Dagblaðið - 20.08.1979, Side 4

Dagblaðið - 20.08.1979, Side 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979. DB á ne ytendamarkaði Merking lagmetis í bágbomu ástandi: Framleiðsludagurinn ekki runninn upp Einhverjum þætti gott að fá 7 þúsund kr.fyrir kg af lituðum uf sa í rannsókn Heilbrigðiseftirlits ríkisins á niðurlögðu og niðursoðnu lagmeti á markaðnum í Reykjavík kom i Ijós að merkingu matvæla er mjög ábótavant. Merking innflutts lagmetis er bein- linis ólögleg. í reglugerð nr. 250/76 um tilbúning og dreifingu matvæla segir að merkingarnar skuli vera á ís- lenzku. — Ekki nóg með að innflutt lagmeti sé merkt á erlendri tungu, heldur er einnig á boðstólum hér á landi innlent lagmeti sem er með er- lendum merkingum. Og ofan á allt þetta bætist svo að merking á innlendu lagmeti getur beinlínis verið röng. Framleiðsludagurinn ekki enn runninn upp Við rákumst á dós af sjólaxi. Dósin er framleidd af Eldeyjarrækjunni sf. Keflavík. Ofan á dósinni var prent- aður miði sem á stóð að innihaldið væri framleitt 30/8 1979. Dósin var keypt 16. ágúst, þannig að framleiðsludagurinn var enn langt undan. Á dósamiðanum stóð einnig að sið- asti notkunardagur sé 29.2. 1980. Fróðlegt væri að vita hvort það sé jafnrétt og upplýsingarnar um fram- leiðsludaginn. Kannske eru báðar dagsetningarnar aðeins út í bláinn, aðeins settar þarna til þess að upp- fylla reglugerðarákvæði. Enn fleira var athugavert við þenn- 'an prentaða merkimiða. Hann var límdur ofan á lok dósarinnar en með það lélegu lími að hann datt fljótlega af eftir að hún var keypt. Við bárum þetta undir Þórhall Halldórsson, forstöðumann Heil- brigðiscftirlits Reykjavíkur, og var hann á sama máli að þessi merking væri út i hött. Þegar niðurlagðar eða niðursoðn- ar vörur eru merktar með fram- leiðsludegi á að gera það á þann hátt að dagsetning er þrykkt i dósina, Soðin ýsa: SKAMMTURINN 280 KR. Á MANN í dag skulum við borða soðna ýsu. Þegar matreiða á ýsuna þannig er hentugra að kaupa hana í heilu lagi, það er hausaða, eins og það er kallað, frekar en að kaupa flök. Fiskurinn verður miklu bragðbetri auk þess sem flökin eru dýrari. Kg af hausaðri ýsu kostar nú 490 kr., en kg af flökum kostar 890 kr. Að m'su þarf minna af flökum heldur en heilli ýsu í máltíð- ina. í matreiðslubókum er gert ráð fyrir 400 g af fiski með beini, þannig að handa fjórum þurfum við 1,6 kg af ýsu, sem kostar 784 kr., við reiknum með 200 g af kartöflum á mann eða 800 g, sem kosta 164 kr. og 100 g af smjöri út á fiskinn. Þetta kostar mjög nálægt 1129 kr. eða 282 kr. á mann. Ef venjulegt smjörliki er notað í stað smjörsins kostar hver skammtur í kringum 250 kr. á mann. - A.Bj. Vöru-og brauðperangar-Vöruávísanir Peningaseðlar og mynt Gömul umslög og póstkort FRIMERKI Allt fyrir safnarann Hjá Magna Laugavegi 15 Sínri 23011 SKYNDIMYNMR Vandaðar litmyndir i öll skírteini. barna&fjölsk/ldu- Ijosmyndir AUSTURSTRÆTI 6 SIMI 12644 þannig að ekki fari milli mála hvaða dagsetning á við hvaða dós. Niðurlagt lagmeti á að hafa 6 mán- aða geymsluþoi við —4°C. Niður- soðið lagmeti getur hins vegar haft allt að árs geymsluþol og jafnvel lengur. — Matvæli hafa mismunandi geymsluþol og á það einnig við um niðursoðnar matvörur. Eitt af því sem kom i Ijós í rannsókn Heil- brigðiseftirlitsins var einmitt að framleiðsludagsetningar vantar á lag- metisframleiðsluna. En jafnvel þótt framleiðsludagurinn væri merktur á dósirnar væri samt illt að átta sig á hlutunum, því ekki er hægt að greina á milli þess sem er niðurlagt og þess sem er niðursoðið. Annars eru umbúðir innlendu lag- metisframleiðslunnar orðnar mjög smekklegar og efnainnihald víða tekið fram. Að vísu er notuð erlend tunga utan á sjólax-dósinni, þó stendur þar á íslenzku að hún skuli geymd í kæli. Á límmiðanum sem datt ofan af henni eru allar upplýs- ingaráíslenzku. - A.Bj. Þegar við opnuðum dósina fannst okkur frekar lítið af sjólaxi i henni. Utan á henni stóð hins vegar að nettó vigt væri 170 g. Sjólaxinn var veginn fyrir okkur hjá Matvælaeftirliti ríkisins og reyndist hann 53,2 g. Olian hefur þvi verið 116,8 g. Dósin kostaði 387 kr. Það þætti iiklega einhverjum gott verð að fá 7.274,44 kr. fyrir kg af lituðum ufsa! ' DB-mynd Ragnar Th. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvað köstar heimllishaldið? Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Kostnaðurí júlímánuði 1979. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. m YIKIX Fjöldi heimilisfólks

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.