Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.08.1979, Qupperneq 3

Dagblaðið - 20.08.1979, Qupperneq 3
DAGBLAðSx MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979. Læknirinn tók of mik- ■A — máekkiveraaiþvíaðkynna iu i ynr viuuiiiu Spurning dagsins Áttu inniskó? Sjúklingur kom að máli við blaðið: Ég hef verið sjúklingur í mörg ár og haft mikil samskipti við lækna og lyfsala. Hingað til hef ég ekki hugsað um hvað mér hefur verið gert að greiða fyrir læknisþjónustu og lyf. Tilviljun réði þvi að ég kannaði rétt- mæti gjaldsins sem heimilislæknirinn minn tók af mér fyrir viðtal. Það sem í Ijós kom á erindi til fleiri. Því bið ég blaðið að birta þetta. Fyrir stuttu fór ég í viðtal til heimilislæknisins. Hann sagði fyrst að ég ætti að borga 50 krónur fyrir það. Þegar mér fannst verðið ánægjulega lágt, flýtti hann sér að segja: ,,Nei, fyrirgefðu, þetta kostar 500 krónur.” Það fannst mér hins vegar furðu mikið, en borgaði samt. Ég fór aftur til sama læknis skömmu siðar og þá kostaði viðtalið 400 krónur! Þá fór mér að finnast málið einkennilegt og fékk verðskrá Trygg- ingastofnunarinnar yfir læknaþjón- ustu. Kom þar fram að viðtalið á að kosta 350 krónur. Ég lét heimilis- lækninn lesa verðskrána, en hann fór að hlæja og sagðist ekkert mega vera að þvi að kynna sér plögg Trygginga- stofnunar um verð á þjónustu hans! Mér var nóg boðið og ætla að fá ann- an heimilislækni. Til að aðrir geti glöggvað sig á verðinu, vil ég að DB birti skrána. Ég á von á því að ein- hver brögð séu að því að læknar taki of hátt fyrir viðtöl. Eftirfarandi 3 reglugerðir tóku gildi 20. april 1979: 1. Greiðsluhluti sjúklings til sam- lagslæknis (heilsugæzlulæknis) hækkar úr kr. 250 í kr. 350 fyrir við- tal og úr kr. 500 í kr. 700 fyrir vitjun. 2. Greiðsluhluti sjúklings fyrir sér- fræðilæknishjálp, rannsókn á rann- sóknarstofu og röntgengreiningu hækkar úr kr. 600 í kr. 2000. 3. Greiðsluhluti samlagsmanna af hverri afgreiðslu hækkar úr kr. 325 í kr. 750 og skv. lyfjaverðskrá II (sér- lyf) úr kr. 650 í kr. 2000. Tryggingastofnun gefur út reglugerðir um gjaldskrá fyrir læknisþjónustu. Heim- ilislæknirinn umræddi var of upptekinn til að kynna sér hana. Varágangiá Hafnarskeiði: Sýslu- maður- inn vildi skýr- ingu Útgerðarmaður í Þorlákshöfn kom að máli við DB og sagði farir sinar ekki sléttar. Föstudaginn 3ja ágúst var ég staddur á Hafnarskeiði skammt frá Þorlákshöfn. Kemur þá til mín maður með kiki og spyr um ferðir mínar. Ég svaraði því til að honum kæmi það bókstaflega ekkert við. Mér væri frjálst að vera þarna án þess að gera grein fyrir mínum at- höfnum. Dregur hann þá upp skír- teini og segist vera veiðieftirlits- maður. Hann hélt þvi fram að ég væri með eitthvað óhreint í poka- horninu, stundaði líklega veiðiþjófn- að eða álíka ólöglega iðju. Ekkert gat maðurinn þó rökstutt áburð sinn. Við þvörguðum góða stund, en síðan skildu leiðir. Nokkru síðar var hringt til mín og spurt hvort ég hefði verið í tilteknum bil á Hafnarskeiði á ákveðnu kvöldi. Reyndist svo vera. Skömmu síðar var ég boðaður á fund fulltrúa sýslumanns á Selfossi. Hann tók af mér skýrslu vegna „óformlegr- ar kæru” sem borizt hafði á mig. Ekkert afrit fékk ég af kærunni og ekkert kom fram hjá yfirvaldinu sem gaf tilefni til yfirheyrslunnar. Fulltrú- inn sagði að stranglega væri bannað að veiða silung og lax í sjó í landi Þorlákshafnar. Það hefur samt aldrei verið auglýst sérstaklega, að mér vit- andi, til að borgararnir séu meðvit- aðir um það. Hvernig sem á því stendur eru yfirvöld ekki eins fljót að bregða við, eftir því hver á i hlut. Mér er kunnugt um að menn sem teknir voru við veiðiþjófnað á þessum slóðum hafa ekki fengið kæru fyrir verknaðinn. Ég fékk kæru í hvelli, gersamlega að tilefnislausu, og yfir- valdið var strax komið af stað í yfir- heyrslu! Þetta eru ofsóknir á hendur mér. Ég get ekki sætt mig við svona lagað. í vetur kærði ég eyðileggingu veiðarfæra báts míns til sýslumanns. Ekki hefur heyrzt orð frá honum um málið. Samt eiga siík mál að njóta forgangs. Stöðumælar íolestri Borgari hringdi: Eg og örugglega margir fleiri eru á þeirri skoðun að borgaryfirvöld eigi að taka stöðumælana í Reykjavik rækilega í gegn strax. Ástand margra stöðumæla er i hreinum ólestri. Nægir að benda á að glerið á fjöldan- um öllum af mælum er skítugt og því erfitt að lesa á þá. VEM 1 Electropower GIRMOTORAR RAFMÓTORAR EIGUM JAFNAN TIL GÍRMÓTORA: Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4 - 1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö RAFMÓTORA: 1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö Útvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir. FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Asrún Gisladóttir nemi: Nei, enga. Ég þarf ekki að eiga inniskó, ég geng alllaf á sokkunum heima. Sigurður Bragi Cuðmundsson verk- stjóri: Já, og ég geng alltaf i þeim heima. Inniskórnir mínir eru nýtízku klossar. Sigurður Steingrímsson, undirmaður Braga: Nei, ég á enga inniskó. Hef ekk- ert við þá að gera, geng alltaf á sokkun- um heima. Sigrún Guðmundsdóttir afgreiðsiu- maður: Nei, ég á alla vega skó en enga sérstaka inniskó. Anna Hreinsdóttir uppeldisfutllrúi: Já, ég á íslenzka loðna inniskó, sem eru mjög góðir. Rúnar Marvinsson matreiðslumaður: Nci, enga, mér finnst bezt að ganga á sokkunum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.