Dagblaðið - 20.08.1979, Side 1
5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 20. ÁGUST1979 — 188. TBL. tC RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
peacemenn I Höldum áfram
“ I gefumst ekki upp
„Handtaka okkar og varðhald um
borð í Rainbow Warrior eru gersam-
lega ólöglegt athæfi. Við höfum ekki
verið kærðir, enda er barátta okkar
fyrir hvalafriðun á alþjóðlegu haf-
svæði réttmæt og lögleg. Við munum
halda áfram baráttunni. Við gefumst
aldrei upp,” sögðu Greenpeacemenn
um borð í skipi sínu í Reykjavíkur-
Loðnuveiðamar
byrjuðu
ámiðnstti:
veiðarfaerin
blotnuðu
Laust upp úr kl. 8 í morgun
höfðu 12 loðnubátar þegar til-
kynnt Loðnunefnd um fullfermi
og að þeir væru á leið til lands
eftir að loðnuveiðarnar byrjuðu á
miðnætti sl. Hinir 19 bátarnir
sem komnir eru af stað eru á svip-
uðum slóðum þannig að vænta
má mun meiri aflafregna í dag.
Afli bátanna 12 er 7.400 tonn og
verður honum landað á svæðinu
fráEyjafirði til Reykjaneshafna.
Verksmiðjurnar vilja yfirleitt
taka fremur lítið magn til að
byrja með, eða þar til ljóst er
hvernig hráefni er á ferðinni og
hver vinnsluhraði getur orðið.
Miðin eru nú á hinum ákjósanleg-
asta staö miðað við árstíma, eða
djúpt út af Halanum, milli Vest-
fjarða og Grænlands.
höfn í gærkvöldi. Varðskip kom með
þá í togi af hvalamiðum, þar sem þeir
höfðu truflað veiðar Hvals 7. tímun-
um saman. ,,Við neituðum að sigla í
land með eigin vélarafli og því tóku
þeir okkurítog.”
Um borð í Rainbow Warrior eru
lögreglumenn og DB-mönnum var
meinað að koma um borð. Meira að
segja Greenpeacemönnum bannað að
afhenda DB handskrifað blað með
boðskap grænfriðunga. Sögðu lög-
reglumenn það fyrirmæli yfirvalda.
Greenpeacemönnum var greinilega
heitt i hamsi og kunnu illa varðhald-
inu um borð í skipi sínu. Enga upp-
gjöf var að heyra á þeim, enda fundu
þeir fyrir vaxandi samúð íslendinga
með málstað Greenpeace. Sást það
bezt á mannfjöldanum sem fylgdist
með komu skipanna til Reýkájvíkur.
„Það er skylda okkar og réttur að
vera hér. Við erum fulltrúar vaxandi
almennignsálits í heiminum. Við
látum ekki slátra dýrum sem við
eigum öll,” sögðu félagarnir í Rain-
bow Warrior. - ARH
— Sjá einnig bls. 26
Með verði laganna yfir höfðunum lásu
Greenpeacemenn nokkur velvalin orð um
samskipti sín við Landhelgisgæzluna yfir
blaðamönnum. Lögreglan bannaði þeim að
afhenda DB blaðsnifsið sem grænfriðungur-
inn heldur á. John Castle skipstjóri er lengst
til vinstri.
DB-mynd Árni Páll
ALÞJÓÐLEGUR TITILL
í HÖFN HJÁ JÓNIL
— setur nú stef nuna á ef sta sætið í mótinu
Jón L. Árnason hefur að öllum lík-
indum þegar tryggt sér alþjóðlegan
meistaratitil á skákmótinu í Polancia
Zdrój í Póllandi þótt tveimur um-
ferðum sé enn ólokið. Jón hefur 7
vinninga og biðskák sem er sennilega
unnin. Hann þarf 8 vinninga til að
hljóta titilinn.
í 10. umferðgerði Jón jafntefii við
stórmeistarann Spassow frá
Búlgaríu. í 11. umferð gerði hann
jafntefli við annan stórmeistara,
Farago frá Ungverjalandi. í 12.
umferð sigraði hann Krusinski, Pól-
landi, og í gær tefldi hann við
Borkovski, Póllandi. Skák þeirra fór
í bið en skákin er líklega unnin fyrir
Jón.
Rússin Razuvaen er efstur á mót-
inu með 9 vinninga. Silic, Tékkóskól-
vakíu hefur 8,5 v. Landi hans Jansa
er með 8 v., Farago og Jezyk, Pól-
landi hafa 7,5 v. Jón kemur síðan
með7 og biðskák.
Jón á eftir að tefla við efsta mann
mótsins og stórmeistarann Knaak frá
A-Þýzkalandi.
Að sögn Ásgeirs bróður Jóns mun
Jón leggja allt í sölurnar í skák sinni
við Razuvaen og freista að ná efsta
sætinu á mótinu enda engu að tapa
þar sem alþjóðlegi titillinn er þegar i
höfn ef að líkum lætur.
Vegna hinnar frábæru frammi-
stöðu Jóns í mótinu hafa Pólverjar
nú boðið honum að taka þátt í öðru
stórmeistaramóti sem hefst í borginni
Slupsz strax að loknu þessu móti.
Ætlar Jón að þekkjast það boð þar
sem ekki verður af skákmóti í Hol-
landi sem honum hafði verið boðið á.
-GAJ/ÁÞÁ, Polancia Zdrój.
m ■ >
Jón L. Árnason stefnir á efsta sætið i
mótinu í Póllandi.
DB-mynd: Bj.Bj.
:
Eivind Bolle, sjávarútvegsráðherra Noregs:
„Getum og viljum
ekki stöðva
loðnuveiðamar”
—f agnar „íslenzkum stuðningi” við 200 mflna
Iðgsögu við Jan Mayen!
„Við drögum þá ályktun af við- ráðherrans. Vildi Bolle ómögulega
ræðum okkar við Islendinga að ræða frekar hvaða forsendur væru
ykkar menn skilji mæta vel sjónar- fyrir slíkum vangaveltum. „Nei, við
mið Noregs að færa fiskveiðilögsög- getum og viljum ekki reyna að stöðva
una við Jan Mayen út i 200 mílur,” ioðnuveiðamar við Jan Mayen,”
sagðir Eivind Bolle, sjávarútvegsráð- sagði ráðherrann ennfremur. „Engin
herra Norðmanna, við DB í morgun. stoð finnst i norskum lögum sem rétt-
1 viðtali íslenzka sjónvarpsins við lætir slikt veiðibann. Enda hefur ekki
Bolle í gærkvöldi fagnaði hann sér- verið samið um loðnukvóta á svæð-
stakiega því sem hann taldi vera inu. Ég held aðáframhaldandi veiðar
„stuðning islenzkra stjórnvalda við muni ekki spilla væntanlegum samn-
200 mílur við Jan Mayen.” Urðu ingaviðræðum við íslenzk sljórn-
margir hvumsa við þá yfirlýsingu völd.” -ARH.
Drukknaði í kirkjugarði - sjá bis. 8