- varpsleikrit hans, Ást er nauðsyn, og síðan hafa þó nokkur verk eftir hann heyrzt 1 sænska útvarpinu. í minningu vorsins ’68, var flutt þar haustið 1978. ödeen er blaðamaður.við leikhústímaritið Entré og hefur ritað þar mikið um hlutverk leikritahöfunda i nútimaþjóöfélagi. Leikritið hefst kl. 20,10 og tekur það um eina klukkustund I flutningi. BYLTINGIN Leikrit vikunnar er að þessu sinni í minningu vorsins ’68 eftir Mats Ödeen í þýðingu Torfeyjar Steinsdóttur. Leikstjóri er Stefán Baldursson en með aðalhlutverk fara Þorsteinn Gunnarsson og Helga Þ. Stephensen. Leikritið segir frá hjónunum Hans og Mari, sem bæði eru um þritugt. Þau eru vel menntuð og í góðu starfi og eiga einadóttur. Þó kemur að því að Mari verður ást- fangin af manni sem hefur byltingu að atvinnu. Hún giftist honum og flytur með honum til Norrland, en verður síðan ljóst að leiðir þeirra liggja ekki saman. Leikritið gerist árið 1968 þegar miklar umbyltingar urðu á stjómmála- sviðinu og eins ollu þær líka róti í hugum fólks. Höfundurinn Mats ödeen er Þessi mynd var tekin þegar eldgos hófst f Heklu 1947, en um það er fjallað f þættinum f kvöld. Utvarpkl. 22,00: A ferð um /ancf/ð Á ferð um landið nefnist þáttur sem er á dagskrá.útvarpsins í kvöld kl. 22,00 og er þetta fjórði þáttur í umsjá Tómasar Einarssonar. „Þetta er svona samtíningur um myndun Heklu og afleiðingar af eld- gosum,” sagði Tómas í samtali við DB „og verður m.a. rætt við Sigurð Þórarinsson, jarðfræðing. Ennfremur V____________________________________ verður rætt við Ingvar Teitsson, lækni, en hann er fróður um gönguleiðir á Heklu og hefur leiðbeint fjölda ferða- manna. Lesið verður úr þjóðsögum um fjall-, ið eða tengdar þvi. Þá lesið úr ferðabók Sveins Pálssonar og úr ferðabók sem nefnist Til Heklu og er hún eftir Svíann Engström. Einnig verður lesið úr þekktri bók um ísland sem skrifuð var um 1600 og er eftir Dithmar Blefken. í þeirri bók er margt furðulegt eftir Blefken haft,” sagði Tómas. Lesari með Tómasi í þættinum er Snorri Jónsson. Þátturinn er um hálfar klukkustundar langur. -ELA ________________________________;

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.